Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 38

Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 PállJónsson * Isafírði — Minning Fæddur 27. nóvember 1908 Dáinn 22. júli 1987 Við andlát Páls mágs míns vill hugurinn reika yfir farinn veg og staldra við einstök atvik á vörðuð- um vegi minninganna. Páil fæddist á ísafírði 27. nóvember 1908, sonur þeirra merkishjóna Jóns Hróbjartssonar kennara og listamanns og konu hans Rann- veigar Samúelsdóttur. Var Páll elstur ^ögurra systkyna en systur hans þijár voru Sigríður, Guðrún og Herdís. Sigríður er nú látin en Guðrún og Herdís lifa bróður sinn, önnur búsett í Minnesota, en hin hér á landi. Páll bjó fyrstu 45 &x ævi sinnar á ísafírði og lagði þar gjörva hönd á mörg störf, sem öll fórust honum vel úr hendi. Ungur að aldri réðist hann til starfa hjá Kaupféiagi ísfírðinga. Hjá kaup- félaginu starfaði hann við verslun- arstörf. Hann varð fyrstur manna til að hefja gluggaútstillingar í verslunum félagsins. Vöktu þær athygli fyrir fagurt handbragð, enda Páll listfengur með afbrigð- um, svo sem hann átti kyn til. Kaupfélagið hafði með höndum umboð fyrir Viðtækjaverslun ríkisins. Sá Páll um þessa þjón- ustu og annaðist allar útvarpsvið- gerðir á ísafírði um langt árabil. Kaupfélagið hafði einnig með höndum afgreiðslu fyrir Flugfélag íslands á fsafírði og tók Páll að sér að annast öll afgreiðslustörf fyrir Flugfélagið. Flugið átti hug Páls allan, enda varð raunin sú, að hann starfaði að flugmálum eingöngu allan seinni helming starfsævi sinnar. í skemmtilegri grein, sem Páll skrifaði um sögu flugsins á ísafirði, kemur fram, að áhugi hans á flugi kviknaði þegar við fermingaraldur, þegar „Súlan“ kom fyrst til Ísaíjarðar árið 1922. Páll tók nnög virkan þátt í bæjarlífinu á ísafírði og naut þar vinsælda. Hann hafði unun af góðri tónlist og studdi þau mál vel í sínum heimabæ. Hann hafði mikinn áhuga á skíða- íþróttinni og varð einn af framá- mönnum í Skíðafélagi ísafjarðar. Páll hannaði skíðaskála á Seija- landsdal og átti jafnframt virkan þátt í byggingu hússins. Þetta var veglegt hús og fallegt, en eyði- lagðist því miður í snjóflóði nokkrum árum síðar. Páll fluttist til Reykjavíkur árið 1953 og tók þá til starfa hjá Flugfélagi ís- lands, en þar vann hann alla tíð síðan þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Vann hann fyrst og fremst við flugvélamálun á vegum félagsins og sá lengi vel einn um það verkefni. Páll þótti með eindæmum fær og vandvirk- ur við starf sitt. Hann fór margar ferðir til Danmerkur og Hollands til að kjmna sér nýjungar í starfí sínu og var vel metinn af kollegum erlendis. Hann teiknaði og málaði í mörg ár öll merki á flugvélum Flugfélagsins og naut þar þeirrar listfengi, sem honum var svo ríku- lega í blóð borin. Auk þess annaðist hann skiltagerð og við- hald á húseignum félagsins, bæði hér í höfuðborginni og út um allt land. Hann var hamhleypa til vinnu. Páll var bamgóður maður með afbrigðum, enda átti hann hug ungu kynslóðarinnar allan í fjöl- skyldunni hveiju sinni. Þau eru ekki fá brúðuhúsin, bamavagn- amir, dúkkurúmin, hjólbörumar og þríhjólin, sem Páll smíðaði handa ungviðinu, allt listilega gert, lakkað, flúrað og skreytt. Og alltaf var til sælgæti í poka- hominu fyrir litlar hendur og munna. Við sem fullorðin vomm fómm heldur ekki varhluta af ósérhlífni og rausnarskap Páls. Ómetanleg var aðstoð hans við unga fólkið hveiju sinni. Þegar lagt var í að koma sér upp hús- næði var gott að eiga einhvem að til að sjá um lökkun og frá- gang á eldhúsinnréttingum og öðm í þeim dúr. Páll fékk heilablóðfall árið 1960 og lamaðist þá að vemlegu leyti á hægri hendi. Ekki lét hann þetta á sig fá, heldur tók þegar til við að þjálfa upp vinstri hendina tii að vinna það listahandbragð, sem sú hægri hafði áður gert, og með þrautseigju og seiglu tókst honum þetta, svo með ólíkindum var, þó kominn væri fram á sextugsaldur. Kveðjuorð: Sigríður Magnús- dóttir frá Flögu Fædd 1. nóvember 1924 Dáin 13. júlí 1987 Fréttin, sem barst mér .til eyma að morgni hins 13.júlí sl. að Sigríð- ur Magnúsdóttir, frænka mín frá Flögu í Villingaholtshreppi hefði orðið bráðkvödd á heimili sínu þá um nóttina, snerti mig og fjölskyldu mína djúpt. Sigga í Flögu, eins og hún var alltaf kölluð á mínu heim- ili, markar spor í minninguna fyrir svo margra hluta sakir. Allt frá því ég var smástrákur á Skólavöllum var Sigga nábúi okkar og átti svo oft leið milli lóðanna í þeim tilgangi að kíkja inn til að spjalla við mömmu og pabba og fá sér kaffi- sopa. Alltaf merkti ég glettni í viðmóti hennar, sem situr föst í minningunni. Sigga frænka var hress í tali og oft svo skemmtilega hispurslaus en þó án alls ábyrgðar- leysis. Þegar skólaganga mín hófst Qarri heimili heyrði ég að frænka mín á Sólvöllunum hafði alltaf áhuga á því sem var að gerast í lífí ungs manns og spurðist fyrir. í minningunni vekur það visst þakk- læti. Frændræknin var Siggu í blóð borin og þannig tengsl eru ávallt öðruvísi og einlægari vinskapur en margur annar. Þegar Sigga er kvödd á besta aldri vekja þessar minningar allar óþægilegar spum- íingar um dauðann og hvemig hann er alltaf annar þegar vinur eða ættingi kveður en einhver sem er manni fjær að tengslum. Þegar vin- ur kveður birtist dauðinn sem kaldur raunveruleiki sem minnir á staðreyndina sem enginn getur breytt, hið eina vísa sem gefið er við fæðingu hvers manns. „Dáinn, horfinn, harmafregn" sagði skáldið og þessi orð fínnst mér tjá vel þá tilfínningu sem gerir vart við sig þegar dauðinn vitjar einhvers sem er manni kær. Það er því ekkert undarlegt þegar þannig er litið á málið hvers vegna boðskapurinn um sigur Guðs yfir þessu illa afli, sem dauðinn er í eðli sfnu, skiptir okkur svo miklu máli. Krossdauði frelsarans, hámark birtingar hins illa, var gerður að engu að morgni hins þriðja dags, upprisudagsins mikla og í krafti þess sigurs öðlumst við mátt til að halda áffarn í von um eilíft líf sem dauðinn fær ekki bundið enda á. Lífið okkar hlýtur að bera því vitni að þessi sigur skiptir okkur máli. í þakklæti til Guðs er okkur ætlað að lifa og starfa meðal bræðra okk- ar og systra og miðla kærleika og umhyggju til þeirra sem þess þurfa með. Þar brást frænka mín frá Flögu ekki. Guð gefur okkur marga eiginleika og þeir sem í minning- unni einkenndu frænku mína voru ósérhlífni, viljaþrek og dugnaður. Hún var alltaf trú þeirri köllun sinni að vera húsmóðir, heimili hennar og umhverfi báru og munu bera þess glöggt vitni. En eitt er það öðru fremur sem vekur þakklæti í garð Siggu í Flögu og veldur því að mér er ljúft að skrifa þessi fá- tæklegu minningarorð. Fyrir nokkrum árum veiktist móðir mín og nú fyrir rúmu ári einn- ig faðir minn og þá fann ég hve gott var að eiga frænku sem virtist búa yfir þeirri þolinmæði og tryggð að hún lét ekki oft erfíða og beiska lund sjúklinga á sig fá, heldur hélt sínu striki, hoppaði innfyrir þrösk- uldinn létt og kát í þeim tilgangi að varpa áhyggjum og kvíða af öðrum og tókst það. Þar miðlaði Sigga frænka af sjóði sem er dýr- mætur og við hin getum lært af. Á kveðjustundu er mér og fjölskyldu minni allri mikið þakklæti í huga vegna þessa. Að öllum öðrum ólö- stuðum virðist Sigga sigla þessa leið af meira öryggi en við hin. Á kveðjustundu eigum við að minnast hins góða og fagra því það styrkir okkur og leiðir í sorginni. Lífið er fullt af skini og skúrum en hið góða í minningunni hjálpar okk- ur að muna að lífíð er sterkara dauðanum. í von og trú sigrumst við á sorginni og mótlætinu því al- góður Guð yfírgefur okkur aldrei. Hann er okkur næstur þegar við þörfnumst hans mest. Sigga frænka var borin til mold- ar frá Selfosskirkju laugardaginn 18. júlí sl. og á sorgarstundu sendi ég Gísla frænda mínum frá Kols- holti, manni Siggu, bömum þeirra þrem, Stínu, Gauja og Rabba fjöl- skyldum þeirra og öllum sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls frænku minnar innilegar samúðar- kveðjur mínar og fjölskyldu minnar sem ávallt mun varðveita minningu góðrar vinkonu. Munum það ávallt að það var dauðinn sem dó, lífíð lifír að eilífu. Haraldur M. Kristjánsson Eftir að Páll fluttist til Reykjavík- ur átti hann heimili hjá móðursyst- ur sinni, Bjameyju Samúelsdóttur hjúkmnarkonu, þar til hann flutt- ist á dvalarheimilið Hrafnistu fyrir tveimur ámm. Páll átti við vaxandi vanheilsu að stríða síðustu árin, en hann bar veikindi sín með stöku æðm- leysi. Nú er þeim þrautum lokið. Með þessum orðum kveð ég Pál mág minn. Ég þakka honum sam- fylgdina og góðsemina í minn garð og minnar fjölskyldu allrar. Gunnar Biering Tæplega 60 ára kynnum okkar Páls lauk er hann lést miðviku- dagsmorguninn 22. júlí. Við Páll hittumst fyrst snemma árs 1928 er undirritaður kom til ísafjarðar sem strákur á e/s Óðni, fyrsta varðskipinu semm byggt var fyrir íslendinga. Páll var þá þegar kunningi nokkurra piltanna á skipinu. Ég varð fljótt aðili að þessum kunningsskap. Auðvitað var umgangurinn ekki mikill því mótin vora aðeins þegar Óðinn kom til ísafjarðar. Árin liðu og ég varð stýrimaður á flutninga- skipinu e/s Heklu. Það skip kom oft til ísafjarðar að taka saltfísk eða þá til að losa salt eða kol, þá gat viðstaðan orðið nokkrir dagar. Það var á Hekluámm mínum sem Páll var formaður Skíðafélags ís- fírðinga og þá jafnframt aðal driffjöðrin í því að byggja fyrsta skíðaskála Isfirðinga. Við Fáll upplifðum að eyða saman tveim skíðavikum á meðan ég var stýri- maður á e/s Heklu. Um þær mundir sem þetta var hafði Páll með höndum afgreiðslu flugvéla Flugfélags íslands á ísafírði fyrir hönd kaupfélagsins. Páll þekkti því öðmm betur til byijunarraun- anna við afgreiðslu flugvélanna liggjandi við dufl skammt frá fjö- mnni við Bæjarbryggjuna. Páll þjónaði þeim flugmönnum Sigurði Jónssyni, Agnari Kofoed-Hansen og Emi Johnson. Mat hann þá alla mikils en mér er nær að halda að Öm hafí á stundum skyggt dálítið á sólina. Páll fluttist búferlum til Reykjavíkur 1953 og gerðist þá starfsmaður Flugfélags íslands. Aðalstarf Páls hjá FI varð að sjá um málningu á flugvélum og öðr- um eignum FÍ vítt og breitt um landið. Einhver breyting varð á starfí Páls við sameininguna í Flugleiðir. Páll var starfsmaður FÍ og Flugleiða til 1978 er hann varð sjötugur. Óbeinn starfstími Páls hjá FI var þó ein 18 ár til viðbótar sem afgreiðslumaður á ísafírði. Samanlagður starfstími Páls við flugið hafa því verið nærri 43 ár. Á meðann heilsan entist sótti hann mjög út á Reykjavíkurflugvöll á hið gamla yfírráðasvæði FÍ. Síðustu tvö og hálft ár hefur Páll verið vistmaður á Hrafnistu, þar af rúmt hálft ár á sjúkradeild. Heiður sé því ágæta starfsfólki sem leggur metnað sinn í að hlynna að þeim sem minna mega sín. Páll hittir áreiðanlega fyrir vini í varpa á landi eilífðarinnar. Fari hann í friði. Við hjónin sendum aðstandend- um Páls innilegar samúðarkveðj- ur. Ingólfur Möller Kveðjuorð: Oskar Valdi- marsson Höfii Fæddur 26. júlí 1918 Dáinn 13. júlí 1987 Hér er kvaddur Óskar Valdi- marsson móðurbróðir minn, sem lést á Landspítalanum eftir langa og erfíða sjúkdómslegu. Það var undravert hvað hann gat lengi bar- ist gegn þessum ógnvekjandi sjúkdómi sem heijar svo hart að mannkyninu í dag. Óskar var fæddur á Streiti í Breiðdal, sonur Valdimars Bjama- sonar og Kristínar Kristjánsdóttur sem flest sín búskaparár bjuggu á Fáskrúðsfírði, þar sem Óskar ólst upp elstur af átta systkinum. Óskar fór snemma að vinna eins og þá var títt. Árið 1939 var farið að þrengjast um hópinn í litla húsinu hans afa á Sjónarhóli, þá var ákveð- ið að revna að kaupa stærra, og kom þá Öskar til hjálpar sem oftar þó ungur væri, og lánaði þá upphæð sem upp á vantaði í útborgun í Laufás, sem var mun stærra hús. Þaðan á ég ljúfar minningar í faðmi afa og ömmu og frændsystkina minna. Skömmu seinna kynnist hann heilladísinni sinni, Maren Júlíus- dóttur, og hefja þau búskap á Fáskrúðsfírði í leiguhúsnæði, en frændi minn var stórhuga og hóf byggingu á stóm tveggja hæða húsi, Sólbrekku, í næsta nágrenni við Laufás. Þar búa þau í nokkur ár en flytja þá til Hafnar í Homa- fírði, sennilega vegna þess að styttra var á fengsæl fiskimið og þar átti konan hans sínar rætur. Þar byggði Óskar húsið þeirra á Bogaslóð 14, þar sem þau bjuggu alla tfð sfðan. Ég á góðar minningar um þessi elskulegu hjón, og í mínu minni man ég ekki eftir að hafa séð jafn fallega ástfangin hjón í gegnum öll þeirra samveruár. Við systkini mín og móðir okkar heitin, sem var þriðja í röðinni af sínum systkinum, fylgdumst vel með fréttum í útvarpinu af Óskari á Gissuri hvíta sem fengsælum og heppnum sæfara og vomm að von- um afskaplega stolt af honum. Hann var traustur og góður maður. Ekki vissi ég fyrr en nú siðustu ár að Óskar var góður hag- yrðingur, þar var farið dult með sem og fleiri náðargáfur. Ég læt hér fylgja ljóð sem hann orti til þeirrar byggðar sem hann tók mestu ást- fóstri við. Séð af Almannaskarði Horfi ég á þig Homafjörður hátt af brattri fjallabrún, listaverk af Guði gjörður gnSin engi, akrar, tún. Eyjakrans um fjörðinn flýtur, pllin prýða jökullín, ekki víða auga lítur yndislegri fjallasýn. Fari frændi minn f friði. Blessun fylgi þér Maja mín, dætmnum og fjölskyldum þeirra um ókomna tíð. Gunný Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.