Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 43
43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
arfari þeirra sem eyjaskeggja eru
sagðir líkjast því sem hér gerist.
Þeir hafa vfst eins og við mikla
þörf fyrir að komast út fyrir eyjuna
þó stór sé og skoða sig um á meg-
inlandi Evrópu og í Bandaríkjunum
og eru sagðir miklu óformlegri, en
þjóð nýlenduherranna, Bretamir.
Ástralir ganga í samskonar fot-
um, borða hliðstæða fæðu og kaupa
mörg þau sömu vörumerki og við
hér á þessu litla skeri í Norður-
höfum eigum völ á. Þannig er
munurinn í raun minni en við
ímyndum okkur fyrirfram.
Og hjörtunum svipar jafnt saman
á íslandi og Ástralíu sem í Súdan
og á Grímsnesinu.
Höfiindur er bankastarfsmaður í
Reykjavík.
Leiðrétting. — í 4. grein Matthild-
ar Björnsdóttur frá Ástralíu (Mbl.
18. júlí) féllu því miður niður orð í
tveimur setningum og breyttist við
það merking þeirra. í 3ja dálki á
bls. 39 átti að standa: „En við erum
að nálgast landamæri Victoriu og
Suður-Astralíu. Þangað má ekki
koma með ferska ávexti frá öðrum
svæðum vegna sérstakrar flugna-
tegundar sem ber smit.“ — Þá átti
að standa í 1. dálki á bls. 40: „Og
fjöllin sem jörðin í árdaga þrýsti
upp í fellingum eru ekki mjög há.“
Dagurinn leið fljótt í þessum
gróðurríka dýragarði.
Þessir síðustu dagar voru fljótir
að líða og nú leið að lokum þessar-
ar miklu ferðar. Það var erfitt að
yfírgefa gestgjafann og sól og sum-
ar til að hverfa inn í íslenskt
skammdegi.
Að ferðalokum
Ferðin heim gekk hratt við það
að vera stöðugt að flýta klukkunni.
Heimleiðin var sú sama, en nú fékk
ég aðeins meiri tíma í Bangkok. I
Singapore hafði ég rétt tíma til að
koma frá komustað til brottfarar-
herbergis, en meiri tíma til að lesa,
sofa og nærast um borð í flugvél-
inni. Sumir horfðu á kvikmynd sem
sýnd var, en mér fannst meira
freistandi að reyna að hverfa á vit
drauma og reyna að jafna mig af
söknuðinum við að yfírgefa Astr-
alíu.
Að loknu slíku ferðalagi kemur
margt í hugann. Hugtakið fjarlægð
hefur fengið afstæða meiningu. Það
getur tekið nokkra tugi klukku-
stunda að ferðast hér milli lands-
hluta innanlands. Það er milli
tuttugu og fímm til þrjátíu tíma
flug milli þessara heimsálfa. Það
tekur ekki nema þijá tíma eða svo
að komast til Skandinavíu eins og
það tekur að aka t.d. upp í Borgar-
§örð og þannig mætti lengi telja.
Rósir og kamelíur gleðja augað.
Bréf á milli þessara tveggja póla
heims, íslands og Ástralíu, geta
borist á aðeins einni viku þegar
bréf getur verið allt að því jafn lengi
milli landshluta hér innanlands.
Sjóndeildarhringurinn víkkar og
heimurinn minnkar við að koma til
svo fjarlægrar heimsálfu. Við höf-
um oft mjög óraunverulegar
hugmyndir um það hvemig hlutir
og lífshættir séu í fjarlægum heims-
álfum og okkur hættir til að vera
með ótrúlega sleggjudóma fyrir-
fram varðandi þá.
Það að ferðast á þann hátt sem
við Malcolm gerðum færir mann
eins nálægt kjama menningar þjóð-
ar og hægt er á stuttum tíma.
Að sjá hvemig þjóðin umgengst
landið sitt. Það fannst mér lær-
dómsríkt og hugsaði til okkar
íslendinga þegar við svífumst einsk-
is að ganga yfír hvað sem er bara
ef við getum stytt okkur leið. Slíkur
hugsunarháttur gengur ekki þar.
Að koma inn á heimili fólksins sem
byggir landið og að fínna viðmót
þess gefur manni mikið ásamt því
að kynnast blæbrigðamun siða milli
þjóða, sem er mjög áhugavert og
lærdómsríkt.
Ég fann fyrir sama framandleika
í forvitni og viðmóti fólks í Ástralíu
þegar það vissi hvaðan ég kom og
hjá mörgum Islendingum hér heima
þegar þeir þeir vissu hvert ég ætl-
aði. Þannig svipar okkur saman
hvorum megin jarðarhvels sem við
erum. Og að mörgu leyti svipar
okkur íslendingum ekki síst til Ástr-
ala sem eru vestrænir, en þó á sinn
suðræna hátt. Ýmsir þættir í lund-
Kaimtu
ajð búa tU
gomsæta
griUsósu?
Þú þarft ekkert að kunna í matar-
gerð til þess.
Þú opnar dós af sýrðum rjóma,
kíkir inn í eldhússkápana, notar
hugmyndaflugið og velur eitthvað
girnilegt, td. grænmeti eða krydd,
sem þú blandar út í sýrða rjómann.
Arangurinn kemur bæði þér og
þínum þægilega á óvart!
I E
||
Þú þekkir nafnið!
Kokkteilsósa ... en með sýrðum
rjóma.
Taktu mælieiningarnar ekki of alvarlega.
I dós sýrður rjómi
3 msk Heinz eða Libb/s tómatsósa
Vi-1 tsk sætt sinnep.
Blandaðu öllu saman og berðu fram
með kjúklingum, pylsum, frönskum
kartöflum eða glóðuðum fiski.
Fleiri tillögur birtast á næstunni