Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 43

Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 43
43 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 arfari þeirra sem eyjaskeggja eru sagðir líkjast því sem hér gerist. Þeir hafa vfst eins og við mikla þörf fyrir að komast út fyrir eyjuna þó stór sé og skoða sig um á meg- inlandi Evrópu og í Bandaríkjunum og eru sagðir miklu óformlegri, en þjóð nýlenduherranna, Bretamir. Ástralir ganga í samskonar fot- um, borða hliðstæða fæðu og kaupa mörg þau sömu vörumerki og við hér á þessu litla skeri í Norður- höfum eigum völ á. Þannig er munurinn í raun minni en við ímyndum okkur fyrirfram. Og hjörtunum svipar jafnt saman á íslandi og Ástralíu sem í Súdan og á Grímsnesinu. Höfiindur er bankastarfsmaður í Reykjavík. Leiðrétting. — í 4. grein Matthild- ar Björnsdóttur frá Ástralíu (Mbl. 18. júlí) féllu því miður niður orð í tveimur setningum og breyttist við það merking þeirra. í 3ja dálki á bls. 39 átti að standa: „En við erum að nálgast landamæri Victoriu og Suður-Astralíu. Þangað má ekki koma með ferska ávexti frá öðrum svæðum vegna sérstakrar flugna- tegundar sem ber smit.“ — Þá átti að standa í 1. dálki á bls. 40: „Og fjöllin sem jörðin í árdaga þrýsti upp í fellingum eru ekki mjög há.“ Dagurinn leið fljótt í þessum gróðurríka dýragarði. Þessir síðustu dagar voru fljótir að líða og nú leið að lokum þessar- ar miklu ferðar. Það var erfitt að yfírgefa gestgjafann og sól og sum- ar til að hverfa inn í íslenskt skammdegi. Að ferðalokum Ferðin heim gekk hratt við það að vera stöðugt að flýta klukkunni. Heimleiðin var sú sama, en nú fékk ég aðeins meiri tíma í Bangkok. I Singapore hafði ég rétt tíma til að koma frá komustað til brottfarar- herbergis, en meiri tíma til að lesa, sofa og nærast um borð í flugvél- inni. Sumir horfðu á kvikmynd sem sýnd var, en mér fannst meira freistandi að reyna að hverfa á vit drauma og reyna að jafna mig af söknuðinum við að yfírgefa Astr- alíu. Að loknu slíku ferðalagi kemur margt í hugann. Hugtakið fjarlægð hefur fengið afstæða meiningu. Það getur tekið nokkra tugi klukku- stunda að ferðast hér milli lands- hluta innanlands. Það er milli tuttugu og fímm til þrjátíu tíma flug milli þessara heimsálfa. Það tekur ekki nema þijá tíma eða svo að komast til Skandinavíu eins og það tekur að aka t.d. upp í Borgar- §örð og þannig mætti lengi telja. Rósir og kamelíur gleðja augað. Bréf á milli þessara tveggja póla heims, íslands og Ástralíu, geta borist á aðeins einni viku þegar bréf getur verið allt að því jafn lengi milli landshluta hér innanlands. Sjóndeildarhringurinn víkkar og heimurinn minnkar við að koma til svo fjarlægrar heimsálfu. Við höf- um oft mjög óraunverulegar hugmyndir um það hvemig hlutir og lífshættir séu í fjarlægum heims- álfum og okkur hættir til að vera með ótrúlega sleggjudóma fyrir- fram varðandi þá. Það að ferðast á þann hátt sem við Malcolm gerðum færir mann eins nálægt kjama menningar þjóð- ar og hægt er á stuttum tíma. Að sjá hvemig þjóðin umgengst landið sitt. Það fannst mér lær- dómsríkt og hugsaði til okkar íslendinga þegar við svífumst einsk- is að ganga yfír hvað sem er bara ef við getum stytt okkur leið. Slíkur hugsunarháttur gengur ekki þar. Að koma inn á heimili fólksins sem byggir landið og að fínna viðmót þess gefur manni mikið ásamt því að kynnast blæbrigðamun siða milli þjóða, sem er mjög áhugavert og lærdómsríkt. Ég fann fyrir sama framandleika í forvitni og viðmóti fólks í Ástralíu þegar það vissi hvaðan ég kom og hjá mörgum Islendingum hér heima þegar þeir þeir vissu hvert ég ætl- aði. Þannig svipar okkur saman hvorum megin jarðarhvels sem við erum. Og að mörgu leyti svipar okkur íslendingum ekki síst til Ástr- ala sem eru vestrænir, en þó á sinn suðræna hátt. Ýmsir þættir í lund- Kaimtu ajð búa tU gomsæta griUsósu? Þú þarft ekkert að kunna í matar- gerð til þess. Þú opnar dós af sýrðum rjóma, kíkir inn í eldhússkápana, notar hugmyndaflugið og velur eitthvað girnilegt, td. grænmeti eða krydd, sem þú blandar út í sýrða rjómann. Arangurinn kemur bæði þér og þínum þægilega á óvart! I E || Þú þekkir nafnið! Kokkteilsósa ... en með sýrðum rjóma. Taktu mælieiningarnar ekki of alvarlega. I dós sýrður rjómi 3 msk Heinz eða Libb/s tómatsósa Vi-1 tsk sætt sinnep. Blandaðu öllu saman og berðu fram með kjúklingum, pylsum, frönskum kartöflum eða glóðuðum fiski. Fleiri tillögur birtast á næstunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.