Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
45
Asgeir Bjarna-
son — Kveðjuorð
Sú sorgarfrétt að Ásgeir Bjama-
son hefði dáið barst hingað stuttu
eftir andlát hans. Fyrir nokkrum
vikum er ég var í stuttri heimsókn
á Islandi töluðum við saman og þá
var ljóst að hann átti í erfíðri bar-
áttu við krabbamein. Ásgeir var þó
bjartsýnn á að hann myndi sigrast
á þessum erfiðleikum. Sú bjartsýni
og athafnasemi einkenndi hann.
Við vorum frændur, Ásgeir var
sonur Bjarna Þorsteinssonar Jóns-
sonar jámsmiðs á Vesturgötunni,
en Bjarni Þorsteinsson var einn
stofnenda Vélsmiðjunnar Héðins í
Reykjavík.
Ég minnist þess sem bam við
leik á Landakotstúni að hafa alltaf
verið velkomin á heimili þeirra Ás-
geirs og Kristínar Vilhjálmsdóttur
á Ægisgötu 27. Ásgeir var frænd-
rækinn og hélt sambandi við
frænkur sínar á Vesturgötu og
Ægisgötu jafnt og fjölskyldu víða
í Reykjavík og annarsstaðar á Is-
landi og erlendis.
Vinsemd Ásgeirs og hans fjöl-
skyldu við Áma Sveinbjömsson
teiknistofustjóra Landssímans var
dæmi _um hugulsemi þeirra. Og
þegar Árni eltist fýlgdist Ásgeir enn
betur með högum vinar síns. Hann
gerði það sem hann gat til þess að
færi vel um þennan sérstaka íjöl-
skylduvin.
Þó Ásgeir hafi haft mörg áhuga-
mál þá held ég að hann hafi verið
stoltastur af starfi sínu sem stjórn-
andi á framkvæmdum á Landsspít-
alalóð. Þar hafði hann yfirumsjón
með byggingarframkvæmdum. Ás-
geir naut þess að vera óháður
pólitískum áhrifum í starfí og vann
þarna gott starf.
Fyrir u.þ.b. 30 árum flutti fjöl-
skylda mín til Bandaríkjanna.
Ásgeir hélt alltaf sambandi við okk-
ur. Hann var viljugur að skrifa og
skrifaði mjög skemmtileg bréf. Eins
sendi hann skeyti á hátíðum og
hringdi oft þegar það varð auðveld-
ara. Ásgeir gat alltaf sett skemmti-
legan blæ á fréttir að heiman.
Enginn hefur verið mér hjálplegri
en Ásgeir við að reka mín erindi á
íslandi. Hann var einstaklega greið-
vikinn og afgreiddi mál bæði fljótt
og vel.
Það er mikil eftirsjá í Ásgeiri
Bjamasyni. Ævi hans var of stutt.
Öll gætum við bætt okkur með að
taka hans dugnað, bjartsýni og
hjálpsemi sem fyrirmynd.
Þorsteinn Þorsteinsson
Guðmundur Öli
*
Olason - Kveðja
Fæddur 1. febrúar 1941
Dáinn 18. júlí 1987
Lýstu þeim héðan
er lokast brá,
heilaga guðsmóðir
himninum frá.
(Stefán frá Hvítadal.)
Það er alltaf svo um okkur flesta,
að þegar við heyrum andlát góðs
félaga og vinar, þá setur okkur
hljóða og hugurinn leitar til baka.
Þannig var okkur innanbijósts
gömlum vinnufélögum úr ísafold
við snöggt fráfall Guðmundar Óla
Ólasonar, prentara.
Óli, eins og hann var kallaður
af okkur vinnufélögunum daglega,
var fæddur á Isafirði 1. febrúar
1941. Faðir hans var Óli Kjartans-
son sjómaður, er fórst með línuveið-
aranum Pétursey í mars 1941, og
var Óli þvi aðeins rúmlega mánað-
argamall þegar hann missti föður
sinn. Móðir hans er Málfríður Guð-
mundsdóttir frá Flateyri.
Óli hóf prentnám í setningu i
ísafoldarprentsmiðju 1957 og lauk
námi 1961. Það kom fljótt í ljós
þegar þessi 16 ára gamli piltur hóf
nám í Isafold, að hann var mörgum
góðum hæfileikum búinn. Kom það
best í ljós að námi loknu er hann
hóf vinnu við vélsetningu og er
ekki á neinn hallað þó sagt sé að
hann var með færustu vélsetjurum
stéttarinnar. Þess má geta að þegar
ísafold keypti Monotype-setningar-
og steypuvél fyrir lausaletur þá var
Blömastofa
Friófinm
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavfk. Sfmi 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
|| 'A
hann sendur ásamt öðrum á nám-
skeið í Englandi í meðferð þeirra
véla. Eftir heimkmuna hóf hann
vinnu við Monotype-setningarvél-
ina, þar á meðal við ýmis verk fyrir
Handritastofnun íslands sem kröfð-
ust mikillar vandvirkni.
Óli var mjög félagslyndur maður
og sérstaklega góður vinnufélagi.
Hann var tónlistarunnandi, lék
sjálfur á hljóðfæri, og spilaði með
hljómsveit á yngri árum. Einnig var
hann félagi í Karlakór Reykjavíkur,
og söng með kómum í rnörg ár.
Síðustu 12 árin átti Óli við van-
heilsu að stríða.
Eftirlifandi konu hans, Sigríði
Snorradóttur, dætrum og öðrum
aðstandendum, vottum við innilega
samúð.
Brynjúlfur Jónsson
og Torfi Ólafsson
Lregsteinar
ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
t
Systir okkar,
LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR BARELLA,
lést þann 21. þessa mánaðar í sjúkrahúsi í Californiu.
Bálför hefur farið fram.
Fjóla Guðmundsdóttir,
Þórarinn Guðmundsson,
Einar Leó Guðmundsson,
Friðrik Arthúr Guðmundsson.
t
Einlægar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður míns, tengdafööur, bróður og afa,
GÍSLA ÞORSTEINSSONAR
frá Laufási,
Vestmannaeyjum,
Gísli Már Gíslason, Sigrún Valbergsdóttir,
barnabörn og systkinin frá Laufási.
Lokað
í dag frá kl. 13.00-15.00 vegna jarðarfarar SKÚLA
INGVARSSONAR.
Bókaverslunin Veda,
Kópavogi.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
AÐALHEIÐUR KONRÁÐSDÓTTIR,
frá Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriöjudaginn 28. júlí,
kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Samband ís-
lenskra Kristniboðsfélaga.
Gunnar og Konráð Sigurðarsynir,
Herdís Karlsdóttir, Ágústa Álfsdóttir.
t ■
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTA JÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Anna S. Lúðvíksdóttir, Ólafur Tryggvason,
Ingibjörg Lúðvíksdóttir, Gunnar Olafsson,
Þorvaldur Lúðvíksson, Ásdís Ólafsdóttur,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Jarðarför móður minnar,
BERGÞÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR,
frá Seyðisfirði,
sem andaðist 21. júlí sl., fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudag-
inn 29. júlí kl. 10.30.
Blóm og kransar eru afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hinn-
ar látnu er bent á Seyöisfjaröarkirkju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Nina Jónsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
FRIÐRIK KRISTJÁN SIGFÚSSON
yfirtollvörður,
Miðgarði 18,
Keflavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 29. júlí kl. 15.00.
Kristin Sigurbjörnsdóttir,
Alma K. Friðriksdóttir, Jón A. Snæland,
Kristín G. Jónsdóttir,
Friðrik K. Jónsson,
Sigurbjörn A. Jónsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR INGÓLFUR KRISTÓFERSSON,
frá Gíslabæ,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miövikudaginn 29. júlí kl.
13.30.
Hermann Gunnarsson,
Sigvaldi Gunnarsson,
Hjálmar Gunnarsson,
Kristófer Gunnarsson,
Magnea Gunnarsdóttir,
Einar Sigurðsson,
Hinrik Eiríksson,
barnabörn
Gréta Bjarnadóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Guðrún Melsted,
Aldís Sigurðardóttir,
Siguröur Gunnarsson,
Sigurvin Gunnarsson,
Kristfn Jónsdóttir,
barnabarnabörn.
og
t
Jarðarför eiginmanns mins, föður, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTJÁNS FRIÐRIKS HELGASONAR,
Munkaþverárstræti 14,
fer fram frá Akureyrarkirkju miövikudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Vilborg Guðjónsdóttir,
börn og fjöiskyldur þeirra.
Útför
t
PÁLS JÓNSSONAR
frá Ísafirði,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 28. júli, kl. 13.30.
Bjarney Samúelsdóttir,
Herdís Jónsdóttir Biering,
Guðrún Jónsdóttir Björnson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
REYNIS GUÐMUNDSSONAR
bónda,
Nýja-Bæ.
Ólöf Guðbrandsdóttir,
Guðbrandur Reynisson,
Kristinn Reynisson,
Kristín Sveinbjarnardóttir.