Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 46

Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 Kóngafólk í kúrekastíl Hertogahjónin af York eru al- deilis v ígaleg þar sem þau setja upp kúrakahatta sem þeim voru gefnir á kúrekasýningu í Kanada, en þau eru þar í opinberri heimsókn. Þau Andrew og Sara áttu eins árs brúðkaupsafmæli þennan dag og er ekki annnað að sjá en þau séu bæði samrýmt og hamingjusamt par, þrátt fyrir ill- kvittnar Gróusögur um sundurlyndi þeirra hjóna. Sara og Andrew kunna greinilega vel við sig í fullum kúreka- skrúða, enda taka þau sig vel út eins og sjá má. Reuter Hertogahjónin setja upp hattana sem þeim voru gefhir í tilefiú brúð- kaupsafinælisins. COSPER Mér hefur aldrei tekist að venja konuna mína af að sópa rykinu undir teppið. Beverly Hills í Kalilfomí hefur verið settur á stofii sérstakur hundadómstóU tíl að útkljá deUumál sem tengjast hundahaldi. Hundadómstóll dæmir í hundamálum Fritz var sannkallaður vand- ræðahundur. Hann gat ekki verið innandyra á nóttunni því þá nagaði hann sundur húsgögnin og ef hann var settur út vakti hann allt nágrennið með gelti og span- góli. Svo fór að lokum að nágrann- amir sáu sér ekki annað fært en kæra Fritz greyið og draga hann fyrir dómara. Þama var komið dæmigert mál fyri hundadómstól- inn. Hundadómstóllin er til húsa í Beverly Hills, í Kaiifomíu. Hvar Hágæða frönsk litasjónvarpstæki THOMSON 20" MJOG HAGSTÆTT VERÐ Afborgunarverð kr.39.980 Staðgreiðsluverð kr.37.980 ÚTSÖLUSTAÐIR: &SAMBANDSINS Ármúla 3, símar 687910 - 681266 Vöruhús KÁ - Selfossi. Vöruhús KEA - Akureyri Skagfirðingabúð - Sauðárkróki Kaupfélögin um land allt Þráðlaus fjarstýring annarsstaðar gæti hann svo sem verið? Þetta er einkarekin þjónusta sem lögfræðingurinn Steven Rood setti á stofn. „Það var ekki vanþörf á sérstökum dómstól til að fjalla um mál sem tengjast hundahaldi á einhvem hátt. Svona mál eiga það til að hleypa verulega illu blóð í fólk. Það svífst einskis til að ná rétti sínum þegar heimilishundurinn eða hundur nágrannans eiga í hlut. Rood leitast fremur við að sætta deiluaðiia og finna lausn á vanda- málum en að ná fram himinháum bótum fyrir hlutaðeigendur. Hann hefur fengið til liðs við sig sérfræð- ing í hundasálfræði, Enter Margolis að nafni en hún skrifaði bókina „When Good Dogs Do Bad Things", sem útleggst „Þegar góðir hundar gera slæma hluti". Þegar mál er tekið til meðferðar hjá hundadómstólnum byijar Rood á því að hlusta á málsatvik og út- skýringar beggja aðila. Þau leggja áhrslu á hlut húsbænda hundanna, þvf eins og Margolis segir þá „er það fólkið sem gerir hundana vit- lausa. Hundamir endurspegla fyrst og fremst persónuleika húsbænda sinna“. Hlutverk Margolis er því að reyna að túlka málsstað hund- anna og vera einskonar verjandi þeirra í málunum. Þjónusta hundadómstólsins er ókeypis og hefur hann þegar útkljáð yfir 30 deilumál þar sem oftast er um að ræða hunda sem bíta, gelta eða gera usla í blómabeðum ná- grannanna. Hvað mál hundsins Fritz varaðar kenndi Margolis þar um slæmu uppeldi og dæmdi hann til sex vikna þjálfunar í hundasið- um. Eftir það var hægt að hafa hann inni á nætumar og þarmeð var málið útkljáð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.