Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 50

Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 /ypú gengur ná.tturu\egcL Pyrir í Leyrii LÖgreylu starfiá' ást er... ... að fara í hressandi kvöldgöngu, til aö halda sér í formi TM Reg. U.S. Pat Otl.—iH rights rmrvad C1986 Lu Angdes Tlmes SyrxDcate Hvers eiga aldraðir að gjalda? Það er rétt og sjálfsagt að þakka Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgar- ráðsmanni fyrir skörulegan flutning máls borgarstjómar og borgarbúa almennt og annarra þéttbýlisbúa á suð-vestur hominu gegn símamála- stjóminni. Það hefur nefnilega farið framhjá flestum vegna laumuspils símamálastjómar að verið var að hækka gjaldskrá símans, a.m.k. í Reykjavík. Skrefatalning var tekin upp í stjómartíð síðustu vinstri-stjómar, Verðbólgustjómarinnar, 1981. For- göngu um málið hafði samgöngu- og þarmeð símamálaráðherra þeirr- ar stjómar, Steingrímur Hermanns- son. Fyrir sterk rök Péturs Sigurðssonar þáverandi alþingis- manns, Gísla Jónssonar prófessors og fleiri tókst að fá fellda niður skrefatalningu á helgum og á kvöld- in og mælti Steingrímur, þáverandi símamálaráðherra þá fyrir og lofaði að skrefatalning yrði aldrei tekin upp á helgum og á kvöldin eftir kl.19. Nú skeður það, sex ámm síðar, að skellt er á menn nýrri skatt- heimtu, í blóra við gefin loforð, sem látin var taka gildi l.júlí, rétt eftir að ný stjóm er komin til valda með nýjum samgöngu- og þar með síma- málaráðherra sem reyndar er þingmaður íjölmennra byggðarlaga hér við Faxaflóa, m.a. Hafnarfjarð- ar, Garðabæjar, Kópavogs, Selt- jamamess auk Suðumesja. Skyldi Matthías láta kefla sig? Svo og fyrr- verandi símamálaráðherra og síðar forsætisráðherra, Steingrímur Her- mannsson? En hann fylgdi skrefa- talningunni fram sem þingmaður þrýstihópanna fyrir Vestan, en er nú orðinn þingmaður sama svæðis og Matthías, á suð-vestur hominu. Þessarri nýju skattheimtu er lætt inn í kerfíð með ófullnægjandi og villandi tilkynningarklausu í einu eða tveimur dagblöðum. í stað þess hefði verið nær að senda stutt og laggott dreifíbréf með síðasta síma- reikningi til símnotenda. Hinar skilmerkilegu greinar Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar í Morgun- blaðinu hafa þó nokkuð bætt hér um. Pétur Sigurðsson skildi eins og Vilhjálmur að þetta er fyrst og fremst skattur á þá sem minnst mega sín, hina öldruðu, sem þyrpst hafa á þetta svæði undanfama ára- tugi vegna betri þjónustu hér en annarsstaðar á landinu. En þess má geta að 60% fólks yfír sextugu býr nú í Reykjavík, miðað við allt landið. Þetta er því fyrst og fremst.öld- mnarskattur. Ef þetta mál fær ekki eðlilega afgreiðslu og sanngjama má búast við því að Reykvíkingar rísi upp og þá yrði eflaust fleira tekið til skoðunar. 0921-9676 Þessir hringdu . . . Snúrur í veg- köntum eru slysagildrur Ein úr Dölunum hríngdi: „Ég á heima vestur í Dölum og langar að vekja athygli á dæ- malausu kæruleysi vegagerðar- manna. í sumar hefur verið lagt slitlag á vegi hér i Dölunum og ( þeim tilgangi em strengdar snúr- ur við vegina. Þegar þær hafa þjónað hlutveki sínu henda vega- gerðarmennimir þeim út fyrir veginn þar sem þær verða hættu- leg slysagildra fyrir fé og hesta. Ég hef tvisvar þurft að losa kind- ur úr svona snúmflækjum og það getur reynst hestum og hesta- mönnum stórhættulegt ef þeir flækjast í þessu. Ég vil því beina því til Vegagerðarinnar að þeir taki þessar snúmr og íjarlægi þær þegar vinnu er lokið en fleygi þeim ekki út fyrir vegina þar sem þær geta valdið slysum á mönnum og skepnum". Þakkir fyrir Morgunstund bamanna Bergþóra Ámadóttir hringdi: „Ég vil biðja fyrir þakkir til Ríkisútvarpsins fyrir söguna sem lesin er í Morgunstund bamanna um þessar mundir. Lestur Herdís- ar Þorvaldsdóttur á sögunni „Berðu mig til blómanna" eftir Waldemar Bonsel er mjög góður. Ég átti þessa bók þegar ég var krakki og þetta var uppáhalds- bókin mín. Því vil ég mælast til þess að hún verði endurútgefín því hún hefur að geyma mikinn lærdóm fyrir alla“. Hálsmen tapað- ist Agnes hringdi og sagðist hafa týnt hálsmeni á leiðinni frá skemmtistaðnum Evrópu og niður í bæ eða í Þingholtunum, fyrir um tveimur vikum síðan. Þetta er lítið „a“ í gullfesti, eða a.m.k. gyllt. Menið hefur mikið tilfínn- ingagildi fyrir hana og er sá eða sú sem hefur fundið það vinsam- legast beðinn að hafa samband við Velvakanda. Hvítt reiðhjól hvarf Ummr Berglind Guðmunds- dóttir níu ára hafði samband við Veklvakanda. Hún saknaði reið- hjólsins síns sem hvarf frá Stigahlíð 7 aðfaramótt föstudags- ins 24.júlí eða snemma um morguninn. Þetta er lítið hvítt reiðhjól, danskt, og sagði Unnur að það hefði verið læst. Ef ein- hver hefur fengið hjólið lánað eða orðið þess var er sá beðinn að skila þvi að Stigahlíð 7 eða hafa samband i sima 32832. HÖGNIHREKKVISI ii.. OG KISAN þlN MUN HITTA PÁSAAlLeöAN LEIKFÉLAGA fZBTT STEINSNAR HÉe>AJt<*< Víkverji skrifar Fyrir nokkrum árum urðu blaða- skrif vegna þess, að gjaldeyris- deildir bankanna gátu ekki hafið sölu á gjaldeyri við opnunartíma banka kl. 9.15 að morgni þar sem gengisútreikningur var ekki kominn frá Seðlabanka. Afleiðingin var því sú, að viðskiptavinir urðu stundum að bíða fram undir 10.00 til þess að fá afgreiðslu. Nú er Seðlabankinn fluttur í nýtt og glæsilegt hús og við lifum á tölvuöld. Eftir því, sem bezt er vitað er Seðlabankinn kominn í beint tölvusamband við flármálaþjónustu Reuter-fréttastofunnar, þannig, að ekki ætti Q arskiptasambandið við útlönd að koma í veg fyrir að bank- inn hafí staðgóðar upplýsingar að morgni um gengi helztu gjaldmiðla. Víkverja kom það því mjög á óvart fyrir nokkrum dögum, þegar hann þurfti að eiga minniháttar viðskipti við gjaldeyrisdeild eins bankanna í borginni, að fá þetta svan því miður, gengið er ekki kom- ið! Og gengið kom ekki fyrr en kl. 9.45. Þetta er auðvitað sveita- mennska af versta tagi. Að vísu skal tekið fram að starfsfólk bank- ans sagði, að þetta kæmi sjaldan fyrir nú orðið. En það er auðvitað fáránlegt, að gjaldeyrisviðskipti geti ekki hafízt við opnun banka að morgni vegna þess, að gengið er ekki komið frá Seðlabanka. Hvað veldur? Fara þeir ekki nógu snemma á fætur í Seðiabankanum? xxxxx egar rætt er um opinbera þjón- ustu af þessu tagi kemur Víkverja í hug, að ótrúlega erfítt er að ná sambandi við 02 seint á kvöldin. Er ástæðan sú, að of fáir starfsmenn séu á vakt til þess að anna með viðunandi hætti þeim hringingum, sem koma? Hið sama á við um annað simanúmer hjá Landsímanum. Þegar mikið er um að vera t.d. í sambandi við ferming- ar eða annað slíkt er nánast ómögulegt að komast í samband við 06. Víkveiji kynntist þvi einn dag sl. vor, að það reyndist útilokað að komast í samband við 06, þótt hringt væri með reglulegu millibili frá hádegi fram á kvöld. Er ástæð- an sú sama, að ekki sé nægilega margt starfsfólk á mestu álagstim- um? xxxxx Víkveiji sá nýlega símareikning frá Bandaríkjunum. Þar var skilmerkilega tekið fram, í hvaða símanúmer hringt var og hvað símtalið stóð í margar mínútur. Þetta þykir sjálfsagt þar. Um þetta mál urðu nokkrar umræður m.a. hér f Morgunblaðinu fyrir nokkrum misserum. Hér skal þetta enn nefnt til áréttingar, þótt Víkveiji geri sér vel ljóst, að með því kallar hann yfír sig reiði hins árvakra blaðafull- trúa Pósts og síma, sem svarar öllum athugasemdum, sem koma fram við þá stofnun, af þeirri festu og með slíkum rökum, að til fyrir- myndar er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.