Morgunblaðið - 28.07.1987, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
/ypú gengur ná.tturu\egcL Pyrir í
Leyrii LÖgreylu starfiá'
ást er...
... að fara í hressandi
kvöldgöngu, til aö
halda sér í formi
TM Reg. U.S. Pat Otl.—iH rights rmrvad
C1986 Lu Angdes Tlmes SyrxDcate
Hvers eiga aldraðir að gjalda?
Það er rétt og sjálfsagt að þakka
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgar-
ráðsmanni fyrir skörulegan flutning
máls borgarstjómar og borgarbúa
almennt og annarra þéttbýlisbúa á
suð-vestur hominu gegn símamála-
stjóminni. Það hefur nefnilega farið
framhjá flestum vegna laumuspils
símamálastjómar að verið var að
hækka gjaldskrá símans, a.m.k. í
Reykjavík.
Skrefatalning var tekin upp í
stjómartíð síðustu vinstri-stjómar,
Verðbólgustjómarinnar, 1981. For-
göngu um málið hafði samgöngu-
og þarmeð símamálaráðherra þeirr-
ar stjómar, Steingrímur Hermanns-
son. Fyrir sterk rök Péturs
Sigurðssonar þáverandi alþingis-
manns, Gísla Jónssonar prófessors
og fleiri tókst að fá fellda niður
skrefatalningu á helgum og á kvöld-
in og mælti Steingrímur, þáverandi
símamálaráðherra þá fyrir og lofaði
að skrefatalning yrði aldrei tekin
upp á helgum og á kvöldin eftir
kl.19.
Nú skeður það, sex ámm síðar,
að skellt er á menn nýrri skatt-
heimtu, í blóra við gefin loforð, sem
látin var taka gildi l.júlí, rétt eftir
að ný stjóm er komin til valda með
nýjum samgöngu- og þar með síma-
málaráðherra sem reyndar er
þingmaður íjölmennra byggðarlaga
hér við Faxaflóa, m.a. Hafnarfjarð-
ar, Garðabæjar, Kópavogs, Selt-
jamamess auk Suðumesja. Skyldi
Matthías láta kefla sig? Svo og fyrr-
verandi símamálaráðherra og síðar
forsætisráðherra, Steingrímur Her-
mannsson? En hann fylgdi skrefa-
talningunni fram sem þingmaður
þrýstihópanna fyrir Vestan, en er
nú orðinn þingmaður sama svæðis
og Matthías, á suð-vestur hominu.
Þessarri nýju skattheimtu er lætt
inn í kerfíð með ófullnægjandi og
villandi tilkynningarklausu í einu
eða tveimur dagblöðum. í stað þess
hefði verið nær að senda stutt og
laggott dreifíbréf með síðasta síma-
reikningi til símnotenda.
Hinar skilmerkilegu greinar Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar í Morgun-
blaðinu hafa þó nokkuð bætt hér
um. Pétur Sigurðsson skildi eins
og Vilhjálmur að þetta er fyrst og
fremst skattur á þá sem minnst
mega sín, hina öldruðu, sem þyrpst
hafa á þetta svæði undanfama ára-
tugi vegna betri þjónustu hér en
annarsstaðar á landinu. En þess
má geta að 60% fólks yfír sextugu
býr nú í Reykjavík, miðað við allt
landið.
Þetta er því fyrst og fremst.öld-
mnarskattur. Ef þetta mál fær ekki
eðlilega afgreiðslu og sanngjama
má búast við því að Reykvíkingar
rísi upp og þá yrði eflaust fleira
tekið til skoðunar. 0921-9676
Þessir hringdu . . .
Snúrur í veg-
köntum eru
slysagildrur
Ein úr Dölunum hríngdi:
„Ég á heima vestur í Dölum
og langar að vekja athygli á dæ-
malausu kæruleysi vegagerðar-
manna. í sumar hefur verið lagt
slitlag á vegi hér i Dölunum og (
þeim tilgangi em strengdar snúr-
ur við vegina. Þegar þær hafa
þjónað hlutveki sínu henda vega-
gerðarmennimir þeim út fyrir
veginn þar sem þær verða hættu-
leg slysagildra fyrir fé og hesta.
Ég hef tvisvar þurft að losa kind-
ur úr svona snúmflækjum og það
getur reynst hestum og hesta-
mönnum stórhættulegt ef þeir
flækjast í þessu. Ég vil því beina
því til Vegagerðarinnar að þeir
taki þessar snúmr og íjarlægi þær
þegar vinnu er lokið en fleygi
þeim ekki út fyrir vegina þar sem
þær geta valdið slysum á mönnum
og skepnum".
Þakkir fyrir
Morgunstund
bamanna
Bergþóra Ámadóttir hringdi:
„Ég vil biðja fyrir þakkir til
Ríkisútvarpsins fyrir söguna sem
lesin er í Morgunstund bamanna
um þessar mundir. Lestur Herdís-
ar Þorvaldsdóttur á sögunni
„Berðu mig til blómanna" eftir
Waldemar Bonsel er mjög góður.
Ég átti þessa bók þegar ég var
krakki og þetta var uppáhalds-
bókin mín. Því vil ég mælast til
þess að hún verði endurútgefín
því hún hefur að geyma mikinn
lærdóm fyrir alla“.
Hálsmen tapað-
ist
Agnes hringdi og sagðist hafa
týnt hálsmeni á leiðinni frá
skemmtistaðnum Evrópu og niður
í bæ eða í Þingholtunum, fyrir
um tveimur vikum síðan. Þetta
er lítið „a“ í gullfesti, eða a.m.k.
gyllt. Menið hefur mikið tilfínn-
ingagildi fyrir hana og er sá eða
sú sem hefur fundið það vinsam-
legast beðinn að hafa samband
við Velvakanda.
Hvítt reiðhjól
hvarf
Ummr Berglind Guðmunds-
dóttir níu ára hafði samband við
Veklvakanda. Hún saknaði reið-
hjólsins síns sem hvarf frá
Stigahlíð 7 aðfaramótt föstudags-
ins 24.júlí eða snemma um
morguninn. Þetta er lítið hvítt
reiðhjól, danskt, og sagði Unnur
að það hefði verið læst. Ef ein-
hver hefur fengið hjólið lánað eða
orðið þess var er sá beðinn að
skila þvi að Stigahlíð 7 eða hafa
samband i sima 32832.
HÖGNIHREKKVISI
ii.. OG KISAN þlN MUN HITTA PÁSAAlLeöAN
LEIKFÉLAGA fZBTT STEINSNAR HÉe>AJt<*<
Víkverji skrifar
Fyrir nokkrum árum urðu blaða-
skrif vegna þess, að gjaldeyris-
deildir bankanna gátu ekki hafið
sölu á gjaldeyri við opnunartíma
banka kl. 9.15 að morgni þar sem
gengisútreikningur var ekki kominn
frá Seðlabanka. Afleiðingin var því
sú, að viðskiptavinir urðu stundum
að bíða fram undir 10.00 til þess
að fá afgreiðslu.
Nú er Seðlabankinn fluttur í nýtt
og glæsilegt hús og við lifum á
tölvuöld. Eftir því, sem bezt er vitað
er Seðlabankinn kominn í beint
tölvusamband við flármálaþjónustu
Reuter-fréttastofunnar, þannig, að
ekki ætti Q arskiptasambandið við
útlönd að koma í veg fyrir að bank-
inn hafí staðgóðar upplýsingar að
morgni um gengi helztu gjaldmiðla.
Víkverja kom það því mjög á
óvart fyrir nokkrum dögum, þegar
hann þurfti að eiga minniháttar
viðskipti við gjaldeyrisdeild eins
bankanna í borginni, að fá þetta
svan því miður, gengið er ekki kom-
ið! Og gengið kom ekki fyrr en kl.
9.45. Þetta er auðvitað sveita-
mennska af versta tagi. Að vísu
skal tekið fram að starfsfólk bank-
ans sagði, að þetta kæmi sjaldan
fyrir nú orðið. En það er auðvitað
fáránlegt, að gjaldeyrisviðskipti
geti ekki hafízt við opnun banka
að morgni vegna þess, að gengið
er ekki komið frá Seðlabanka. Hvað
veldur? Fara þeir ekki nógu
snemma á fætur í Seðiabankanum?
xxxxx
egar rætt er um opinbera þjón-
ustu af þessu tagi kemur
Víkverja í hug, að ótrúlega erfítt
er að ná sambandi við 02 seint á
kvöldin. Er ástæðan sú, að of fáir
starfsmenn séu á vakt til þess að
anna með viðunandi hætti þeim
hringingum, sem koma? Hið sama
á við um annað simanúmer hjá
Landsímanum. Þegar mikið er um
að vera t.d. í sambandi við ferming-
ar eða annað slíkt er nánast
ómögulegt að komast í samband
við 06. Víkveiji kynntist þvi einn
dag sl. vor, að það reyndist útilokað
að komast í samband við 06, þótt
hringt væri með reglulegu millibili
frá hádegi fram á kvöld. Er ástæð-
an sú sama, að ekki sé nægilega
margt starfsfólk á mestu álagstim-
um?
xxxxx
Víkveiji sá nýlega símareikning
frá Bandaríkjunum. Þar var
skilmerkilega tekið fram, í hvaða
símanúmer hringt var og hvað
símtalið stóð í margar mínútur.
Þetta þykir sjálfsagt þar. Um þetta
mál urðu nokkrar umræður m.a.
hér f Morgunblaðinu fyrir nokkrum
misserum. Hér skal þetta enn nefnt
til áréttingar, þótt Víkveiji geri sér
vel ljóst, að með því kallar hann
yfír sig reiði hins árvakra blaðafull-
trúa Pósts og síma, sem svarar
öllum athugasemdum, sem koma
fram við þá stofnun, af þeirri festu
og með slíkum rökum, að til fyrir-
myndar er.