Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 51

Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 51, VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 I FRÁ MÁNUDEGI TTIL föstudags |þJF=»r>U<-F=tSS-n==2lK I !'É6 VILDI öflRH VERfl VIyb UM FK> P(3 VÆRiR PHRNfl, LÆKNlR. VI0 EROM FT€> FflRR PÐ BORBF?" Frjálsræði útvarpsstöðvanna Mér verður stundum hugsað til fijálsræðis dagskrárgerðarmanna á þessum svokölluðu fijálsu útvarps- stöðvum. Erlendis, allavega í Englandi, er lag eins og „I want your sex“, bannað að híuta til, þ.e.a.s. það er ekki sama hvenær það er spilað. Hér má aftur á móti spila hvað sem er, s.s. „Frystikistu- lagið“, þar sem fómarlamb er tekið og snúið úr hálsliðnum, skorið í parta og sett f kistu. Svo ekki sé minnst á „Skítalagið" þeirra Snigla þar sem eitthvert ónefnt fómarlamb þarf að sinna þessum þörfum sínum Finnst mér textagerð íslenskra skálda frekar neikvæð um þessar mundir. Einnig get ég ekki annað sagt en að val á efni vinsældalista sé með eindæmum því þar er hvert lagið öðm neikvæðara og leiðin- legra. Það virðist ekki vera mikið eftir af samkeppninni um hvaða útvarps- stöð sé skemmtilegust og léttust. Það þarf kannski að greindar- mæla dagskrárgerðarfólk ef það eru hagsmunir þess sem ráða ríkjum. Til hvers er dagskrárgerð- arstjóri ef ekki til að ritstýra villtum dagskrárgerðarmönnum? Dagskrá- in reiknast á þá, þeim er allt leyfi- legt, eða hver stjórnar? Anna Útsala Útsalan er hafin Mikil verðlækkun Elísubúðinf Skipholti 5. Hótel Örk Gott að búa á Hótel Örk Mig langar til þess að koma því áleiðis hve gott sé að dvelja á hinu nýja Hóteli Örk í Hveragerði. Mér er það óskiljanlegt að fólk skuli geta verið óánægt með þjónustu og annan viðurgeming þar. Við hjónin dvöldum þar í þijá sólarhringa og sonur okkar hélt okkur mjög veglega veislu þar í sambandi við 70 ára afmæli mitt. Öll þjónusta var tii mikillar fyrir- myndar og allar kökur, tertur og kaffí var mjög gott og ekki skorið við nögl. Morgunverður var mikill og íjölbreyttur og allur matur mjög góður og allt viðmót þjónustufólks hlýlegt og allt gert til þess að okk- ur liði sem best, og svo er alls ekki dýrt að búa þama. Við viljum mjög gjaman senda öllu starfsfólki á Hótel Örk og öllum Hvergerðingum bestu kveðjur og hlýhug fyrir æfíntýralega góða dvöl og þá vináttu sem við fundum frá öllum. Megi Hótel Örk dafna og þróast í friði fyrir Gróusögum í framtíðinni. Gott fólk, dveljið þama og fínnið hve gott er að vera hjá hlýju fólki og látið það dekra við ykkur og dæmið svo. Bestu kveðjur, Kvenna- listasam- tökin þegja Fyrir skömmu vann forsætisráð- herra Breta, frú Margrét Thatcher, einn mesta sigur sem unninn hefír verið í stjórnmálasögu Bretaveldis, er hún í þriðja sinn vann glæsilegan meirihluta á þinginu. Ég hefi alltaf verið að bíða eftir því að kynsystur hennar í kvenna- listasamtökunum hylltu þennan eftirminnilega sigur og sendu henni kveðju sína, en ekkert hljóð hefír heyrst þar frá svo ég hafí veitt því athygli, í það minnsta hefír það farið lágt. Það er nefnilega ekki sama hvaða kvenmaður á í hlut. „Roðinn í austri" er skær í augum forystunnar á þeim bæ. Paul. V. Michelsen Ámi Helgason Hafið ávallt viðurkenndan öryggisbúnað tiltækan. Sinnið viðhaldi á bátnum hvenær sem tími gefst. Hafíð um borð varaárar og ræði, tóg, legufæri og austurtrog. Einnig ljós, flautu og blys til merkjagjafar. Áfengi má aldrei hafa um hönd í bátsferðum. Bakkus er óheill hverri áhöfn og má aldrei sitja undir stýri. KAUPFÉLÖGIN í LANDINU Og nú erum við í Borgartúni 28

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.