Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 52

Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 Kr. 1990 ..spor í rétta ótt. SKDMAGASÍN LAUGAVEGI 97, SÍMI 624030 í PANASONIC F0T0RAFHLA0AN Sú rétta í myndavélina. Rafborgsf. s.11141. n afsláttur í júní og júlí veitum viö 15% staðgreiðsluafslátt af pústkerfum í Volksvagen og Mitsubishi bifreiðar. Kynntu þér okkar verð, það getur borgað sig. SÍMAR: 91-695500 91-695650 91-695651 ■ ■ n HEKLAHF Hestaþing Sleipnis og Smára Mumeyri: Konur áberandi í verðlaunasætum Syðra-Langholti. MARGIR fallegir gæðingar komu fram á árlegu hestaþingi Sleipnis og Smára sem haldið var á Murneyri dagana 18.—19. júli. Þátttaka í stökkgreinum var lítil en ágæt í skeiði. Mótið var fjöl- sótt að venju og fór vel fram. Það voru konumar sem hirtu mikið af verðlaununum hjá Smára. Kom fram mikið af nýjum hestum, enginn alhliða gæðinganna hafði verið sýndur áður hjá Smára og var ekki annað að sjá en hestakosturinn væri góður hjá því félagi, líklega betri en nokkru sinni fyrr. Sleipnis- hestamir voru góðir að vanda, einn þeirra stóð þó sýnu mest uppúr en það er Mímir Magnúsar Hákonar- sonar en sá hestur er undan Leim 4519 og Barða Náttfarasyni. Ögri Þorvaldar á Kjartansstöðum sem sigraði B-flokkinn er einnig mikill hestur og frábær töltari og hlaut Þorvaldur riddarabikar Sleipnis sem knapi á honum. Knapaverðlaun Smára, Sveinsmerkið, hlaut hins- vegar Magnús Trausti Svavarsson. Betri þátttaka var í unglinga- keppninni hjá Smára en ekki nógu mikil hjá Sleipni, aðeins Qórir í hvomm flokki. Sýnist þar þurfa átak til eflingar. Gæðingar og ungl- ingar vom dæmdir á laugardegin- um í miklu blíðskaparveðri og gekk það greiðlega. Þá vom undanrásir stökkgreina svo og brokk og nýliða- stökk og nýliðaskeið. Það er ætlað innanfélagsmönnum og til hvatn- ingar. Símon Grétarsson gaf í fyrra svonefndan Buslubikar og hlaut hann nú Steingrímur Viktorsson á hryssu sína Brennu sem er 10 vetra. Alls vom skráð 78 hross í kappreið- um en það er þó aðeins rúmlega helmingur þess fjölda sem skráður var fyrir 6—8 ámm. Aðeins 12 hross vom skráð í stökkgreinamar utan þetta nýliðstökk og munaði mest um hestana frá Skarði á Landi. Allmikið bar á því að forföll yrðu hjá kappreiðahrossunum og er það afleitt einkanlega ef það er ekki tilkynnt. Nú var í fyrsta sinn raðað 5 efstu hestum í gæðingakeppninni og tók Ferskar dögum saman -enda í loftskiptum umbúðum. Mjólkursamsalan Keppendur í bamaflokki hjá Sleipni. F.h. Birgir Gunnarsson á Millu, Sigurður Óli Kristinsson á Stuttblesu, Guðbjörg H. Sigurðardóttir á Neista og Guðmundur V. Gunnarsson situr Millu. Morgunblaðið/Sig.Sigm. Fimm efstu í bamaflokki hjá Smára. Frá hægri: Birna Káradóttir á Garpi, Hulda Hrönn Stefánsdóttir á Trausta, Guðjón Geirsson á Mána, Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir á Gissuri og Margrét Amadóttur situr Sörla. það óneitanlega mikinn tíma á sunnudeginum. Þá kom nokkmm sinnum upp sú staða að hestar urðu jafnir í röð og vom látnir keppa aftur. Margir meðal áhorfenda urðu leiðir á þessu og fannst að einkunn- ir frá forkeppni hefðu átt að nægja til að skera þar úr. Að venju sá Slysavamadeildin á Selfossi um innheimtu aðgangseyris og tjáði Ólafur íshólm Jónsson formaður deildarinnar fréttaritara að 830 manns hefðu greitt aðgangseyri og að hrossafjöldi hefði verið álíka eða um 850 og sýnir það best hve marg- ir koma ríðandi enda era reiðvegir að Mumeyrinni frábærir. * Sicr. Sijrm. Úrslit mótsins Smári A-flokkur gæðinga: eink. 1. Fló 6 v. rauð. Eig. Haraldur Sveinsson, kn. Jóhanna B. Ingólfsdóttir 8,02 Hyaða kostur er bestur? , 1 margnota rakvélar eru ódýrari en venju- leg rakvélarblöð! Og hver ^./BiC) rakvél dugar jafii- lengi og eitt rakvélarblað. Fjóla Kristinsdóttir varð sigur- vegari i unglingakeppni hjá Sleipni. 2. Minning 6 v. rauðstjömótt. Eig. og kn. Halla Sigurðardóttir 7,99 3. Sörli 6 v. jarpur. Eig. og kn. Ólafur Stefánsson 7,75 4. Þröstur 6 v. jarpur. Eig. og kn. Sigfús Guðmundsson 7.T2 5. Stjama 10 v. brúnstj. Eig. Viðar Gunngeirss. kn. Lilja Loftsd. 7,82 B-flokkur gæðinga: 1. Stjama 9 v. jarpstjömótt. Eig. Sigfús Guðmundsson, kn. Annie B. Sigfúsdóttir 8,30 2. Stígandi 7 v. brúnskjóttur. Eig. og kn. Gunnar Gunnarsson 8,11 3. Spegill 5 v. brúnn. Eig. Sigfús Guðmundsson, kn. Guðm. Sigfússon 8,87 4. Faxi 6 v. jarpur. Eig. og kn. Magnús Trausti Svavarsson 7,95 5. Reyr 10 v. jarpur. Eig. Loftur Eiríksson, kn. Lilja Loftsd. 7,89 Unglingaflokkur 12 ára og yngri: 1. Bima Káradóttir á Garpi 9 v. jörpum 7,94 2. Hulda Hrönn Stefánsdóttir á Trausta 7 v. brúnstj. 7,92 3. Guðjón Geirsson á Mána 16 v. rauðglófextum 7,87 4. Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir á Gissuri 17 v. jörpum 7,86 5. Margrét Ámadóttir á Ganta 9 v. rauðum 7,79 Unglingar 13—15 ára 1. Steinunn Birgisdóttir á Gígju 10 v.jarpri 7,77 2. Elín Ósk Þórisdóttir á Víxli 10 v. brúnskj. 7,76 3. Rósamunda Sævarsdóttir á Klerki 7 v. bleikblesóttum 7,73 4. Asa Margrét Einarsdóttir á Lipurtá móbrúnni 7,72 5. Herdís Eiríksdóttir á Ösp 7 v. brúnni 7,26 Sleipnir A-flokkur gæðinga: 1. Mímir 6 v. brúnn. Eig. Magnús Hákonarson, kn. Einar Oder Magnússon 8,58 2. Fífa 6 v. bleik. Eig. Óskar Þor- grímsson kn. Már Olafsson 7,98 3. Alex 6 v. leirljós. Eig. Margrét Lilliend., kn. Leifur Helgas. 8,16 4. Blakkur 7 v. svartur. Eig. Snorri Ólafss., kn. Ragnar Hinrikss. 7,89 5. Skálmar 7 v. rauður. Eig. Ragn- heiður Hafsteinsd., kn. Halldór Vilhjálmss. 7,90 B-flokkur gæðinga: 1. Ögri 9 v. brúnn. Eig. og kn. Þorvaldur Sveinsson 8,43 2. Stígandi 9 v. brúnn. Eig. Guð- björg Sigurðard., kn. Fjóla Kristinsd. 8,22 3. Grettir 8 v. bleikur. Eig. Jóhann Ágústsson, kn. Sverrir Ágústsson 8,21 4. Feykir 8 v. rauðstjömóttur. Eig. og kn. Hulda Brynjólfsd. 8,20 5. Fjöður 10 v. rauðstj. Eig. og kn. SverrirÁgústsson 8,17 Unglingaflokkur 12 ára og yngri: 1. Birgir Gunnarsson á Millu 6 v. rauðri 8,03 2. Sigurður Óli Kristinsson á Stutt- blesu 10 v. rauðblesóttri 7,98 3. Guðbjörg H. Sigurðardóttir á Neista rauðblesóttum 7,95 4. Guðmundur V. Gunnarsson á Moldu 15 v. moldóttri 7,95 Unglingaflokkur 13—15 ára: 1. Fjóla Kristinsdóttir á Stíganda 9 v. brúnum 8,22 2. Ragna Gunnarsdottir á Tjörva 10 v. brúnum 8,16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.