Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
>.
Knattspyrnunámskeið á. Þróttaravellinum.
Árrii Sœberg
í kringum hann.
Jóhannes sagði að fyrr á þessu ári hefðu
félagsheimili og vallarhús Fylkis verið end-
umýjuð. Þá væri fyrirhugað seinna á árinu
að ljúka hönnun á iþróttahúsi félagsins og
he§a framkvæmdir við það.
íþróttafélag Reykjavíkur
Hólmsteinn Sigurðsson formaður ÍR sagði
að í sumar hefði verið lokið við girðingu i
kringum malarvöll félagsins í Suður-Mjódd.
Þá væru að heíjast framkvæmdir við gras-
völl á sama svæði. Hólmsteinn sagði að
Qárveiting borgarinnar til þessara fram-
kvæmda væjri 3,2 milljónir á þessu ári.
Að sögn Hólmsteins er um þessar mund-
ir verið að endurhanná félagssvæði ÍR vegna
skipulagsbreytinga. tíann sagði að nú væri
aðeins einn malarvöllur á svæðinu auk skúrs
sem væri notaður bæði sem búningsaðstaða
og félagsheimili. Fyrirhugað væri að í fram-
tíðinni yrðu þama grasvöllur og íþróttahús.
Knattspyraufélag- Reykjavikur
Að sögn Sveins Jónssonar formanns KR
úthlutaði Reykjavíkurborg félaginu 3,2
milljónum á árinu til framkvæmda við stúku
fyrir áhorfendur, bað- og snyrtiaðstöðu og
girðingu á svæðinu við Frostaskjól. Sveinn
sagði að nú þegar væm framkvæmdir við
hina 1700 manna stúku langt komnar og
kostnaðurinn við hana væri orðinn 6 milljón-
ir króna.
Sveinn kvað KR eiga grunn og stálgrind
að þriðja íþróttahúsi félagsins. í haust væri
ætlunin að reisa stálgrindina og klæða hana
að utan. Nýja iþróttahúsið verður 450 fer-
metrar og þar verður lyftingaaðstaða og
þrekmiðstöð fyrir félagsmenn og almenning.
Iþróttafélögin standa í stórræðum á félagssvæðunum:
*
Styrkir Reykj avíkurb org-
ar 57 milljónir kr. á árinu
MIKLAR framkvæmdir standa nú yfir á
vegum nokkurra íþróttafélaga f
Reykjavík. Víða er unnið að vallargerð,
böðum og búningsherbergjum og einnig
eru sum félögin að reisa félagsheimili
eða fþróttahús. Morgunblaðið ræddi við
forsvarsmenn íþrottafélaganna um þess-
ar framkvæmdir en talaði fyrst við Júlfus
Hafetein, formann íþrótta- og tómstund-
aráðs Reykjavfkurhorgar.
Júlíus sagði að reglan væri sú að 80%
af stofnkostnaði íþróttamannvirkja í
Reykjavík væru greidd af ríkinu og
Reykjavíkurborg og skiptust jafnt á milli
þeirra. Framkvæmdum á félagasvæðunum
væri síðan skipt í tvennt. Vallarmannvirki,
böð og búningsherbergi væru forgangsverk-
efni og til að flýta framkvæmdum við þessi
mannvirki greiddi borgin strax hlut rfkisins
en fengi hann svo endurgreiddan á næstu
árum. Þetta kallaði Júlíus „áttatíu prósent
regluna". Allar aðrar framkvæmdir íþrótta-
félaganna sagði Júlíus að féllu undir „§öru-
tíu prósent regluna" sem fælist í því að ríki
og boig greiddu sinn hluta hvort.
„Núverandi meirihluti hefur fjórfaldað
framlag sitt til áttatíu prósent reglunnar
og á þessu ári nemur það alls 22 milljón-
um,“ sagði Julíus. „Þá sér borgin um rekstur
á íþróttavöllum félaganna og það kostar 3
milljónir á ári.“ Að sögn Júlíusar nema
styrkir borgarinnar til íþróttafélaganna alls
57 milljónum á þessu ári. „Þetta Qármagn
fer beint til styrktar rekstri og framkvæmda
á vegum félaganna,“ sagði hánn.
Júlíus kvað núverandi meirihluta ætla að
halda áfram að styrkja íþróttafélögin rausn-
arlega til að þau gætu gert svæði sín vel
úr garði og veitt góða þjónustu. „Samstarf
iþróttafélaganna og borgarinnar er mjög
gott. Þessi félög taka við svo miklu af ung-
viði að það er nauðsynlegt að standa vel
að allri uppbyggingu og veita þeim þá fyrir-
greiðslu sem hægt er. íþróttafélögunum er
ljóst að hveiju er stefnt og þau skilja þá
ábyrgð sem á þeim hvílir," sagði Júlíus að
lokum.
Félagssvæði Þróttar við Sæviðarsund.
Glímufélagið Armann
Að sögn Gunnars Eggertssonar formanns
Ármanns fékk félagið tvær og hálfa milljón
króna á þessu ári í styrk frá borginni til
að endurbyggja og stækka grasvöll sinn við
Sigtún. Seinna I sumar á að tyrfa völlinn
og ljúka við hlaupabraut í kringum hann.
Gunnar kvað Armenninga einnig hafa
staðið í framkvæmdum við félagsheimili sitt
við Sigtún á árinu. Þar hefði nýr salur ver-
ið tekinn í notkun og efri hæð hússins verið
endumýjuð.
Knattspyraufélagið Fram
Halldór B. Jónsson formaður knatt-
spymudeildar Fram sagði að framlag
borgarinnar vegna framkvæmda við lóð og
umhverfi félagssvæðisins við Safamýri
næmi 1,8 milljónum I ár. Þessir peningar
væru búnir en þeir hefðu m.a. verið notaðir
til að malbika bflaplan, helluleggja í kringum
félagsheimilið og tyrfa á lóð félagsins. Hall-
dór sagði að ýmiss frágangur væri þó enn
eftir á lóðinni.
Að sögn Halldórs lýkur framkvæmdum
við félagsheimili Fram á þessu ári. Gamla
félagsheimilið var 220 fermetrar á einni hæð
en nú er búið að reisa viðbyggingu á tveim-
ur hæðum sem er 330 fermetrar að
grunnfleti. Þá er áformað að breyta hluta
af gömlu húsnæði félagsins í búningsklefa
á næsta ári.
íþróttafélagið Fylkir
Fylkismenn ljúka í sumar framkvæmdum
við grasvöll sinn að sögn Jóhannesar Óla
Garðarssonai- formanns Fylkis. Um er að
ræða tveggja grasvalla svæði ætlað til æf-
inga og keppni og fjárveiting borgarinnar
til vallarins á þessu ári var 2,4 milljónir.
Jóhannes sagði að kostnaður við völlinn
væri nú orðinn 5,5 milljónir króna. í sumar
hafa Fylkismenn unnið að smíði sérstaks
vökvunarbúnaðar fyrir völlinn og girðingar
í sumar er einnig ætlunin að gróðursetja
og snyrta til á svæði félagsins við Frosta-
skjól.
íþróttafélagið Leiknir
Ómar Kristvinsson formaður Leiknis
sagði að félaginu hefði á þessu ári verið
úthlutaðar 2 milljónir króna frá Reykjavík-
urborg til framkvæmda við bað- og búnings-
klefa við Austurberg. Ómar sagði að
Leiknismenn reyndu að flýta verkinu eins
og hægt væri til að komast sem fyrst inn
í húsið því félagið væri nær algerlega að-
stöðulaust. Vonir hefðu staðið til að hið
nýja húsnæði kæmist í notkun fyrir sumar-
ið en það hefði ekki tekist.
Ómar kvað Leikni hafa yfír að ráða stóru
og miklu grassvæði og ætlunin væri að
reyna að koma upp grasvelli sem fyrst.
Hann sagði að félagið væri fyrst og fremst
knattspymufélag og í sumar væri æfð knatt-
spyma í öllum aldursflokkum.
Knattspyraufélagið Valur
Haraldur Sverrisson framkvæmdastjóri
Vals sagði að 22.000 fermetra grasvöllur
félagsins væri að verða tilbúinn, tyrfíngu
væri lokið og nú þyrfti völlurinn að fá að
gróa til að hægt yrði að nota hann næsta
vor. A þessu ári fengu Valsmenn 3,8 millj-
óna króna styrk frá borginni til að ljúka
við grasvöllinn.
Haraldur sagði að í september yrði tekið
í notkun nýtt 12.000 fermetra íþróttahús
þar sem allir heimaleikir Vals í hand- og
körfubolta yrðu spilaðir í vetur. Þá væri
verið að reisa vallarhús á tveimur hæðum
með kjallara. Fyrsta hæðin yrði tekin í notk-
un í september enda væm þar búningsklefar
og öll aðstaða í sambandi við nýja íþrótta-
húsið auk heilsuræktar með gufubaði og
ljósabekkjum. Kjallari og önnur hæð vallar-
hússins verða ekki tekin í notkun strax en
þar eiga m.a. að vera lyftingatæki og að-
staða fyrir alla félagsstarfsemi. Haraldur
sagði að á þessu ári hefði einnig verið unn-
ið að stækkun gamla félagsheimilisins,