Morgunblaðið - 28.07.1987, Síða 56
lé DAGAR
KRINGWN
KKIHeNM
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Jón Sigurðsson,
dómsmálaráð-
herra:
Býst frekar
’Við að skipa
tvo sak-
sóknara
JÓN Sigurðsson dómsmálaráð-
herra á frekar von á því að
málsókn i Hafskipsmálinu og
Útvegsbankamálinu verði skipt á
milli tveggja saksóknara.
Jón Sigurðsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að ekki
væri unnt að segja neitt frekar um
þetta atriði að sinni. Jón kvaðst
taka ákvörðun um skipan sérstaks
saksóknara alveg á næstunni.
Sænskur
mennta-
-málaráð-
herraí
heimsókn
Lennart Bodström, mennta-
málaráðhera Svíþjóðar, og
eiginkona hans Vapja Bodström
koma til íslands 29. þ.m. i boði
menntamálaráðherra og dveljast
hér til 1. ágúst. í för með ráð-
herrahjónunum verða þrir
embættismenn i sænska mennta-
málaráðuneytinu.
Lennart Bodström hefur verið
menntamálaráðherra síðan haustið
1985, en áður gegndi hann starfi
utanríkisráðherra í ríkisstjóm Olofs
Palme.
Morgunblaðið/Úlfar
Bruni ísaflarð-
arkirkju:
Undirbún-
ingur hafinn
að byggingu
nýrrar kirkju
ísafirði
ÍSAFJARÐARKIRKJA stór-
skemmdist af eldi aðfaranótt
mánudags. Talið er að ekki
borgi sig að gera við kirkjuna
og er nú þegar hafinn undir-
búningur að byggingu nýrrar
kirkju.
Eyrarkirkja í Skutulsfirði var
vígð af séra Hálfdáni Einarssyni,
sóknarpresti 16. ágúst 1863.
Kirkjan er bárujámsklætt timbur-
hús en við upphaflegu bygging-
una hefur verið bætt kór, 1882,
og orgel- og kórhúsi, 1934.
Gunnlaugur Jónsson bóksali,
formaður sóknamefndar sagði að
flestar eigur kirkjunnar hefðu
eyðilagst eða skemmst mikið í
brananum. Það eina sem slapp
óskemmt vora messuskrúði og
altarisklæði sem komin vora í
geymslu í safnaðarheimilinu í
Sólgötu. Heildarvátryggingarfé
kirkjunnar og kirkjugripa er um
18 milljónir króna
Mikill fjöldi sóknarbama lagði leið
sína að kirlqunni og var auðséð
að braninn hafði snortið mjög til-
finningar ísfirðinga í garð kirkju
sinnar. Þá hafa þegar borist pen-
ingagjafir til kirkjubyggingar og
þakkaði Gunnlaugur þann mikla
hlýhug sem hann sagðist svo víða
hafa orðið var við.
Úlfar
Flestar eigur kirkjunnar eyði-
lögðust í eldinum en ef til vill
má bjarga predikunarstólnum.
Fiskmarkaðir í Haftiarfirði og Reykjavík:
Búið að selja físk fyr-
ir rúmar 104 milljónir
Ein Panda bifreiðanna i Reykjavík i gærmorgun. M°rgunbiaðið/Börkur
Lögregla hafði afskipti
af Itölum á Hveravöllum
Ekki fengist jafuhátt verð fyrir ýsu og í gær
LANDVÖRÐUR á Hveravöllum
og lögregla þurftu að hafa af-
skipti af 170 Itölum á 70 Panda
bflum, sem ekki virtu reglur um
að halda sig á vegum og á merkt-
um bílastæðum á Hveravöllum.
Að sögn Valgeirs Guðmundsson-
ar, lögreglumanns hjá hálendiseftir-
liti vegalögreglunnar, kom þetta til
^.vegna þess að fólkið hefði ekki ver-
ið uppfrætt nægilega um umgengn-
isregur á hálendinu. Fundur hefði
verið haldinn með fararstjóram og
ætti þetta ekki að endurtaka sig.
ítalamir komu til Hveravalla í
gærkveldi. Þeir lögðu upp frá
Reykjavík í gærmorgunn í níu daga
safari-ferð um ísland. í dag verður
ferðinni haldið áfram norður Kjöl
til Blönduóss og þaðan í Búðardal,
þar sem þeir munu gista í nótt.
Sjá frétt á bls. 22.
SAMTALS hafa veríð seldar tæp-
ar 3.700 lestir af fiski fyrir
rúmar 104 milljónir króna á fisk-
mörkuðunum í Reykjavík og
Hafiiarfirði frá því þeir opnuðu
og þar til á föstudaginn var.
Meðalverð á kiló er mjög svipað
á báðum mörkuðunum eða 28,22
krónur fyrír kílóið af fiski i
Hafnarfirði og 28,12 krónur fyr-
ir kílóið af fiski á Faxamarkaði
í Reykjavík.
Fiskmarkaðurinn í Hafnarfírði
hefur samtals selt 2.723 lestir af
fiski frá því hann opnaði 15. júní
síðastliðinn, fyrir 76.855.274 krón-
ur. 1.678 tonn af þorski hafa verið
seld og er meðalverðið fyrir kíló
32,31 króna. Meðalverðið fyrir
karfa hefur verið 15,21 króna, en
alls hafa verið seld 507 tonn. Af
ýsu hefur verið selt 121 tonn og
fyrir það fengist að meðaltali fyrir
kílóið 46,49 krónur. Þá hafa verið
seld 224 tonn af ufsa fyrir 19,25
krónur að meðaltali fyrir kílóið.
Minna var selt af öðram tegundum.
Faxamarkaður í Reykjavík var
opnaður 23. júní og á föstudaginn
var, 24. júlí, þegar mánuður var
liðinn frá opnun hans, höfðu verið
seld 973,5 tonn fyrir 27.378.150
krónur. Þar af vora tæp 517 tonn
af þorski, meðalverð 31,80, 68,3
tonn af ýsu, meðalverð 42,96,154,4
tonn af karfa, meðalverð 16,00
krónur, 102,6 tonn af kola, meðal-
verð 30,96, 106 tonn af ufsa,
meðalverð 18,76, 11,7 tonn af
hlýra, meðalverð 10,77, 4,2 tonn
af steinbít, meðalverð 12,55 krónur
og 3,9 tonn af grálúðu, meðalverð
17,99 krónur.
í gær vora seld 2,8 tonn af ýsu
á markaðinum í Hafnarfirði og fen-
gust að meðaltali 95,90 krónur fyrir
kílóið. Hefur ekki áður fengist jafn
hátt verð fyrir ýsu og ástæðumar
taldar þær að skortur er á ýsu á
markaðssvæðinu. Til samanburðar
var meðalverðið fyrir ýsu í síðustu
viku 40,83 krónur í Hafnarfirði og
þá seld samtals 30,6 tonn og 35,31
króna að meðaltali fyrir kílóið í
Reykjavík, samtals seld 40,5 tonn.
Ekkert var selt af ýsu í gær á
markaðnum í Reykjavík.
Sjá töflur yfir verð á fiskmörk-
uðunum S gær og i siðustu viku
á bls. 30.