Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987
3
Tryggingastofnun ríkisins:
Gengið til samninga við
Securitas um öryggis-
hnappa fyrir aldraða og sjúka
Skák:
Karl í 5.
sætiá
pólsku móti
KARL Þorsteins endaði í 5. sæti
á skákmóti i Póllandi sem lauk
fyrir helgina. Karl fékk 6 vinn-
inga af 11 mögulegum og átti
um tíma möguleika á að ná
áfanga að stórmeistaratitli en
missti af honum í lok mótsins.
Austur-þýski stórmeistarinn
Bönsch vann mótið með 8 vinning-
um en Greenfeld frá ísrael og
Dolmatov frá Sovétríkjunum urðu
í 2.-3. sæti með 7,5 vinninga. Pólski
alþjóðameistarinn Kuczynski varð í
4. sæti með 7 vinninga en Karl kom
næstur með 6 vinninga.
Karl vann 5 skákir á mótinu, þar
á meðal gegn Greenfeld, en ein
vinninsskákin var ekki talin með
þar sem andstæðingurinn hætti á
mótinu. Karl tapaði síðan þremur
skákum, gegn hinum skákmönnun-
um sem urðu fyrir ofan hann. Karl
var með svart í öllum þeim skákum
og reyndi að tefla til vinnings en
fór heldur of geyst. í tveimur
síðustu skákunum gerði Karl síðan
stutt jafntefli þegar möguleikinn á
stórmeistaraáfanganum var ekki
lengur fyrir hendi.
Mótið var haldið í smábæ rétt
við tékknesku landamærin. Allir
keppendumir nema Karl og Green-
feld voru frá Austur-Evrópu og að
sögn Karls var talsvert erfítt að
Lloydsskák-
mótið í London:
Þröstur og
Jón með
1V2 vinning
JÓN G. Viðarsson og Þröstur
Þórhallsson höfðu fengið 1,5
vinninga og Hannes Hlífar Stef-
ánsson og Amþór Einarsson
höfðu 1 vinning þegar tveimur
umferðum var lokið á skákmóti
sem kennt er við Lloyds bankann
í Lundúnum.
íslendingamir höfðu ekki teflt
við mjög sterka menn. Þó hafði
Þröstur gert jafntefli við Emst frá
Svíþjóð en Hannes tapaði fyrir
breskum alþjóðlegum meistara eftir
að hafa verið kominn með vinnings-
stöðu. Þröstur átti í gær að tefla
við heimsmeistara unglinga, Anand
frá Indlandi.
Mót þetta er opið og taka þátt í
því 10 stórmeistarar, þar á meðal
Nunn og Chandler frá Bretlandi,
og Benjamin og Dlugy frá Banda-
ríkjunun. Alls verða tefldar 10
umferðir á mótinu.
Húsavík;
Hringur sýnir
í Safnahúsinu
Húsavík.
HRINGUR Jóhannesson listmál-
ari opnar málverkasýningu nk.
fimmtudag kl. 20.00 i Safnahús-
inu á Húsavík.
Hringur hefur undanfarin ár
dvalið hér á sumrin á heimaslóðum
í húsi sfnu að Haga í Aðaldal og
em því margar myndir hans héðan
úr héraðinu. Á sýningunni verða
alls 28 myndir, 20 pastel og 8 olíu-
verk.
Sýningin verður aðeins opin þijá
daga eða fram á sunnudag frá kl.
13.00 til kl. 19.00.
Karl Þorsteins.
keppa þar, sérstaklega þar sem
enginn af þeim sem sáu um mótið
talaði ensku.
TRYGGINGARÁÐ ákvað á fundi
sínum í síðustu viku að ganga til
samninga við Securitas um ör-
yggisþjónustu aldraðra og
sjúkra. Þijú tilboð bárust Trygg-
ingastofnun ríkisins þegar útboð
var auglýst i vor. Auk Securitas
bárust tilboð frá Vara og Hlíf,
sem uppfylltu hinsvegar ekki
útboðsskilmála, að sögn Ólafs
G. Einarssonar formanns Trygg-
ingaráðs.
Ólafur sagði að hátt í 130 manns
bæru nú svokallaða öryggishnappa
á sér á vegum Securitas, en þörfín
væri eflaust mun meiri. Hingað til
hefðu hnappamir verið á ákveðnu
tilraunastigi, en Tryggingaráð teldi
að sinna ætti þessu verkefni enn
frekar. Ólafur vildi ekki staðfesta
upp á hvað tilboð Securitas hljóð-
aði, en bein kostnaðaráætlun gerði
ráð fyrir 30 og 40 milljónum króna
vegna þessa verkefnis.
AIVORUR
1YIEFLD ÞJONUSTA
SIDAL OG SINDRA STALS
Á liðnu ári gerðist Sindra Stál hf. umboðsaðili Sidal A/S
í Danmörku og Belgíu. Þetta samstarf eykur enn styrk
okkar og fjölbreytni í álbirgðahaldi.
Öflug og skjót afgreiðsla á sérpöntunum vegna ýmissa
verkefna.
©
ÐM MBMDtBEl
Ál er okkar mál.
SINDRA/N^STALHF
BORGARTÚNI31, SlMAR 27222 & 21684
- SPB