Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 4

Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 VEÐUR Landspítalinn; Tvær hjartaaðgerðir á viku en ekki hægt að anna þörfinni H(jartaskurðaðgerðir hafa nú verið framkvæmdar á Landspít- alanum í rúmt ár. Það hefur sýnt sig á þessum tima að sjúklingar vilja heldur fara í hjartaaðgerðir hér heima en fara til útlanda. Töluvert vantar upp á að hægt sé að anna þörfinni, að sögn Grétars Ólafssonar yfirlæknis á bijóstholsaðgerðadeild Landspít- alans. Að jafnaði eru gerðar tvær hjartaaðgerðir í viku hverri en í ráði að fjölga þeim svo fljótt sem auðið er i þrjár á viku. Þá var nýlega byijað að framkvæma á Landspítalanum útvikkanir á kransæðum, en hingað til hafa íslendingar þurft að fara utan til slikra aðgerða. „Ástæðan fyrir því að við önnum ekki þörfínni er fyrst og fremst sú að skurðstofur eru of fáar. Því er ekki að neita að aðgerðir eru miklu fleiri en gert var ráð fyrir í upp- hafi, en það er fyrst og fremst plássleysi sem kemur í veg fyrir að við getum gert allar aðgerðir sem þörf er á. í upphafi var reiknað með að um helmingur aðgerða færi fram hér á landi, en á daginn hefur komið að fólk vill síður fara utan," sagði Grétar Ólafsson yfirlæknir brjóstholsaðgerðadeildar, en þar fara fram hjartaskurðaðgerðir auk annarra bijóstholsaðgerða. Ýmsir höfðu uppi efasemdir á sínum tíma að rétt væri að gera jafn flóknar skurðaðgerðir og hjartaaðgerðir hér á landi en að sögn Péturs Jónssonar fram- kvæmdastjóra Landspítalans hafa þær gengið vonum framar. Alls hafa verið gerðar 74 aðgerðir, þar af 42 á þessu ári. Sagði Pétur að ekki hefði verið hægt að gera eins I DAGkl. 12.00: Heimild: Veðurstofa islands (Byggt á veóurspá kl. 16.15 í gær) að þær hefðu einnig haft í för með sér að hluti af besta starfsfólkinu fór úr störfum sínum og leitaði annað. Að öðru leyti hefði það ekki komið niður á þessari starfsemi sjúkrahússins hve illa gekk að fá hjúkrunarfólk til starfa í sumar. Hjartaskurðaðgerðir krefjast mikils viðbúnaðar, bæði flókins tækjabúnaðar og margra sérfræð- inga. Svo til allar þær aðgerðir sem gerðar hafa verið enn sem komið er eru kransæðaaðgerðir. Þar koma við sögu 12 manns í hverri aðgerð, þar af þrír skurðlæknar og tekur aðgerðin að meðaltali um 6 klukku- stundir. Hjartaskurðlæknamir Hörður Alfreðsson og Þórarinn Amórsson segjast vera mjög ánægðir með þann árangur sem náðst hefur á því ári sem liðið er frá því fyrsta aðgerðin var gerð. Hingað til hefðu á bilinu 110-150 manns þurft að fara árlega utan í hjartaskurðað- gerðir en nú vildu svo til allir að þær aðgerðir væm framkvæmdar hér heima. Alltaf hefði verið ljóst að þeim fjölda yrði ekki mögulegt að sinna hér og auk þess ekki við því búist að telja þyrfti fólk á að fara utan. Þvi væri ekki að neita að þetta hefði leitt til þess að marg- ar erfíðustu aðgerðimar hefðu verið gerðar hér heima og það væru þeir yngstu og hressustu sem taldir Morgunblaðið/Þorkell Á aðalskurðstofu Landspítalans. Grétar Ólafsson, yfirlæknir á bijóst- holsaðgerðadeild og hjartaskurðlæknamir Þórarinn Amórsson og Hörður Alfreðsson. margar aðgerðir í vor og til stóð vegna vinnudeilna, en þær stóðu í fímm vikur. Það sem verra væri Hjarta- og lungnavél sem keypt var í fyrra fyrir gjafafé eins og svo mikill hluti af tækjabún- aði Landspitalans. Án hennar væri ekki hægt að framkvæma hjartaskurðaðgerðir á Lands- pítalanum. væm á að fara utan. Aðspurðir um sýkingar vegna hjartaskurðaðgerða hér sögðu þeir að tíðni sýkinga væri með minnsta móti og töldu skýringuna fólgna í mikilli áherslu á hreinlæti og hvers konar öiyggi. Mikil áhersla hafí verið lögð á ör- yggisþáttinn í öllu starfínu og það væri ein ástæða þess að ekki hafí verið byijað fyir en nú fyrir skömmu að útvíkka kransæðar hér á landi þrátt fyrir að tækjabúnaður væri fyrir hendi. Mikilvægt hefði verið að fá ákveðna reynslu á starf- semina og rasa ekki um ráð fram. VEÐURHORFUR í DAG, 25.08.87 YFIRLIT á hádegi f gœr: Um 400 km suðsuftvestur af Reykjanesi er 1000 mb lægft ó hægri hreyfingu austur og siftar suftaustur, en austur við Lófót er 1025 mb hæft. Yfir Labrador er 990 mb lægft sem þokast austur. Hiti verftur víftast 9—14 stig að deginum. SPÁ: í dag verður hægviftri um mestallt landift og vífta nokkuft bjart veftur, þó smáskúrir á stöku stað. Hiti 10—14 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR: Suðlæg og suðvestlæg átt. Rigning efta súld meft köflum um sunnan og vestanvert landift en lengst af þurrt norðaustanlands. Fremur hlýtt, einkum á norft- ur- og austurlandi. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * -J 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —j* Skafrenningur Þrumuveður Samtökin Gamli miðbærinn: „Framtíð miðbæjar- ins ræðst hjá okkur“ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akurayri Raykjavlk hltl 11 10 vaöur alakýjaó rlgnlng Bergen 17 akýjað Hatalnkl 14 akýjað Jan Mayan 7 akýjað Kaupmannah. 18 þokumóða Naraaaraauaq vantar Nuuk 12 Mttakýjað Oaló 16 akýjað Stokkhólmur 16 akýjað Þórahöfn 11 Mttakýjað Algarve 27 heiðakfrt Amatardam 22 akýjað Aþena 29 hálfakýjað Barcelons 26 akýjað Bertfn 23 Mttakýjað Chlcago 11 akýjaö Faneyjar 23 skýjað Frankfurt 23 slcýjað Glaagow 16 hálfskýjað Hamborg 23 akýjað Laa Palmaa 26 akýjað London 18 miatur Loa Angelea 16 þokumóðs Lúxamborg 17 rlgnlng Madrfd 23 akýjað Malaga 29 heiðskfrt Mallorcs 29 Mttskýjað Montraal 11 léttskýjað NawYork 16 heiðakfrt Parfa 16 rignlng Róm 31 hálfakýjað Vfn 26 halðakfrt Waahlngton 18 Mttakýjað Winnlpeg 9 Mttakýjað Fundur á Hótel Borg í kvöld „NÚ verða allir verslunareigend- ur og þjónustuaðilar í gamla miðbænum að bregðast við þeirri samkeppni sem skapast hefur,“ sagði Guðlaugur Bergmann, formaður samtakanna Gamli miðbærinn, en samtökin halda fund í kvöld á Hótel Borg. Fund- urinn ber yfirskriftina „Framtíð miðbæjarins ræðst þjá okkur og hvergi annars staðar." „Með opnun Kringlunnar hefur verslunarrými í Reykjavík aukist um 10% og því er ljóst að sam- keppnin er enn harðari en áður,“ sagði Guðlaugur. „Slfk samkeppni er auðvitað af hinu góða, þvf menn leggja sig þá enn meira fram við að sinna viðskiptavinum sínum. Fjölbreytni í verslun og þjónustu í miðbænum er mjög mikil, þvf þar halda til rúmlega 800 aðilar, en um 500 þeirra eru innnan miðbæjar- samtakanna. Það verður því að opna augu fólks fyrir nauðsjm þess að gera miðbæinn enn meira aðlað- andi, enda er aldrei of vel gert. Því hvetjum við menn til að hirða um- hverfi fyrirtækja, vanda til innrétt- inga og halda verði í skefjum. Það má aldrei láta deigan sfga í sam- keppninni og einn liður f bættri þjónustu er að hafa opnunartíma sveigjanlegan, til dæmis að hafa fyrirtæki opin á laugardögum." Guðlaugur sagði að Laugavegur- inn væri nú óðum að taka á sig rétta mynd eftir lagfæringar sum- arsins. „Laugavegur verður form- lega opnaður við hátíðlega athöfn 5. september, en þá á að vera lokið við frágang á hliðargötum hans. Þá verða bifreiðastæði við Faxa- skála tilbúin, en þar verður fymi fyrir 370 bifreiðar. Loks sakar ekki að geta þess að fólki gefst nú kost- ur á að ferðast endurgjaldslaust með strætisvögnum um miðbæinn, en það ætti að létta á umferð bif- reiða," sagði Guðlaugur Bergmann að lokum. Fundur samtakanna Gamli mið- bærinn verður sem fyrr sagði á Hótel Borg í kvöld og hefst hann kl. 20.30. Fundarstjóri verður Páll Líndal og eru allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.