Morgunblaðið - 25.08.1987, Síða 26

Morgunblaðið - 25.08.1987, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 Genfar-Evrópusamkeppnin: Þrjú verk valin til áframhald- andi þátttöku ÍSLENSKA dómnefndin í Genfar-Evrópusamkeppninni um sjón- varpshandrit varð sammála um að mæla með þremur verkum til áframhaldandi þátttöku í samkeppni Evrópusjónvarpsstöðva um sjón- varpshandrit. Alls bárust 27 handrit eftir 23 höfunda. Þau verk og höfundar sem ákveð- ið var að mæla með eru „Heim- koma“ eftir Önnu Heiði Oddsdóttur og Michael Dean Ford, „Engin spor“ eftir Viktor Arnar Ingólfsson og „Steinbam" eftir Vilborgu Ein- arsdóttur. í greinargerð frá dómnefnd segir m.a. að nefndin telji þessar þrjár tillögur að sjónvarpsleikritum vera heilsteyptar og skýrt fram settar, auk þess sem efnisvalið sjálft veki áhuga og lýsi hugmyndaauðgi höf- unda. „Eftir tillögunum að dæma virðist höfundum treystandi til að fylgja tillögunum eftir og fullmóta þær, enda eru þær unnar af vand- virkni og kunnáttu," segir í greinar- gerð dómnefndar. Um einstök verk segir m.a. í greinargerð dómnefndar: „Heim- koma“ eftir Önnu Heiði Oddsdóttur og Michael Dean Ford er frumleg tillaga að sjónvarpsleikriti, sem byggir á heimflutningi islensku handritanna frá Danmörku. Hér er á ferðinni skemmtileg blanda raun- verulegra atburða og ævintýralegs uppspuna, sem höfundum tekst þó að gera að heilsteyptu verki. „Eng- Gáleysi í Grafarvogí HARÐUR árekstur varð á mótum Fjallkonuvegar og Frostafoldar í Grafarvogi á laugardag. Einn maður var fluttur á slysadeild, en hann mun ekki alvarlega slasaður. Áreksturinn varð um kl. 12 á laug- ardaginn. Bifreið, sem var ekið vestur Fjallkonuveg skall á bifreið sem kom suður Frostafold. Annar ökumann- anna var fluttur á slysadeild, en meiðsli hans munu ekki vera mikil. Báðar bifreiðamar eru hins vegar mikið skemmdar og voru dregnar á brott. Á mótum Fjallkonuvegar og Frostafoldar gildir almennur umferð- arréttur og rekur lögreglan árekstur- inn til gáleysis. in spor“ eftir Viktor Amar Ingólfs- son er framhaldsmyndaflokkur í anda nútíma sakamálasögu. Höf- undi tekst að ánetja lesanda/áhorf- anda atburðarásinni og magna upp spennu sem losað er um í áföngum. „Steinbam" eftir Vilborgu Einars- dóttur er bæði manneskjulegt og „mystískt" verk. Atburðarásin er dramatísk, spennandi og óhugnan- leg og fléttað saman fortíð og nútíð á hugvitssamlegan hátt. Frásögnin er mögnuð og myndræn og tillagan býður upp á bæði dramatíska og sálfræðilega úrvinnslu. Friðrik Tryggvason við rimlahlið sem hann hefur smíðað. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Grundarfj ör ður: Ný gerð af rimlahliðum f GRUNDAKFIRÐI er verið að smíða nýja tegund rimla- íslenskt hleypi- efni í sultur ónýtt - segir Kristín Gestsdóttir „Á undanförnum árum og jafn- vel áratugum hefur íslenska hleypiefnið pektin, sem sett er í sultur, verið ónýtt,“ sagði Kristín Gestsdóttir, sem gefið hefur út bók með uppskriftum af ávaxta- og beijaréttum. „Auk þess að selja ónýtt efni, eru leiðbeiningamar með því rangar. Það á alltaf að setja sykur á eftir pektin- efninu," sagði Kristín. „Framleiðend- ur íslenska hleypiefnisins hafa valdið mörgum miklum leiðindum, og er þá vægt að orði komist. Fólk hefur mik- ið fyrir að tína ber, hakka og sjóða, en þegar sultan á að hlaupa og árang- ur erfíðisins á að koma í ljós, gerist ekkert, sultan hleypur ekki.“ Kristín sagði að margir hefðu snú- ið sér til Leiðbeiningarstöðvar húsmæðra og leitað ráða eftir að hafa lent í ógöngum við sultugerð. Þeim er bent á danskt hleypiefni, Melatin, sem er mjög gott. „Eg tal- aði við einn íslenskan framleiðanda fyrir tveimur árum og sagði hann að þeir fengju um 30 kvartanir á hveiju hausti, en hvað eru þeir margir sem ekki hringja og kvarta? Þeir skipta eflaust hundruðum. Annar framleið- andi var svo hreinskilinn að segja mér að hann notaði nú alltaf danskt hleypiefni sjálfur." hliða sem ætluð eru sem heimreiðarhlið. Sá sem smíðar hliðin er Friðrik Tryggvason bifreiðasmiður og hefur hann sjálfur hannað þau. Að sögn Friðriks hannaði hann og smíðaði fyrsta hliðið fyrir föð- ur sinn fyrir tveimur árum. Við þá smíði leitaði hann ráðgjafar hjá Elíasi Guðjónssyni, verkstjóra í Grundarfirði, en hann hefur um árabil fylgst með og annast við- hald á ristahliðum sveitarfélags- ins í Grundarfirði. Meginkostur þessara hliða er að sögn Friðriks sá að ekki er nauðsynlegt að steypa undir hlið- in. Hann sagði einnig að samsetn- ing hliðsins væri miðuð við að það þyldi verulegan þunga án þess að spenna myndaðist í stál- inu. Að lokum sagði Friðrik að mjög einfalt væri að setja hliðin upp. Rimlahliðin eru framleidd í tveimur stærðum. Þau minni eru 4x2 metrar og ætluð fyrir heim- reiðar. Þau stærri eru hins vegar smíðuð eftir viðmiðunarstaðli Skógræktar ríkisins sem er 4x3 metrar. Sæver hf. á Ólafsfirði: Framleiða kavíar á Evrópumarkað FYRIRTÆKIÐ Sæver hf. á Ólafs- firði framleiðir kavíar á Evrópu- markað. Fyrirtækið hóf vinnslu í janúar á þessu ári að sögn Sigurð- ar Pálmasonar framkvæmda- stjóra. Sigurður sagði að reksturinn hefði gengið sæmilega nema hvað hráefni hefði skort í vetur. „í dag er vinnslan í fullum gangi og við erum með 10 manns í vinnu," sagði hann. Sæver hf. kaupir hráefni til framleiðslunnar af grásleppukörlum á Ólafsfírði. „Stofnun þessa fyrirtækis er búin að vera einhvem tíma í undirbún- ingi. Eigendumir eru bærinn og fyrirtæki og einstaklingar hér á staðnum," sagði Sigurður. „Það er nægur markaður fyrir kavíar erlend- is, vandamálið er bara að fínna rétt verð.“ Morgunblaðið/Helgi Þ6r Sigurður Pálmason fram- kvæmdastjóri Sævers hf. Þúsundasti skiptineminn á vegum AFS til Ítalíu á morgun: Mikilvægt að halda af stað með réttu hugarfari - segir Anna Halldórsdóttir SAUTJÁN ára Akurnesingur Anna Halldórsdóttir er á förum til Ítalíu á morgun og er hún þúsundasti skiptineminn sem fer utan á vegum AFS á íslandi, en 30 ár eru nú liðin síðan fyrstu átta ungmennin héldu utan til ársdvalar í Bandaríkjunum á vegum sam- takanna. Á því skólaári, sem nú er að hefjast, eru 78 ungmenni á leið utan og munu þau dreifast til alls 20 landa í öllum heimsálf- um. Þetta er stærsti hópurinn sem fer utan á vegum AFS til þessa. AFS starfar nú í alls 73 löndum. „Mér finnst þetta allt saman mjög spennandi. Maður fær að kynnast nýrri menningu, nýrri þjóð og nýju landi,“ sagði Anna í sam- tali við Morgunblaðið. Hún verður í tíu þúsund manna bæ, Carignano, sem er um það bil 15 km fyrir utan Torino. Þar mun hún búa hjá þriggja manna fjölskyldu, hjá fóst- urforeldrum sem báðir eru fþrótta- kennarar og 16 ára dóttur þeirra, Emanuelu. „Við höfum skrifast á og sent hvor annarri fjölskyldu- myndir. Ég mun ganga í sama skóla og hún. Þetta er lítill skóli, aðeins 150 nemendur. Ég verð bara að vera dugleg að ná tökum á ítölsk- unni. Ég get sjálfsagt spjarað mig á ensku til að byija með, en ég held að ítalimir séu ekkert áfláðir í að tala ensku, að minnsta kosti ekki eldra fólkið." Anna sagðist hafa verið á félags- fræðibraut Fjölbrautaskóla Vestur- lands á Akranesi undanfama tvo vetur. Hún sagði að sjö jafnaldrar hennar frá Akranesi hefðu sótt um að fara út sem skiptinemar á vegum AFS í vetur og væru þeir allir fam- ir, ein vinkonan hefði t.d. farið til Suður-Afríku, ein til Porto Rico og aðrir annað. „Maður hefur örugg- lega mjög gott af þessu ári. Auðvitað hlýtur söknuður til §öl- skyldunnar heima á íslandi að koma upp. Það er ekkert óeðlilegt, en þetta ár verður örugglega þrosk- andi. Því er ekki að neita að ég verð alltaf útlendingur á Ítalíu, en ég tel mjög mikilvægt að reyna að aðlaga sig breyttum háttum. Maður verður að vera jákvæður og taka því sem að höndum ber f stað þess að vera sífellt að gagnrýna og bera Ítalíu og ísland saman. Þetta eru ólík lönd. Maður verður að fara með réttu hugarfari, tilbúinn til að gefa eitthvað af sjálfri sér.“ Anna sagðist hafa ferðast um öll Norður- löndin auk þess sem hún hefur farið til Skotlands og í sólarlandaferð til Ibiza. Skólaárið 1986-87 dvöldu hér á landi 18 skiptinemar á vegum AFS og bjuggu þeir hjá sömu fjölskyld- Anna Halldórsdóttir 17 ára Akurnesingur er þúsundasti skiptineminn sem fer utan á vegum AFS á ísiandi. unum allt árið. Á meðan á dvölinni stóð stunduðu þeir nám í fram- haldsskólum auk þess sem AFS stóð fyrir ýmsum uppákomum fyrir hópinn. Svokölluð „menningar- helgi" fór fram í nóvember og var þá farið í leikhús og á söfn á höfuð- borgarsvæðinu. „Vistaskipti" áttu sér stað í febrúar, en þá fóru skipti- nemamir af Reykjavíkursvæðinu til skammtímadvalar f sveit og í sjáv- arþorpum út um landið, og hin komu suður á sama tíma. Farið var í lokaferðalag um Snæfellsnes og Breiðafjörð og dvalið var í Flatey á Breiðafirði í nokkra daga áður en hópurinn fór til sinna heima- landa. Á komandi skólaári verður 21 skiptinemi hér á landi á vegum AFS á Islandi. Þau koma til landsins í dag, 25. ágúst, og dreifast stuttu sfðar til fósturfjölskyldna sinna um allt land. Þetta er stærsti hópur ársnema sem hér dvelur í einu á vegum samtakanna. I sumar hafa dvalið hér 26 AFS skiptinemar um tveggja mánaða skeið. Þeir hafa búið hjá fjölskyld- um um allt land, og hafa mörg verið á sveitaheimilum og í sjávar- þorpum, þar sem þau hafa kynnst Islandi á nokkuð annan hátt en venjulegir ferðamenn. Margir sum- amemanna hafa einnig tekið þátt í sérstökum vinnuverkefnum, sem hefur aukið á fjölbreytni dvalarinn- ar. Á sama tfma hafa um 60 íslenskir unglingar farið til slíkrar sumardvalar á vegum AFS í ellefu löndum. Fyrirhugað er að minnast 30 ára afmælis AFS á íslandi með af- mælisdagskrá í október. Ætlunin er að fá til landsins yfírmenn al- þjóðasamtaka AFS, og kynna starf samtakanna á alþjóðavettvangi bet- ur en gert hefur verið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.