Morgunblaðið - 25.08.1987, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 25.08.1987, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 Kosningarnar í Danmörku: Schlíiter útilokar ekki samvinnu við Glistrup Skoðanakannanir spá jafnaðarmönnum ósigri Kaupmannahöfn, Reuter. NIÐURSTÖÐUR þriggja skoð- anakannana voru birtar í Danmörku á sunnudag og gefa tvær þeirra til kynna að stjórn Schliiters muni eftir kosningarn- ar þurfa á stuðningi Framfara- flokks Glistrups til að halda þingmeirihluta með aðstoð Rót- tækra. Framfaraflokknum er spáð sex til átta þingsætum en alls sitja 179 á danska þjóðþing- inu. Á blaðamannafundi í gær varaði SchlUter forsætisráð- herra við auknum áhrifum Glistrup-manna en hafnaði þó ekki afdráttarlaust samvinnu við þá. „Það mun auka mjög hættuna á pólitískum óstöðugleika ef ný, fjög- urra flokka stjóm verður að taka tillit til kjósenda Framfaraflokksins við stefnumótun sína,“ sagði Schluter. Mjög vefst fyrir stjóm- málaskýrendum hvemig túlka beri ummæli hans. Niels Helveg Peters- en, formaður Róttæka vinstri flokksins, er tryggt hefur sitjandi stjóm þingmeirihluta í flestum málaflokkum án þess að eiga full- trúa í stjóminni, sagði hins vegar á öðrum fréttamannafundi að flokk- ur hans myndi ekki styðja ríkis- stjóm sem styddist við Framfara- flokkinn. „Ástæðumar fyrir þeirri afstöðu okkar að vilja ekki veita þeim neina áhrifastöðu eru pólitískar skoðanir þeirra og sú reynsla sem við höfum haft af starfsemi þeirra,“ sagði Helveg Petersen. Samkvæmt könnun dagblaðsins Politiken, sem gerð var á fimmtu- daginn í síðustu viku, fá jafnaðar- menn 27% atkvæða í kosningunum 8. september, íhaldsflokkurinn 24%, Sósíalíski þjóðarflokkurinn 17% og Vinstri flokkurinn (borgara- legur) 12%. í könnun Politiken fær Framfaraflokkurinn aðeins 3% at- kvæða en meira í öðrum skoðana- könnunum. Stjómarsinnar hampa nú mjög þeim árangri sem þeir telja borgara- flokkana hafa náð í stjóm efna- hagsmála og benda einnig á að samanlögð neysla hafi aukist mun meira á stjómarárum Schuter- stjómarinnar en síðustu stjómarár jafnaðarmanna undir forystu Ank- ers Jargensen. Sala á nýjum bílum hefur tvöfaldast og sumarleyfis- ferðum til útlanda fjölgað um 45 af hundraði. Er Schliiter tók við 1982 var hlut- fall atvinnulausra 9,8% en 1986 8,3%. Viðskiptahalli við útlönd var 4,1% af þjóðarframleiðslu, 1986 var hann 2,5%. Fjárlagahallinn var 10,6% af þjóðarframleiðslu en 0,6% árið 1986. Loks má svo geta þess að verðlag hækkaði að meðaltali um 10,2% árið 1982 en 1986 var hækkunin 4,0%. Stjóminni hefur aftur á móti gengið erfiðlega að standa við lof- orð um skattalækkanir. Talsmenn hennar viðurkenna að skattar hafl hækkað miðað við fast verðlag. Kenna þeir því um að Jafnaðar- mannastjómin hafí trassað að innheimta nægilegt fé fyrir ríkisút- gjöldum og borgaraflokkamir því þurft að moka flórinn. Ekki hefur heldur tekist að stöðva vöxt ríkisút- gjalda. Hungerford: Útför fórnar- lambanna Hungerford, Reuter. Á SUNNUDAG voru fóm- arlömb fjöldamorðingjans Michael Ryans borin til grafar í bænum Hungerford, skammt vestur af Lundúnum. Hundmð ættingja og annarra syrgjenda komu til athafnarinnar. Síðastliðinn miðvikudag fór Ryan á stjá í felulituðum her- mannabúningi og skaut á nánast allt, sem hreyfðist. Fyrsta hitti hann fyrir konu í skógarferð og skaut hana að bömum hennar aðsjáandi. Þá sem síðar þyrmdi reuter Nokkrir syrgjandi aðst&ndendur þeirra, sem féUu fyrir kúlna- regni Ryans. AP Fyrir miðju þessarar myndar má sjá fjölda- morðingjann Michael Ryan ásamt skólasystkin- um sínum í ellefu ára bekk, en á innfelldu myndinn er nýlegri mynd af honum. hann bömunum. Ryan ók svo sem leið lá inn í Hungerford og myrti þar móður sína, lögregluþjón og 14 aðra. Ryan var 27 ára að aldri og keypti og seldi fomar byssur. Lögreglan segist enn ekki hafa nokkra hugmynd um hvað olli þessu æði Ryans. Læknar leita nú leifa áfengis eða annarra vímuefna í líkama Ryans, en að því búnu verður líkið afhent ættingjum hans. Þeir segj- ast ekki hafa ákveðið hvar líkið verður jarðsett, en sögðu þó að því yrði ekki fyrirkomið í Hunger- ford af tillitssemi við ættingja hinna látnu. Joschka Fischer fyrrverandi umhverfismálaráðherra græningja i Hessen bregður hér á leik. Græningjar: Ráðandi afl á næstu öld? Stokkhólmur, Reuter. Umhverfisverndarsinnar og kerfisfjendur halda sitt þriðja al- þjóðlega þing i Stokkhólmi nú f vikunni. Hin unga hreyfing græn- ingja í Evrópu segist njóta æ meira fylgis og vonast til að verða ráð- andi stjórnmálaafl á meginlandinu á næstu öld, þrátt fyrir að hreyf- ingin sé enn sem stendur fremur ósamstæð. Uppskeran í kosningum á megin- landinu hefur verið ríkuleg upp á síðkastið. Sjóaðastur er flokkur græningja í V-Þýskalandi. í þing- kosningum í janúar jók hann fylgi sitt úr 5,6% í 8,3%. Á Ítalíu unnu samtök umhverfisvemdarsinna 13 þingsæti í kosningum í júní. Græn- ingjar hafa einnig komist á þing í Belgíu, Luxemburg, Finnlandi, Aust- urríki og Sviss. Skoðanakannanir benda til að flokkur græningja í Svíþjóð njóti fylgis tíu af hundraði kjósenda og komist á þing ! kosning- um á næsta ári. Sama má segja um græningja í Danmörku sem bjóða í fyreta skipti fram í þingkosningunum í september. Pehr Garhton, stofnandi græn- ingjaflokksins í Svíþjóð og einn af forsvarsmönnum alþjóðasamtak- anna, telur allar líkur á að grasrótar- hreyfingin eigi eftir að ráða ferðinni í stjómmálum 21. aldarinnar. „Hreyf- ing græningja er nú í sömu aðstöðu og jafnaðsrmenn í upphafi þessarar aldar og fijálslyndir í byijun 19. ald- ar,“ segir Garhton. Chemobyl-slysið og mengun Rínarfljóts eftir brunann í Sandoz hefur opnað augu fólks. Þessir atburðir staðfestu vamaðarorð umhverfisvemdarmanna, segir hann ennfremur. Kjamorkuandstæðingar, grænfrið- ungar, dýravinir, umhverfissinnar og rauðsokkar eru sameinaðir í andstöð- unni við kerfið en erfíðlega gengur að finna sameiginlega uppbyggilega stefnu. Garhton segir græningja- Líbanon: flokka sameinaða í andstöðunni við lqamorkuna, hemaðarbandalög, Evrópu- bandalagið, fjölþjóðafyrir- tæki, mengun og hefðbundin stjóm- mál. Þeir boða stefnu sem tekur hið smáa fram yfir hið stóra. Umhverfís- vemd er mikilvægari en hagvöxtur. í raun vilja græningjar ekki vera stjómmálaflokkur heldur grasrótar- hreyfing, þar sem málefni en ekki menn ráða og hreyfíngarbræður skiptast á um að gegna ábyrgðarstöð- um. Pólitískir andstæðingar græningja kalla þá gjama „sakleysingja ! efna- hagsmálum" og „draumóramenn úr millistétt" en umræddir eiga á hinn bóginn í nokkrum erfiðleikum með að skilgreina sjálfa sig og ákveða hvort stjómmálalegt vald sé eftir- sóknarvert. Á flokksþingi v-þýskra græningja fyrr á þessu ári kom ber- lega í ljós djúpstæður ágreiningur milli „raunsæismanna" sem vilja samvinnu við jafnaðarmenn og hlut- deild í valdinu og „hugsjónamanna" sem neita öllum sáttmálum við kerfíð. Annar vandi sem blasir við öllum græningjahreyfingum er sá að vegna mótmælanáttúru sinnar hefur slík hreyfing tilhneigingu til að fjara út þegar hinir flokkamir taka „græn“ markmið upp í stefnuskrár sínar. Slíkt hefur einmitt gerst í V-Þýska- landi en þar hafa jafnaðarmenn fordæmt kjamorkuverin, meðal ann- ars í þeirri von að fá hlutdeild í vinsældum græningja. Og kristilegir demókratar í stjóm hafa stofnað umhverfismálaráðuneyti. En fyrir sanna græningja er slíkt náttúrlega ekkert vandamál því málefnin eru jú mikilvægari en hreyfingin sjálf. Ga- hrton hefur heldur ekki miklar áhyggjur af því að grasrótarhreyfing- in eigi eftir að uppræta sjálfa sig því ekki sé mögulegt að sameina um- hyggju fyrir umhverfinu og hug- myndafræði hagvaxtarins. íransstjóm kom í veg fyrir lausn Waites Beirut, Reuter. Heimildarmenn í líbönskum her- flokkum sögðu i gær að klerka- stjórnin í íran hefði komið í veg fyrir samkomulag um að skipta á sendimanni bresku biskupakirkj- nnnar, Terry Waite, og fimm milljónum Bandaríkjadala. Skæru- liðar, hliðhollir írönum, rændu Waite í Beirut fyrir sjö mánuðum. Á laugardaginn skýrði Beirut- blaðið Ash-Shiraa frá þv! að lausn Waites væri í sjónmáli. Líbönsku heimildarmennimir sögðu að kaupin hefðu verið rædd að frumkvæði ræningja Waites við pólitískan hóp í Beirut en runnið út í sandinn er „bakhjarl" ræningjanna hafí komist á snoðir um þau. Talið er að þessi bakhjarl sé fransstjóm en ætlunin var að kaupin fæm fram án vitneslg'u hennar. Opinber fréttastofa Líbýu, Jana, skýrði frá því um helgina að Gaddafi Lýbíuleiðtogi hefði veitt mótttöku sendimanni bresku biskupakirkjunn- ar og hefði leiðtoginn lofað að „vinna að friði og lausn Waites úr haldi." Talsmaður biskupakirkjunnarí Lon- don kannaðist ekki við að sendimaður hennar hefði rætt við Gaddafí en sagðist þó fagna allri viðleitni til að frelsa Waite.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.