Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 31

Morgunblaðið - 25.08.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987 31 Nýja Kaledónía: Átök milli Kanaka og lögreglu Paris og Noumea í Nýju Kaledóníu, Reut- er. FRÖNSK yfirvöld játuðu á sunnudag að lögregla í Nýju Kaledóníu hefði beitt hörku til þess að leysa upp friðsamleg mótmæli Kanaka, en kenndi að- skilnaðarsinnum um — þeir hefðu virt bann við mótmælum að vettugi. Auk þess segja yfir- völd að lögregla hafi ekki beitt ofbeldi umfram það, sem nauð- synlegt hafi verið. Á laugardag notuði lögregla kylf- ur og táragas til þess leysa mótmælaaðgerðimar upp. Að sögn aðskilnaðarsinna særðust 23 í hópi hinna 300 Kanaka, sem tóku þátt í mótmælunum. Þessi harkalega meðferð lögreglu á á fólkinu, sem sat með krosslagða fætur á aðaltorgi Noumea, hefur vakið töluverða reiði — bæði í Ey- álfu sem heima í Frakklandi. Nýlenduráðherra Frakka, Bemard Pons, vísaði þessari gagnrýni á bug og sagði að Kanakar bæm sjálfír ábyrgð á þessu, þar sem þeir hefðu brotið bann stjómvalda við mót- mælaaðgerðum þar til eyjarskeggj- ar hafa kosið um framtíð eyjanna. Sú kosning fer fram 13. september. Kanakar, sem em uppmnalegir íbúar Nýju Kaledóníu, em í minni- hluta á eyjunum, krefjast sjálfstæð- is þeirra og vilja franska innflytj- endur á burt. Innflytjendumir, sem em í meirihluta vilja hins vegar hvergi fara og kjósa flestir að vera áfram undir stjóm Frakklands. Israel: Fordæma kvikmynda- sýningar Jerúsalem, Reuter. ÞÚSUNDIR strangtrúaðra gyð- inga söfnuðust saman til bæna- halds við Grátmúrinn í Jerúsalem i gær. Vildi fólkið með þessu sýna andúð sína á því að kvik- myndir skuli vera sýndar á laugardögum, sem strangtrúaðir gyðingar segja að sé vanhelgun við hvíldardaginn. Talið er að um 10.000 manns hafi komið saman við Grátmúrinn. Rak fólkið upp kveinstafí og las sálma. Venju samkvæmt var blásið í hrútshom. Tveir gyðingaprestar boðuðu til bænastundarinnar til að mótmæla því að fjögur kvikmynda- hús í borginni skyldu vera opin á sabbatsdaginn, sem hefst við sólset- ur á föstudag og lýkur á laugar- dagskvöld. Trúarleiðtogar lögðu áherslu á að mótmælin fæm frið- samlega fram en komið hefur til átaka að undanfömu sökum þessa í nokkmm borgum í ísrael. Teddy Kollek, borgarstjóri Jerú- salem, hefur neitað að stöðva kvikmyndasýningar á hvíldardegi gyðinga. Hafa þær verið vel sóttar en áður hafði fólk neyðst til að taka sér á hendur 45 mínútna langa ferð til Tel Aviv til þess að komast í kvikmyndahús eða leita sér annarr- ar afþreyingar. Á síðasta ári bám strangtrúaðir gyðingar eld að strætisvagnaskýl- um sökum þess að þar gat að líta auglýsingar fyrir baðfatnað kvenna. Þeir hafa og lokað ýmsum götum í Jerúsalem á hvfldardaginn og hafa oftlega gripið til þess ráðs að grýta ökumenn. Þá hafa þeir lent í átökum við lögregluþjóna sem reynt hafa að stöðva mótmælin. Reuter Námsmenn og verkamenn kasta steinum og bensinsprengjum í átt til óeirðalögreglu fyrir utan Yonsei-háskólann í Seoul. S-Kórea: Ný alda mótmæla Seoul, Reuter. Að minnsta kosti tiu verka- menn særðust að sögn lögreglu i átökum milli verkfallsmanna og andstæðinga verkfailsins í vélaverksmiðju í S-Kóreu í gær. Átökin brutust út eftir að læknar birtu niðurstöðu krufn- ingar á manni sem lést i bardaga verkfallsmanna og óeirðalögreglu á laugardag. Krufningin leiddi í ljós að mað- urinn dó vegna innvortis blæðinga eftir að hafa fengið táragas- sprengjubrot í bijóstið að því er talið er. Hundruð verkamanna hafa vakað yfír líkinu síðan á laugardag og stjómvöld óttast nýja öldu óeirða í landinu. Forr- áðamenn landsins hittust á fundi í gær og lýstu eindregnum vilja til að koma í veg fyrir frekari blóðsúthellingar. Lögreglan greindi frá því í gær að 1.650 fyrirtæki hefðu orðið fyrir barðinu á verkföllum síðan í byijun júlí þegar stjóm landsins boðaði lýðraeðislegar breytingar. Meira en tveir þriðju hlutar vinnu- deilnanna hafa verið leystir á friðsamlegan hátt en enn liggur vinna niðri hjá 513 fyrirtækjum. SILFURBÚÐIN KRINGLUNNI—REYKJAVÍK SÍMI 689066

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.