Morgunblaðið - 25.08.1987, Page 64
XJöfðar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Hraðflutningaskipið frá Vestfjörðum:
Svipað verð og
á nýveiddum
fiski í Hollandi
NORSKA hraðflutningaskipið,
sem ísfang á ísafirði hefur tekið
á leigu til ferskfisksflutninga, kom
til Breskens í Hollandi á sunnu-
dagsmorgun eftir aðeins þriggja
sólarhringa siglingu frá ísafirði.
Skipið var með um 200 tonn af
þorski og nokkur tonn af öðrum
fiski, sem dreift var beint á mark-
að viða í Evrópu. Að sögn Eggerts
Kjartanssonar, fréttaritara Morg-
unblaðsins í HoUandi, var hér um
mjög góðan fisk að rœða og fékkst
fyrir hann svipað verð og fyrir
besta hollenska fiskinn nýdreginn
úr sjó. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun hæsta verðið
hafa verið um 80 krónur á kílóið,
en lægst verð fékkst í Þýskalandi,
um 40 krónur á kilóið, enda hafa
Þjóðveijar verið lítt ginnkeyptir
fyrir fiski að undanförnu.
Siglingin er um 1.400 sjómflur
og að sögn Eggerts hefur aldrei ver-
ið flutt svo mikið af ferskum fiski
svo langt á jafn skömmum tíma á
skipi. í Breskens tók flutningafyrir-
tækið Vooruit við fiskinum og dreifði
honum beint á neytendamarkað í
Frakklandi, Þýskalandi, Belgíu, Eng-
landi og Hollandi.
Norska hraðflutningaskipið verður
í reynslusiglingum á milli ísafjarðar
og Hollands næstu tíu vikurnar og
mun hugmynd forráðamanna ísfangs
vera sú að vinna nýja markaði fyrir
fiskinn í FVakklandi, Belgíu, Hol-
landi, Spáni og víðar í Evrópu.
Sláturfélag Suðurlands
Ráða tuttugu og
sjö Dani til starfa
SLÁTURFÉLAG Suðurlands réð í
síðustu viku 27 Dani til starfa í
framleiðsludeildum og verslunum
fyrirtækisins. Að sögn Teits Lár-
ussonar, starfsmannasijóra SS,
var gripið til þessa ráðs vegna
mikils skorts á innlendu vinnuafli.
Danirnir, sem eru á sex mánaða
starfssamningi til að byija með,
eru væntanlegir til landsins í byij-
im september.
Mikill skortur er á vinnuafli hjá
íslenskum iðnfyrirtækjum um þessar
mundir. Samkvæmt könnun, sem
Félag íslenskra iðnrekenda hefur
gert, er útlit fyrir að vinnuaflsskort-
urinn geti orðið 10-12% af mannafla
í haust, sem er helmingi meiri skort-
ur en á síðasta ári.
„Við áttum við mikinn vanda að
stríða vegna skorts á vinnuafli og
tókum því þessa ákvörðun að leita
eftir erlendu vinnuafli," sagði Teitur
Lárusson, starfsmannastjóri SS, í
samtali við Morgunblaðið. „Þetta er
að okkar mati nauðsynleg ráðstöfun
meðan sú mikla þensla sem nú er í
þjóðfélaginu varir.
Við auglýstum í BT og Politiken
og buðum fólki störf á íslandi sam-
tímis og það hefði möguleika á að
„ kynnast landinu. í síðustu viku var
svo gengið frá ráðningu 27 aðila í
framleiðsludeildir og verslanir Slátur-
félagsins. Þetta er allt mjög ungt og
geðslegt fólk sem við réðum til starfa
og kemur það til landsins í byijun
september.
Dönunum eru boðin sömu kjör og
öðru starfsfólki okkar, en um er að
ræða bæði fólk sem hefur sérmenntað
sig í kjötiðnaði og ófaglært iðnverka-
fólk. Þó að vinnulaun séu hærri í
Danmörku en á íslandi þá eru skatt-
ar það miklu lægri hér á landi að
lqör þeirra verða svipuð og þau hefðu
orðið í Danmörku.
Það er greinilegt að mikið framboð
er á vinnuafli í Danmörku enda at-
vinnuleysi töluvert. Vandamálið var
því ekki að útvega fólk heldur að
fínna því húsaskjól hér heima en við
það aðstoðum við fólk þó það borgi
síðan sína húsaleigu og allan kostnað
af verunni."
Útvegsbankamálið:
Morgunblaðið/Jónas Bjarnason
Fjölmenni í Viðey
Á annað þúsund manns tóku þátt i Viðeyjarferð sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Fjölbreytt
dagskrá var í Viðey af þessu tilefni og naut fólk dvalar-
innar í góðviðrinu. Á myndinni sjást nokkrir Viðeyjar-
gesta ganga upp flotbryggjuna. Sjá einnig frásögn og
myndir á bls. 27.
BU ’87:
Hestarnir
seldust allir
Kostuðu frá
100.000 kr. til
250.000 kr.
TILBOÐ á hrossamarkaðinum,
sem haldinn var á_ vegum Félags
hrossabænda á BÚ ’87, hljóðuðu
upp á allt frá 100.000 krónum
og upp í 250.000 krónur. Tilboð
voru opnuð í lok búvörusýningar-
innar á sunnudagskvöld og
bárust tilboð í alla þá fjórtán
hesta sem til sölu voru. Flest til-
boð bárust í Flugu frá Flugu-
mýri, eða alls níu talsins. Fimm
tilboð bárust í Ófeig frá Grófar-
gili sem seldur var hæstbjóðanda
á 250.000 krónur, en í aðra hesta
bárust tvö til þijú tilboð.
Halldór Gunnarsson, formaður
markaðsnefndar Félags hrossa-
bænda, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að uppboðin hefðu gengið
ágætlega. Eigendur hestanna hefðu
þurft að taka einu þriggja efstu til-
boða, en þó hefðu þeir getað fengið
menn til að bjóða fyrir sig í eigin
hesta, væru þeir ekki vissir um
ágæti þeirra tilboða sem þeir áttu
í vændum og léki grunur að að ein-
hver brögð hefðu verið á því. Þá
sagði hann að fyrirhugað hefði ver-
ið að allir hestamir á markaðnum
yrðu úrvalshestar, eða hestar sem
hefðu verið framarlega í keppni í
sumar, en því miður hefði sú raun-
in ekki orðið á. Halldór sagði að
Félag hrossabænda gerði ráð fyrir
að halda slíka hrossamarkaði þrisv-
ar til ijórum sinnum á ári í Reið-
höllinni með svipuðu sniði. Verð nú
hefði verið bæði undir og yfír því
sem gengi og gerðist á almennum
markaði.
Verða tilboðsgjöfumim
boðin helmingaskipti?
Tryggingar aðilanna 33 fullnægjandi
Viðskiptaráðherra átti í gær
viðræður við fulltrúa þeirra að-
ila, sem gert hafa tilboð í hlutafé
rikissjóðs í Útvegsbankanum.
Einnig var haldinn fundur í ráð-
herranefndinni sem hefur málið
til meðferðar, en í henni eiga
sæti, auk Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra, þeir Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra og
Steingrímur Hermannsson ut-
anríkisráðherra. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru
ýmsar hugmyndir uppi í sam-
bandi við sölu Útvegsbankans en
nýjasta hugmyndin í stöðunni er
Týndist í berjatínslu
Borg i Miklaholtshreppi.
SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld
var beðið um aðstoð björgunar-
sveitarmanna um að leita að
manni sem var við beijatínslu i
' Eldborgarhrauni.
Sem betur fór fannst maðurinn
heill eftir nokkra leit. Margir tóku
þátt í leitinni, sem tókst ágætlega
enda veður hagstætt.
PáH.
að gefa hvorumtveggja tilboðs-
gjöfunum, aðilunum 33 og
Sambandinu, kost á að kaupa
helming af því hlutafé sem óselt
er í bankanum.
Meðal þeirra leiða sem ræddar
hafa verið er að bjóða upp á lokað
útboð á hlutafé ríkisins í Útvegs-
bankanum þar sem Sambandinu og
einstaklingunum og fyrirtækjunum
33 gefst kostur á að bjóða í það á
ný. Einnig hefur komið til tals að
breyta Búnaðarbankanum í hlutafé-
lag og selja samhliða Útvegsbank-
anum eða að hafna báðum
tilboðunum og sameina Útvegs-
banka og Búnaðarbanka í hlutafé-
lag sem síðan yrði selt. Þá er einnig
rætt um þá hugmynd að bjóða báð-
um tilboðsgjöfum helmingakaup á
því hlutafé sem eftir er í eigu ríkis-
ins í Útvegsbankanum.
Athugun á tryggingum þeirra 33
aðila og einstaklinga sem gert hafa
tilboð í bankann er nú lokið og er
það niðurstaða fjármálaráðuneytis-
ins að tryggingar séu fullnægjandi.
Viðræður viðskiptaráðherra við
fulltrúa tilboðsgjafanna og ráð-
herranefndina munu halda áfram í
dag en málefni Útvegsbankans
verða þó ekki á dagskrá ríkisstjóm-
arfundar í dag.
Lottóið:
Fyrsti vinningnr gæti
farið í tíu milljónir
- segir Hallveig
Andrésdóttir
FYRSTI vinningur í Lottó 5/32
í síðustu viku gekk ekki út þar
sem engin reyndist vera með
fimm rétta. Potturinn var tvö-
faldur í síðustu viku vegna þess
að fyrsti vinningur gekk ekki
heldur út í vikunni á undan.
Að sögn Hallveigar Andrésdótt-
ur, fulltrúa framkvæmdastjóra
íslenskrar getspár, hefur það gerst
einu sinni áður að fyrsti vinningur
gengi ekki út tvær vikur í röð.
„Þetta gerðist síðast í maí en þá
varð fyrsti vinningurinn 14 milljón-
ir. Vinningshafar voru sjö talsins
þá vikuna en það er einmitt einn
þessara sjö sem ekki hefur enn
gefið sig fram til þess að taka á
móti þeim tveimur milljónum sem
hann á hjá okkur,“ sagði Hallveig.
Hallveig sagðist ekki búast við
að fyrsti vinningurinn yrði jafnhár
núna en þó mætti búast við því að
hann færi í tíu milljónir. Hún sagði
að nú væru í pottinum 4 milljónir
og 435 þúsund krónur og væri búist
við mikilli þátttöku í Lottóinu um
næstu helgi.