Morgunblaðið - 05.09.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.09.1987, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 199. tbl. 75.árg. LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Dómur fallinn í Moskvu: Rusts bíður fjög- urra ára þrælkun Moskva, Reuter. HÆSTIRÉTTUR Sovétrikjanna dæmdi vestur-þýska ofurhugann Mathias Rust til fjögurra ára þrælkunarvinnu í gær fyrir að hafa flogið án leyfis i sovéskri lofthelgi og lent á Rauða torginu í Moskvu. Dómarinn, Robert Tikhomimov, kvað upp úr um fjögurra ára þrælk- unarbúðavist vegna skemmdar- verkastarfsemi, þriggja ára fyrir að hafa brotið alþjóðlegar flugmála- reglur og tveggja ára fyrir að hafa farið á ólöglegan hátt yfír landa- mærin. Rust afplánar samtímis refsivistina fyrir þessi þijú brot. Rust sem er 19 ára gamall sýndi engin svipbrigði þegar dómurinn Brasilía: Lánín verði boðin út var upp kveðinn. Hann fékk að hitta foreldra sína og bróður eftir að dómurinn var kveðinn upp. „Ég hafði búið mig undir þennan dóm," sagði Rust í viðtali við sovéska sjón- varpið. Farið verður með hann í búðir, sem eru hinar vægustu af fjórum stig^um þrælkunarbúða í Sovétríkjunum. Rust getur ekki áfrýjað dómnum en ráðamenn í Kreml geta náðað hann. Að sögn Andrei Sakharov er ekki útilokað að svo fari eða þá að höfð verði skipti á Rust og sovésk- um njósnara í haldi í Vestur-Þýska- landi. í heimalandi Rusts vom menn slegnir óhug yfír þyngd refsingar- innar fyrir þetta strákslega athæfí. Þingflokksformaður Kristilegra demókrata, Alfred Dregger, sagðist þó feginn að refsingin skyldi ekki verða enn þyngri. Nágrannar Rusts í heimabæ hans Wedel við útjaðra Hamborgar sýndu margir hveijir litla samúð með ofurhuganum og sagði eldra fólk að hann ætti fleng- ingu skilda þegar heim kæmi. Reuter „Rust var knúinn hugsjónaeldi og gekk honum gott eitt tB,“ sagði Vsevolod Yakovlev (efst til vinstri), verjandi Mathiasar Rust (fyrir miðju), þegar hann fór fram á að skjólstæðingur sinn fengi vægan dóm. En allt kom fyrir ekki, Rust var dæmdur í fjögurra ára þrælkunarvinnu. Eftir að dómur hafði verið kveðinn upp fékk Rust að hitta foreldra sina og bróður og á innfelldu mynd- inni sést móðir hans Monika hughreysta soninn. Úrslitalota kosningabaráttunnar í Danmörku hafin: Pj órflokkarnir bæta við sig í skoðanakönnunum Kaupmannahöfn, frá Nils Jergen Bruun, fréttaritara Morgfunblaðsins. Vín, Reuter. Fjármálaráðherra Brasilíu, Bresser Pereira, tilkynnti í gær á alþjóðlegum fundi í Vín um skuldamál, að landið hefði rót- tækar tillögur í pokahorninu til að greiða úr skuldavanda sínum. Gert er ráð fyrir að tillögurnar verði formlega lagðar fram fyrir fund Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í lok mánaðarins. Brasilíumenn skulda nú um 113 milljarða bandarílqadala, þar af eru 70 milljarðar lán hjá einkabönkum. Þeir leggja til að helmingur einka- lánanna verði boðinn út á almenn- um markaði sem skuldabréf með 30% affölium. Þetta myndi þýða að Brasilíumenn fengju lengri tíma til að greiða af lánunum og þá með fostum vöxtum. Lánadrottnar Brasilíu sem er skuldugasta þriðjaheims-ríkið hafa tekið tillögunum með semingi. Þeir segjast ekki reiðubúnir að afskrifa svo stóran hluta útistandandi fjár þótt margir bankar hafí nú þegar lagt fé til hliðar ef svo kynni að fara að Brasilíumenn stæðu ekki í skilum. Annað sem fundið er tillög- unum til forráttu er að lán gangi sjaldnast kaupum og sölum. SAMKVÆMT skoðanakönnun- um, sem birtar voru í Danmörku i gær, mun fjórflokkastjórn Pouls SchlUter halda velli eftir kosningarnar á þriðjudag. í könnuninni, sem birtist í við- skiptablaðinu Bersen, kom í ljós að stjómarflokkamir fjórir, íhalds- flokkurinn, Vinstri-flokkurinn, Kristilegi þjóðarflokkurinn og Mið-demókrataflokkurinn, munu halda meirihluta njóti þeir áfram stuðnings Róttæka vinstri flokks- ins (Radikale Venstre) eftir kosn- ingamar. Samkvæmt könnuninni fá flokkamir fímm 49 prósent at- kvæða, en í síðustu kosningum í janúar árið 1983 fengu þeir 48,3 prósent atkvæða. Búist er við að fjórflokkamir ásamt Róttæka vinstri flokknum fái níutíu sæti á þingi og muni að auki njóta stuðnings tveggja fjög- urra þingmanna Grænlendinga og Færeyinga. 179 sæti em á danska þjóðþinginu. Fylgi Jafnaðarmannaflokks Ankers Jorgensen heldur áfram að minnka. I könnuninni kváðust 27,2 prósent aðspurðra ætla að greiða jafnaðarmönnum atkvæði, en í síðustu kosningum nutu þeir 31,6 prósenta stuðnings. Gæti far- ið svo að jafnaðarmenn missi sex þingmenn og fái aðeins 51. Jafnað- armenn hafa verið stærsti flokkur- inn, en nú munar ekki miklu að íhaldsflokkurinn verði stærsti flokkur Danmerkur. Sósíalíska þjóðarflokknum vex enn fískur um hrygg, en ekki er útlit fyrir að hann komist í stjóm. Er búist við að hann bæti við sig fímm þingsætum og komi 26 mönnum að. Anker Jorgensen, leiðtogi jafn- aðarmanna, sagði í viðtali við danska útvarpið í gær að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum vegna kosningahorfanna. Kvaðst hann telja að kjósendur hefðu látið ginn- ast af kosningaloforðum stjómar- flokkanna án þess að leiðtogar þeirra hefðu þurft að styðja full- yrðingar sínar fullnægjandi rökum. Bæði Schliiter og Jorgensen sögðu í gaer að ekkert væri hæft í orðrómi um að íhaldsmenn og Jafnaðarmenn hygðust ganga í eina sæng og fá fulltingi Róttæka vinstri flokksins til að afgreiða frumvörp á þingi. „Það er aðeins um tvennt að velja,“ sagði Schluter við danska útvarpið: „Núverandi fjórflokkastjóm eða stjóm jafnað- armanna og Sósíalíska þjóðar- flokksins." Sextán flokkar bjóða fram til kosninganna í Danmörku. Þarf hver þeirra að fá að minnsta kosti tvö prósent atkvæða til að fá full- trúa á þingi. Bandaríkin: Táknræn hækkun vaxta New York, Reuter. SEÐLABANKI Bandar íkj anna tikynnti í gær forvaxtahækkun úr 5,5% í 6,0%. Þetta er fyrsta vaxtahækkunin í tæp þrjú ár og jafnframt fyrsta meiriháttar að- gerð nýja seðlabankastjórans, Alan Greenspan, til að draga úr þenslu í bandarísku efnahagslifi, sem hefur farið vaxandi undan- farin fimm ár. í kjölfarið fylgdu ákvarðanir frá tveimur stórbönkum, Chase Man- hattan og Chemical of New York, um að hækka vexti á útlánum úr 8,25% í 8,75%. Að sögn ^úrmála- sérfræðinga er hér fyrst og fremst um táknræna aðgerð að ræða sem sýnir vilja bandarískra fjármálayfir- valda til að minnka hallann á ríkissjóði og styrkja stöðu gjaldmið- ilsins. Júgóslavía: Flokkurinn flæktur í fjársvik Belgrad, Reuter. VARAFORSETI Júgóslavíu, Hamlija Pozderac, sem búist er við að verði forseti i mai á næsta ári, hefur neitað hlut- deild að gífurlegu fjármála- hneyksli sem skekið hefur bankakerfi landsins. í viðtali við júgóslavneska tíma- ritið Nin segist hann ekki hafa vitað um glæpsamlegt athæfí Agrokomerc, landbúnaðar- og iðnaðarsamsteypu í eigu ríkisins. Ifyrirtækið mun hafa gefið út fals- aðar skuldaviðurkenningar að verðmæti 20 milljarða íslenskra króna til að fjármagna fjárfest- ingar. Dómsmálayfírvöld í Júgó- slavíu hafa farið fram á handtöku 92 manna sem flæktir eru í hneykslið. Forstjóri fyrirtækisins, Fikret Abdic, er hátt settur í flokknum og hefur lýst því yfir að Pozderac hafi staðið á bak við allt saman. í fyrstu opinberu yfírlýsingu sinni um málið sagði Pozderac að eins og allir félagar sínir í stjóm lýðveldisins Bosnia-Herzegovina hafí hann „ekki vitað um glæp- samlegt og ólöglegt athæfi fyrir- tækisins". Hann sagðist einungis hafa stutt Agrokomerc innan eðli- legs ramma stjómmálanna. Abdic hefði misnotað það traust sem honum var sýnt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.