Morgunblaðið - 05.09.1987, Síða 4

Morgunblaðið - 05.09.1987, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987 „Við verðum víst að skaffa nokkra róluvelli,“ er yfirskrift skýrslu um út- tekt á Sjálfstæðisflokknum og SUS sem lögð verður fram á þinginu í dag Borgarnesi, frá Guðmundi S. Hermannsayni, blaðamanni Morgunbladsins. ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra sagði í ræðu I upphafi þings Sambands ungra sjálfstæðismanna í Borgarnesi í gær- kvöldi að Valur Amþórsson stjóraarformaður SÍS teldi sig geta sett sin eigin lög vegna þess að Sambandið er er orðið stærra en ríkissjóður. Sljóraarformaðurin hefði því sett það skilyrði fyrir viðræðum um sölu á hlutabréfum ríkisins í Út- vegsbankanum hf. að forystuflokkurinn í ríkissljóra bæðist afsökunar á þeirri stefnu að vilja ekki selja einum aðila Útvegs- bankann. Sambandið setti það m.a. sem skilyrði fyrir viðræðun- nm að það þyrfti ekki að sitja undir hótunum forsætisráðherra um stjómarslit. Þorsteinn sagðist aldrei hafa hótað stjómarslitum á fundi ráðr herranefndarinnar eins og Valur hélt fram á blaðamannafundi í vikunni og Valur væri með þeim fullyrðingum að saka tvo meðráð- herra Þorsteins um að hafa sagt sér ósatt og brotið trúnað. Þor- steinn sagðist síðan ekki hafa umboð Sjálfstæðisflokksins til að vera forsætisráðherra í „Sam- bandslýðveldinu íslandi". Hann ætlaði að vera forsætisráðherra lýðveldisins íslands. Þing SUS var sett í gærkvöldi í Hótel Borgamesi. Það sem senni- lega mun setja mestan svip á þingið er að í lok þess á sunnudag fer fram formannskjör í fyrsta skipti í 10 ár. í framboði era Ámi Sigfússon og Sigurbjöm Magnús- son. En annars mun umræðan að mestu snúast um stöðu og störf Sjálfstæðisflokksins og SUS í ljósi kosningaósigurs flokksins í vor. Fráfarandi formaður SUS, Vil- hjálmur Egilsson, gaf þennan tón / DAG kl. 12.00: ^ Heímild: Veðurslofa islands / (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR í DAG, 05.09.87 YFIRLIT á hódegi f gær: Skammt suður af landinu er nærri kyrr- stæð 977 millibara lægð, en yfir Grænlandi er minnkandi 1020 millibara hæð. Hiti breytist lítið. SPÁ: I dag verður austan- og norðaustanátt á landinu og lægðin enn fyrir sunnan land. Rigna mun um tíma á Austurlandi, annars verða skúrir sums staðar á Norður- og Austurlandi. Víðast þurrt og bjart veöur suðvestan- og vestanlands. Hiti 8—13 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA SUNNUDAGUR OG MÁNUDAGUR: Fremur hæg norðaustlæg átt og skúrir víða um land, þó síst á Suö-Austurlandi. Hiti 7—12 stig. TAKN: Heiðskirt Léttskýjað m Halfskyjað Skýjað Alskyjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * -j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus y Skurir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur ~J- Skafrenningur [ 7 Þrumuveður 34 C m W' V f VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veóur Akureyri 12 rignlng Reykjavfk 12 úrk. Igr. Bergen 14 skýjaö Helslnkl 14 léttskýjað Jsn Mayen 6 rlgnlng Kaupmannah. 17 þokumóða Narssarstuaq 6 láttskýjað Nuuk 6 hálfskýjað Osló 13 alskýjað Stokkhóimur 17 léttskýjað Þórshöfn 13 skúré. s.klst. Algarve 26 skýjað Amsterdam 19 skýjað Aþena 29 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Berifn 23 mlstur Chicago 13 mlstur Feneyjar 27 þokumóða Frankfurt 26 léttskýjað Glasgow 16 léttskýjað Hamborg 23 mlstur Las Palmas 26 akýjað London 19 léttskýjað LosAngeles 19 léttskýjað Lúxemborg 21 þrum.éa.klst. Madrld 26 hálfakýjað Malaga 26 helðskfrt Mallorca 29 hálfskýjað Montreal 10 léttskýjað NewYork 16 léttskýjað Paría 19 alskýjað Róm 27 skýjað Vín 26 mlstur Washlngton 17 mistur Wlnnlpeg 16 alskýjað í sinni ræðu. Hann sagði að ekk- ert mætti vera heilagt í gagnrýni Sjálfstæðisflokksins á sjálfan sig en meginvandinn væri að beina þeirri sjálfsgagnrýni í þann farveg að hún nýtist flokknum. Vilhjálm- ur sagði að 30% fylgi og 18 þingmenn hefði í för með sér hrikalegt valdaafsal fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. í kosningabarátt- unni hefði öll orka flokksmanna farið í að sannfæra sjálfstæðisfólk um að það ætti að kjósa flokkinn. Vilhjálmur taldi Albert Guð- mundsson hafa átt mikla sök á þessu og allar gerðir Þorsteins Pálssonar í máli Alberts hefðu verið réttar. Albert hefði hins veg- ar ætlast til þess að flokkurinn færi í kosningabaráttu án þess að hann tæki á sig ábyrgð af sínum mistökum. Og þegar jafn sterkur maður innan flokksins og Albert hefði farið að setja sína þrengstu hagsmuni ofar hagsmunum félaga sinna hefði eitthvað hlotið að láta undan. Þorsteinn Pálsson vék sjálfur að innanflokksvandamálum og sagði að ýmislegt hefði gengið úr skorðum vegna þess að flokkurinn hefði verið of værakær og starfs- skipulag flokksins væri ekki sniðið að nútímaþjóðfélagi. A þinginu verður í dag lögð fram skýrsla vinnuhóps sem gert hefur úttekt á stöðu og störfum Sjálfstæðisflokksins og SUS og ber yfírskriftina „Við verðum víst að skaffa nokkra róluvelli". Er vísað í nafnið í skýrslunni og sagt að þessi setning, sem höfð er eftir einum þingmanni flokksins, segi kannski meira en mörg orð um álit manna á afstöðu Sjálfstæðis- flokksins til mjúku málanna svokölluðu. Skýrsluhöfundar segja hana fyrst og fremst vera til að reyna að draga fram í dagsljósið hvemig Sjálfstæðisflokkurinn lítur út í augum fólks sem hafí hingað til stutt flokkinn, en ekki tekið þátt í starfí hans. Helstu veikieikar flokksins era taldir þeir að hann Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra sé í augum þessa fólks flokkur stórfyrirtækja en ekki neytenda- flokkur. í öðra lagi að flokkurinn sé þreyttur; þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins sé elsti þingflokk- urinn, sífellt sé verið að verðlauna flokkshesta, starfsmenn flokksins séu ráðnir úr innsta kjama hans, flokkinn vanti fleiri talsmenn og litríka forystusveit og ef formaður- inn eigi að vera ímynd flokksins verði hann að vera sterkur og litríkur. Þá segir í þriðja lagi að flokkurinn virðist vera þunglama- legur og spurt hvort hann sé að verða að bákni. Sagt er að allar stofnanir og félög flokksins séu raglandi og spurt hvort ekki þurfí að kynna kerfíð. Þá er sjónum beint að SUS og sagt að það sé ekki nógu áber- andi. Spurt er hvort orðið Heim- dallur sé fráhrindandi eða hvort það séu áberandi félagsmenn sem era fráhrindandi — „vatnsgreiddir ungir menn með fermingarslauf- ur“. Bent er á að SUS þurfí að höfða meira til þeirra sem eldri era og þeirri spumingu varpað fram hvort lækka eigi aldur fé- lagsmanna í SUS og fínna annan vettvang fyrir þá sem eldri era en þrítugt. Að lokum er bent á að flokkur- inn virðist vera aftarlega á merinni hvað varðar áróður og útbreiðslu hugmynda. Áætlanir þurfí að gera til lengri tíma og flokkurinn eigi ekki að vera hræddur við að stunda markaðsrannsóknir. Hann sé að selja ákveðna vöra og sú sala þurfí að vera fagmannlega unnin. Einnig þurfí flokkurinn að vita hvað kjósendur vilja og hvar flokkurinn sé veikastur og hvar sterkastur áður en slagorðasmiðir fara í gang. Morgunblaðið/Bjami RISAKARTOFLUR Kartöfluuppskeran er afar góð um allt land eins og fram hefur komið í fréttum. Hjónin Magnea Ingvarsdóttir og Gísli Ólafsson í Efstasundi 45 fengu þessar risastóra kartöflur upp úr garði sínum á dögunum. Þorsteinn Pálsson við upphaf SUS-þings í Borgarnesi í gær: SÍ S stærra en ríkið og telur sig því geta sett sín eigin lög

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.