Morgunblaðið - 05.09.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987
7
MEÐAL EFNIS
í KVÖLD
olíuqos
(Blowing Wild). Eiginkona eig-
anda olíufólags hittir fyrrver-
andi unnusta sinn sem hefur
ráðið sig hjá eiginmanninum
og blossarástin upp á nýtt.
ÁNÆSTUNNI
jfcimumm
JlMM.ÉSÍSÍi
m
17:00
Sunnudagur
_____ UNDURALHEiMSiNS
(Nova). Yfir 20 milljón manns i
Ameriku einni þjást af erfðasjúk-
dómum. Hingað til hafa læknavís-
indin lítið getað aðhafst en nýjar
rannsóknirá sviði Irffræði benda
til byttingar í meðferð þeira.
23:10
Ménudagur
DALLAS
Leikkonan Donna Reed tekur við
hlutverki Miss Elly. Heimkoma
Claytons og Miss Elly vekur
blendnar tilfinningar meðal
heimilisfólks á Southfork.
■i 1
A uglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lykllinn fœrö
þúhjé
Heimillstsskjum
Heimilistæki hf
S:62 12 15
Nýtt átak við byggingu
iþróttahúss á Akranesi
Akranesi.
ÍÞRÓTTAMENN á Akranesi láta
ekki staðar numið við smíði síns
eigin iþróttahúss og lýkur nú
hverjum verkþættinum á fætur
öðrum. Nú síðast var gólf hússins
steypt og unnu við það að miklu
leyti sjálfboðaliðar.
Það tók um 16 klukkustundir að
ljúka steypuvinnunni og fóru um
200 rúmmetrar af steypu í gólfíð.
Undir steypunni er þykk plastein-
angrun og tóku sig saman nokkur
fyrirtæki og gáfu einangrunina og
vinnu við hana og steypan sjálf
fékkst á góðu verði. Ekki láta menn
hér staðar numið og verður haldið
áfram í haust. Verið er að vinna
að enn einni fjáröflunarherferðinni.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Unnið við lagningu steypu á gólf hins nýja íþróttahúss á Akranesi.
Stéttarsamband bænda:
Leitað verði sátta
um gróðurverndarmál
Nú geta menn fengið keypt „hluta-
bréf“ í hinni nýju byggingu. Hér
er um að ræða nánast gjafabréf og
því fylgir ekki annar réttur en sá
að geta mætt á hluthafafundi og
valið einn mann í hússtjóm. Söfnun-
in hefur gengið vel. Stefnt er að
því að hægt verði að taka íþróttasal-
inn í notkun síðar í vetur, reyndar
við ófullkomnar aðstæður.
- JG
STÉTTARSAMBAND bænda
ætlar að beita sér fyrir „raun-
hæfri og öfgalausri" umræðu um
gróðurvemdarmál, sem leitt geti
til þess að sátt takist um þessi
mál meðal þjóðarinnar. Þetta
kemur fram í ályktun sem sam-
þykkt var á aðalfundi samtak-
anna á Eiðum.
í ályktuninni er lýst áhyggjum
vegna þeirra andstæðu viðhorfa og
hörðu deilna sem undanfarið hafa
orðið um landnýtingu og gróður-
vemd. Hætta sé á að þessar deilur
kunni að skaða hagsmuni land-
búnaðarins og spilla ímjmd hans í
huga þjóðarinnar. Pundurinn bendir
á að flestir bændur nýti land sitt
hóflega, enda eigi engir meira und-
ir því í bráð og lengd að svo sé
gert og gæðum lands ekki spillt.
Skorað er á bændur að sýna þessum
málum fullan skilning og mæta með
vilvilja og skilningi sjónarmiðum
þeirra sem af einlægni vilja stuðla
að hóflegri nýtingu gróðurs og
vemdun náttúm.
Stéttarsamband bænda:
Hækkun kindakjöts komi
að fullu til framkvæmda
AÐALFUNDUR Stéttarsam-
bands bænda, sem haldinn var á
Eiðum á dögunum, samþykkti
ályktun þar sem þess er krafist
að sauðfjárbændur fái nú þegar
þá hækkun sauðfjárafurða sem
frestað var í fyrrahaust.
Ályktunin var gerð í framhaldi
af samþykkt aðalfundar Landssam-
taka sauðfjárbænda nokkmm
dögum áður, þar sem segir að eng-
ar forsendur séu fyrir hendi til að
bændur gefí eftir af launum sínum
við verðlagningu sauðfjárafurða á
komandi hausti. Var því skorað á
fulltrúa framleiðenda í sexmanna-
nefnd að fylgja því fast eftir að
bændum verði reiknað fullt fram-
leiðslukostnaðarverð samkvæmt
bestu fáanlegum heimildum.
Emstakt hausttilboð!
BEINT
FIUG Tll
RÓMAR
með gistingu,
morgunverði og
íslenskri fararstjórn.
.19.460'
Ógleymanleg og ótrúleg Rómarferð
5.-9. október.
Þér hefur áreiðanlega aldrei staðið til boða
jafn gott tœkifœri til þess að kynnst borginni
eilífu, Róm.
Þessi Rómarferð býður ekki upp á eitt
heldur allt: afslöppun, góðan mat, skemmtun
og ekki síst fróðleik undir öruggri leiðsögn
Olafs Gíslasonar fararstjóra.
Mestu menningaruerðmœti Vesturlanda í
listaverkum og mannuirkjum eru í Róm. Ólaf-
ur ueit allt sem uert er að uita um þau, eftir
að hafa bœði uerið búsettur í Róm og uerið
þar fararstjóri í mörg ár.
Fyrir þá sem uilja fata sig upp fyrir veturinn
eru tískuuerslanir með rómaða ítalska hönn-
un uið huert fótmál.
Heimsókn til Rómar er ógleymanleg og
þegar við bætist beint flug og 5 daga duöl
miðsuœðis í borginni fyrir þetta uerð, uerður
hún líka nœsta ótrúleg.
Hafið samband sem fyrst og leitið nánari
upplýsinga.
FERDASKRIFSTOFAN URVAL
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13.Sími: 91-26900
* Miðað er uið tvo í lierbergi á þriggja stjörnu hóteli. Innifalið
er flug, ferðir til og frá flugvelli erlendis, gisting með morgun-
verði og íslensk fararstjórn.