Morgunblaðið - 05.09.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987
27
íbúar Klaksvikur tóku vel á móti forseta íslands.
Morgunblaöið/RAX
Ibúar Klaksvíkur fögnuðu
Vigdísi forseta innilega
Þórshöfn, Færeyjum. Frá Sigurði Jónss
KRAKKARNIR í Klaksvík voru
vel með á nótunum þegar
Vigdis forseti kom þar i gær
með ferjubátnum Ternuni. Þau
mynduðu tvær raðir frá bryggj-
unni að ráðhúsinu þar sem
Jógvan við Keldu bæjarstjóri
og frú Betty tóku á móti forset-
annm og kynntu fyrir bæjar-
stjórnarmönnunum ellefu, en
þar af er ein kona.
María Jakobsen 11 ára afhenti
forsetanum blómvönd fyrir fram-
an ráðhúsið og að því búnu lék
lúðrasveit Klaksvíkur þjóðsöngva
íslands og Færeyja. Þessi mót-
tökuathöfn var mjög hátiðleg og
mikill fjöldi fólks fylgdist með.
li, fréttaritara.
í stuttu ávarpi gat Jógvan við
Keldu þess meðal annars að veru-
legur hluti tekna Færeyinga kæmi
frá Klaksvík. Hann vitnaði til
kvæðis eftir Hannes Hafstein um
Kiaksvík og gat þess að bærinn
hefði áður fengið góðar heimsókn-
ir frá íslandi. Það mátti reyndar
sjá í snyrtilegum fundarsal bæjar-
stjómar þar sem voru veifur frá
nokkrum bæjarfélögum á íslandi,
Kópavogi, Selfossi og ísafírði.
Forsetinn sat hádegisverðarboð
bæjarstjómar Klaksvíkur ásamt
fyldarliði áður en ekið var til Við-
areiðis á Viðarey. Þar var byggðin
skoðuð í fylgd Dánjal Lydersen
sveitarstjóra. í Viðareiði var for-
setanum afhent tréskurðarmynd,
táknræna fyrir færeyska sjómenn
á íslandsmiðum. Skólabömin voru
eins og aðrir í sínu fínasta pússi
og sungu fyrir forsetann á fær-
eysku og íslensku.
Á þéttbýlisstöðum þar sem for-
setinn fer um en hefur ekki
viðdvöl reynir fólk eftir megni að
fylgjast með ferðum hennar. í
Leirvík komu skólaböm hlaupandi
niður á bryggju áður en forsetinn
fór um borð í feiju á leið til
Klaksvíkur. Þau fögnuðu Vigdfsi
áður en hún fór um borð og uppi
f bænum mátti sjá þá eldri gefa
því auga sem var að gerast þó
þeir færu sér hægar.
Hressir Leirvíkurkrakkar á bryggjunni að fylgjast með forseta íslands.
Ungur íslendingur í boði forseta íslands í Norðurlandahúsinu.
Að baki hans heilsar Vigdis upp á gesti.
Gaman að sjá hvað
I slendingum líð-
ur vel í Færejjum
Þórshöfn, Færeyjum. Frá Sigurði Jóns-
syni, fréttaritara Morgunbladsins.
„Það er gaman að sjá hvað ís-
lendingum líður vel á Færeyj-
um,“ sagði Vigdís Finnboga-
dóttir forseti meðal annars
þegar hún tók á móti íslending-
um, búsettum í Færeyjum.
íslendingahófið í Norðurlanda-
húsinu var vel sótt og þar voru
forsetanum afhentar ýmsar
gjafir og ferfalt húrra hrópað
fyrir Færeyjum og íslandi.
„Það var gaman að hitta forset-
ann,“ sagði Björg Poulsen, 11
ára, sem tók á móti Vigdísi með
blómum. Hún er dóttir Ingu Þor-
bjömsdóttur frá Seyðisfírði og
Klemm Poulsen frá Þórshöfn.
Vigdfs heilsaði upp á fólkið,
fagnaði bömunum sérstaklega og
auðséð var að heimsókn hennar
var mikils metin. Meðal gesta var
vinnuhópur frá ístaki sem vinnur
við byggingu nýrrar verslunar-
miðstöðvar f Þórshöfn. Vigdís lét
f ljósi þá ósk að það erlenda vinnu-
afl sem fengið væri til íslands
væri ámóta því myndarlega og
hrausta fólki sem ynni fyrir Fær-
eyinga. Þessi orð féllu í góðan
jarðveg viðstaddra.
Ámi Dahl bókmenntafræðing-
ur afhenti Vigdísi forseta eintak
af nýrri kennslubók í íslensku
fyrir gmnnskóla í Færeyjum.
Bókin heitir Grannamálið fyrir
vestan. Ámi kvaðst vona að bókin
styrkti samband íslands og Fær-
eyja. Undir þau orð tók Vigdís
forseti.
Þjóðminjasafnið fær
Tungufellskirkju að gjöf
Syðra-Langholti.
TUNGUFELLSKIRKJA f Hruna-
mannahreppi var færð Þjóðminja-
safni íslands til formlegrar eignar
nýlega. Kirkjan var bændakirkja
og næst elsta kirkja á Suðurlandi.
Það var sunnudaginn 23. ágúst sem
eigendur Tungufellskirkju afhentu
Þjóðminjasafni Islands kirkju sfna að
gjöf við hátfðlega athöfn á Tungu-
felli. Kirkjan var byggð árið 1856 og
tekur 36 manns í sæti. Hún er tum-
laus og eru þrír gluggar á hvorri hlið.
„Ég vildi ekki hugsa til þess að
þessi kirkja yrði rifín,“ sagði Þór
Magnússon, þjóðminjavörður, í sam-
tali við fréttaritara, en hann tók við
kirkjunni fyrir hönd Þjóðminjasafns-
ins. „Það er gleðilegt að af þessu
skyldi verða og ég er mjög þakklátur
gefendum," sagði þjóðminjavörður
ennfremur.
Gefendur eru eigendur jarðarinnar
Tungufells en það eru niðjar Jóns
Ámasonar sem var bóndi á Tungu-
felli 1897—1946. Þessari látlausu
kirkju hefur alltaf verið haldið vel við
og mun Ólafur Jónsson sem nú er
nýlega látinn hafa annast það að
mestu en hann var mikill hagleiks-
maður. Vitað er um kirkju í Tungufelli
um árið 1200 og í þessari kirkju eru
æfafomar kirkjuklukkur, e.t.v. frá
þeim tfma. Altari, prédikunarstóll og
rammi um altaristöflu em frá eldri
kirkjum sem þama hafa staðið og
telja menn sig kenna handbragð
Ófeigs Jónssonar frá Heiðarbæ á
þessum munum.
Árið 1915 tók þáverandi þjóðminja-
vörður Matthías Þórðarson foman
kross úr kirkjunni til varðveislu á
safnið, var hann til sýnis við athöfn-
ina á dögunum. Tungufellssókn sem
taldi nokkra bæi f nágrenninu var
aflögð á sfðasta ári og lögð undir
Hmna en messað er þó stöku sinnum
í þessari gömlu kirkju.
— Sig.Sigm.
í Tungufellskirkju um aldir, en
er nú geymdur f Þjóðminjasafn-
inu.
Fulltrúar gefenda færa Þór Magnússyni Þjóðminjaverði gjafabréf.
Frá vinstri eru: Einar Jónsson, Tungufelli; Þór Magnússon, þjóð-
minjavörður og Svandís Pétursdóttir.
Tungufellskirkja.