Morgunblaðið - 05.09.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987
35
Bjarnarfjörður:
Bjarnarfjarðará og Hallár-
dalsá flæða hátt yfir bakka sína
Vegnrinn norður Strandir lokaðist um tíma
Búðakirkja
á Snæfells-
nesi vígð
BÚÐAKIRKJA á Snæfellsnesi
verður vígð sunnudaginn 6. sept-
ember. Endurbygging kirkjunn-
ar hófst árið 1984, en hún er
með elstu timburkirkjum á
landinu, reist 1848 af Steinunni
Sveinsdóttur á Búðum.
Fyrstu kirkju á Búðum byggði
Bent Lárusson árið 1703. Ymsir
gamlir gripir hafa varðveist frá
þessum tíma, m.a. kirkjuklukkur,
sérstæð altaristafla (frá 1750), kal-
eikur og hurðarhringur, sem geymir
áletrun er segir á vissan hátt frá
baráttu Steinunnar fyrir endurreisn
kirlqunnar 1848, en þá voru liðin
32 ár frá því kirlq'an var lögð af
með konungsbréfí frá 1816.
Endurbygging kirkjunnar hefur
verið gerð undir umsjón þjóðminja-
varðar, en allan veg og vanda af
þessu verki hefur Hörður Ágústsson
fomhúsafræðingur og listmálari
haft. Smiður við byggingu kirkjunn-
ar var Haukur Þórðarson frá
Ölkeldu, málari Jón Svan Pétursson
úr Stykkishólmi, en raflagnir ann-
aðist Jón Amgrímsson í Ólafsvík.
Er kirkjan nú í upphaflegri mynd
jafnt ytra sem innra og litir allir í
henni hinir sömu og í upphafi. í
ráði er að hlaða upp kirkjugarðinn
umhverfís kirkjuna og hefur Pétur
Jónson landslagsarkitekt gert
teikningar að því verki. Er það mál
manna að vel hafi tekist til um alla
þessa framkvæmd.
Búðasókn er meðal fámennustu
sókna á landinu, gjaldendur rúm-
lega 30, og hefði þessi framkvæmd
orðið heimamönnum ofviða, ef ekki
hefðu komið til höfðingleg framlög
frá gömlum sóknarbömum og vin-
um Búðakirkju, svo og opinber
Sóknamefnd Búðakirkju býður
alla velunnara kirlqunnar og þá sem
stutt hafa þessa endurbyggingu
með fjárframlögum og gjafavinnu
hjartanlega velkomna til vígslunn-
ar, en veitingar verða framreiddar
að athöfn lokinni á Hótel Búðum.
SPLÚNKUNÝIR götuskór 1 ÖU-
um litum og númerum verða á
aldamótaverði á laugardags-
flóamarkaði Félags einstæðra
foreldra í Skeljanesi 6, í dag,
laugardag,5.september. Svo
segir í fréttatilkynningu Félags
einstæðra foreldra um málið.
Einnig er tekið fram, að allar
„deildir" markaðsins hafi verið
meira og minna endumýjaðar
af vamingi.
Gífurlega mikil aðsókn hefur
Laugarhóli, Bjamarfirði.
MIKIL flóð vom í Bjamarfirði
í gærmorgun. í fyrrinótt gerði
svo mikið vatnsverður af norð-
austri á fjöllunum hér fyrir
vestan og um Bjarnarfjörð að
Bjamarfjarðará flæddi hátt
yfir bakka sína og um dalinn.
Einnig varð Hallárdalsá að for-
áttufljóti, en veryulega er hún
lítið meira en stór lækur. Er
þetta mesta flóð sem komið
hefur hér í dalnum í 35 ár. Þjóð-
vegurinn norður Strandir
lokaðist um tíma en varð fær
upp úr hádeginu í gær. Ekki
varð umtalsvert tjón í flóðun-
verið að laugardagsmarkaði FEF
og hefur verið ákveðið að hafa
markaðinn einnig laugardaginn
12.september. Tízkuvamingurinn
hefur runnið út eins og heitar
lummur, en yfrið er á boðstólum
í dag, kjólar, herraföt, vænar
yfírflíkur á böm og fíillorðna,
bamaföt, peysur, blússur ofl. Þá
er bóksala sem fyrr, bútar í tonna-
tali og húsgögn, svo að nokkuð sé
nefnt.
Eins og fyrr rennur allur ágóði
Á fímmtudaginn gekk hér á með
norðaustan roki og er líða tók á
kvöldið tók að rigna svo mikið að
vatn af húsþökum fossaði fram af
þeim. Hélst þessi úrkoma alla nótt-
ina og að morgni föstudags var
komið mikið flóð í ána. Flæddi hún
langt yfír bakka sína og eru hlutar
af túninu í Odda eins og eyjar í
ánni, en túngirðingin og hlið á
Bakka, austan árinnar, stendur
langt úti í Bjamarfy'arðará.
Hvíteyri, neðan Svanshóls, hefur
áður farið í kaf í svona flóði. Nú
er hún umflotin en hefur ekki kaf-
færst. Er það heppni því að
snarlega til að standa undir af-
borgunum af lánum á neyðar-
húsnæði félagsins.
Fréttabréf FEF er nú í undirbún-
ingi og þar munu verða upplýsing-
ar um fundi fram að jólum. Fyrstu
fundir verða 24.september og sá
næsti um miðjan október. Efni
þeirra mun án efa þykja forvitni-
legt og verður kynnt síðar. Aðal-
fundur FEF verður ö.nóvember.
nokkrar ær með lömbum sínum
eru úti á eyrinni og mun þeim
ekki hætta búin.
Fyrir neðan nýja húsið á Klúku
flæddi yfír veginn norður á Strand-
ir og var hann ekki fær fyrr en
eftir hádegið í gær þegar hann var
að mestu orðinn vatnslaus. Ekki
virðast hafa orðið skemmdir á veg-
inum og ekki heldur veruiegt tjón
á túnum eða girðingum.
Þá er sömu sögu að segja um
Hallárdalsá sem rennur í Bjamar-
ijarðará hér rétt austan við húsin.
Þegar litið var upp eftir dalnum í
gær var eins og hún flyti ofan á
jarðveginum, en ekki á milli bakka
eins og venjulega. Goðafoss í Hall-
árdalsá gaf nafna sínum í Skjálf-
andafjóti lítið eftir á meðan á þessu
stóð.
í gær var norðaustan rok en
mikið dró úr úrkomu.
Það er ekki á hveiju hausti að
flóð verða í Bjamarfjarðará, en
1950 og 1953 urðu þar stórflóð,
jafnvel verri en nú. Það varð mik-
ið flóð í hluta árinnar vegna
krapastíflu þann 20. september
1981. Var þá snjógangur svo mik-
ill að krapastífla hlóðst upp rétt
fyrir neðan brúna hjá Odda. Þenn-
an dag átti að rétta í Skarði, en
réttin var umflotin svo að það var
ekki hægt. Varð að reka féð að
Odda og rétta þar í nýlega byggð-
um fjárhúsum.
SHÞ
um.
Laugardagsmarkaður Félags ein-
stæðra foreldra í Skeljanesi í dag
Leðurfatnaður frá SERGE MIKO í París.
§
l
Opið alla laugardaga 10:00 - 14:00. Greiðslukort - afborganir.
EGGERT
feldshri
Efst á Skólavördustígnum, sími II121.