Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
B
25
Mikill fjöldi ferðamanna
Thailand er mikið ferðamanna-
land. Upphaf hins mikla ferðamanna-
straums þangað -má rekja til
Vietnamstríðsins, því á meðan á
stríðinu stóð flykktust bandarískir
hermenn til Thailands í fríum sínum.
Árið 1985 komu 2 milljónir og 450
þúsund ferðamenn til Thailands. Jap-
anir voru langflestir eða 225 þúsund,
en af Evrópuþjóðum voru Þjóðveijar
fjölmennastir, 96 þúsund, Bretar
voru 80 þúsund og Frakkar 70 þús-
und. Að meðaltali eyddi hver ferða-
maður 4,7 dögum í Thailandi og er
það of stuttur tími að mati þarlendra
ferðamálaýfirvalda. Segja þau að
ferðamenn geti ekki á svo skömmum
tíma séð það helsta sem landið hafi
upp æá að bjóða. Ferðamenn eyða
um 30% af peningum sínum í að
verzla, enda er afar hagstætt að
verzla í Thailandi, t.d. skartgripi,
skrautmuni, föt, silkivefnað og margt
fleira. Thailenska flugfélagið Thai
Air hefur stærstan skerf af flutningi
ferðamanna til landsins og hyggst
halda sínum hlut. I samvinnu thai-
lenskra ferðamálayfirvalda og Thai
Air er á þessu ári boðið upp á mjög
hagstæðar ferðir til landsins.
Thailand er 518 þúsund ferkíló-
metrar að stærð eða fimm sinnum
stærra en ísland. Það á landamærí
að Kambódíu, Burma, Laos og Mal-
asyu. íbúar landsins eru um 50
milljónir og þar af búa rúmlega 5
milljónir í Bangkok. Mál innfæddra
nefnist Thai en allir sem starfa við
ferðamannaiðnaðinn tala ensku.
Yfírgnæfandi meirihluti Thailend-
inga aðhyllist Bgddatrú eða um 95%
og setur trúin sterkan svip á mannlíf-
ið.
Thailendingar eru elsku-
legtfólk
Thailendingar eru ákaflega glað-
sinna fólk og þægilegir og elskulegir
í viðmóti. Undirritaður hefur víða
komið í ferðum erlendis en hvergi
hlotið jafn hlýjar og elskulegar mót-
tökur og í Thailandi.
Það voru vissulega mikil viðbrigði
er stigið var út úr Jumbo-þotu Thai-
air á flugvellinum í Bangkok.
Ferðamanni, sem kom úr kuldanum
á íslandi og Kaupmannahöfn, fannst
hann ganga á vegg. Þessa tilfinningu
þekkja þeir, sem komið hafa til sólar-
landa. En hitinn venst og undirrituð-
um fannst hitinn og rakinn ekki eins
mikill og hannhafði búist við. Flug-
ferðin var erfíð, 11 klukkustunda
samfellt flug frá Kaupmannahöfn til
Bangkok. Tímamunur var 6 klukku-
stundir og það tók líkamann 2-3
daga að venjast breytingunum.
Ferðamálayfírvöld í Thailandi lögðu
áherslu á að kynna fyrir blaðamönn-
um það helsta sem Bangkok hafði
uppá að bjóða auk þess sem farið
var í tvær athyglisverðar ferðir út á
landbyggðina. Fyrri ferðin var til
borgarinnar Surin, þar sem fram fór
fræg fílasýning. Meðal skemmtiat-
riða var knattspymukappleikur fíla
og var það einkar athyglisvert fyrir
gamlan íþróttafréttaritara að verða
vitni að þeim kappleik. Seinni ferðin
var til baðstrandarinnar Pattaya,
sem er helsti ferðamannastaður
landsins, og margir ísiendingar hafa
heimsótt.
Spannar allar víddir
mannlegs lífs
Ferðamenn sem koma til Tahi-
lands verða að gefa sér góðan tíma
í höfuðborginni Bangkok. Hún
spannar allar víddir mannlegs lífs,
alveg frá sárustu örbirgð til ótrúlegs
ríkidæmis. Þar má sjá menningarvið-
burði í háum gæðaflokki og sýningar
í aumustu klámbúllum. Þar má sjá
gulli skrýddar konungshallir og
búddahof og aumustu hreysi. Og
áfram má telja.
Ekki er ástæða til að lýsa frekar
möguleikum borgarinnar í þessum
pistli. Sú upptalning yrði allt of löng.
Hér verður aðeins minnt á þrennt
sem undirrituðum þótti athyglisverð-
ast af því sem hann skoðaði í
Bangkok.
Fyrst skal telja bátsferð um stór-
ána Chao Phya, sem rennur í gegnum
Bankok, og síki sem liggja út frá
ánni. Svona bátsferð má enginn láta
fram hjá sér fara. Við síkin standa
íbúðarhús af öllum gerðum. Þama
má fínna glæsihallir ríka fólksins og
hreysi þeirra fátækustu. Mannlífíð
er ótrúlega fjölbreytt. Böm synda
um í síkjunum enda læra þau að
synda fyrr en þau læra að ganga.
Bezt er að fara á sunnudögum því
þá er frídagur og flestir heima. Er
þá gjaman slegið upp veizlu með
mat og drykkjum. Ibúamir ferðast
um á bátum og þjónusta er veitt á
bátum. Fróðlegt var að mæta ísbáti
á einu síkinu! Skoðunaferð sem tekur
tvo tíma kostar aðeins 80 krónur og
em veitingar innifaldar.
Hægt er að gera ótrúlega
góö kaup
Markaði innfæddra verða menn
að heimsækja. Slíkir markaðir em
bæði á landi og í bátum á fljótinu.
Á mörkuðunum er hægt að gera
ótrúlega góð kaup á margvíslegum
vamingi. Thailendingar em mjög
listrænir og allt virðist leika í hönd-
unum á þeim. Vegna þess hve
vinnuafl er ódýrt er hægt að kaupa
á mörkuðum og í verzlunum vaming
á mjög góðu verði. Má t.d. nefna
skartgripi úr gulli og dýmm steinum,
silki og silkifatnað, minjagripi, fatn-
að og hvaðeina. Á öllum mörkuðum
er prúttað og það gerir verzlunaer-
ferðimar ennþá skemmtilegri en ella
væri. Klæðskerar em á hveiju götu-
homi sem sauma fatnað eftir máli
fyrir brot af því verði sem fatnaður
kostar á Vesturlöndum. Margir
ferðamenn láta sérsauma á sig
marga alklæðnaði. Silkivefnaður er
í sérflokki og margan glæsikjólinn
úr silki sá undirritaður í ferðinni. í
stuttu máli má segja að á fáum stöð-
um í heiminum má gera jafn góð
kaup og Thailandi.
Þriðja atriðið sem nefna skal til
sögunnar var heimsókn í skemmti-
hverfíð í Bangkok, „Pat pong“, en
þessi heimsókn var nú reyndar ekki
á hinni opinbem dagskrá ferðamála-
yfírvalda. Heimsóknin í þetta
skemmtihverfí að kvöldi til var sjokk-
erandi. Þama viðgengust allar
tegundir af ólifnaði svo sem vændi,
klámsýningar og „nudd“. Svokallaðir
go-go barir vom um allt hverfið. Þar
dönsuðu komungar stúlkur á sýning-
arpöllum við háværa diskótónlist.
Stúlkumar vom með númer á bijóst-
inu og viðskiptavinimir pöntuðu
stúlkumar eftir númemm. Þessar
stúlkur hafa melludólgar sótt út í
sveitimar og borgað foreldmnum
nokkur þúsund krónur fyrir þær.
Eftir að stúlkumur hafa verið í vænd-
islifnaði í nokkur ár er þeim hent út
á kaldann klakkann og aðrar fengn-
ar í þeirra stað. Viðskiptavinimir em
flestir erlendir ferðamenn, t.d. Þjóð-
veijar og Arabar. Kynsjúkdómar em
útbreiddir í Thailandi og eyðni að
stinga rótum svo þama er hætta á
ferðum fyrir ferðamenn.
Því miður var sama uppi á ten-
ingnum þegar Pattaya, helsta ferða-
mannaströnd Thailands var
heimsótt. Þar er vændislifnaður ótrú-
lega áberandi. Að því slepptu er
Pattaya kjörinn staður fyrir ferða-
lang sem vill hvfla sig og njóta sólar
og útivem. Pattaya er í hæfilegri
flarðlægð frá Bangkok. Ströndin er
góð og við hana standa mörg 1.
flokks hótel sem bjóða gistingu á
vægu verði. Matur er ódýr hvort sem
Sífellt fíeiri fara til Thaiiands
GEIR Borg er aðalræðismaður
Thailands á íslandi. Hann hefur
verið ræðismaður síðan 1985 og á
þeim tíma hefur ferðamönnum til
Thailands fjölgað ört. Blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi stuttlega
við hann um ferðir þangað.
Sé dvalið lengur en 15 daga þarf
áritun. Árið 1985 veitti Geir 15 vega-
brefsáritanir, 1986 vom þær 91 og
í ár hafa hátt í 300 manns fengið
áritun og bjóst hann við því að fjöld-
inn yrði kominn í 350 til 400 manns
í lok ársins.
Geir sagði að það sem ferðamenn
þyrftu helst að athuga ef þeir fæm
til Thailands væri að hafa gilt vega-
bref, árítun ef þeir dveldu lengur en
í 15 daga og að láta bólusetja sig í
tíma. Við komuna til landsins mætti
ekki gleyma að gefa upp handbært
reiðufé, því leyfílegt sé að fara með
sömu upphæð úr landi og til landsins.
Geir vildi benda sérstaklega á að
í desember næstkomandi yrðu mikil
hátíðahöld í Bankok og víðar vegna
sextugsafmælis konungsins. Rétt
væri að hafa í huga að þá yrði ill-
mögulegt að fá gistirými nema hafa
pantað það í góðan tíma.
Þegar hann var spurður hvaða
fólk færi helst til Thailands sagði
hann að það væri fólk á öllum aldri,
fólk sem vildi sjá eitthvað nýtt. Flest-
ir fæm með ferðaskrifstofunum í
svokallaðar „ pakkaferðir", en þó
væri alltaf eitthvað um að menn ferð-
uðust í minni hópum og á eigin
vegum.
Gelr Borg aðalræðismaður.
Morgunblaðið/BAR
menn kjósa að snæða thailenskan
mat eða „venjulegan" mat eins og
við segjum hér heima.
Sem fyrr segir setur búddatrúin
sterkan svip á mannlífið. Búddahof
em mörg hver stórkostlega fögur og
sama má segja um hallir, sem skoð-
aðar vom. Þessar byggingar em
skreyttar gulli og málaðar sterkum
litum. Alls staðar var mikill fjöldi
fólks og sums staðar var manníjöld-
inn yfirþyrmandi mikill.
Ef íslendingar fara í venjulega
hópferð til Thailands er líklegast að
leiðin liggi til Bangkok og Pattaya.
Ef ferðamaðurinn kýs að fara ótroðn-
ar slóðir, þ.e. eitthvað annað en á
hina hefðbundnu ferðamannastaði,
em möguleikamir ótal margir. Upp-
lýsingar má fá á ferðaskrifstofum
eða hjá ferðamálayfirvöldum þegar
komið er til Bangkok. .gg
Thailands-
ferðir mjög
hagstæðar
SÍÐAN skipulegar hópferðir
hófust til Thailands hefur
ferðamönnum þangað fjölg-
að gífurlega. Verðið á
þessum ferðum er litlu
hærra en á t.d. Kanaríeyja-
ferðum. Það kom fram á
þeim ferðaskrifstofum sem
rætt var við, að samanburður
á þessum tveimur ferðum
væri óraunhæfur, forsend-
urnar væru gjörólíkar. Eða
eins og einn viðmælandi
Morgunblaðsins orðaði það
:„Það er ævintýraþrá sem
rekur fólk í svona ferðir, það
kemst hinu megin á hnöttinn
fyrir lítinn pening. Thailand
sameinar mesta lúxusinn og
mestu fjarlægðirnar“
Flestar ferðaskrifstofumar
bjóða upp á svokallaða „pak-
kaferðir“ þar sem allt flug er
á vegum SAS og Flugleiða.
Flogið er til Bankok um Kaup-
mannahöfn fimm daga í viku.
Ferðimar eru 17 daga, þar af
em 14 gistinætur. Engin farar-
stjóm er nema það sé tekið
fram, en tekið er á móti fólki
við komuna og það flutt á milli
staða. Gist er fjóra daga í Ban-
kok og 10 daga á Pattaya-
ströndinni. Ef miðað er við tvo
í herbergi á þriggja stjömu
hóteli og hóteli í túristaklassa,
kostar slík ferð 57.500 kr.
Hægt er að framlengja hana
um viku, upp í 21 gistinótt og
kostar hún þá 62.400 kr. Sé
gist á lúxushótelum kostar 17
daga ferð um 61.000.
Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir-Landsýn býður upp á 17
daga ferð með fararstjóra og
skoðunarferðum á 66.900 kr. á
mann í tvíbýli. Sú ferð verður
ý nóvember. Ferðaskrifstofan
Úrval verður með 22 daga ferð
í október með fararstjóra á
82.500 kr.
Ef bera á Thailandsferðir
saman við Kanaríeyjaferðir
verður að hafa í huga muninn
á þessum tveimur stöðum.
Menning þeirra er gjörólík,
gistingin einnig. Flogið er til
Kanaríeyja í beinu leiguflugi
en til Thailands er flugið
tvískipt og mun lengra.
Á Kanaríeyjum gista flestir
á íbúðarhótelum og yfirleitt er
um þriggja vikna ferðir að
ræða.
Verðið á ferðum þangað fer
eftir því á hvaða tíma er farið.
Ódýrastar em nóvemberferð-
imar en jólaferðimar em
dýrastar. Se miðað við tvo í
íbúð kosta nóvemberferðir á
bilinu 42.800 til 62.600 kr., en
jólaferðimar á milli 46.700 og
68.600 kr.
Það kom fram hjá þeim
ferðaskrifstofum sem rætt var
við að verð á bæði Thailands
og Kanaríeyjaferðum væri hag-
stætt núna. Verðið á Kana-
ríeyjaferðum hefði lítið hækkað
frá í fyrra og mikil samkeppni
í Thailandsfluginu lækkaði far-
gjöldin.