Morgunblaðið - 04.10.1987, Page 32
32 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
atvinna — atvinna —- atvinna —- atvinna — atvinna — atvinna
Prjónakonur athugið
Prjónakonur vantar til að prjóna lopapeysur
og mohairpeysur. Stöðug vinna.
Uppl. í Handprjón, Skipholti 9, kl. 14.00-
16.00 virka daga. Einnig uppl. í síma 15858.
Sölumaður óskast
Heildsölufyrirtæki óskar eftir áhugasömum
sölumanni, karli eða konu, sem getur hafið
störf sem fyrst. Góð laun í boði fyrir réttan
aðila.
Tilboð sem tilgreini upplýsingar leggist inn
á auglýsingadeild Mbl. merkt: „S - 4708“.
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóra vantar að sjúkrahúsi og
heilsugæslustöð á Hvammstanga frá 1. jan-
úar 1988. Framkvæmdastjóri sér urn dagleg-
an rekstur stofnanna, annast fjármál,
skýrslu- og áætlanagerð, framkvæmd
ákvarðana stjórnar o.fl.
Allar nánari upplýsingar gefa framkvæmda-
stjóri í síma 95-1348, heimasími 95-1629,
og formaður stjórnar í síma 95-1353, heima-
sími 95-1382.
Umsóknir sendist til stjórnar sjúkrahúss
Hvammstanga, 530 Hvammstanga.
Umsóknarfrestur um stöðuna er til 20. októ-
ber 1987.
Stjórn sjúkrahúss Hvammstanga.
BORGARSPÍTALINN
Lausar Stödur
Meinatæknar
Lausar eru stöður meinatækna við rann-
sóknadeild nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur yfirmeinatæknir í síma
696405.
Fulltrúi - launadeild
Laust er starf fulltrúa á launadeild.
Upplýsingar veitir deildarstjóri í síma
696208.
Sérhæfður aðstoðarmaður
iðjuþjálfa
Staða sérhæfðs aðstoðarmanns iðjuþjálfa
við geðdeildir Borgarspítalans er laus til
umsóknar nú þegar.
Upplýsingar um starfið veitir yfirlæknir í síma
696600.
Starfsmenn
Starfsmenn óskast til vaktastarfa við hús-
og tækjavörslu (aðstoðarmenn).
Vaktavinna allan sólahringinn.
Upplýsingum svarað frá kl. 9.00-12.00 í síma
696256.
Hjúkrunar- og endurhæfingardeildir
Hjúkrunarfræðingar
Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildar-
stjóra og staða hjúkrunarfæðings. í starfinu
felst hjúkrun við endurhæfingu sjúklinga í
náinni samvinnu við aðra faghópa.
í byrjun starfs er ætlaður tími til aðlögunar.
Möguleikar á dagvistun barna og sveigjan-
legum vinnutíma.
Starfsfólk
óskast til aðstoðar við aðhlynningu sjúklinga.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sé skilað til skrifstofu hjúkrunar-
forstjóra á eyðublöðum sem þar fást.
Nánari upplýsingar veita deildarstjórar
Grensásdeilda, Margrét Hjálmarsdóttir og
Þórdís Ingólfsdóttir, í síma 685177 og hjúkr-
unarframkvæmdastjóri í síma 696357.
Iðnráðgjafi
Iðnþróunarfélag Þingeyinga óskar að ráða
starfsmann með háskólamenntun á sviði
rekstrar og stjórnunar. Æskilegt er að við-
komandi hafi nokkra starfsreynslu.
Upplýsingar veitir stjórnarformaður Þorvald-
ur Vestmann í vs. 96-41877 og hs. 96-41177.
jmod ö Mm
Barónsstíg 2.
Starfsfólk vantar
Við auglýsum eftir fólki í almenn verksmiðju-
störf.
Upplýsingar aðeins veittar á staðnum milli
kl. 9-16.
Meistara- og
verktakasamband
byggingamanna
vantar mann í starf framkvæmdastjóra.
Laun eftir samkomulagi.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf
skilist á skrifstofu MVB, Skipholti 70, fyrir
10. þ.m.
S • K • I • F • A • N
PÓSTKRÖFUR S. 29544
★ LAUGAVEGI 33 ★ BORGARTÚNI 24 ★
KRINGLUNNI .
Vegna aukinna umsvifa fyrirtækisins auglýs-
um við hér með eftirtaldar stöður:
1. Sölumaður:
Hér er um að ræða sölu á hljómplötum í
heildsölu. Starfið felst í sölu' til hljómplötu-
verslana um land allt og fer salan einkum
fram í gegnum síma. Viðkðmandi þarf að
vera líflegur í framkomu og eiga auðvelt með
að umgangast fólk. Jafnframt þarf hann að
hafa góða þekkingu á flestum sviðum tónlist-
ar. Lágmarksaldur 25 ára og reynsla í
sölumannsstörfum áskilin.
2. Lagermaður:
Starfið felst í móttöku, pökkun og frágangi
á vörum fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að
vera röskur, nákvæmur, ábyrgur og hafa
góða þekkingu á tónlist.
3. Almenn skrifstofustörf:
Þetta starf felst í móttöku, símavörslu, vélrit-
un og telexvinnslu auk almennra skrifstofu-
starfa. Viðkomandi þarf að vera góður í
íslensku, ensku og erlendum bréfaskriftum.
Mjög góð vélritunarkunnátta og reynsla áskilin.
4. Markaðs- og kynningarmál
Hér er um nýja stöðu að ræða sem tengist
kynningarmálum, samskiptum við fjölmiðla
og markaðs- og sölumálum.
Þeir sem hafa áhuga á ofangreindum störfum
og vilja starfa á lifandi vinnustað með ungu
og hressu fólki eru beðnir að senda skrifleg-
ar umsóknir sínar til auglýsingadeildar Mbl.
með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf. fyrir föstudaginn 9. október 1987
merktar: „S - 6115“.
Ath.: Upplýsingar ekki veittar í síma.
Afgreiðsla
- snyrtivörur
Viljum ráða starfsfólk til starfa við afgreiðslu
á snyrtivörum í verslunum okkar í Kringlunni.
Um er að ræða heilsdagsstörf.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
(ekki í síma) mánudag og þriðjudag kl. 16.00-
18.00. Umsóknareyðublöð hjá starfsmanna-
haldi.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahald.
Vélaviðhald
Sútunarverksmiðja Sláturfélags Suðurlands
vill ráða nú þegar eða mjög fljótlega starfs-
mann til starfa við vélaviðhald.
Við leitum að laghentum einstaklingi, sem
hefur einhverja reynslu í meðferð véla og
tækja, þar sem viðkomandi þarf bæði að
geta annast fyrirbyggjandi og almennt véla-
viðhald. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti
unnið sjálfstætt.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri á skrifstofu fyrirtækisins, Frakkastíg
1, Reykjavík.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.
Verkamenn óskast
Okkur vantar 2-3 röska menn í lokaátak end-
urbyggingar „Bjamaborgar" við Hverfisgötu.
Upplýsingar gefur Hjörtur á staðnum frá kl.
13.00-14.00 daglega.
DÖGUN S.F.
BYGGINGAFELAG
Tæknifræðingar
- verkfræðingar
- athugið!
Staða deildartæknifræðings í tæknideild er
laus til umsóknar.
Starfið felst í hönnun, áætlanagerð og verk-
eftirliti.
Krafist er rafmagnstæknifræði, eða verk-
fræðimenntunar á sterkstraumssviði.
Skrifleg umsókn, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist til orkubús-
stjóra, Kristjáns Haraldssonar, sem veitir
allar upplýsingar um starfið. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
ORKUBÚ VESTFJARÐA