Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 40
40 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
Hún Lisa Marie Presley er bara nokkuð lík
honum pabba sínum, ef vel er að gáð.
Merkisfólk á
myndbandahátíð
Bandaríska sjónvarpsstöðin MTV, sem sýnir
eingöngu tónlistarmyndbönd allan sólarhring-
inn, efndi nýlega til mikillar hátíðar, þegar afhent
voru verðlaun fyrir poppmyndbönd. Meðal annarra
var söngkonunni og leikkonunni Cher boðið, og
biðu menn í mikilli eftirvæntingu eftir því að sjá
hvemig hún væri klædd, því hún hefur í gegnum
tíðina þótt klæða sig djarflegar en nánast allar
stjömur aðrar. Cher brást ekki vonum manna, og
þótti sumum að hún hefði slegið eigið met í sér-
stæðum klæðaburði.
A hátíðina í Los Angeles mættu fjölmargar
aðrar stjömur og frægðarfólk, þar á meðal hún
Lisa Marie Presley, 19 ára gömul dóttir þeirra
Elviss og Priscillu, en hún mætti með óþekktan
fylgdarsvein sér við hlið, og vildi alls ekki tjá sig
um nafn hans.
Cher í nýjustu flíkinni sinni.
Líkar vel að
vera kyntákn
- ségir Kim Basinger
Kim Basinger héfur á skömm-
um tíma tekist að skapa sér
nafn sem ein besta leikkonan í
Hollywood, og sem kyntákn. „Mér
líkar það ágætlega að vera kölluð
kyntákn," segir Kim, „ég elska að
leika fagrar, kynæsandi konur. Eg
sé ekkert rangt við það að konur
noti kynþokka sinn til að koma sér
áfram. Vandamálið er að fólk í
Hollywood heldur að það sýni að
þú hafir engan heila."
Kim varð stjama eftir myndina
„9 og V2 viku“, þar sem hún lék á
móti Mickey Rourke, en tökur á
myndinni gengu þó ansi nærri geð-
heilsu Kim, og vom nærri búnar
að eyðileggja hjónaband hennar og
Rons Brittons. „Það hefur gengið
á ýmsu í hjónabandi okkar í gegnum
tíðina, og „9 og */2 vika“ virtist
ætla að gera endanlega út af við
það,“ segir leikkonan, „en okkur
tókst að sigrast á erfiðleikunum,
og nú er samband okkar sterkara
en nokkra sinni."
Kim ber Mickey Rourke ekki vel
söguna, en aftur á móti segir hún
að það hafi verið mjög gott að leika
á _ móti Brace Willis í myndinni
„Óvænt stefnumót“, sem nú er sýnd
við miklar vinsældir víða um»heim.
„Brace er séntilmaður, þó hann sé
óforbetranlegur pilsaveiðari" er
dómur hennar um meðleikarann.
Þó að Kim Basinger hafi hlotn-
ast frægð og frami, og hjónaband
hennar virðist vera í lukkunnar vel-
standi, þá er hún ekki laus við öll
vandamál, frekar en við hin. Hún
þolir ekki fólksmergð, og nýlega
fékk hún áfall í stórverslun, hneig
niður og öskraði. Kim er nú í með-
ferð hjá sérfræðingi til að losa sig
við þennan leiða kvilla, en hún hef-
ur einnig einkasálfræðing í sinni
þjónustu, sem leysir flestar hennar
sálarflækjur, eins og alsiða er með-
al ríks fólks í Bandaríkjunum, og
þá sérstaklega í Holiywood.
.Fahd konungur
Heimsmet
í flottræf-
ilshætti?
Fahd konungur Saudi-Arabíu er
einn af þremur auðugustu
mönnum heims, og honum fínnst
ekkert skemmtilegra en að flagga
ríkidæmi sínu. Kóngurinn var ný-
lega í sumarfríi á frönsku Rívíe-
ranni, og tókst að koma yfír 50
milljónum íslenskra króna í lóg á
aðeins tveimur vikum.
Fahd flaug til Nice í Frakklandi
í Boeing 747 einkaþotu sinni, sem
er öll klædd innan með silki. í fylgd
með honum vora svo hinar tvær
Boeing 747 þotur konungsins, auk
tveggja smærri þotna, til að ferja
hið 150 manna fylgdarlið hans. Uti
fyrir ströndinni lónaði svo hin nýja
einkasnekkja Fahds, sem þykir slá
allt út í íburði, og kostaði víst litla
fjóra milljarða íslenskra króna.
Skútan sú er bæði með úti- og inni-
sundlaug, gólfín era öll úr marm-
ara, allir hurðarhúnar úr silfri,
baðvaskamir úr gulli, og Picasso-
málverk skreyta flest hinna 30
gestaherbergja.
Búðareigendur í nágrenni sumar-
hallar Fahds fengu dollaramerki í
augun við heimsókn konungsins,
og hann brást ekki vonum þeirra.
Þegar 15 ára sonur Fahds og 3
konunglegir unglingar aðrir komu
inn í leikfangabúðina Ali Babar
keyptu þeir bókstaflega búðina upp,
og tókst, 4 15_ mínútum að fysU
Kim Basinger og
UMNMHNM
kaup á leikföngum fyrir fimm millj-
ónir króna, og eins og nærri má
geta urðu þeir að láta póstsenda
mestallan hlutann af öllu þessu
dóti. Þeir urðu líka að láta heim-
senda meirihlutann af sælgætinu
sem þeir keyptu fyrir rúma milljón,
en eitthvað virðast blessuð börnin
þó innbyrða af sætindum dags dag-
Iega, því þau era öll vel í holdum.
„Joe“ Danaprins tekur sig bara
vel út í flugstjórasætinu.
En þó að Fahd konungur berist
mikið á, hefur hann ekki með öllu
gleymt alþýðurótum sínum. í einka-
herbergi sínu í sumarhöllinni - þar
sem konungurinn hefur gríðarmikla
tölvu sem heldur honum í sambandi
við heimalandið og helstu viðskipta-
miðstöðvar heims - hefur Fahd látið
koma fyrir stóra Bedúínatjaldi - úr
silki.
Einkasnekkjan
íburðarmikla.