Morgunblaðið - 07.10.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
5
í nútíma hönnun komast fáir með tærnar
þar sem ítalskir hönnuðir hafa hælana. Fiat
Duna ber þess merki að þar hefur fagmannlega
verið að verki staðið.
Mikil gæði, hámarks notagildi, fallegt
útlit og góð ending. Hvort sem á hann er litið
eða í honum ekið er Ijóst að Fiat Duna er sér-
stæður, en jafnframt klassískur bíll.
Innréttingin.er rúmgóð, nett og þægileg
DUNA
GÆÐI NOTAGILDI
OG FALLEGT ÚTLIT
EINKENNA
ÍTALSKA HÖNNUN
Aksturseiginleikar Fiat Duna standast
allan samanburð; „Low Profile" dekk, lipur 5
gíra skipting og rétt fjöðrun. Auk þess er Fiat
Duna með góða hljóðeinangrun, öflugt og
skjótvirkt miðstöðvarkerfi og að sjálfsögðu er
Fiat Duna klæddur og teppalagður í hólf og
gólf.
FIAT DUNA 70 SEDAN
- og það fer vel um farþegana, hvort heldur
ekið er á löngum leiðum eða í öngþveiti borg-
arumferðar. Fiat Duna er 5 manna bíll, með
503 lítra teppalagða farangursgeymslu.
Farangur er ekkert vandamál!
Hvaða kröfur gera þeir
ökumenn sem í dag eru að
leita eftir nýjum bíl? Peir vilja
fallegt útlit, vandaðan frágang og
góðan búnað.
Fiat Duna á sér
fáa jafningja á þessu sviði.
Fiat Duna er bíll sem gefur þér mikið
fyrir lítið. Góðir aksturseiginleikar; öryggi
framhjóladrifs og sjálfstæð fjöðrun á hverju
hjóli.
Vélin er sterkbyggð, endurbætt útgáfa af
eldri Fiat vél - þrautreynd og gerð til að endast.
Eyðslan er 5.1 líter á hundraðið miðað við 90
365.000-
FIAT ÐUNA 70 WEEKEND
379.000-
F I A T
km. hraðaog 8.1 líter í þéttbýli. Vélarstærð er
1.301 c.c. 67 hö.
Flestir ökumenn kannast við blindandi
kvöldsólina. Ákveðinn halli framrúðunnar
og samlímt öryggisgler kemur nær
alveg í veg fyrirslíkt. í regni og
snjókomu tryggir ein rösk
rúðuþurrka gott útsýni.
lega fyrir komið. Eitt og annað smálegt er
auk þess að finna til aukinna þæginda;
stýrið er mjúkbólstrað, speglareru
stillanlegir innanfrá, stórt hanskahólf,
myntbox og geymslubakkar í hurðum
eru með innbyggðri hátalargrind.
Mælaborðið er auðvelt álestrar, með
góðri grafík og öllum stjórntækjum er hagan-
Ef hægt er að segja um Duna SEDAN
að hann sé klassískur fjölskyldubíll,
þáerDuna WEEKEND
kjörinn skutbíll fyrir þá sem vilja •
bíl með mikið flutningsrými 1.430
lítra með niðurfellt aftursætisbak .
Duna WEEKEND er sérstaklega
stílhreinn og straumlínulaga; góðurí >
vinnu, til ferðalaga og í bæjarakstri. Jafnvel
fullhlaðinn hefur hann góða aksturs-
eiginleika og gott viðbragð.
í FRAMTÍÐ VIÐ SKEIFUNA SÍMAR: 688850 & 685100