Morgunblaðið - 07.10.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.10.1987, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987 Það er dýr hver rúmmetri í lager- húsnæði. Nýtið hann þvível. Þungavörukerfi Bifreiöa- stillingar Minni eyðsla, meiri ending vélarinnar. Sérhæfðir menn og fullkomin tæki. BOSCH HF.OFNASMIBJAN SÖLUDEILD HÁTEIGSVEGI7. S.: 21220 \hluta þjónumta B R Æ Ð U R N ORMSSONHF LÁGMÚLA9, SlMI 38820 Tríumnh brjóstahöid eru komin í öllum gerðum. Einnig mjólkurgjafabrjóstahöld. i lílJU lympTi Laugavegi 26, sími 13300 Glæsibæ, sími 31300 w AF ERLENDUM VETTVANGI í srael* eftir JÓHÖNNU kristjónsdóttur Var Yitzak Shamir kunnugt um víðræð- umar við PLO? VIÐRÆÐUR nokkurra framámanna Likud-bandalagsins í ísrael við þekkta stuðningsmenn PLO, sem spurðist af í síðustu viku, hefur valdið miklu fjaðrafoki innan Israels. Ekki má á milli sjá, hvorir eru óhressari með þessa fundi. Ýmsir fylgis- menn PLO á Vesturbakkanum gruna þá Araba, sem sátu fundina um að ætla að svíkja málstaðinn og innan Likud eru menn einnig í uppnámi og ásakanir hafa verið settar fram um að Likud virtist vera reiðubúinn að láta Vesturbakkann og Gaza hverfa að nokkru eða öllu leyti undir stjórn PLO. Ásakanirnar ganga sem sagt á vixl og siðast en ekki sízt eru svo grunsemdir innan forystu Herutflokks Yitzaks Shamir, forsætisráðherra um að þar á bæ hljóti menn að hafa lagt blessun sína yfir þessar viðræður. Shamir forsætisráðherra hef- ur gefíð út hvassyrta yfírlýs- ingu, þar sem hann þvemeitar að hafa haft minnstu hugmynd um að þessar viðræður hefðu átt sér stað. Þaðan af síður að hann hefði samþykkt þær, ef hann hefði haft pata af því sem til stóð. En ekki leggja allir trúnað á orð Shamirs og fínnst með ólík- indum, að þingmaður og áhrifa- mikill fulltrúi miðstjómar Herat hefðu haft frumkvæði um þetta nema með óopinbemm tilstyrk Shamirs. Þeir sem tóku þátt í viðræðun- um vom þingmaðurinn Ehud Olmert og miðstjómarfulltrúinn Moshe Amirav og frá PLO, Sari Nuseibeh, prófessor við Birzeit- háskólann, Salah Zuheikeh, ritstjóri og Faisal Husseini, for- maður Arabiska vísindafélagsins. Nokkm eftir að fréttir komust á kreik um fundina, réðust arab- iskir stúdentar á Nuseibeh og börðu hann til óbóta. Nuseibeh hefur ekki tjáð sig um málið, en gekkst við því, að hann hefði seuð margnefnda fundi. Ritstjór- inn Zuheikeh efndi til blaða- mannafundar í Jerúsalem til að greina frá málavöxtum og lagði sig í framkróka að sannfæra menn um, að Palestínumennimir þrír hefðu ekki gert neinar til- slakanir, né komið fram með neinar hugmyndir sem yrðu túlk- aðar svo. Hann lagði fram nokkur plögg, máli sínu til stuðnings. Þar vom meðal annars drög sem Amirav hafði gert að því hvemig haga mætti viðræðunum. í þess- um dögum var talað um rétt Palestínumanna til sjálfsstjómar og sagt að PLO sé hinn eini rétti fulltrúi Palestínumanna i öllum samningaviðræðum. En í plagg- inu var ekkert um þá kröfu Palestínumanna um að þeir fengju að stofna sjálfstætt ríki. Zuheikeh var gagnrýndur óspart af arabiskum starfsfélögum, sem sögðu sýnilegt að mennimir hefðu látið glepjast af „áróðri zionista." Ekki var óánægjan minni hjá Likud bandalaginu og þó einkum innan forystu Herut. Stjóm flokksins harðneitaði, að hún hefði vitað hvað Amirav og Olm- ert vom að bauka og látin í Ijós megnasta andúð á þessu. En þó var Meir Cohen Avidov þingmað- ur talinn á að draga til baka tillögu um að Amirav yrði gerður brottrækur úr flokknum og Olm- ert veitt ofanígjöf. Sem stendur eru lögfræðilegir ráðunautar Heruts að kanna, hvort ástæða sé til að gera eitthvað í málinu. Ekki leikur á því vafí að ein- hveijir í forystunni muni ítreka tillögu Avidovs, um að mennimir tveir yrðu reknir úr flokknum. í ljósi viðbragða við tillögu Avidovs er engan veginn öruggt, að það verði ofan á. Moshe Amirav hefúr ekki látið á sig fá hótanir og skammir. Hann hefur að sönnu tekið undir þær fullyrðingar, að Shamir for- sætisráðherra hafí ekki vitað um þessa fundi. En hann segist vera stoltur af því að hafa átt þátt í að hrinda af stað hreyfíngu sem stefndi að réttlæti. Viðræðumar og frjáls skoðanaskipti á fundin- um staðfestu styrka stöðu ísra- elsks lýðræðis. Hann hefur ennfremur sagt að í upphafí hvers fundar með fulltrúum Araba, hafí hann jafnan sagt að hann talaði aðeins fyrir sjálfan sig. Ef einhver árangur yrði af þessum fundum myndi hann greina forsætisráðherranum frá honum. En áður en svo langt var kom- ið söpi birtu fjölmiðlar fréttir um fundina og uppi varð fótur og fít og óhugsandi hefur verið að hafa fleiri fundi. Fréttamenn hafa velt vöngum yfir ýmsum atriðum varðandi þetta mál. í fyrsta lagi hvort hugsjón og bræðraþel Amiravs og Olmert hafí legið að baki eins og þeir staðhæfa. Auðheyrt er að fréttamönnum fínnst það ekki trúleg skýring. í öðru lagi, hvað hafí vakað fyrir Shamir forsætis- ráðherra, ef honum hefur verið kunnugt um fundina. Shamir hefur eins og allir vita, sem fylgj- ast með málefnum Miðaustur- landa, verið einstrengingslegur og þvermóðskufullur og lagzt gegn því í reynd, að Palestínu- menn fengju neins konar sjálfs- stjóm. Hann hefur þó, eins og aðrir ísraelskir stjómmálamenn gera með jöfnu millibili, lýst yfír að það sé nauðsynlegt að fínna lausn á málunum. En hefur verið andsnúinn öllum hugmyndum sem fram hafa verið settar. Það hefur farið fyrir brjóstið á Shamir, að Shimon Peres, ut- anríkisráðherra, virðist í hugum manna, að minnsta kosti utan ísraels, vera sijómvitringurinn, sem vill levsa vanda Palestínu- manna og Israela. Shamir hefur setið eftir sem íhaldssamur og þröngsýnn kurfur, sem ekki geti skilið, að tímamir hafa breytzt og ísraelar geti ekki endalaust látið málefni Vesturbakkans og Gaza vera í einhvers konar bið- stöðu.Því ganga sumir frétta- skýrendur svo langt að segja, að þeir Amirav og Olmert hafí byij- að þessar viðræður við PLO- stuðningsmennina fyrir tilhlutan Shamirs. Forsætisráðherrann hafí talið, að PLO fulltrúamir myndu verða svo ánægðir að hugmyndir um sjálfsstjóm kæmu frá Likud, að þeir fengjust til að semja um tilslakanir sem PLO hefur ekki verið til viðræðu um hingað til. Og síðan kæmi Sham- ir fram með friðarhugmyndir sem Palestínumenn féllust á og yrði friðarhöfðingi í sögunni. Enn ein skýringin er, að breyt- ingar á valdahlutföllum innan Hemtflokksins, hafí ráðið. Þegar Begin var og hét, sátu menn og stóðu að mestu eins og hann fyr- irskipaði. Þótt hann væri um- deildur, var hann óumdeilanlega leiðtogi flokksins og hafði það í hendi sér sem hann vildi. Eftir að Shamir tók við hafí þama orðið mikil breyting. Valdabar- áttan um forystuna blasi við allra augum og Shamir hafi ekki þau tök á flokknum sem nauðsynlegt sé. Þrátt fyrir að ísraelar séu lýðræðissinnar, vilja þeir sterkan leiðtoga. Sá leiðtogi hefúr Shim- on Peres orðið Verkamanna- flokknum á síðustu árum. Samtfmis þvf að Shamir missir ftök f sínu liði. Þvf geti vel verið að þessi friðaraðgerð sé bending um aukin átök og meiri sundr- ungu innan Ldkud. Sari Nuseibeh, prófessor Shamir- dreymdi hann um að verða friðarhöfðingi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.