Morgunblaðið - 07.10.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.10.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987 STADIA Gæða skór á hreint ótrúlegu verði Ný sending af STADIA skóm í verslan- ir í vikunni. Uppháir og lágir inni íþróttaskór. Kynnið ykkur STADIA gæði. STADIA fsst í eftirtöldum verslunum: Sportbúð Óskars, Keflavík KEA, Akureyri Sportvik, Dalvík Skagfiröingabúð, Sauðárkróki H-Búðin, Garðabæ Akrasport,Akranesi Sportbúð Kópavogs, Kópavogi Verslun Sig. Pálma. Hvammstanga Borgarsport, Borgamesi Sportbúð Selfoss, Selfossi Hagkaupum Krínglunni, Reykjavík Verslunin Bára, Grindavík Einari Guðfinnssyni, Bolungarvík AF-Heildverslun hf.f Lágmúla 5, Reykjavík, sími68 99 11. Blaðburóarfólk óskast! HHj 35408 ! 83033 Í SELTJNES Nesvegur 40-82 o.fl Selbraut o.fl. GRAFARVOGUR Hverafold AUSTURBÆR Háahlíðo.fl. VESTURBÆR Aragata Einarsnes Ægisíða 44-78 ÚTHVERFI Básendi Ártúnshöfði - iðnaðarhverfi Birkihlíð Hrólfur Sveinsson: Tölvuraunir Fjarskalega er ég Þorgeiri Þor- geirssyni rithöfundi þakklátur fyrir grein í Lesbók 3. þ.m., þar sem hann tekur upp hanzkann fyrir mig gegn Helga Hálfdanar- syni, sem löngum hefur lagt mig í einelti með nöldri. Þó að vér nöldurfræðingar sé- um orðnir margs vísari um orsakir nöldursýkinnar, er þar enn margt á huldu. Síðan ég fór að leggja stund á nöldurvísindi, hef ég komizt að raun um það, að þetta fyrirbæri á sér býsna margvísleg- ar rætur. Til dæmis er nöldur út af skáldastyrkjum af allt öðrum toga en nöldur út af lögregluað- gerðum, svo ekki sé minnzt á nöldur út af nöldri. En þrálátt nöldur H.H. út af minni saklausu tilvist er mér samt alger ráðgáta. Þó að Þorgeir Þorgeirsson hafí af hjartapiýði lagt mér lið, vædd- ur tölvu sinni, sem er sérhönnuð í slíkar brösur, hefur því miður nokkuð farið þar úrskeiðis, líkt og tölvan hafí fengið trollið f skrúfuna þegar verst gegndi, og annað apparat tekið við. Til dæm- is hafa þau eftir mér, að kenningin um skáldgáfu vegna skorts á B- vítamíni sé að nokkru frá mér runnin. Sannleikurinn er sá, að ég tel fátt eða ekkert örva skáld- lega andagift jafn-duglega og B-vítamín. Þar get ég trútt um talað, því öll mín beztu skáldverk eru til orðin í B-vítamín-vímu. A því, sem H.H. hefur eftir mér um skáldskap, skyldi enginn mark taka. Og svo ég víki að yrkingum í næturvinnu, þá hef ég ævinlega haft óbeit á slíkri meðferð á skáld- um. Enda hef ég í hyggju að stofna skáldavinafélag til baráttu gegn næturskáldskap. Og þegar ég er kominn á þing, mun ég beita mér fyrir löggjöf, sem trygg- ir skáldum a.m.k. átta stunda svefn. Þá er það eftir mér haft, að ég sé H.H. sammála um að skáld eigi að „fá að vinna fyrir sér, fremur en hjara á opinberri ölm- usu annað veifið og stunda skáldlegan sult þess á milli", eins og H.H. er vanur að orða það. Þessari sérvizku hef ég aldrei haldið fram. Það er nú öðru nær. Ég vil geta gengið á fund mennta- málaráðherra og sagt: „Ég, Hrólfur Sveinsson, er skáld." Og út á það vottorð vil ég ekki fá neina stopula handahófs-ölmusu, heldur föst laun, sem tryggi mér að þurfa aldrei öðru að sinna en yrkingum meðan ég blæs úr nös. Að lokum endurtek ég þakkir mínar til Þorgeirs Þorgeirssonar. Og þó að mig gruni, að þeim H.H. sé vel til vina, þá vona ég að hann sýni honum aldrei linkind af þeim sökum. Fundur Kvenréttindafélagsins um dagvistunarmál: Dagvistunarmál verði sett inn í kjarasamninga I FJÖLMENNUR fundur um dag- I vistunarmál var baldinn á vegum K venréttindaf élags íslands siðastliðinn laugardag. Á fund- inn mættu fulltrúar stjórnvalda og félagasamtaka svo sem for- eldrafélaga og verkalýðsfélaga. Rætt var um nýjar leiðir í dag- vistun og var sett fram tillaga um að aðilar vinnumarkaðsins semdu um að setja dagvistunar- mál inn í kjarasamninga. Lára V. Júlíusdóttir formaður Kvenréttindafélags íslands sagði i samtali við blaðamann Morgun- blaðsins, að í vetur yrðu haldnir mánaðarlegir opnir fundir undir heitinu „konan, vinnan, heimiiið". Viðfangsefni þeirra yrði sú tog- streita sem myndaðist hjá konum sem ynnu utan heimilis. „Upphafíð ÍwnUl' í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI OG Á KASTRUP- FLUGVELLI að þessum fundum er umræða um dagvistunarmál", sagði Lára, „hún er orðin það neikvæð að enginn vill lengur starfa að dagvistun. Þar hefur orðið mikil fólksfækkun og vegna hennar hefur reynst nauð- synlegt að ioka mörgum deildum á dagvistunarheimilum." Þessi fundur var sá fyrsti í fund- arröð vetrarins og fluttu erindi: Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ, Inga Jóna Þórðardóttir formaður ijölskyldunefndar ríkisstjómarinn- ar, Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfull- trúi, Sigurður Snævarr hagfræð- ingur frá SÍB og Víglundur Þorsteinsson formaður Félags íslenskra iðnrekenda. Á fundinum var sett fram spum- ingin um nýjar leiðir í dagvistarmál- um og vom menn á öndverðum meiði. Annars vegar vom þeir sem vom fylgjandi hærri bamabótum, gæti fólk þá valið á hvaða bama- heimili það setti böm sín. Yrðu bamaheimilin rekin af einkaaðilum. Fylgjandi þessu vom Víglundur Þorsteinsson og Inga Jóna Þórðar- dóttir. Hins vegar var sú hugmynd að ríkið og sveitafélögin sæu um reksturinn, hann yrði þjónusta á vegum hins opinbera sbr. skóla. Þá væri ekki gert ráð fyrir að einkaað- ilar sæu um reksturinn. Að baki þessari hugmynd stóðu Ásmundur Stefánsson og Kristín Ólafsdóttir. Rætt var um að tekjutengja greiðslur á dagvistagjöldum. í stað þess að allir greiddu sömu upphæð, yrðu dagvistargjöld ákveðinn hluti launa. Þetta væri hægt að tengja staðgreiðslukerfi skatta. Þá var bent á að þörf væri á að breyta þeim foréttindum sem einstæðir foreldrar hefðu hingað til haft, því einstæðir foreldrar væm alls ekki allir eins settir. Vitað væri um ein- stæð foreldri sem hefðu mun hærri laun en samanlögð laun hjóna sem væm láglaunafólk. Sigurður Snævarr setti fram áskoran þess efnis að aðilar vinnu- markaðsins semdu um að leysa dagvistunarvandann með þvi að gera dagvistunarmál að þætti í kjarasamningum. Benti Sigurður á að hægt væri að fara svipaðar leið- ir og gert var í orlofsheimilamálum fyrir nokkmm ámm. Þá var samið um að ákveðin prósenta af launum rynni í orlofsheimilasjóð verkalýðs- félaganna. Gunnlaugur Hilmarsson, eigandi verslunarinnar, og Guðlaug Chirst- ensen, afgreiðslukona. Sérverslun með áklæði OPNUÐ hefur verið verslunin Innbú á Skúlagötu 61 í Reykjavík. Eigandi verslunarinn- ar er Gunnlaugur Hilmarsson. Innbú er sérverslun með áklæði og selur þau bæði í smásölu og heildsölu. Áklæðin em frá Vestur- Þýskalandi og Belgíu. Einnig verður verslunin með á boðstólum leður- og leðurlúxefni. Markmið verslunarinnar er að bjóða upp á nýjustu línuna af áklæðum. Ifyrirtækið Innbú hefur verið rek- ið sem bólstmnarverkstæði í Keflavík síðan 13. febrúar 1979, samhliða húsgagnaverslun frá 1979 til 1984.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.