Morgunblaðið - 07.10.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
27
Morgunblaðið/Emilía
Hilmar B. Jónsson matreiðslumaður með rúsínublóðmör að hætti
mömmu.
Rúsínublóð-
mör með kanel
Aðalrétturinn í veislu forseta íslands í Róm
Róm, frá Kristínu Gunnarsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins.
HILMAR B. JÓnsson matreiðslu-
maður sá um alla matreiðslu i
veislu sem forseti íslands hélt
forseta Ítalíu á Grand Hotel í
gærkvöldi.
Boðið var upp á sex rétti og var
fyrsti rétturinn steiktur, niður-
sneiddur rúsínublóðmör, sem móðir
Hilmars Jónína Krístjánsdóttir bjó
til. Á blóðmörinn var stráð kanel
og hann borinn fram með steiktum
eplasneiðum.
Næst komu fyllt smálúðuflök í
hlaupi, þá reiktur lax með pasta.
Fjórði rétturinn var agúrkufrauð
en sfðan var boðið upp á lambame-
dalíur í kryddjurtasósu og síðast
kom rababaraeftirréttur.
byija að syngja og læra undirstöðu-
atriði tónlistar eftir réttum reglum.
Þátttakendur hafa verið á bilinu
50 til 100 á hveiju námskeiði. Þang-
að hefur komið fólk úr ýmsum
áttum, allt frá fermingu til fertugs,
og eitt einni kvöldstund í viku til
að læra rétta raddbeitingu, rétta
öndun, nótnalestur og almenn und-
irstöðuatriði tónlistariðkunar. Mér
er ánægja að lýsa því yfir að flest-
ir þátttakendur hafa sýnt mikinn
áhuga og náð undraverðum árangri
á skömmum tíma.
Kórskólinn er opinn öllum sem
hafa gott tóneyra. Það er eina inn-
tökuskilyrðið. Námskeiðin standa
oftast í 10 vikur og stundum höfum
við haldið framhaldsnámskeið. Að
námskeiðunum loknum eiga þeir
hæfustu kost á því að gerast full-
gildir aðilar í Pólýfónkómum, þar
sem kennsla og þjálfun heldur að
sjálfsögðu áfram. Það gildir hið
sama um iðkun íþrótta og tónlistar,
að upplagið eitt er ekki nóg heldur
þarf stöðuga og markvissa þjálfun
ef listrænn árangur á að nást að
einhveiju marki."
Ódýr leið til söngnáms
Geta menn komið inn í námskeið-
in hvenær sem er á tímabilinu eða
er nauðsynlegt að vera með frá
byijun?
„Það er afar þýðingarmikið að
vera með frá byijun því annars er
hætta á að menn nái aldrei fót-
festu. í nótnalestrinum er byijað á
ákveðnu tónheymarkerfi og takt-
æfingum. Söngþjálfunin hefst með
öndunar- og slökunaræfingum og
réttri staðsetningu hljómsins, eftir
hinni ítölsku Bel Canto-aðferð.
Kennslan fer fram í hópum eftir
flokkun raddanna í háar og djúpar
raddir. Byijað er á þægilegasta
sviði raddarinnar og unnið að
víkkun raddsviðsins út frá því. Þeg-
ar líður á námskeiðið syngja
nemendumir smálög eða búta úr
frægum sönglögum, sem heppilegir
eru til að byggja upp sönggetuna.
Það má því segja að þátttaka í
Kórskólanum sé ódýr leið til söng-
náms. Menn ættu að minnsta kosti
ekki að vera feimnir við að reyna.
Ég hef oft bent á, að það að syngja
sé eitt besta ráðið til að yfirstíga
feimni sem virðist hijá margt fólk.
Það þarf ekki mikinn kjark til að
taka þátt í Kórskóla Pólýfónkórs-
ins, en það getur hjálpað fólki til
að komast yfir vissa hræðslu í sam-
skiptum sínum við aðra og sýna
fulla einbeitingu þegar á reynir,"
sagði Ingólfur Guðbrandsson að
lokum.
Þess má geta að skráning nem-
enda í Kórskólann stendur nú yfír
og fer fram í síma 21424 á daginn,
en 84610 eða 72797 á kvöldin.
Kennslan fer fram í Vörðuskóla á
Skólavörðuholti á fímmtudags-
kvöldum klukkan 20.00 til 22.00.
Blönduós verður bær
á 112 ára afmælinu
Blönduós.
BLÖNDUÓS verður bær 4. júlí
1988, á 112 ára afmæli byggðar
á Blönduósi. Tillaga þess efnis
var samþykkt á fundi hrepps-
nefndar i gær með atkvæðum
allra hreppsnefndarmanna.
Þriggja manna nefnd verður
kosin til að undirbúa málið.
Að sögn Hauks Sigurðssonar,
sveitarstjóra Blönduósshrepps,
verða þær breytingar helstar við
að Blönuóshreppur verður bæjarfé-
lag að aðild Blönduóshrepps að
sýslufélaginu fellur niður. Jafn-
framt verða breytingar á gagnvart
áfengislögunum og lögum um al-
mennar tryggingar svo eitthvað sé
nefnt. Haukur sagði að það að
breytast úr hrepp í bæ hefði lítil
áhrif peningalega séð á rekstur
sveitarfélagsins. Engin breyting
verður á nafni staðarins við bæjar-
rettindin að sögn Hauks. „í daglegu
tali er staðurinn nefndur Blönduós
og því verður haldið áfram eftir
þesssa breytingu," sagði hann.
Skilyrði til að hreppsfélag geti
orðið að bæjarfélagi er að meðalíbú-
arfjöldi síðastliðinna þriggja ára sé
1.000 íbúar eða fleiri. Þijú sveitar-
félög, sem uppfuylla þéssi skilyrði,
hafa enn ekki notfært sér þessa
heimild, en það eru Sandgerði,
Höfn í Homafirði og Garður.
Jón.Sig.
* >«■ V
GinS4n4G115
AUKIN SNERPA, BETRIAFKÖST
Ef þú sefur illa og erf úrillur á morgnana, lœtur
umferðina fara í taugarnar á þér, átt erfitt með
að einbeita þér að verkefnum dagsins, skaltu
líta við í Heilsuhúsinu. Við leiðum þig í
allan sannleikann um GinsdrMGTE
eiisuhúsiö
Skólavörðustíg 1 Sími: 22966 101 Reykjavík.
SETTA SEM TREYST ER Á
OTDK