Morgunblaðið - 07.10.1987, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö.
Forseti íslands
heimsækir Italíu
T 7 igdís Finnbogadóttir, forseti
V Islands, er nú í opinberri
heimsókn á Ítalíu. Er það í fyrsta
sinn, sem íslenskur þjóðhöfðingi
sækir ítölsku þjóðina heim í opin-
berum erindagjörðum. Eins og
forsetinn sagði réttilega, þegar
hún ávarpaði Francesco Cossiga,
forseta Ítalíu, höfum við íslend-
ingar löngum verið þeirrar
skoðunar, að „aliar leiðir liggi til
Rómar". í því ljósi er meira en
tímabært, að þjóðhöfðingi okkar
fari þangað í opinbera för. Vigdís
Finnbogadóttir hefur ferðast víða
á undanfömum dögum og vikum.
Hvarvetna hefur hún borið hróður
landsins og komið fram fyrir hönd
þjóðarinnar með glæsibrag.
Menningarleg áhrif frá Ítalíu
hafa verið svo mikil hér og um
svo langan aldur, að ekki verður
gerð úttekt á þeim í fáeinum orð-
um. Þessi áhrif stafa ekki aðeins
frá ítölum sjálfum heldur einnig
katólsku kirkjunni og páfadómi í
hjarta Rómar. Með óyggjandi rök-
um hefur verið sýnt fram á, meðal
annars af Hermanni Pálssyni, að
latnesk rit upprunnin undir hand-
aijaðri kirkjunnar á Ítalíu höfðu
ómæld áhrif á ritun íslendinga-
sagna á öldunum eftir upphaf
íslandsbyggðar. Án hlutdeildar
kirkjunnar þjóna hefðu þessar
sagnir ef til vill ekki varðveist
fram á þennan dag. í myndlist,
höggmyndalist, byggingarlist,
kvikmyndalist og tónlist höfum
við sótt fyrirmyndir og þekkingu
til Ítalíu og listastefna, sem eiga
uppruna sinn þar. Hin síðari ár
hafa almenn kynni íslendinga af
Ítalíu, ítölum og ítölsku þjóðlífí
verið meiri en nokkru sinni fyrr,
þúsundir eða tugþúsundir íslend-
inga hafa sótt Ítalíu heim sér til
hvfldar og hressingar. Er ekkert
lát á þeim ferðum og verður áreið-
anlega skemmtilegra að vera
íslendingur á Ítalíu, eftir að þeir
hafa ht5t þau kynni af Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta íslands,
sem leiða af heimsókn hennar nú.
ítalir voru í sárum eftir síðari
heimsstyrjöldina ekki aðeins
vegna mannfalls og mikilla fórna
heldur einnig efnahagslega og
stjómarfarslega. Á ótrúlega
skömmum tíma tókst þeim að
skipa sér að nýju í fremstu röð
og eru nú meðal fímm öflugustu
iðnrfkja heims. Er talið að á
síðustu ámm hafí þeir skriðið
fram úr Bretum, ef mið er tekið
af þróun efnahagsmála. ítölsk
fyrirtæki voru rekin af miklum
dugnaði, eftir að þjóðin tók að
rétta úr kútnum eftir styijöldina.
Síðan varð nokkur lægð hjá þeim.
Hin síðari ár hafa Italir á hinn
bóginn verið í röð þeirra, er hafa
verið óhræddastir við að tileinka
sér hátækni og sækja inn á nýjar
brautir í krafti hennar. Má segja
að stórfyrirtæki eins og Fiat og
Olivetti, sem eru heimskunn fyrir
framleiðslu sína, hafí endumýjað
lífdaga sina hin síðari ár.
ítalir og íslendingar hafa tekið
höndum saman um að tryggja
öryggi sitt með þátttöku í Atlants-
hafsbandalaginu. Hlutur ítala er
að sjálfsögðu mestur í suðurhluta
Evrópu og á Miðjarðarhafí. Af
ríkjunum í Suður-Evrópu, sem
láta æ meira að sér kveða innan
Atlantshafsbandalagsins og ekki
síður Evrópubandalagsins, er ít-
alía öflugust. ítalir eru fastir fyrir
í öryggismálum. Reynslan í síðari
heimsstyijöldinni og fjölmörgum
stríðum á undan henni hefur
kennt þeim, að best er að efla
friðsamlegt samstarf við ná-
granna sína. Jafnvel Kommún-
istaflokkur Ítalíu, sem löngum
hefur verið öflugur, hefur fallið
frá andstöðu sinni við Atlants-
hafsbandalagið svo að ekki sé
talað um Evrópubandalagið.
Heimsókn Vigdísar Finnboga-
dóttur, forseta Islands, til Ítalíu
er gleðileg og tímabær staðfesting
á vináttu þjóða Ítalíu og íslands.
\
Æft vegna
íslands
Iumræðum um íslensk öryggis-
mál hefur oft verið drepið á
það, að viðbúnaður vamarliðsins
í landinu sjálfu sé ekki með þeim
hætti, að það hafí afl til að veij-
ast lengi, ef ráðist yrði inn í landið
sjálft. Hefur jafnframt verið á það
bent af sumum, að nauðsynlegt
væri að sýna fram á það með
æfíngum, að vamarliðið hefði afl
til að halda uppi slíkum vömum.
í Morgunblaðinu á laugardag
birtast fyrstu myndir í íslensku
blaði frá æfíngum bandaríska
landhersins í þágu íslenskra land-
vama. Eins og af frásögninni má
ráða, sem myndunum fylgdu, hafa
Bandaríkjamenn uppi mikinn við-
búnað til að geta staðið við þær
skuldbindingar, sem af vamar-
samningnum leiða. Rúmlega
5.000 manns úr varaliði banda-
ríska landhersins, 1.000 ökutæki
og 21 flugvél tóku þátt í þessum
æfíngum að viðstöddum tveimur
fulltrúum vamarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins.
Morgunblaðið telur þessar æf-
ingar enn til marks um, að þess
sé gætt eins og kostur er, að bún-
aður vamarliðsins sé ætíð þannig,
að það geti bmgðist við þeirri
hemaðarógn, sem að landinu
steðjar. Þegar myndimar af við-
búnaði Bandarfkjamanna okkar
vegna em skoðaðar, hljótum við
að lfta í eigin barm og spyija:
Gemm við nóg sjálfír?
Alþjóðaiiáttúruverndarsióðiirinn:
Aukin fræðslí
umhverfisve]
eftirSturlu
Friðriksson
Alþjóðanáttúruvemdarsjóður-
inn, World Wildlife Fund (WWF),
hefur reynt að hafa áhrif á hval-
veiðar okkar íslendinga. í frétta-
bréfí félagsins, sem gefíð er út í
Sviss og dreift er víða um heim,
em oft greinar um afstöðu
íslenskra stjómvalda í hvalveiði-
málum og bent á að með vísinda-
veiðum séu íslendingar að ijúfa
þá alþjóða samstöðu, sem reynt
hefur verið að ná um að friða hvali
um stundar sakir til þess að forða
ýmsum tegundum hvala frá útrým-
ingarhættu.
Þegar um alþjóða friðunarað-
gerðir á náttúmauðlindum er að
ræða hafa þær mismikil áhrif á
efnahag einstaklinga og þjóða.
Hömlur á sölu afurða friðaðra dýra
hafa þannig haft mikil áhrif á efna-
hag margra Afríkuríkja, sem þó
hafa algjörlega friðað þær dýra-
tegundir, sem álitið er að geti verið
í útrýmingarhættu.
Friðun á landsvæðum til vemd-
' unar dýra og plantna skerða einnig
rétt manna til að nylja þau svæði
á annan hátt. Slíkar aðgerðir skapa
eðlilega árekstra, en þó hefur feng-
ist samstaða um friðun þjóðgarða
og margir hafa lagt sitt af mörkum
til þess að varðveita sérstæðar
náttúmauðlindir.
Samtökin WWF em mjög sterk
og áhrifamikil enda aðhyllast millj-
ónir manna um heim allan þau
sjónarmið er samtökin beijast fyr-
ir. Er þýðingarmikið fyrir farsæl
viðskipti þjóða að taka nokkurt til-
lit til þeirra sjónarmiða.
Við íslendingar viljum eðlilega
ekki una því, að aðrar þjóðir hlut-
ist til um atvinnuhætti okkar. Hins
vegar er nú að fengnu samkomu-
lagi við Bandaríkjamenn um
hvalveiðar einmitt ástæða fyrir
okkur að meta hvers virði það er
að taka þátt í alþjóðasamvinnu um
tfmabundna friðun á hval í anda
samþykktar alþingis frá því í sept-
ember 1982 og sýna í verki, að
við sem aðrir viljum gæta hófs í
nýtingu náttúmauðlinda okkar.
í meðfylgjandi greinargerð er
Risaakjaldbaka á Galapagos.
skýrt frá starfsemi WWF-samtak-
anna.
Alþjóðanáttúmvemdarsjóður-
inn, World Wildlife Fund, varð
tuttugu og fímm ára á síðastliðnu
ári og hyggur á mikið átak í friðun-
armálum í tilefni þessara tíma-
móta. Forseti samtakanna er
Filipus prins, eiginmaður Elísabet-
ar Bretadrottningar, en fram-
kvæmdastjórinn heitir Charles de
Haes og hefur hann aðsetur í höf-
uðstöðvum sjóðsins í Sviss.
Náttúmvemdarsjóðurinn rejmir
nú að ná til allra þeirra, sem enn
standa utan við samtökin, ekki
aðeins með hjálp fjölmiðla, heldur
einnig á ýmsan annan hátt. Eink-
um er reynt að ná til margra íbúa
þróunarlandanna, en sennilega búa
tveir þriðju þeirra við algjöran fjöl-
miðlaskort. Reynt er að stuðla að
hugarfarsbreytingu gagnvart um-
hverfínu og lífríki þess. Efnt verður
til fundarhalda um friðunarmál,
þar sem sérfræðingar á sviði
vísinda, hagfræði, viðskipta, fjöl-
miðla, sljómmála og trúmála munu
ræða ýmsa mikilsverða þætti, sem
hafa áhrif á umgengnisvenjur og
hugarfar fólks gagnvart náttú-
mnni. Reynt verður að koma
boðskapnum um náttúmvemd til
skila á greinargóðan hátt, til sem
flestra manna.
Náttúmvemdarsamtökin eða
deildir um allan heim, sem aðild
eiga að Alþjóðanáttúmvemdar-
sjóðnum, World Wildlife Fund, em
studd af yfír milljón félagsmönn-
um. Einkunnarorð samtakanna á
þessu 25 ára afmæli em: Aðgát,
þjálfun, menntun. Meðal annars
er nú gert ráð fyrir, að leiðtogar
hinna ýmsu trúarbragða heims
muni taka náttúruvemdarsjónar-
mið til umfjöllunar og leitast við
að fella þau inn í siðfræði einstaka
trúarbragða til þess að hvetja fólk
til að umgangast land sitt og lífver-
ur með nærgætni.
Þegar Alþjóðanáttúmvemdar-
sjóðurinn var stofnaður árið 1961
hafði hann einkum tvennt á stefnu-
skrá sinni. í fyrsta lagi að safna
fé, sem varið skyldi til náttúm-
vemdar, og í öðm lagi að vekja
fólk til meðvitundar um mikilvægi
þess að bjarga tegundum dýra og
plantna sem em í útrýmingar-
IjÓBmyndari/Sturla Friðriksaon
Sturla Friðriksson
hættu. Nú er hins vegar enn meira
í húfí og þörf er á enn víðtækari
ráðstöfunum til að koma í veg fyr-
ir fækkun tegunda í lífríki jarðar,
þar sem sífellt bætast við eyðingar-
öfl og stöðugt er þrengt að lífver-
um í heimkynnum sínum með
auknum umsvifum manna og auk-
inni mengun, sem fylgir í kjölfarið.
Á fyrstu ámm samtakanna
beindist áhugi þeirra aðallega að
vemdun nokkurra dýrategunda. í
þeim hópi dýra vom hvítabimir,
arabíska oryx-antílópan, nashym-
ingurinn, nagapinn á Madagaskar
og förufálkinn. Seinna hafa marg-
ar fleiri dýrategundir bæst við
þennan lista.
Vitað er um flölda tegunda dýra
og plantna, sem em í útrýmingar-
hættu um víða veröld. Hefur verið
samin skrá yfír þessar tegundir
og reynt að sýna viðkomandi að-
standendum fram á ríkjandi
hættuástand, en oft er það einmitt
af vanþekkingu og gáleysi að teg-
und er útrýmt.
Þannig var þeim mönnum hér á
landi, sem skutu tvo geirfugla í
Eldey úti af Reykjanesi hinn 3.
júní 1844, áreiðanlega ekki kunn-
ugt um, að þeir hefðu með því
ósköp saklausa atferli, að því er
virtist, útrýmt af jörðinni síðustu
einstaklingum þes3arar sérstæðu
fuglategundar.
Svipaðar sögur má segja af
mörgum öðmm tegundum plantna
og dýra og reynir sjóðurinn að
vara við þessari hættu. En nokkur
stefnubreyting varð á starfsemi
sjóðsins þegar fram liðu stundir.
Þegar í ljós kom hvemig allt
vistkerfí jarðar hefur afgerandi
þýðingu fyrir afkomu tegundarinn-
ar fóm samtökin að láta sig varða
vemdun heimkynna þeirra teg-
unda, sem vom í útrýmingarhættu,
og fóm almennt að sinna því hvaða
þýðingu náttúmvemd hefur fyrir
velferi) mannsins.
í Afríku hafa verkefni sjóðsins
sérstaklega beinst að friðun stórra
svæða. Og þar sem sýnt var, að
alls konar hörmungar áttu rót sina
áð rekja til vistfræðilegrar röskun-
ar var fjárveiting til hjálpar Afríku
nýlega aukin 12 milljónir dollara
á ári (sem er jafnvirði tæpra 80
milljóna króna).