Morgunblaðið - 07.10.1987, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
4
Fyrsta uppboð Fiskmarkaðs Norðurlands hf.;
Þorskurinn sleginn á 38 krón-
ur og grálúðan á 22 krónur
— þrátt fyrir að boðleiðir gagnanets hafi dottið út um tíma
FYRSTA uppboðið fór fram hjá
Fiskmarkaði Norðurlands hf. í
gœr. Boðið var í 2,1 tonn af grá-
lúðu og 1,8 tonn af þorski sem
Súlan EA 300 var þá með á leið
til lands. Súlan var að koma úr
sínum síðasta rækjuveiðitúr og
fer að búa sig undir loðnuveiði
á næstu dögum. Spenningur var
að vonum í mönnum í húsakynn-
um fiskmarkaðarins á Akureyri
þó svo að magnið væri lítið svona
til að byija með, en nokkrum
töfum olli gagnanet Pósts og
sima þannig að boðleiðir duttu
út. Upphaflega átti tilboðsfrest-
ur að renna út kl. 15.00. en
framlengja þurfti þann frest um
20 mínútur.
Fimm tilboð bárust í þorskinn frá
tveimur aðilum. Birgir Þórhallsson
fískverkandi á Akureyri opnaði
markaðinn kl. 12.36 með því að
bjóða 33 krónur fyrir hvert kg af
þorski. Þá hringdi Stefán Haf-
steinsson frá Arskógsströnd kl.
14.19 og bauð einni krónu betur.
Birgir hækkaði sig upp í 36 krónur
og Stefán bauð aftur krónu betur.
Þá hækkaði Birgir sig upp í 38
krónur, sem var lokaboð í þorsk-
farminn. Birgir sagðist ætla að
verka fískinn í salt í verkun sinni
við Óseyri, en alla jafna hefði hann
fengið afla af Dalvíkurbátunum.
Meiri slagur var um grálúðuna á
fískmarkaðinum í gær og komu tíu
tilboð í hana á þessu fyrsta upp-
boði hér norðanlands frá alls
þremur aðilum. Kaldbakur hf. á
Grenivík reið á vaðið kl. 13.00 og
bauð 13 krónur á kg. Frystihús
ÚKE á Dalvík bauð 17 krónur fjór-
um mínútum síðar og Útgerðarfé-
lag Akureyringa bauð 18 krónur
kl. 15.03, það er að segja eftir að
gagnanetinu hafði verið komið af
stað eftir töluvert stopp. Þá hófst
slagurinn á milli Dalvíkinga og
Akureyringa. ÚKE hækkaði sig í
18,5 krónur kl. 15.08, ÚA bauð 19
krónur tveimur mínútum síðar.
ÚKE bauð 20 eftir mínútu um-
hugsunarfrest og ÚA 20,5. Þá
hækkaði ÚKE _sig upp í 21 krónu
fyrir kflóið og ÚA fór í 21,5 krónu.
Lokaútslagið gerði boð ÚKE upp á
22 krónur fyrir kg af grálúðu.
Dalvíkingar höfðu því vinninginn
og sóttu afla sinn í gærkvöldi þegar
Súlan kom að landi. Talið er að það
kosti Dalvíkinga eina krónu á hvert
kg að flytja aflann í eigin vinnslu-
stöðvar frá Akureyri.
Til samanburðar þessu má nefna
Morgunblaðið/GSV
Sigurður P. Sigmundsson fylgist með þeim boðum sem komu inn í
gær á töJvuskjá sínum.
Si,
að meðalverð á þorski hjá Fisk-
markaði Hafnarfjarðar var 44,11
krónur. Hjá Faxamarkaði var með-
alverð á þorski 44,36 krónur og á
grálúðu var meðalverð hjá Faxa-
markaði 34,50 krónur.
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri fískmarkaðarins
sagði í samtali við Morgunblaðið
að aðalatriðið væri að flýta sér
hægt þar sem slíkur fjarskipta-
markaður væri það nýr af nálinni.
„Við höfum nú þegar fengið fyrir-
spumir um að stækka tölvunetið
okkar allt til Hvammstanga auk
þess sem við höfum fengið fyrir-
spumir frá Hafnarfírði, Akranesi,
Grundarfírði og frá Reyðarfírði. Við
gætum stækkað netið, en við viljum
sjá reynsluna áður en við förum að
stækka það um land allt.“
Tólf aðilar hafa lagt fram banka-
tryKging11 gegn viðskiptum við
Fiskmarkað Norðurlands hf., nú
síðast Bautabúrið á Akureyri. Bjöm
Arason sagðist í samtali við Morg-
unblaðið örugglega nota sér
markaðinn í miklum mæli. „Ég hef
verið að borga trillukörlunum 60
krónur fyrir kg af rauðsprettu og
annað eins hef ég borgað ÚA fyrir
kg af togaraýsu. Hinsvegar var þá
skráð ýsuverð helmingi minna. Eg
býst við að kaupa tvisvar í viku hér
og þá um tvö tonn af ýsu í senn."
Hann sagði að reykta ýsan væri
hvað vinsælust og mikill markaður
fyrir hana.
Ekki fer fram uppboð hjá Fisk-
markaði Norðurlands hf. í dag, en
búist er við næsta uppboði á morg-
un.
Nýtt ráðningafyrir-
tæki á Akureyri
Veitir náms- og starfsráðgjöf
NÝTT fyrirtæki hefur hafið
starfsemi sína á Akureyri,
Ábendi sf. Það býður einstakl-
ingum, fyrirtækjum og stofnun-
um aðstoð við ráðningar. Einnig
er veitt hvers konar náms- og
starfsráðgjöf fyrir þá sem eru
að velja nám eða starf fyrir
framtíðina eða hyggja á breyt-
ingar í starfi. Ennfremur er
boðið upp á námskeið og ráðgjöf
við starfsmannahald.
Starfsemin byggir á velþróuðu
kerfi frá Minnesota, sem spáir um
áhuga og velgengni í starfi út frá
áhugasviðum og starfsþörfum
fólks. Þannig er tryggt að kröfur
starfsins og áhugi einstaklings og
hæfíleikar falli sem best saman.
Ábendi sf. á Akureyri er sjálf-
stætt fyrirtæki, en rekið í samvinnu
við Ábendi sf. í Reykjavík og með
sama sniði. Eigendur eru Valgerður
Magnúsdóttir og Stefanía Arnórs-
dóttir. Ábendi sf. er til húsa á
Brekkugötu 1.
Keppni í
frjálsri
greiðslu
Förðunarsýning og keppni í
frjálsri greiðslu verður haldin á
vegum tímaritsins Hárs og feg-
urðar í Sjallanum á Akureyri
• þann 24. október.
Vegleg verðlaun eru í boði í
keppninni í fijálsri hárgreiðslu. Eru
fyrstu verðlaunin ferð á alþjóðlega
fegurðarsýningu (International
Beauty Show) í New York, hárvör-
ur, heilsupakki og peysur. Önnur
verðlaun eru Canon F-70 myndavél
og þriðju verðlaun Orient-arm-
bandsúr. Auk þess munu meðlimir
úr Förðunarfélagi íslands frumsýna
förðunarsýningu.
Tvö af vinningsmódelum í keppni í frjálsri hárgreiðslu sem haldin
var í maí síðastliðnum.
Menn litu inn á markaðinn í gær þó svo að þeir sæju engan fisk á
gólfum, heldur aðeins töivuskjái.
Vilhelm Þorsteinsson framkvæmdastjórí ÚA:
Höfum hingað tíl unn-
ið afla okkar sjálfir
— og munum halda því áfram þrátt fyrir
nýstofnaðan Fiskmarkað Norðurlands hf.
„Það gefur auga leið að fisk-
markaður verður ekki að veru-
leika nema því aðeins að
útgerðarmenn séu tilbúnir til að
selja fisk. Það er ekki nóg að
hafa kaupendur. Markaðurinn
verður ekki til án fisks,“ sagði
Vilhelm Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa í samtali við Morg-
unblaðið.
„Við höfum hingað til byggt út-
gerðarfélagið upp með því að vinna
afla okkar sjálfír og er engra breyt-
inga að vænta í þeim efnum þó
verið sé að setja hér upp fískmark-
að. Við getum frekar bætt við okkur
físki heldur en hitt. Við erum sjálf-
ir hluthafar í Fiskmarkaði Norður-
lands og fórum við aðeins út í það
til að kanna hvort möguleiki væri
á fískmarkaði hér. Ég veit ekki
hvort þetta er svartsýni í mér, en
víst er að staðreyndirnar tala sínu
máli. Útgerðarmenn reyna auðvitað
fyrst og fremst að anna eigin
vinnslustöðvum," sagði Vilhelm.
Tregur af li
Afli hefur verið tregur að undan-
förnu og hefur vinnsla í frystihúsum
stöðvast dag og dag vegna afla-
brests og brælu. Vilhelm sagði að
Harðbakur hefði farið á veiðar sl.
föstudag eftir tæpar þijár vikur í
slipp og ljóst væri að Sléttbakur
yrði ekki tilbúinn fyrr en í fyrsta
lagi um næstu mánaðamót. Slétt-
bakur hefur verið í breytingum
síðan 24. nóvember sl. og hefur
verkinu seinkað töluvert og kostn-
aður þar með farið heldur upp á
við miðað við þær áætlanir sem
gerðar höfðu verið.
Vantar 60 manns
Starfsfólk ÚA á sjó og í landi
telur 350 til 400 manns þegar hæst
lætur, en nú vantar fískvinnslufólk
í um 60 störf. Vilhelm sagði að
engar hugmyndir væru uppi hjá
ÚA um að flytja inn fískvinnslufólk
og sagðist hann vilja forðast slíkar
vangaveltur í lengstu lög. Hann
vonaðist til að vel tækist til með
mannaráðningar á næstu vikum hér
heima fyrir. Mannekla háir fyrir-
tækinu ekki í ótíð sem nú ríkir, en
um leið og fer að vænkast á miðun-
um, liggur á að ráða fólk, að sögn
Vilhelms.
Vilhelm sagði að í fyrstu hefði
átt að setja upp aðeins einn fisk-
markað á landinu til reynslu í um
ár. Síðan hugmyndin kom upp,
hefði látum ekki linnt og hefðu
menn fundið sig knúna til að stofn-
setja að minnsta kosti einn físk-
markað á hveiju landshomi. „Það
hefur komið fyrir að við höfum
haft yfir umframafla að ráða og
höfum við þá látið granna okkar
hér á Norðurlandi hafa hann í skipt-
um aftur seinna þegar vel árar hjá
þeim,“ sagði Vilhelm. Hann sagði
að fískur væri það vandmeðfarinn
að hann yrði ekki fluttur langar
leiðir þó svo að aðilar, til dæmis á
Suðurlandi, sýndu áhuga á skiptum
í gegnum Fiskmarkað Norðurlands.
Piltur á hjóli
fyrir bíl
TÓLF ÁRA strákur á hjóli varð
fyrir bifreið á gatnamótum
Hlíðarbrautar og Teigasíðu í
gær. Drengurinn hjólaði niður
af gangstéttinni á Teigasíðu og
ætlaði yfir Hlíðarbraut á hjólinu,
en í sömu andrá kom bíll eftir
götunni. Drengurinn var fluttur
á sjúkrahús til skoðunar, en talið
er að hann hafi ekki orðið fyrir
meiðslum.
Tveir árekstrar urðu á Akureyri
í gær laust eftir hádegi. Engin
meiðsl urðu á fólki, en bifreiðar eru
töluvert skemmdar. Annar árekst-
urinn varð á Hörgárbraut við
Veganesti og hinn var á Drottn-
ingabraut við afleggjarann heim að
Galtalæk.