Morgunblaðið - 07.10.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
Fai! meirihlutans í Ólafsvík:
Agreiningnr um leið
ir en ekki markmið
- segir Sveinn Þ. Elínbergsson forseti bæjarstjórnar
MEIRIHLUTI bæjarstjórnar Ól-
afsvíkur er nú brostinn, eins og
fram kom í frétt Morgunblaðsins
í gær, Meirihlutann mynduðu
Alþýðuflokksmennirnir Trausti
Magnússon og Sveinn Þ. Elín-
bergsson, sem er forseti.bæjar-
stjómar, Kristján Pálsson
bæjarstjóri, sem er af L-lista lýð-
ræðissinna, sem er þverpólitísk-
ur listi og Alþýðubandalagsmað-
urinn Herbert Hjelm, sem rauf
meiriliiutasamstarfið á bæjar-
stjómarfundi sl. mánudag.
í bæjarstjómarminnihluta voru
hins vegar Sjálfstæðismennimir
Kristófer Þorleifsson og Bjöm Am-
aldsson og Framsóknarmaðurinn
Stefán Jóhann Sigurðsson.
Herbert Hjelm vildi í samtali við
Morgunblaðið ekki tjá sig neitt um
það af hveiju hann hefði rofið meiri-
hlutasamstarfið. Hann sagði ein-
ungis að hann væri að ræða málin
við heimamenn og „í fyllingu tímans
myndi nann gera hreint fyrir sínum
dyrum'1.
Kristján Pálsson, bæjarstjóri,
sagði að hann hefði verið meðvitað-
ur um það að það væri ólga innan
meirihluta bæjarstjómamarinnar
frá þvi í vor þegar upp hefði komið
ágreiningur um það í meirihlutan-
um hvort haldið skyldi áfram
byggingu félagsheimilisins á staðn-
um. Hann hefði getað komið því
máli áfram með stuðningi minni-
hlutans.
Kristján sagði að það hefði þó
komið sér mjög á óvart að upp úr
meirihlutasamstarfinu hefði slitnað.
Framkvæmdahraði og fjármögnun
félagsheimilisins hefði verið sam-
þykkt av öllum bæjarstjómarmönn-
um. Hann sagði einnig að það hefðu
verið „leiðinleg vinnubrögð af hálfu
Herberts Hjelm að slíta samstarfínu
á opnum bæjarstjómarfundi".
Kristján sagðist vona að nýr
meirihluti yrði myndaður fljótlega,
því bæjarfélagið hefði ekki efni á
því að beðið yrði með það. Hann
sagðist ekki hafa skýringu á því
hvers vegna dregist hefði að leggja
fram ársreikning bæjarsjóðs fyrir
síðastliðið ár. Búið væri að fá endur-
skoðanda bæjarsjóðs í hendur öll
gögn og það hefði verið gert á sama
tíma og venjulega.
Bjöm Amaldsson, annar af bæj-
arstjómarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins, sagði að það hefði ekki
komið sér á óvart að meirihlutinn
skyldi hafa brostið, því að bæði al-
þýðuflokksmenn og alþýðubanda-
lagsmenn hafi verið óánægðir með
samstarfíð við Kristján Pálsson. Þó
hafí keyrt um þverbak í vor, þegar
Kristján hafi gengið þvert á vilja
Alþýðuflokksmanna og Alþýðu-
bandalagsmanna varðandi bygg-
ingu félagsheimilisins í Ólafsvík.
Bjöm sagði að Sjálfstæðismenn
hefðu ekki fengið tilboð frá neinum
um myndun nýs bæjarstjómar-
meirihluta. Sjálfstæðismenn ætluðu
hins vegar að funda í gærkvöldi
um myndun nýs meirihluta.
Sveinn Þór Elínbergsson, Al-
þýðuflokki, sagði einnig að það
kæmi sér ekki á óvart að meirihlut-
inn skyldi hafa fallið. Örðugleikar
hefðu verið í samstarfinu við Krist-
ján Pálsson allt frá því í vor vegna
fjármála bæjarfélagsins. Félags-
heimilið hefði verið dýrara heldur
en reiknað var með og umhverfis-
framkvæmdir á staðnum hefðu
kostað sitt.
Sveinn sagði að ágreiningur hefði
verið á milli Kristjáns bæjarstjóra
annars vegar og Alþýðuflokks-
manna og Alþýðubandaiagsmanna
hins vegar um leiðir en ekki mark-
mið í_ sjálfu sér. Til dæmis væru
allir Ólafsvíkingar sammála um að
reisa félagsheimili það sem er í
byggingu á staðnum.
Sveinn sagði einnig að nú skipti
mestu máli að Ólafsvíkingar ynnu
saman að lausn ijárhagsvanda
byggðarlagsins. Fljótlega yrði farið
að ræða ársreikning bæjarsjóðsins
fyrir síðastlið ár en niðurstöðutölur
hans lægju enn ekki fyrir.
Morgunblaðið/BAR
Jón Sigurðsson kirkjumálaráðherra og séra Sigurður Guðmundsson,
settur biskup, við setningu þingsins.
Setning kirkjuþings:
Fjárhagslegt sjálfstæði
kirkjunnar verði aukið
— segir Jón Sig-urðsson kirkjumálaráðherra
SETNING átjánda kirkjuþings
þjóðkirkjunnar fór fram i Bú-
staðakirkju í gær að lokinni
guðsþjónustu. Eftir að sr. Sig-
urður Guðmundsson biskup hafði
sett þingið, hélt Jón Sigurðsson,
kirkjumálaráðherra stutta ræðu
þar sem hann ávarpaði við-
stadda. Hann ræddi þar ýmis mál
er varða þjóðkirkjuna og meðal
annars ný lagafrumvörp um fjár-
mál kirkjunnar.
í ræðu sinni reifaði ráðherra mál
kirkjunnar sem nýlega hafa verið
til umfjöllunnar í ráðuneytinu. Vildi
hann vekja sérstaka athygli á ný-
mælum í lagafrumvarpi um sóknar-
gjöld, þar sem gert er ráð fyrir, að
myndaður verði sérstakur sjóður,
er nefnist Jöfnunarsjóður sókna.
Hann segir að lagt sé til, að kirkju-
ráð fari með stjóm þessa sjóðs og
felist í því, að hans dómi, aukið fyár-
hagslegt sjálfstæði kirkjunnar.
„Sjóðnum er meðal annars ætlað
að standa að hluta til undir rekst-
ar- og viðhaldskostnaði þeirra
kirkna, sem ríkið hefur sérstakar
skyldur við, en þar hef ég í huga
Dómkirkjuna í Reykjavík,
Hallgrímskirkju í Reykjavík, Hóla-
dómkirkju, og Skálholtskirkju",
sagði kirkjumálaráðherra
I ræðu Jóns kom einnig fram að
við setningu laga um staðgreiðslu
opinberra gjalda var gengið út frá
því, að sóknargjöld og kirkjugarðs-
gjöld yrðu hluti af sameinuðum
tekjuskatti. Ný lög um sóknar- og
kirkjugarðsgjöld þyrftu að taka mið
af þessu. Akveða þurfi hversu stór
hluti af tekjuskattinum skuli ganga
til sókna og kirkjugarða og setja
reglur um skiptingu þessa fjár milli
einstakra sókna og trúfélaga.
Gengið er út frá því, að kirkjan
haldi tekjustofni sínum óskertum
miðað við það sem hún hefur nú.
Eitt þeirra mála er rætt verður
á Kirkjuþinginu er Siðfræðistofnun
Háskóla íslands og þjóðkirkjunnar.
I greinagerð um stofnunina er lögð
verður fram á þinginu í dag, er
rætt um aukna þörf fyrir fræðslu
um siðfræði. Nefnd er ný tækni í
læknisfræði, eins og tæknifrjóvgun
og líffæraflutningar, aukin tölvu-
notkun í dreifíngu upplýsinga og
meðhöndlun náttúruauðlinda, auk
ýmissa annarra vandamála er menn
eiga við að glíma í nútíma sam-
felagi.
Annað mál er rætt verður á þing-
inu í dag er aðgengi fatlaðra að
kirkjum. Þingið stendur í 11 daga,
en 22 menn, leiknir og lærðir, sitja
þingið.
Snæfugl seldi
í Bremerhaven
TOGARINN Snæfugl SU lauk við
sölu afla síns í Bremerhaven á
þriðjudag. Hann seldi hluta af-
lans á mánudag. Verð á mánu-
deginum var þokkalegt en
lækkaði talsvert. á þriðjudegin-
Snæfugl seldi alls 161 tonn að
verðmæti 7,4 milljónir króna. Með-
alverð fyrir aflann var 45,91 á kíló.
Á mánudag var meðalverð fyrir
karfa rúmar 50 krónur, en tæpar
40 fyrir ufsa. Endanleg skipting lá
ekki fyrir á þriðjudag, en ljóst var
að verðið hafði lækkað talsvert.
g;
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
fundir — mannfagnaðir
Kvennadeilti
Víkings
Aðalfundur kvennadeildar Víkings
haldinn í Félagsheimilinu
þriðjudaginn 13. október.
við
verður
Hæðargarð
Stjórnin.
Gestafyrirlestur
í dag, miðvikudaginn 7. október, mun Dr.
Colin Thomson, dósent í efnafræði við St.
Andrews University i Skotlandi, flytja gestafyr-
irlestur á vegurn SKÝRR og Reiknistofnunar
Háskólans.
Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu L102 í
Lögbergi og hefst kl. 16.00.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og nefnist:
„A highly intelligent workstation and its use
in Significant studies relating to the biology
of Cancer".
Öllum er heimill aðgangur meðan húsrými leyfir.
SKÝRR.
Reiknistofnun Háskólans.
Aðalfundur
Stokkseyringafélagsins
í Reykjavík verður haldinn sunnudaginn 11.
okt. á Hallveigarstöðum og hefst kl. 15.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffi og kökur. Fjölmennið.
Stjórnin.
Kópavogur
Fundur verður hald-
inn í Sjálfstæðis-
húsinu, Hamraborg
1, fimmtudaginn 8.
okt. kl. 20.30.
Frummælendur á
fundinum verða þau
Jón Magnússon,
lögfræðingur og
Þórunn Gestsdóttir,
form. Landssam-
bands sjálfstæðis-
kvenna.
Kaffiveitingar og almennar umræður á eftir.
Sjálfstæðisfólk fjölmennið!
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Selfoss - Árnessýsla
Sjálfstæðisfélagið
Óðinn og Fólag
ungra sjálfstæðis-
manna halda sam-
eiginlogan fund á
Tryggvagötu 8, Sel-
fossi, fimmtudaginn
8. októberkl. 20.30.
Frummælendur
verða þeir Þorsteinn
Pálsson forsætis-
ráðherra og Ólafur
Björnsson stjórnarmaður SUS.
Málenfi fundarins:
Landsmálin og önnur mál.
Mætum sem flest yngri sem eldri og gerum góðan fund betri.
Stjórnirnar.
Askriftcirshninn er 83033