Morgunblaðið - 07.10.1987, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 4.975,- og 6.500,-
Stakir jakkar kr. 3.975,-
Terylenebuxur kr. 1.195,- og 1.395,-
Gallabuxur kr. 745,- og 795,-
Flauelsbuxur kr. 795,-
Skyrtur, peysur, næriföt o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Nokkur
ekta tyrknesk teppi
til sölu.
Sími 24881.
í ABRACADABRA 7. og 8. október
\Michelle Shocked er um þessar mund-
ir nýjasta og skærasta stjarnan í heimi
þjóðiagatónlistar.
7. okt. kemur Bjarni Tryggvason fram
með henni og þann 8. okt.
Bjartmar Guðlaugsson.
Húsið opnað kl. 21 .OO en tónleikarnir
hefjast kl. 22.00
Nánari upplýsingar: Bókarinn s. 12040
BAR-DANS-ORIENTAL MATUR. S10312. Laugav. 116. OPIÐ ALLA DAGA- ÖLL KVOLD.
gramm
Laugaveg 17. Sími: 12040.
n?)
Áheyrendur munu
skemmta sér vel
I Rætt við
Meat Loaf
Eins og komið hefur fram i
fjölmiðlum er bandaríski rokk-
söngvarinn Meat Loaf væntan-
Iegur hingað tíl lands
næstkomandi föstudag, en
hann heldur hér tónleika í Reið-
höllinni i Viðidal & laugardag.
Til stóð að hann myndi hefja
tónleikaferð um Evrópu með
tónleikunum hér, en Evrópu-
förinni var aflýst vegna van-
efnda hljómleikahaldara þar.
íslandförinni var þó ekki aflýst
og þvi fá íslendingar einir Evr-
ópubúa að sjá Meat Loaf að
sinni. Blaðamaður hringdi í
Meat Loaf á heimili hans utan
við New York og grennslaðist
fyrir um það á hverju íslenskir
áheyrendur ættu von.
Af mér og hljómsveit minni,
sem hefur starfað með mér á
tíunda ár að stofninum til, fer það
orð að við höldum stórkostlega
tónleika.
Bat Out of Hell var metsölu-
Elata þin vestan hafs og hér á
dandi ekki síður. Hefur þér
reynst erfitt að fylgja henni
eftir?
Ég hef aldrei reynt að fylgja
henni eftir. Það stóð aldrei til. í
Evrópu hef ég náð hæst með
Dead Ringer for Hell, sem komst
á toppinn víðast hvar þar og því
hefur verið erfíðara að fylgja eft-
ir en sölunni t Bandaríkjunum.
1985 náði lagið Modem Girl einn-
ig hátt á lista í Evrópu. Af því
má heyra að við erum alltaf að
gera góðar plötur, þó ekki seljist
þær jafn mikið hér t Bandaríkjun-
um og Bat Out of Hell. Aftur á
móti má líta á það við Jim Stein-
man, sem gerðum Bat Out of
Hell, höfum ekki starfað saman
að plötu síðan. Það verður því
gaman að sjá hvað úr verður í
þetta sinn, því nú erum við ein-
mitt byijaðir að vinna saman að
plötu. Við erum rétt að byija tón-
leikahald hér í Bandaríkjunum
aftur, en það var einmitt tónleika-
haldið sem gerði Bat að metsölu-
plötu hér og tónleikahald er
frumskilyrði þess að menn geti
átt langan feril í tónlist. Við leggj-
um enda hart að okkur á tónleik-
um og við vonum að íslendingar
séu eins spenntir vegna væntan-
iegrar komu okkar og við erum
spenntir yfír því að vera að fara
til íslands.
Á væntanlegri tónleikaplötu
þinni er að finna meðal annars
samsteypu gamalla rokklaga
líkt og Johnny B. Goode. Gefur
platan góða mynd af Meat Loaf
tónleikum?
Já, nokkuð góða, en ég mæli
frekar með geisladisknum eða
snældunni, því þar á er að fínna
betri mynd af tónleikunum en á
plötunni, þar er meira pláss. Menn
verða þó að athuga að ekki rúm-
ast öll tónleikadagskrá okkar á
hljómplötu eða klukkutíma
snældu, enda er hún yfír tveggja
klukkutíma löng. Á Reykjavíkur-
tónleikunum munum við að auki
leika tvö lög sem við höfum ekki
leikið á tónleikum áður, lög sem
við vorum að æfa inn í dag-
skránna síðasta föstudag sérstak-
lega fyrir íslandsförina.
Er eitthvað sem þig langar
að segja væntanlegum áheyr-
endum?
Já, mig langar að segja þeim
að þeir eiga eftir að skemmta sér
vel. Við ætlum að leggja okkur
fram um að skemmta þeim og ég
vona að íslendingar hlakki jafíi
mikið til að já okkur og ég hlakka
til að sjá þá. Þeir mega bóka að
tónleikamir verða peninganna
virði.
Viðtal:
Árni Matthíasson
Tónleikar
í Duus
í kvöld halda hyómsveitimar
Soghlettir, Daisy Hill Puppy
Farm og Oþekkt andlit tónleika
í veitingahúsinu Duus f Fischers-
sundi.
Allar eru hljómsveitimar meðal
yngri hljómsveita en Sogblettir hafa
þó víða komið fram á tónleikum og
hljómsveitin á þijú lög á kassetunni
Snarl sem Erðanúmúsík gaf út.
Daisy Hill Puppy Farm á einnig lög
á Snarl kassettunni, en Óþekkt'
andlit hefur ekkert gefið út, enda
yngsta hljómsveitin. Óþekkt andlit
er af Akranesi en hinar hljómsveit-
imar em báðar úr Reykjavík.
Ljósmynd/BS
Soghlettir