Morgunblaðið - 07.10.1987, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
fclk f
fréttum
Bette Davis sér
ekki eftir neinu
Nú í október verður kvikmyndin
„The Whales of August", eða
„Ágústhvalimir", frumsýnd í
Bandaríkjunum. Myndin fjallar alls
ekki um þessar 20 sandreyðar sem
Reagan leyfði okkur að veiða, en
er engu að síður hin merkasta
mynd, því aðalhlutverkin í henni
leika engar aðrar en Bette Davis,
sem er nú orðin 79 ára gömul, og
ein helsta stjama þöglu myndanna,
Lállian Gish, nú 91 árs að aldri.
Þetta er eitthundraðasta myndin
sem Bette Davis Ieikur í, en hún
hefur ekki leikið í tíu ár. Við rák-
umst á viðtal við Bette sem tekið
var á kvikmyndahátíðinni í Deau-
ville I á dögunum, en þar fékk hún
orðu frá franska menntamálaráð-
herranum, eins og Fólk í fréttum
skýrði frá. f viðtalinu kemur margt
hnýsilegt fram, og birtum við valda
kafla úr því.
Bette Davis þá - sterk leikkona,
en veik á svellinu í alvöru lffsins.
hef greinilega verið gjörsamlega
misheppnuð sem eiginkona," segir
Bette, „ég var alltaf að leita að ein-
hveijum fullkomnum manni, en ég
fann hann aldrei." Hinir flórir skiln-
aðir Bettear vom langt frá því að
vera vinsamlegir, og um orsakir
þeirra segir hún að peningar séu
ástæða númer eitt, en síðan komi
erfíðleikar við að deila baðherbergi,
vanhæfni við að tala saman, og
erfíðleikar í kynlífí - í þessarri röð.
En þrátt fýrir stormasamt líf, þá
sér Bette ekki eftir neinu, og hún
heldur lífínu ótrauð áfram, þó að
hálft andlit hennar sé lamað eftir
hjartaáfallið fyrir flórum árum,
röddin sé að fara að gefa sig vegna
þess að hún reykir 70-80 sígarettur
á dag, og slúðursnatar velti sér enn
upp úr sönnum og upplognum
harmleikjum í lífi hennar. „Ég læt
kjaftasögur mér í léttu rúmi liggja,"
segir Bette, „ef öllum Ifkar vel við
einhvem, þá hlýtur sá hinn sami
að vera alveg hinitleiðinlegur."
Bette Davis nú - 79 ára gömul, og lítur aldrei um öxl.
Bette Davis er annars fremur illa
við að gefa nokkrum fjölmiðlungum
færi á sér, þvf hún hefur verið mik-
ið á milli tannanna á slúðurblöðum,
enda eiga fár stjömur sér skraut-
legri feril: hún á að baki tvö
Óskarsverðlaun, tíu Óskars-útnefn-
ingar, flögur misheppnuð hjóna-
bönd, hjartaslag, baráttu við
krabbamein, og áralanga úlfúð við
dóttur sína, sem kallaði móður sína
drykkfellda taugahrúgu, og ýmis-
legt annað miður fallegt í bókinni
„My Mother’s Keeper".
Þegar Bette er spurð af hverju
hún haldi áfram að leika í kvik-
myndum á gamals aldri, svarar
hún: „Ég elska ennþá að vinna.
Auðvitað þreytir það mig mikið, en
það væri eitthvað rangt við það að
vera ekki uppgefin að kvöldi dags.
Þetta er gamli bandaríski vinnu-
semisandinn."
Um fortíðina segir Bette: „Ég sé
ekki eftir neinu. Eftirsjá eftir hinu
liðna er tilgangslaus. Ég lít alltaf
fram á við, þó að auðvitað hugsi
ég um líf mitt í samhengi stöku
sinnum. Líf mitt hefur orðið eins
og það varð að vera, og ég hef leik-
ið það sem ég varð að Ieika. Það
má kalla það forlög mín vegna."
„Leiktu þau hlutverk sem þig
langar ekki til að leika" er ráðlegg-
ing Bettear til þeirra sem vilja vera
góðir leikarar, „Ég bið alltaf til
guðs áður en ég leik í kvikmynd,
en ég hef enga ákveðna leiktækni.
Ég lít á mig sem mjög sterka leik-
konu, þó ég hafí ekki verið sterk í
lífí mínu utan sviðsins."
Er einhver leikkona í dag sem
er hægt að kalla arftaka Bette
Davis? „Sissy Spacek. Henni er
sama hvemig hún lítur út á hvíta
tjaldinu, alveg eins og mér, en hún
lifír sig inn í hvert hlutverk. Því
miður eru alltof margar Hollywo-
od-stjömur í dag sem leika aðeins
sjálfa sig. Ég held að það sé hæfi-
leiki minn til að lifa mig inn í
hlutverkin sem gerði mig einstæða
innan um leikkonufansinn í Holly-
wood.“
Bette Davis hefur einnig nýlokið
við að skrifa sjálfsævisögu sína,
æm nefnist „This’n’That", eða
„Hitt og þetta". Hún svarar þar
dylgjum dóttur sinnar fullum hálsi,
en hún er ekkert endilega að mála
neina glansmynd af sjálfri sér. „Ég
FriUa prestsins kemur nakin fram
Jessica Hahn er tilbúin að gera
hvað sem er fyrir frægðina,
líka að koma nakin fram. Leið
Jessicu til frægðar og frama verð-
ur að teljast býsna óvenjuleg.
Fyrir nokkmm mánuðum var hún
óþekktur einkaritari, en yfirmað-
ur hennar er frægur maður 1
Bandaríkjunum, sjónvarpspredik-
arinn Jim Bakker. Guðsmaðurinn
sá brá út af boðorðunum, eins og
margir kannski muna, og átti
vingott við einkaritarann á milli
þess sem hann þmmaði yfír sjón-
varpsglápendur um nauðsyn
hreinlífís og dyggða ásamt konu
sinni, henni Tammy. Til að gera
vont mál verra, þá sagði Jessica
að Jim hefði nánast neytt sig til
samræðis, og að hún hefði látið
undan fremur af ótta en af kristi-
legri umhyggju fyrir þessum
meðbróður sínum.
Jim er núna rúinn æm, söfn-
uði, og flestum eignum, en Jessica
hefiir nýtt sér þessa nýfengnu
frægð, þó að frægðin sé kannski
ekki komin til af góðu. Hún sat
fyrir nektarmyndum í tímaritinu
„Playboy", að eigin sögn vegna
þess „að mér fannst ég verða
hrein á ný.“ Hún viðurkennir þó
að fjármunir þeir sem í boði vom
hafí einnig átt þátt I þessarri
ákvörðun hennar, en haft er fyrir
satt að Playboy hafí borgað
Jessicu eina milljón dala fyrir að
sýna lesendum blaðsins ástæðuna
fyrir því að klerkurinn hætti kjóli
og kalli fyrir að láta undan
breyskleika holdsins.
Klerkurinn ærulausi, Jim Bakker, ásamt konu sinni, Tammy.