Morgunblaðið - 07.10.1987, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
63
Verðum
að halda
bottanum
„LEIKURINN leggst vel í
mig. Þetta verður örugglega
hörkuleikur óg geri ráS fyrir
því að þeir sóu sterkir, því
portúgölsk knattspyrna er í
mikillUókn í Evrópu. Porto
er Evrópumeistari og við
munum allir hvernig Sport-
ing spilaði gegn Akurnes-
ingum f fyrra,“ sagði
Guðmundur Steinsson, fyr-
irliði ólympíuliðsins.
Eg hef aldrei séð Portúgalana
en þeir spila örugglega
hratt og mjög „teknískt" — við
verðum því að loka vel fyrir þá,
koma í veg fyrir þríhymings-
spil, og reyna að halda boltanum
eins og við mögulega getum."
Guðmundur sagði stemmning-
una mjög skemmtilega í
ólympíuliðinu. „Menn er tilbúnir
að leggja mikið á sig fyrir liðið,
hér beijast allir fyrir alla. Við
höfum sýnt að við getum spilað
ágætan fótbolta, bæði í leiknum
gegn Hollendingum og eins
gegn Austur-Þjóðveijunum. Nú
verðum við að ná upp eins
stemmningu og fyrir þann leik,
þá getur okkur gengið vel.“
Guðmundur sagði ítali vera með
besta liðið í riðlinum eins og er,
en heimavöllinn skipta mjög
miklu máli í sambandi við alla
leikina.Hann vildi ekki spá frek-
ar um leikinn í kvöld en sagði
um möguleika íslands á að kom-
ast á Ólympíuleikana: „Við
verðum bara að trúa á okkur
sjálfa. Þá getur allt gerst."
KNATTSPYRNA/UNDANKEPPNI ÓLYMPÍULEIKANNA
Fyrsti landsleikur íslands og Portúgals er í kvöld:
Heldur sigurgangan áfram'f
ÓLYMPÍULANDSLIÐ íslands f
knattspyrnu mœtir þvf portú-
?alska í kvöld í undanríöli
ilympfuleikanna í knattspyrnu
og er þetta f fyrsta skipti f sög-
unni sem íslendingar mœta
Portúgölum á knattspyrnuvell-
inum í landsleik. Leikurinn fer
fram í Leiria, um 50.000 manna
vinalegum og snyrtilegum bœ,
um 120 kílómetrum norðan við
Lissabon. Leikurinn hefst kl.
hálf tíu í kvöld, en hór er sami
tími og á íslantíi.
Island hefur lokið þremur leikjum
í keppninni, tapaði 0:2 á Ítalíu í
vor, gerði jafntefli við Holland 2:2
í sumar er Guðmundur Torfason
skoraði úr tveimur
vítaspymum, og
loks vannst eftir-
minnilegur sigur,
2:0, á Austur-Þjóð-
veijum, einnig á Laugardalsvelli.
Skapti
Hallgrímsson
skrífarfrá
Poitúgal
Þá skoruðu Guðmundur Torfason
og Ólafur Þórðarson mörkin. Nú
er komið að Portúgölum, sem ís-
lendingar vita raunar mjög lítið um.
Þeir hafa gert tvö jafntefli á heima-
velli, gegn Hollendingum og
Austur-Þjóðveijum, og tapað á ít-
alíu.
íslenska liðið kom til Leira um hálf
fimm leytið í gær, eftir tveggja og
fjórir sigurleikir í röð hjá Sigi Held og sex án taps
hálfrar stundar akstur í rútu frá
Carcavelos. Æft var á keppnisvell-
inum í gærkvöldi, við flóðlýsingu.
Allir eru heilir nema Ormarr, sem
meiddist á fyrri æfingunni, eins og
fram kemur annars staðar á
síðunni.
Gott gengl íslenskra
landsliða f sumar
Eftir útreiðina gegn Austur-Þjóð-
veijum í Evrópukeppninni í vor
(0:6) hefur landslið undir stjóm
Sigi Held ekki tapað leik. Fyrstu
tveir leikimir eftir viðureignina við
Austur-Þýskaland vom hjá U-21
árs liðinu sem gerði 0:0-jafntefli við
Danmörku og 2:2-jafntefli við Finn-
land. Síðan vann liðið Danmörku
3:1 á útivelli og ólympíuliðið vann
Austur-Þjóðveija 2:1. Að síðustu
komu tveir sætir sigrar gegn Norð-
mönnum, heima og heiman, eins
og frægt er orðið og nú er spuming-
in sú hvort sigurgangan heldur
áfram. Tekst íslandi að leggja Port-
úgal í fyrsta leik þjóðanna? Svar
við þeirri spumingu fæst ekki fyrr
en seint í kvöld, kl. 23.15 eða svo,
en eitt er víst að landsliðsstrákam-
ir leggja sig alla fram um að
sigurgangan haldi áfram. Það er
baráttuhugur í hópnum og ekkert
verður gefíð eftir frekar en fyrri
daginn.
Símamynd/Skapti Hallgrímsson
Ólafur Þórðarsson, Ingvar Guðmundsson og Halldór Áskelsson verða að öllum
lfkindum í byijunarliðinu í kvöld. Þá má gera ráð fyrir að Friðrik Friðriksson leiki
í markinu, Guðni Bergsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Viðar Þorkelsson verði
aftastir, Heimir Guðmundsson og Pétur Amþórsson á miðjunni auk Ingvars,
Halldórs og Ólafs og Guðmundur Torfason og Guðmundur Torfason frammi.
■ ORMARR Örlygsson, mið-
vallarleikmaður úr Fram, meiddist
á morgunæfíngunni í gær. Guð-
mundur Torfason rak annað hnéð
í læri Ormars, sem varð að hætta.
Hann var mjög slæmur í lærinu til
að byija með — óttaðist að hann
hefði marist langt inn í lærvöðvann
— og verður örugglega ekki til í
slaginn í kvöld ef á þarf að halda,
ef kraftaverk gerist ekki í dag.
■ FRIÐRIK Friðriksson, mark-
vörður, átti 23. ára afmæli í
gærdag. Það uppgötvaðist við há-
degisverðarborðið og söng hópurinn
þá hraustlega „Hann á afinæli í
dag“ og klöppuðu vel fyrir afmælis-
baminu.
SIGFRID Held, landsliðsþjálf-
ari, hefur látið markverðina taka
vel á, eins og venjulega í landsliðs-
ferðum. Á sfðari æfíngunni í
fyrradag tók hann Friðrik á séræf-
ingu meðan Guðni Kjartansson
stjómaði hinum og í gær var það
Birkir sem var tekinn afsíðis og
látinn púla í klukkutíma. Átökin
vom svo mikil að Birkir fékk blóðn-
asir, en þær vom stöðvaðar í hvelli
með því að troða bómul í nösina
og síðan hélt púlið áfram.
■ NJÁLL Eiðsson hefur nýlega
gerst þjálfari á ný hjá Einheija á
Vopnafirði eins og allir vita. Lands-
liðsmennimir veltu því fyrir sér í
gær hvort þessar fréttir hefðu bo-
rist hingað til Portúgal, eða hvort
Njalli væri bara svona þjálfáraleg-
ur í útliti. í íþróttadagblaðinu Jogo
í gær var nefnilega frásögn af æf-
ingu íslenska liðsins og spjall við
Sigfried Held. Ein myndanna sem
skreytti frásögnina var af Njáli og
undir henni stóð skýmm stöfum:
Sigfrid Held.
■ PEDRO, fulltrúi portúgalska
knattspymusambandsins sem er
með íslenska liðinu, segist búast við
15-20 þúsund áhorfendum á leikinn
í kvöld. Það fari þó eftir veðri —
verði það slæmt komi mun færri.
Það er greinilega víðar en á íslandi
sem veðrið skiptir máli í sambandi
við áhorfendafjölda. Og fyrst farið
er að minnast á Pedro þá má geta
þess að hann minntist einnig á að
leiknum yrði hugsanlega sjónvarp-
að beint í Portúgal. Ekki fékkst það
staðfest í gær, en ef af því yrði
sagði hann að áhorfendur yrðu
færri en ella.
■ SIGFRID Held hélt mönnum
vel við efnið á fyrri æfíngunni í
gær. í einu hléinu, þegar verið var
að skipuleggja nýja æfíngu, hlupu
nokkrir leikmanna til og fengu sér
vatn úr flöskum sem teknar vom
með á völlinn. „Komið aftur, við
emm ekki í Mexíkó. Hitinn er ekki
60 gráður," kallaði Held þá. Síðan
hélt æfíngin áfram, en er henni var
lokið má segja að slegist hafí verið
um vatnið!
HANDKANTTLEIKUR / 1. DEILD
Fyrsti leikur Vals
að Hlíðarenda
HEIL umferð verður í 1. deild
karla í handknattleik f kvöld.
Auk þess verða fjórir leikir f
1. deild kvenna, tveir í 3. deild
karla og einn leikur í 2. deild
kvenna.
Valsmenn leika fyrsta heimaleik
sinn í kvöld í nýja íþróttahús-
inu við Hlíðarenda. Þar mæta þeir
nýliðunum úr Þór frá Akureyri.
Leikurinn hefst kl. 18.00. Vals-
menn hafa ákveðið að leika alla
heimaleiki sína kl. 18.00.
Kl. 20.00 leika Stjaman og UBK í
Digranesi, ÍR og FH í Seljaskóla
og KA og Fram á Akureyri. Leikur
KR og Víkings hefst kl. 20.15 í
Laugardalshöll.
í 1. deild kvenna verða fjórir leikir.
Haukar og KR leika í Hafnarfíðri
kl. 20.00 strax á eftir leika FH og
Valur. Fram og Stjaman leika í
Laugardalshöll kl. 19.00 og Víking-
ur og Þróttur leika kl. 21.30.
í 3. deild karla verða tveir leikir á
dagskrá í kvöld. ÍA og ÍS leika á
Akranesi kl. 20.00 og Þróttur og
Ögri í Seljaskóia kl. 21.15.
Loks verður einn leikur f 2. deild
kvenna. ÍBK og HK leika í Keflavík
kl. 20.00.
Ólafur
ósigrandi?
Olafur Þórðarson, Skaga-
maður, hefur ekki tapað
landsleik í allt sumar. Hann
hefur tekið þátt í öllum sex leikj-
unum, með þremur liðum:
U-21-, ólympíu- og A-liðinu. Það
kemur svo í ljós í kvöld hvort
Óli er ósigrandi!
Hann fór á dögunum til Svíþjóð-
ar, dvaldi þar hjá Teiti bróður
sínum, og fyrrum landsliðsfyrir-
liða. TVö sænsk félagslið hafa
sýnt því áhuga á að fá Ólaf í
sínar raðir, Öster, sem Teitur lék
einmitt með í áraraðir við mjög
góðan orðstýr, og Örgryte. Ólaf-
ur sagði að ekkert yrði ljóst
hvort af Svíþjóðarför yrði fyrr
en eftir að keppnistímabilinu þar
lyki. Hann sagðist spenntari fyr-
ir því að fara til Öster.
getrguna-
VINNINGAR!
6. leikvika - 3. október
1987
Vinningsröð: 2X1-1X1-21X-2X1
1. vinningur: 12 réttir, kr. 98.485,-
4868
46283(4/11)
125568(6/11)+
40151 (4/11)
95105(6/11)
224719(7/11)
45116(4/11)
125281 (6/11)+
228582(11/11)
2. vinningur: 11 réttir,
31 41770 46705
314 41813 46757
701 42043 46812
1191 42486 46839
1801* 43100 47016
3271 43217 47017
3726 43250 47047
4887 44013 47885
5040 44022 47976
5089 44451 48077
6524 44459 48238*
6674 44472 48626
6699 44513 48809
7868 44815 49222
7882 40749 49339*
8355 45266 49367
8722 45371 49446
9799+ 45408 49594
40302 45572+ 49698
40303* 45683 49705
40541 45691 49776
40664 45937+ 50048
40741 45989+ 50233
41023 45990+ 50258
41182 45991+ 50264
41322 46103 50657
41354 46112 50659
41387 46237+ 51020
41559 46266 51114+
*=2/11
kr. 1.017,-
51120+ 125142 227225
51122+ 125157 227256
51319 125238 227325
51330 125417* 227550
51492 125563 227728+
51495 125566+ 227924
95192 125563+ 227930
95331+ 125567+ 228456
95390 125646+ 228471
95532 125901 228576
95640 126012 228577
96031 126261 228589
96335 126792* 228613
96393+ 126928 647242+
96551 127102 647246+
96783+ 127258 647249+
96870 127709 647250+
96980 127819 647251+
97524 128020+ T00023
97530+ 128021+ T00024
976520 128034 T00026*
97709 128038 T00031*
98055 224956 T00038
98241 224957 T00049*
98293 225634 úr 38. v.f.f.á
98411 225837* 56909
98696 225919
98722 226053
125108 226433
Kænifrestur er til mánudagslns 26. október 1987 kl. 12.00 á hádegi.
\
ÍSLENSKAR GETRAUNIR
íþróltamiöstööinni v/Sigtún --104 Reykjavik ísland • Simi 84590