Morgunblaðið - 17.10.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
Helgistaður
búddamunka
í Burma
Búddamunkar í Tíbet gripu í
sfðustu viku til mótmæla gegn
yfirráðum Kinverja. Þeir grýttu
kínverska lögregluþjóna og
lögðu eld að ökutækjum. Búdda-
trú virðist oft og tíðum einfald-
lega vera annað orð yfir
bllðleika og fhugun. En munk-
arnir f rauðu kuflunum sýndu
að þegar trúarbrögðum þeirra
er ógnað er fómarlund þeirra
slík að íbúar vestrænna rikja fá
ekki með nokkm móti skilið.
Fyrir tveimur áratugum helltu
búddamunkar f Suður-Vfetnam
yfir sig bensfni og kveiktu í sér
til að mótmæla ofsóknum og
kúgun. I Burma era búddamunk-
ar snar þáttur f hinu daglega
lífi. Níutfu prósent þjóðarinnar
era búddatrúar og vart finnst
þar þorp, sem ekki er f klaust-
ur. Munkarnir iifa á ölmusum
og gera fólkinu á þann hátt
kleift að stunda þá dyggð, sem
nefnist miskunnsemi og góð-
semi. Á myndinni sjást rauð-
klæddir munkar í Burma sitja
við gulli klætt bjarg, sem stend-
ur á brún þverhnfpis. Staður
þessi er helgur f búddfskum sið.
Andrei Sakharov ásamt eiginkonu sinni, Yelenu Bonner, á heimili
þeirra þjóna f Moskvu. Var myndin tekin skömmu eftir að þau komu
úr útlegðinni f Gorki.
Andrei Sakharov:
Gagnkvæmt traust er f orsenda
fríðar ekki síður en vígbúnaðar-
eftirlit og afvopnunarsamningar
ÁSTRALSKI blaðamaðurinn Sam Lipski heimsótti nýlega sovéska
andófsmanninn Andrei Sakharov á heimili hans í Moskvu og vonaðist
til að geta átt við hann stutt spjall um hlutskipti sovéskra gyðinga.
Þótt Sakharov sé mjög farinn að heilsu, tók hann Lipski vel og áttu
þeir saman allítarlegt viðtal um ,
í viðræðum þeirra lagði Sakharov
sitt mat á frammistöðu Mikhails
Gorbachevs, leiðtoga Sovétríkjanna,
til þessa, velti fyrir sér áhrifum auk-
innar umræðu, „glasnost", og nefndi
hvað hann teldi, að ættu að vera
meginmálin á væntanlegum fundi
Ronalds Reagan og Gorbachevs. Sak-
ís efni.
harov hefur skorað á leiðtogana að
láta ekki mannréttindamálin hverfa í
skuggann fyrir afvopnunarmálunum
vegna þess, að friður og öryggi hljóti
að byggjast á trausti manna í milli.
„Til að koma á þessu trausti verður
að opna þjóðfélagið," sagði Sakharov
í viðtalinu, „og það er jafn áhrifaríkt
NIPPARTS
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUMÁ LAGER:
KÚPLINGAR, KVEIKJUHLUTI/BREMSUHLUTI,
STARTARA, ALTERN ATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, PURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
Úrvals varahlutir
og vígbúnaðareftirlit við að draga úr
spennu um allan heim.“
Sakharov hrósaði Gorbachev og
stuðningsmönnum hans fyrir það, sem
áunnist hefði í framfaraátt að undanf-
ömu, en sagði, að verst væri hvað
umbætumar væm „skelfilega hálf-
karaðar. Þær ganga ekki nógu langt".
Nefndi hann sem dæmi þá ákvörðun
stjómvalda fyrr á árinu að sleppa úr
fangelsi 200 „samviskuföngum". „Að
sjálfsögðu fögnuðum við þegar þessir
menn fengu frelsi en a.m.k. helmingi
fleiri era enn í fangelsi og margir era
enn á geðveikrahælum. Þeir, sem var
sleppt, fengu frelsið fyrir náð og mis-
kunn en ekki vegna þess, að þeir
hefðu verið sýknaðir af allri sök.“
Sakharov sagði, að örlög „sam-
viskufanga", ekki aðeins sovéskra,
ættu að vera eitt af meginmálum fyr-
irhugaðs leiðtogafundar og þar þyrfti
einnig að ræða rétt allra sovéskra
borgara til að flytjast úr landi og
brottflutning sovéskra hersveita frá
Afganistan.
Þótt Sakharov hafi margsinnis ver-
ið boðið að taka þátt í ráðstefnum
erlendis hefur hann aldrei fengið leyfi
til að fara úr landi og er því borið
við opinberlega, að hann hafi haft
aðgang að „leynilegum upplýsingum"
f störfum sfnum sem kjamorkueðlis-
fræðingur. Fyrr sama dag og Lipski
ræddi við hann, hafði hann t.d. kom-
ist að því, að hann fengi ekki að
sækja ráðstefnu í Sydney, sem ástr-
alska mannréttindanefhdin hafði
boðið honum til.
Sakharov kvaðst ekki draga f efa,
að stjómvöld gætu takmarkað ferða-
frelsi manna, sem byggju yfir mjög
mikilvægri þekkingu, en benti á, að
ýmsum öðrum, t.d. prófessor Jacob
Zelddovich, sem hefur sömu vitneskju
og Sakharov um sovésk hemaðar-
leyndarmál, hefði verið leyft að fara
til Bandaríkjanna til ráðstefnuhalds.
Eitthvað annað byggi því að baki
þegar honum væri neitað um farar-
leyfi.
BSLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Andrei Sakharov sagði, að átthaga-
flötramir bitnuðu mest á gyðingum
en þó alls ekki þeim einum. Fólk af
þýsku beigi brotið hefði t.d. beðið
áram og áratugum saman eftir brott-
fararleyfi án þess að fá úrlausn.
Sam Lipski, sem ræddi við Sak-
harov, er Ástrali en viðtalið tók
hann fyrir Jeruaalem Poat