Morgunblaðið - 18.10.1987, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B/C
236. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1987
Prentsmiðja Morgimblaðsins
Skíptum
hjarta í
ungbami
Loma Linda, Kalifornfu, Rcuter.
HJARTA á stærð við steinvölu var
grætt í lítinn dreng í Bandaríkjun-
um í gær aðeins átta klukkustund-
um eftir að hann hafði verið
tekinn úr móðurkviði með keis-
araskurði. Sagði talsmaður
sjúkrahússins i Kaliforníu, þar
sem aðgerðin var gerð, að hann
væri yngsti hjartaþegi í heimi.
„Hjartaígræðslan tókst vel.
Sveinninn Páll hefur fengið nýtt og
heilbrigt hjarta," sagði talsmaður
læknamiðstöðvarinnar.
Ljóst var að sveinninn myndi fæð-
ast með alvarlegan hjartagalla.
Ákveðið var að taka Pál með keis-
araskurði þegar fundist hafði hjarta
til að græða í hann. Að sögn lækna
í Loma Linda-læknamiðstöðinni er
hjartað, sem grætt var í sveininn,
úr stúlkubami, sem fæddist heila-
laust í Ontario í Kanada.
Sovétríkin:
Sjúklingar
greiða fyrir
umönnun
Morgunblaðið/Björg
Að í Paradís í Borgarfirði
Linnulausir bardagar á Sri Lanka:
Moskvu, Reuter,
í MOSKVU hefur verið opnað
fyrsta sjúkrahúsið sem tekur
greiðslu af sjúklingum fyrir lækn-
ishjálp segir i frétt Meditsinskaja
Gaxeta. í blaðinu segir ennfremur
að sjúkrahúsið sé mjög fullkomið
og sjúklingum sé gert að borga
sem svarar 640 krónum á dag.
Læknisþjónusta hefur hingað til
verið ókeypis fyrir alla íbúa Sovét-
ríkjanna. Nokkuð er samt um það
að sjúklingar múti stjómendum
sjúkrahúsa til að fá betri þjónustu
en ella. Yevgeny Chazov, heilbrigðis-
málaráðherra Sovétríkjanna, sagði í
viðtali fyrr á þessu ári að heilbrigðis-
þjónustan í landinu væri úrelt og til
skammar. Nýja sjúkrahúsið er fyrsta
sjúkrahúsið í Sovétríkjunum sem
ætlað er að standa undir sér sjálft.
Hungurdauði vofir yf-
ir íbúum Jaffna-borgar
WT 11/ / 1 11« 1 1« X / X / 1
Vopnahlésákalli skæruliða vísað á bug
Colombo, Reuter.
INDVERJAR vísuðu í gær á bug
ákalli skæruliða tamíla á Sri
Lanka um að saniið yrði um
vopnahlé og héldu friðargæslu-
sveitir þeirra áfram sókn sinni
gegn skæruliðum sem hreiðrað
hafa um sig í borginni Jaffna
nyrst á eyjunni. Þúsundir
óbreyttra borgara hafa flúið
Jaffna og er skortur á matvælum
og lyfjum tekinn að þjaka ibú-
ana. Tæplega 600 manns hafa
fallið í bardögum skæruliða og
indverskra friðargæslusveita
undanfarna viku.
6.000 indverskir hermenn sækja
að Jaffna og sagði indverskur emb-
ættismaður að sókninni yrði hætt
um leið og skæruliðar gæfust upp,
afhentu vopn sín og lýstu yfir stuðn-
18 mánaða telpu
bjargað úr brunni
Midland, Texaa, Reuter.
STÚLKUBARNINU, sem féU niður í ónotaðan brunn i Midland
í Texas á miðvikudagsmorgun, var bjargað í gær og vottaði
fyrir brosi á andliti hennar þegar henni var lyft upp úr holu,
sem sérstaklega hafði verið boruð til að komast að henni.
Jessica McLure er aðeins átján
mánaða gömul og var hún að-
framkomin þegar loksins tókst að
bjarga henni úr prísundinni.
Læknar sögðu að engin bein hefðu
brotnað, en hún hefði lést mikið
meðan hún dvaldist neðanjarðar.
Björgunarmenn boruðu holu við
hlið brunnsins og þurftu að bijót-
ast gegnum klöpp til þess að
komast að Jessicu, sem var á sjö
metra dýpi. Heyrðist Jessica
söngla og kalla á móður sína á
meðan hún beið björgunar og
vakti þrek hennar og þol undrun
og aðdáun björgunarmanna.
Þegar Jessica var hífð upp úr
borholunni var hún böðuð skærum
ljósum kvikmyndatökuvéla frétta-
manna og skammt frá var þyrping
blaðamanna úr öllum heimshom-
Björgunarmaður heldur á barninu úr brunninum.
Reuter
um, sem fylgdust með björguninni
lið fyrir lið. Þegar björgunin hafði
tekist þeyttu bflstjórar flautur og
viðstaddir fögnuðu ákaft. Rúm-
lega hundrað menn tóku þátt í
björguninni.
ingi við friðaráætlun stjóma Sri
Lanka og Indlands til að binda enda
á bardaga á eyjunni.
Embættismönnum í Colombo og
íbúum sem flúið hafa Jaffna ber
saman um að alvarlegur skortur á
matvælum, lyfjum og vatni sé yfir-
vofandi. „Haldi umsátrið áfram
munu bæði fullorðnir og böm svelta
í hel,“ sagði einn íbúa Jaffna, sem
flúði borgina. Starfsmaður Rauða
krossins á Sri Lanka hélt til Jaffna
í gær til að leggja mat á ástandið.
Indverskur embættismaður sagði
í gær að 507 skæruliðar og 80 ind-
verskir hermenn hefðu fallið í
umsátrinu um Jaffna, sem staðið
hefur í viku. Tamflar, sem eru
minnihlutahópur á Sri Lanka, hafa
undanfarin fjögur ár barist fyrir
stofnun sjálfstæðs ríkis á norður-
og austurhluta eyjarinnar.
Indverskar hersveitir vom sendar
til Sri Lanka í júlímánuði til að sinna
friðargæslu eftir að „tígramir",
öflugasta skæmliðahreyfing tamfla
á eyjunni, höfðu fallist á friðaráætl-
un stjómvalda og Indveija. Hún
varð að engu er skæruliðar myrtu
200 sinhalesa, sem em í meirihluta
á eyjunni, til að hefna 12 skæmliða
sem frömdu sjálfsmorð er þeir kom-
ust í hendur réttvísinnar.