Morgunblaðið - 18.10.1987, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1987
#
eru skemmtileg en valda oft slysum
í sumar og haust hafa krakkar og ungl-
ingar stytt sér stundir við að renna
sér á hjólabrettum niður brekkur á
ýmsum heppilegum stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu. Lítil og stór, feit og
mjó hafa þau þeyttst niður bekkurnar
, stundum svo hratt að hárið hefur
staðið aftur af höfðinu og sum jafnvel
rennt s«=r eftir nokkurs konar svigbraut
scm gerð er þannig að steinum er
raðað á með jöfnu millibili og svo rennt
sér á milli þeirra. Það er augljóst á
rjóðum og áhugasömum andlitum að
þetta finnst mörgum feiknarlega mikil
skemmtun. Það er raunar ekki nýtt
fyrirbrigði að hjólið skemmti mönnum.
Fyrir utan allt annað skapaði það alls
kyns möguleika á hraða og áhættu
sem kitlar menn og vekur hjá þeim
spennuþrungna eftirvæntingu.
Það fer ekki á milli
mála að þessu
gamni fylgirtölu-
verð áhætta.
Fljótlega eftir að
hjólabrettin
(skateboarding)
komu fram í
Bandaríkjunum snemma á sjötta
áratugnum, varð Ijóst að slys af
þeirra völdum gátu verið háska-
leg. Þess vegna bjuggu menn til
hjálma fyrir höfuð og hlífar á hné
og olnboga til þess að reyna að
minnka áhættuna sem notkun
brettanna er samfara. Hjólabretti
eru raunar smækkuð útgáfa af
sjóskíðum sem rúlluskautahjól
eru fest undir. Þau voru uppruna-
lega gerð úr tré en seinna voru
þau einnig gerð úr aluminum og
plasti og eru til bæði hörð og
sveigjanleg. Eftir að notkun
þeirra fór að breiðast út voru
byggðir sérstakir hjólabretta-
garðar þar sem hólar og hæðir
af ýmsum gerðum freistuðu
manna til þess að reyna leikni
sína á brettunum.
Að sögn Gunnars Þórs Jóns-
sonar yfirlæknis slysadeildar
hefur að undanförnu verið tals-
vert um slys af völdum hjóla-
bretta. Börn og unglingar hafa
handleggs og fótbrotnað við að
detta af brettunum og sum jafn-
vel höfuðkúpubrotnað. Að sögn
Gunnar var sama daginn fyrir
skemmstu komið með tvö börn
sem höfðu höfuðkúpubrotnað við
fall af hjólabretti.
Það er greinilega mikil hætta
á að fólk detti og brjóti sig bæði
á höndum, fótum og höfði," sagði
Gunnar. Þess vegna er naujðsyn-
legt að nota hjálma og hlífar eigi
að forða slysum.
Hann sagði einnig algengt að
krakkar sem ekki ættu bretti
fengju að prófa bretti hjá félögum
sínum og af því skapaðist mikil
slysahætta þegar óvant fólk færi
kannski á hjólabretti í brekku án
þess að hafa hjálm eða annars
konar hlífar.
Að sögn lögreglunnar í Kópa-
vogi er það mesta mildi að ekki
hefur hlotist stórslys af notkun
hjólabrettanna. Ökumenn hafa
að sögn lögreglunnar bæði hringt
og komið til að kvarta undan
þeirri hættu sem það skapaði
þegar börn og unglingar eru að
renna sér í brekkum, jafnvel eftir
að skyggja tekur. Þau eru ekki
með Ijós og oftast ekki með end-
urskinsmerki og þess vegna mikil
heppni að ekki hefur verið ekið
yfir neinn ennþá.
Notkun hjólabretta hefur
breiðst mjög hratt út, við förum
varla út í eftirlit án þess að sjá
flokka af krökkum fara geysi hratt
á brettunum á ákveðnum stöðum
í bænum. Einna vinsælustu
brekkurnar til aö renna sér í eru
við Bræðratungu og Ástún,"
sagði lögreglumaðurinn í Kópa-
vogi að lokum.
Blaðamaður Morgunblaðsins
fór á stjá í Kópavogi fyrir skömmu
og ræddi við nokkra krakka sem
Sigurður Orri og vinur hans Guð-
laugur sem á ekki bretti en er
augljóslega að komast uppá lagið
með að renna sér
krökkum brettið mitt og það hef-
ur allt gengið vel. Stundum hef
ég farið í keppni á brettinu niður
Laufbrekkuna og einu sinni unnið.
Ég þekki nokkra sem hafa meitt
sig á hjólabrettum. í dag sögðu
krakkarnir í bekknum mínum mér
frá einum strák sem sem fékk
gat á hausinn.
Bráðum ætla ég að fara að
læsa brettið mitt inni í geymslu
og ekki að nota það í vetur. En
þegar snjórinn verður farinn
næsta vor ætla ég að ná í brettið
og fara aftur að renna mér á því.
Sigurður Orri Jónsson segist
Brettiseigendur renna sér af miklum áhuga fram og aftur um skólalóð Kópavogsskóla.
Arnar Snær hefur náð sér eftir
handleggsbrotið
Kristín María á brettinu sínu
vinkonu minnar og frændi minn
báðir bretti og ég fékk að prófa
hjá þeim. Mér fannst svo gaman
að ég ákvað að kaupa mér svona
sjálf. Ég hef notað brettið mikið
en stundum dottið. Einu sinni
datt ég á hnéin og reif buxurnar
mínar og rann eftir götunni en
ég hélt samt áfram að renna
mér. Ég fór nú samt að gráta því
þetta voru einu íþróttabuxurnar
mínar og svo blæddi úr mér.
Ég þekki ekki margar stelpur
sem eiga bretti, bara systur mína
og eina vinkonu. Ég hef lánað
voru að leika sér á hjólabrettum.
Þetta voru fimm bekkjarsystkini
úr Kópavogsskóla öll ellefu ára
gömul. Þrjú þeirra eiga bretti en
tveir eiga engin bretti en fá af
og til að prófa hjá félögum sínum.
Kristín María Birgisdóttir var
eina stúlkan í hópnum. Hún
kvaðst hafa keypt sér hjólabretti
í júlí í sumar.
Ég ar að passa í sumar og
keypti mér bretti fyrir hluta af
kaupinu rnínu," sagði Kristín
María. Ég hafði séð krakka úti á
svona brettumog svo átti bróðir
Sigurður
Orri Jónsson