Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
7
Lést eftir
vinnuslys
UNGI maðurinn, sem varð undir
járnfargi við vinnu sína í vél-
smiðjunni Kletti þann 7. október,
lést í Borgarepitalanum á þriðju-
dag. Hann hét Birgir Grétareson,
til heimilis að Ölduslóð 45 i Hafn-
arfirði.
Birgir heitinn var tuttugu ára
gamall, fæddur 31. mars árið 1967.
Hann lætur eftir sig unnustu.
Birgir Grétareson
Lést eftir
bruna
UNGUR maður, Brynjar Gunn-
laugsson, iést á þriðjudag af
völdum reykeitrunar sem hann
varð fyrir þegar kviknaði i íbúð
við Drápuhlíð i Reykjavik að-
faranótt 18. október.
Brynjar heitinn var 22 ára gam-
all, fæddur 28.9. 1965, til heimilis
að Álfhólsvegi 103 í Kópavogi.
Hann var ókvæntur og bamlaus.
Brynjar Gunnlaugsson
Almenna bókafélagið
vínnur að ljóðaárbók
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ
hyggst á næsta ári gefa út Ljóða-
árbók á vegum Ijóðaklúbbs
félagsins. Ljóðaklúbbur AJ-
menna Bókafélagsins hefur
starfað í á þriðja ár og gefið út
fimm Ijóðabækur, meðal annare
Ijóðasafn Kristjáns Jónssonar
Fjallaskálds og næsta bók
klúbbsins er kvseði 87 eftir
Krisiján Karlsson. Ljóðaárbókin
er þó ekki eingöngu ætluð félög-
um ljóðaklúbbsins, heldur verður
hún til sölu á almennum markaði.
Ljóðaárbókin verður ekki bundin
við neinn aldursflokk sérstaklega,
heldur opin öllum sem við skáldskap
fást og mun freista þess að gefa
sem heilsteyptasta mynd af
íslenskri samtímaljóðlist. Eingöngu
verða valin ljóð sem ekki hafa birst
áður í bók, en ljóð sem prentuð
hafa verið f blöðum og tfmaritum
koma til greina. Ljóðaþýðingar
verða jafngildar frumsömdum ljóð-
um. Höfundarlaun verða greidd
samkvæmt samningum Rithöfun-
dasambandsins og Félagas
íslenskra bókaútgefenda.
Þeir sem vilja vera með í Ljóðaár-
bók 1988 þurfa að senda ljóð til
Almenna bókafélagsins, pósthólf 9,
121 Reykjavík, merkt Ljóðaárbók.
Skilafrestur ljóða er til 31. desem-
ber 1987. Ljóðin í bókina verða
valin af ritnefnd sem skipuð er
Berglindi Gunnarsdóttur, Jóhanni
Hjálmarssyni og Kjartani Ámasjni.
Vestmannaeyjar:
Ferðaskrif stofa
V estmannaeyj a fær
greiðslustöðvun
Vestmannaeyjum.
Ferðaskrifstofa Vestmanna-
eyja fékk fyrir stuttu þríggja
mánaða greiðslustöðvun. Rekst-
ur skrifstofunar hefur gengið
illa og er staða hennar mjög
slæm. Hún hefur verið lokuð í
rúman mánuð.
Langstærstu hluthafamir í ferða-
skrifstofunni eru Flugleiðir hf. og
Hetjólfur hf., einnig á bæjarsjóður
Vestmannaeyja nokkuð stóran hlut.
Rekstur skristofunnar hefur
gengið erfíðlega og verið lítill í sum-
ar og alveg lokað í september.
Starfsmenn Flugleiða á Vest-
mannaeyjaflugvelli hafa þó reynt
að annast einhvetja þjónustu fyrir
hana. Hefur bæjarfógetinn í Eyjum
skipað Ólaf Elísson, löggiltan end-
urskoðanda, tilsjónarmann þessa
þijá mánuði sem greiðslustöðvunin
stendur.
— Bjami.
Bjarni Sæmundsson:
Ekki í blekkingarskyni
- segir siglinga-
málastjóri
MAGNÚS Jóhannesson siglinga-
málastjóri segir að athugun hafi
leitt í Ijós að áhöfn rannsókna-
skipsins Bjarna Sæmundssonar
fékk björgunarbúninga togarans
Kaldbaks eingöngu að láni í þvi
skyni að auka öryggi áhafnar í
erfiðum leiðangri á norðurelóðir
en ekki i þvi skyni að blekkja
skoðunarmenn Siglingamála-
stofnunar.
Þá kom fram hjá siglingamáia-
stjóra að búningamir úr Kaldbak
voru ekki um borð í Bjama Sæ-
mundssyni þegar skipið var skoðað
heldur var þá framvisað staðfestri
pöntun á búningum frá LÍÚ og í
ljósi þess var útgerð skipsins veittur
frestur á að uppfylla skilyrði reglu-
gerðar um björgunarbúninga í
skipum stærri en 250 brúttórúm-
lestir.
DaB
liom sófasett
eru bólstruð í mjúkan svamp sem þakinn er Dacronló og klætt
með krómsútuðu, anilíngegnumlituðu nautaleðri (eins og yfir
leðrið á skónum þínum) á slitflötum með gerfileðri á grind utan-
verðri þar sem ekkert reynir á í sliti.
SEM SAGT ÚRVALSVARA Á GÓÐU VERÐI
crct
Flott verð
Flott sett
Flott verð
Dallas hornin og Dallas sófasettin eru með háu baki og mjúkri
bólstrun sem gerir þau svo þægileg að sitja í og liggja út af í
0G EKKIFÆLIR VERÐIÐ FRÁ
LEÐUR: 6 sæta horn ^a mync|)97-860--0tb- 25.000,- og ca. 6-7.000 á mán.
5 sæta horn 92.880,- útb. 23.000,- og ca. 6-7.000 á mán.
3+1 +1 sófasett (sjá mynd) 92.880,- útb. 23.000,- og ca.6^7.000 á mán.
3+2+1 sófasett 99.860,- útb. 25.000,- og ca. 6-7.000 á mán.
ÁK LÆÐI ■ 6 sæta horn (sia mynd> 76.280,- útb. 20.000,- ca. 5-6.000 á mán.
5 sæta horn 72.960,- útb. 20.000,- ca. 5-6.000 á mán.
3+1+1 sófasett (sjá mynd) 72.960,- útb. 20.000. ca. 5-6.000 á mán.
3+2+1 sófasett 79.590,- útb. 20.000. ca' 5-6.000 á mán.
Og auðvitað borgarðu útborgunina eða þá allt saman með Vísa eða Euro.
Opidtilkl.7 íkvöld. _______
Opid til kl. 4 á morgun laugardag.
húsgagna-höllin
REYKJAVÍK