Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 21 Spurninga- keppnigrunn- skólanna held- ur áfram SPURNIN GAKEPPNI grunn- skólanna, sem íþrótta- og tóm- stundaráð stendur að, heldur áfram þrátt fyrir að Breiðholts- skóli hafi nú ákveðið að hætta þátttöku í keppninni vegna óspekta eftir keppni á Bústöðum. Að sögn Þorvalds Óskarssonar, skólastjóra Breiðholtsskóla var farið af stað með keppnina án hans vitundar. Seljaskóli, sem í fyrstu ætlaði að hætta keppni, hefur nú ákveðið að taka aftur þátt, enda kom i ljós að árás unglingsstúlkna á jafnöldru sína, sem handarbrotnaði, var ekki í neinum tengslum við keppnina, eins og fyrst var talið. Skúli Skúlason, aðstoðarforstöðumað- ur Fellahellis, segir að keppnin hafi gengið mjög vel nema í eitt skipti, og fjölmiðlar hafi lýst ánægjulegri dægradvöl á full neikvæðan hátt. Fyrirkomulag keppninnar er þannig að nemendaráð skólanna velja þrjú lið skipuð þremur nem- endum úr 7., 8. og 9. bekk. Lið úr þremur skólum keppa í sex félags- miðstöðvum fjórum sinnum og eitt lið úr hverri félagsmiðstöð kemst síðan í undanúrslit. Ákveðið hefur verið að undanúrslitin verði hér eft- ir haldin í Ölduselsskóla, en fjögur lið keppa að lokum til úrslita í Ars- eli 13. nóvember. í verðlaun verða farandbikar, eignarbikar og bækur. Félagsmiðstöðvamar greiða allan kostnað af keppninni. Keppnin fór I fyrstu fram á kvöld- in en eftir atburðina í Bústöðum var ákveðið að halda hana síðdegis. Breiðholtsskóli verður ekki með í keppninni þrátt fyrir þessa breyt- ingu, en að sögn starfsmanna Tónabæjar hefur breytingin gefíð góða raun og keppnin gengið snurðulaust fyrir sig nema í eitt skipti. Bandarískír hvalavinir mót- mæltu ísiensk- um hvalveiðum UM 10 manns, þar á meðal fjöl- skylda með lítið barn, tóku á fimmtudag þátt í mótmælastöðu The Humane Society of the Un- ited States fyrir utan höfuðstöðv- ar Jerrico samsteypunnar sem á Long John Silver’s veitingahús- akeðjuna. Fólkið hélt á mótmæla- spjöldum og hafði auk þess meðferðis útblásið hvalslíki og einn mótmælandinn var íklædd- ur hvalabúningi. Mótmælastaðan stóð yfir frá klukkan 12 á fimmtudag til 13.30. Mótmælaaðgerðimar vöktu tals- verða eftirtekt í fjölmiðlum. Þannig var sagt frá því í sjónvarpsstöðvum á mánudag að mótmælin væru fyr- irhuguð og á fimmtudag var sýnt beint frá þeim í hádegpsfréttum tveggja sjónvarpsstöðva auk þess sem sagt var frá þeim i kvöldfrétt- um. Tvö dagblöð sögðu einnig frá mótmælunum á föstudag. Á flestum mótmælaspjöldunum stóð: Hættið að kaupa íslenskan físk frá hvalaræningjum (piratc whalers). Jerrico samsteypan lýst: því yfír að hún teldi þetta ekki verj sanngjamt þar sem fyrirtækið hefð stuðning Alþjóða hvalveiðiráðsin: og forstjóri Jerrico hefði oft hit fulltrúa íslenskra stjómvajda oj ámálgað við þá að dregið yrði úi hvalveiðum f vísindaskyni, sem íslenska ríkisstjórin hefði gert. Síðan hefði Bandaríkjastjóm náð samkomulagi við ísland sem væri fullnægjandi fyrir Jerrico. The Humane Society segist munu efna til mótmælaaðgerða við fleiri fyrirtæki sem kaupa íslenskar físk- afurðir. Nemendur fagna sigri Hlíðaskóla í spurningakeppni sem fram fór í Tónabæ 27. október. Morgunblaðið/Sverrir Einn keppendanna kastar pflu í skotskífu til að ve(ja spurningaflokk. RAFEINDANJOSNIR: ER VERID AD HLERA HJÁ ÞÉR? Haþróaöur hlerunarbunaöur var seldur til íslands . . . Ny og slœrri Vika Sama laga verðið VIKAN kom út í síöustu viku eftir eigendaskipti og miklar breytingar. Blaðiö seldist víðast upp á aðeins tveim dögum. SAM-útgáfan S 83122 D) ■CO D .. r> Frá Höfða til Heliar Morð, stríð, náttúru- hamfarir og bylting- ar daglegtbrauð fyrir Ijósmyndarann Jean Louis Cholet, sem Vikan ræðir við. Brudkaupsmynd Gudmundar Öskubuskan Aquino Hversu gömul verdum vid? Milljónir maura heima hja þer? Cock Robin til Islands Dagskra allra loftmidlanna 4-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.