Morgunblaðið - 30.10.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
39
Sigríður Jóns-
dóttir - Minning
Fædd 23. september 1898
Dáin 20. október 1987
Þegar dyrum hefur verið hljóð-
lega lokað hinzta sinni vitjar
minningin manns áleitin og undur
hlý, með ásökun um leið fyrir að
hafa ekki hlúð að gamalli vináttu
við gengna heiðurskonu. Svo fækk-
ar fundum sem stundum, gætu
verið einkunnarorð þess erilstíma,
sem rænir okkur ró og fjarlægir
okkur æ meir því, sem einhvers er
virði.
En auðvitað ætlaði ég að líta
inn, það varð bara aldrei af því.
Og síðbúin kveðjuorð geta þar engu
breytt, ekkert bætt, aðeins vottað
innri tilfinningu, einlæga þökk fyrir
löngu liðna tíð, þegar leiðir lágu
saman heima og vorbjarta, vinhlýja
brosið hennar vakir æðst í huga
nú við leiðarlok.
Á lífsleiðinni bindur maður vin-
áttubönd, sem ætíð halda, þó árum
ijölgi, og ekki séu ræktuð sem
skyldi. Við son Sigríðar, Ólaf Ein-
arsson kennara, voru slík bönd
knýtt fyrir margt löngu og hafa æ
haldizt. Og Sigríði kynntist ég þess
vegna betur en ýmsu öðru sam-
ferðafólki eystra á þessari tíð.
Hún var gjörvileg kona í sjón og
raun og yfir henni einhver reisn,
sem ekkert basl hafði bugað, engir
erfiðleikar megnað að má burt. Hún
kom mér fyrir sjónir sem hin athug-
ula erfiðiskona, sem myndaði sér
eigin skoðanir, kunni að hlusta og
nema og fylgjast með því sem máli
skipti — og öll frekari kynni stað-
festu þessa mynd. Hún var sú sem
hún sýndist, því hehni lét ekki að
látast, ákveðni og íhygli fylgdust
að, svo enginn velktist í vafa, hver
hennar skoðun á hlutunum var. En
mest fannst mér þó bera á mildi
og gleði í öllu dagfari hennar. Hún
kunni að gleðjast og að gera að
gamni sínu, segja hnyttilega sögu,
rifja upp gamla tíð án þess að setja
eigin amstur í forgrunninn. Mér
þótti einfaldlega notalegt að una í
návist hennar.
Og þegar ég hitti hana hér syðra
einstaka sinnum var hún söm og
áður, ánægð yfír tilverunni og því
sem 'ífið gaf henni og af henni
geisiaði sem forðum glettni og
hlýja. Lífið hafði þó engum silki-
hönzkum á henni tekið, erfiðið hafði
lengstum verið í öndvegi, efnahag-
urinn oft ekki sá, sem nútíminn
telur unandi. En hún lét allt þetta
einfaldlega ekki smækka sig, hélt
reisn sinni og andlegu ríkidæmi —
glöð og reif, því ferskur andblær
og hressandi fylgdi henni vel á vegi.
Og vinnusemi og verklagni var við
brugðið.
Eg ætla mér ekki þá dul að rekja
lífssögu látinnar vinkonu. En aðeins
að uppruna og ævibrotum þó.
Sigríður var fædd 23. september
1898 á Sigríðarstöðum í Ljósa-
vatnsskarði. Foreldrar hennar voru
Stefanía Stefánsdóttir og Jón Sig-
urgeirsson, sem þá voru þar í
vinnumennsku. Systkinin voru níu
talsins. Þar og á Svalbarðsströnd
dvaldist hún til Qögurra ára aldurs.
Þá flyzt hún með foreldrum sínum
til Húsavíkur og átti þar heima í
litlu býli rétt við þorpið er nefndist
Helgugerði. Þar elst hún upp til
fullorðinsára og stundar ýmis störf
þar. 1919 giftist hún Einari Bimi
Davíðssyni, ættuðum úr Norður-
Þingeyjarsýslu. Á Húsavík og í
Núpasveit bjuggu þau fyrstu bú-
skaparár sín, en 1923 hefja þau
búskap í Byrgi í Kelduhverfí og búa
þar í átta ár. Síðan dvelja þau eitt
ár í Tjömesi, að Sandhólum, en
þaðan fara þau austur á land. Þau
dvelja fyrst á Jökuldal, lengst á
Klausturseli og Hjarðarhaga eða
allt til ársins 1944. Þá flytja þau
til Reyðarfjarðar, búa þar til ársins
1955, að þau fluttu til Reykjavíkur,
þar sem þau bjuggu til dauðadags,
lengst í íbúð sinni á Kleppsvegi 24.
Einar lézt 11. febrúar 1968.
Hann var mætur þegn og gegn,
trúr hveiju því er hann tók að sér,
léttur í máli og ljúfmenni. Óvægin
og hörð lífsbarátta náði ekki að
má burt glettni og létta gaman-
semi, því beizkjulaus var hann og
sáttur við allt og alla. Hann var
söngmaður góður og á yngri ámm
var hann einhver fjörugasti og bezti
dansmaður, sem þekktist. Lífsfjöri
sínu hélt hann ágæta vel, hress og
kátur.
Þau hjón eignuðust átta böm,
en eitt þeirra dó strax eftir fæð-
ingu. Hin komust öll til fullorðins-
ára og sex þeirra em enn á lífí.
Böm þeirra hjóna: Elínborg María,
húsfreyja á Ytri-Varðgjá í Eyja-
Kveðjuorð:
Aðalheiður Amadótt-
ir, Vestmannaeyjum
Aðfaranótt 20. október lést á
Vífilsstöðum Aðalheiður Ámadóttir
frá Burstafelli í Vestmannaeyjum,
eftir að hafa átt við vanheilsu að
stríða um árabil. Alla, eins og hún
var ávallt nefnd, fæddist í Vest-
mannaeyjum 7. janúar 1913.
Foreldrar hennar vom hjónin Ámi
Oddsson frá Oddsstöðum í Eyjum,
fyrmrn skipstjóri og síðar umboðs-
maður Bmnabótafélags íslands, og
Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Stuðl-
um í Norðfirði. Alla ólst upp í
stómm systkinahópi á Burstafelli,
en þau em: Guðfínna, gift Elíasi
Sigfiissyni, Sigríður, gift Óskari
Lámssyni, Pálína, gift Jónasi Sig-
urðssyni, Lára, gift Baldri Jónas-
syni, Helga, gift Guðjóni Jónssyni,
Óli ísfeld, látinn, og Vilhjálmur,
giftur Maríu Gísladóttur. Ung hóf
Alla búskap með Sigurði Siguijóns-
syni vélstjóra og eignuðust þau þijú
böm, Áma, Birgi og íris. Þau slitu
samvistum. Þann 16. júní 1938
varð Burstafellsfjölskyldan fyrir
miklu áfalli er íbúðarhúsið Bursta-
fell brann og fórust í eldsvoðanum
faðir hennar, Ámi, bróðir hennar,
ÓIi ísfeld, og sonur hennar, Ámi.
Eftir þetta mikla áfall bjó Alla
ásamt bömum sínum í sambýli með
móður sinni, Sigurbjörgu, Vilhjálmi
bróður slnum og hans konu, Maríu,
á neðri hæð Burstafells, en Vil-
hjálmur byggði síðar húsið upp. En
árið 1944 var mikið hamingjuár hjá
Öllu, en þá giftist hún Ágústi
Bjamasyni frá Svalbarða í Eyjum,
en hann var ekkjumaður og átti
einn son, Hörð. Ágúst starfaði sem
bæjargjaldkeri og gjaldkeri bæjar-
fógeta uns þau hófu verslunarrekst-
ur sem þau ráku þar til seint á
sjöunda áratugnum að þau fluttu
til Reykjavíkur. Alla var mikill tón-
listarunnandi og hafði góða söng-
rödd og söng með kómm í
Vestmannaeyjum. Þá tók hún virk-
an þátt í starfí Oddfellow-reglunn-
ar, var meðlimur í Rebekkustúkunni
Vilborgu nr. 3. IOOF.
Sá sem þessar línur ritar átti því
láni að fagna að vera heimagangur
hjá Öllu og Gústa þegar í æsku, á
heimili þeirra, Sólvangi, og minnist
með þakklæti allrar þeirrar góðvild-
ar og hlýju sem Alla og Gústi hafa
ávallt sýnt mér. Nú, að leiðarlokum,
vil ég þakka henni það sem hún
var mér, bæði fyrr og síðar, og
sendi Gústa og fjölskyldu mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Fari Alla frænka í friði og hafí
hún þökk fyrir allt og allt.
Þór I. Vilhjálmsson
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjóra blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
f minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
firði, Davíð, verkamaður í Reykja-
vík, nú látinn, Hólmfríður,
húsfreyja í Hjarðarhlíð í Skriðdal
eystra, Ólafur, kennari í Reykjavík,
Jóhann, sjómaður í Reykjavík,
Björg, verkakona í Hafnarfirði, og
Steinmóður vélstjóri í Hafnarfírði.
Dugmikið efnisfólk og ágætir þegn-
ar. Bamabömin em 21 og bama-
bamabömin 29.
Sigríður lézt á Elli- og hjúkmnar-
heimilinu Gmnd 20. október sl.
Með hlýrri þökk fyrir gömul og
góð kynni er Sigríður kvödd í dag.
Bjartsýniskonan brosleita, með
lífstrúna heita og sterka er horfin.
Hún varpaði ylgeislum á veg
margra. Um leið og ég sendi böm-
um hennar og aðstandendum öðmm
einlægar samúðarkveðjur, þakka
ég fyrir kynni sem áfram ylja.
Blessuð sé minning Sigríðar
Jónsdóttur.
Helgi Seljan
Hún amma okkar, Sigríður Jóns-
dóttir, er dáin, hún lést þann 20.
október sl., 89 ára að aldri. Hún
fæddist á Sigríðarstöðum í Ljósa-
vatnsskarði, en ólst að mestu leyti
upp á Húsavík. Hún gekk í hjóna-
band með Einari Bimi Davíðssyni
þann 16. febníar 1919. Þau bjuggu
í Byrgi við Ásbyrgi og á Jökuldal.
Fluttust þaðan til Reykjavíkur og
áttu heimili sitt á Kleppsvegi 24 til
æviloka.
Þau eignuðust 8 böm og 7 þeirra
komust til fullorðinsára. Einar
Bjöm dó 11. febrúar 1968.
Þegar við látum hugann reika
aftur í tímann koma upp margar
góðar minningar. Samanber þegar
við vomm yngri og fómm í strætó
til ömmu í Reykjavík, en við bjugg-
um í Hafnarfirði, og ekki síst vegna
þeirrar frábæm móttöku, sem við
fengum hjá ömmu. Á sínum seinni
áram var amma oftast nær með
einhveija handavinnu í höndunum,
og em þær ófáar flíkumar sem hún
sendi okkur í gegnum árin, t.d. lopa-
peysur, ullarsokkar og vettlingar.
Og minnumst við þess alltaf þegar
hún sat í stólnum sínum inni í stofu
og pijónaði á meðan við dmkkum
hjá henni kaffí og spjölluðum við
hana.
En nú kveðjum við ömmu í hinsta
sinn með miklum söknuði. Við emm
þakklát fyrir að hafa átt hana að.
Blessuð sé minning hennar.
Ársæll, Einar,
María og Sigríður.
t
Eiginkona mín,
KARÓLÍNA LÁRA VIGFÚSDÓTTIR,
Lindarholti 4,
Ólafsvfk,
verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 31. október
kl. 14.00.
Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 8.00 um morguninn.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ólafsvikurkirkju.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna,
Þorsteinn Hansson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR A. PÉTURSSON,
Hringbraut 60,
Keflavfk,
verður jarösunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 31. október
kl. 13.30.
Vigdfs Jónsdóttir,
Ingveldur Sigurðardóttir,
Anný Sigurðardóttir,
Pótur Sigurðsson, Stefanía Jónsdóttir,
Jón Sigurðsson, Kristfn Kristjánsdóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÍNGVELDUR ÁRNADÓTTIR,
Efra-Hvoli,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju laugardaginn 31. október kl.
10.30.
Ingunn Vfgmundsdóttir,
Pálmar Vfgmundsson, Ragnheiður Jónasdóttir,
Aðalsteinn Vfgmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega hlýhug og samúð viö andlát og útför föður okk-
ar, bróður og mágs,
BJÖRNS HARALDSSONAR
bankafulltrúa.
Axel Bronco Björnsson, David Björnsson Haralds,
Yasmfn B.N. Björnsdóttir,
Árni Haraldsson, Jóhanna Haraldsdóttir, «
Kristín Haraldsdóttir, Jón Bjarnason,
Erla Haraldsdóttir.
Lokað
í dag, föstudag 30. október, vegna jarðarfarar KRISTINS
PALSSONAR. Verslunin Marella, Laugavegi 41.
Lokað
Lokað frá kl. 13.00-15.00. vegna jarðarfarar KRISTINS
PÁLSSONAR.
Nýja sendibflastöðin.