Morgunblaðið - 31.12.1987, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
| smáauglýsingar — smáauglýsingar
smáauglýsingar — smáauglýsingar
Postulínsmálun
Kennsla hefst eftir áramót, laerið
að búa eigin mynstur á flisar og
postulin. Kenni nýjar og gamlar
aðferðir.
Jónina Magnúsdóttir, mynd- og
handmenntakennari simi 46436.
St.: St.: 5988166 I Rh. kl. 18.
Þátttaka iH&V tilk.
Sunnudaginn 3. jan. kl. 14-16.
Mánudaginn 4. jan. kl. 17-19.
Miðvikud. 6. jan. kl. 17-17.30.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía Keflavík
Guðþjónusta kl. 14.00 á nýjárs-
dag. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Nýársdagur. Hátíðarsamkoma
kl. 16.30. Einsöngur: Sólrún
Hlöðversdóttir. Ræðumaður:
Sam Daniel Glad.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Nýársfagnaður kl. 17.00: Ný-
ársfagnaður. Kapteinarnir Anne
Marie F. og Harold Reinholdtsen
stjórna og tala.
Sunnudag 3. jan. kl. 17.00:
Fyrsta hjálpræðissamkoma
árið 1988. Sér Halldór S. Grön-
dal talar og brigader Ingibjörg
Jónsdóttir stjórnar.
Allir velkomnir.
Gleðilegt nýtt ár.
Hjálpraeðisherinn.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Samkomur nýjársdag kl. 16.00
og sunnudag kl. 20.00.
Dagskrá Samhjálpar um
áramótin:
Gamlársdagur: Samkoma i Hlað-
gerðarkoti kl. 16.00.
Laugardagur 2. janúar: Opið
jólahús i Þribúöum, Hverfisgötu
42, kl. 14.00-17.00. Lítiö inn og
fagnið með okkur nýju ári. Heitt
kaffi á könnunni. Við syngjum
saman kóra kl. 15.30. Takiö með
ykkur gesti. Allir velkomnir.
Sunnudagur 3. janúar: Almenn
samkoma í Þríbúöum kl. 16.00.
fjölbreyttur söngur. Barna-
gæsla. Ræðumaður Óli Agústs-
son. Allir velkomnir.
Gleðilegt nýtt ár.
Samhjálp.
Jólaskemmtun
verður haldin á Sundlaugarvegi
34, nýja Farfuglaheimilinu, á
vegum Farfugla og Þjóðdansafé-
lagsins, laugardaginn 2. janúar
1988 kl. 15.00. Miðasala við inn-
ganginn. Allir velkomnir.
Nefndirnar.
Útivist,
Strandganga í landnámi
Ingólfs
Ein áhugaverðasta nýjung i
ferðaáætlun Útivistar 1988 er
strandganga í landnámi Ingólfs,
þar sem gengiö veröur með
ströndipni frá Reykjavík að Ölf-
usárósum i 22 ferðum. Seinni
hlutinn frá Reykjavik upp i Hval-
fjörð verður genginn á árinu
1989. Fyrsta feröin er á sunnu-
daginn 3. jan. kl. 13.00 og verður
byrjaö i Grótinni, hinum torna
lendingarstað Ingólfs. Tilvalið er
að vera með frá byrjun og viöur-
kenning veröur veitt fyrir góða
þátttöku. Góðir gestir verða með
í gönguferðunum og fræða um
það sem fyrir augu ber. Farið
verður hvernig sem viðrar. Sjá
nánar ferðaáætlun Útivistar
1988 sem er að koma út.
Sunnudagur 3. jan. kl.
13.00
Grófin — Örfirisey - Seltjarnar-
nes. Brottför frá Grófartorgi,
milli Vesturgötu 2 og 4 (bila-
stæðið). Gengin verður Hlíðar-
húsastigur (Vesturgatan gamla)
út i Örfirisey og fjallað um gamla
verslunarstaðinn og Granda-
hólma. Gengið með Eiðsvík og
„yngsta móberg á íslandi skoð-
að“. Skoðaðar verða gamlar
varir á Seltjarnarnesi, fjörumór
og fuglalíf við Seltjörn. Ókeypis
ferð. Strandgangan, 1. ferð
(S-1).
Mánudagur 4. jan. kl.
20.00
Tunglskinsganga, fjörubál.
Brottför frá BSÍ, bensinsölu.
Gengiö um Suðurnes á Seltjarn-
arnesi og með ströndinni inn i
Skerjafjörö. Strandgangan, 2.
ferð (S-2). Verð 200.- kr„ fritt
f. börn m. fullorðnum.
Gleðilegt ár. Sjáumst.
Útivist, ferðafélag.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferð Ferðafélagsins
sunnudaginn 3. janúar:
Kl. 13 Úlfarsfell (295 m).
Fyrsta gönguferðin á nýju ári.
Komið með i létta göngu og njót-
ið útsýnis af Úlfarsfelli. Verð kr.
500,00. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bfl. Fritt fyrir börn
í fylgd fullorðinna.
Gleðilegt nýtt ár.
Ferðafélag íslands.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Stýrimann,
vélamann og háseta
vantar á 80 tonna netabát frá Ólafsfirði.
Upplýsingar í símum 96-62256 og 96-62484
eftir kl. 19.00.
Álftanes
Barnagæsla - heimilishjálp
Starfskraftur óskast til að gæta tveggja
barna á öðru ári á Álftanesi alla virka daga,
ásamt því að sinna heimilisstörfum.
Góð laun í boði fyrir góðan starfskraft.
Nánari upplýsingar veittar í síma 54739 kl.
16.00-19.00.
Kaupfélagsstjóri
Fyrirtækið er Kaupfélag Ólafsvíkur.
Starfssvið kaupfélagsstjóra: Framkvæmda-
stjórn. Daglegur rekstur. Áætlanagerð.
Fjármálastjórn. Bókhald. Mannaráðningar og
starfsmannahald. Hann er prókúruhafi og
ábyrgur gagnvart stjórn fyrir daglegum
rekstri.
Við leitum að manni með reynslu og þekk-
ingu á verslunarrekstri. Æskilegt að viðkom-
andi hafi verslunar- eða Samvinnuskólapróf.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Kaupfélagsstjóri 83" fyrir 9. janúar.
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Bókhaldsþjónusta
Iðnráðgjafi
Samtök sunnlenskra sveitafélaga óska eftir
að ráða iðnráðgjafa til starfa í Suðurlands-
kjördæmi. Æskilegt er að viðkomandi hafi
viðskipta- og eða hagfræðimenntun svo og
reynslu í ráðgjafastörfum.
Umsóknir sendist SASS, Austurvegi 38, Sel-
fossi, fyrir 15. janúar 1988.
Seltjarnarnesbær
Móttökuritara vantar í heilsugæslustöð Sel-
tjarnarness. 57% vinna.
Upplýsingar hjá yfirlækni í síma 612070.
Gaman og alvara
Hér er unnið skemmtilegt starf í góðum hóp.
Viltu vera með? Okkur vantar starfskraft,
helst með uppeldismenntun, frá kl. 13-17.
Síminn er 686351 - hringdu strax.
Leikskólinn Lækjarborg v/Leirulæk.
Netagerðarmenn
Vantar netagerðarmenn nú þegar.
Upplýsingar á staðnum.
NetagerðJóns Holbergssonar,
Hjallahrauni 11,
Hafnarfirði.
Vélavörður og háseti
óskast á mb. Arney KE-50 sem er að hefja
veiðar með netum.
Upplýsingar í síma 92-12305.
Apótek
Lyfjafræðingur eða aðstoðarlyfjafræðingur
óskast í hlutastarf í vor. Um afleysingastarf
gæti verið að ræða í nokkra mánuði.
Upplýsingar í síma 53977.
Apótek Norðurbæjar,
Hanarfirði.
Framleiðslustjóri
Nýtt vaxandi framleiðslu- og markaðsfyrir-
tæki á sviði hátækni í eigu íslenskra og
erlendra aðila óskar að ráða starfsmann til
að sinna stjórnun framleiðslu, umsjón með
iðnhönnun, sambandi við undirverktaka í
rafeindatækni og vélsmíði o.fl. í boði er fjöl-
breytt og krefjandi starf með mikla möguleika
fyrir réttan aðila. Farið verður með umsókn-
ir sem algjört trúnaðarmál.
Tilboð merkt: „RBM - 7“ sendist auglýsinga-
deild Mbl.
Dagheimilið
Suðurborg
óskar eftir fóstrum, þroskaþjálfum eða fólki
með reynslu af uppeldismálum í stuðnings-
stöður hálfan eða allan daginn sem allra
fyrst.
Einnig vantar starfsfólk í skilastöður frá kl.
16.00-18.30 frá 1. janúar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
73023.
raöauglýsingar — raöaugiýsingar — raöauglýsingar
húsnæöi öskast
Atvinnuhúsnæði
ca 100 fm, óskast á Reykjavíkursvæðinu.
Upplýsingar í síma 667263 eftir kl. 19.00.
Til leigu
400 fm atvinnuhúsnæði á 2. hæð v/Nesveg
Seltjarnarnesi.
Upplýsingar í síma 611680 og síma 619993
eftir kl. 18.00.
Skeifan
Höfum til leigu 100 fm lager og/eða geymslu-
húsnæði miðsvæðis í Skeifunni, laust nú
þegar.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„S - 4562".______