Morgunblaðið - 14.02.1988, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1988
Minning:
Grétar Halldórsson,
Vestmannaeyjum
Fæddur 8. desember 1952
Dáinn 19. september 1987
í dag, laugardaginn 13. febrúar,
er minningarathöfn um fyrrverandi
mág minn, Grétar Halldórsson, í
Landakirkju í Vestmannaeyjum. Og
í dag, 13. febrúar, hefði dóttir mín
Guðrún Ágústa orðið 29 ára gömul
ef hún hefði lifað, en hún dó 5 ára
gömul og er hún fæddist var Grétar
aðeins 6 ára gamall. Þegar ég lít
til baka þá finnst mér það vel til-
heyra, að þessa yngsta föðurbróður
hennar skuli vera minnst á þessum
degi, því þeim samdi mjög vel og
lenti hann oft í að passa hana á
meðan hún lifði.
Grétar Halldórsson var aðeins 4
ára gamall er ég mægðist við hann.
Þessi litli snáði var ósköp góður og
meðfærilegur. Oft var hann hjá mér
er móðir hans þurfti til lækninga í
höfuðborgina. Stundum sögðum við
að það væri eins og hann léki sér
við einhvem ósýnilegan því svo gat
hann dundað sér einn lengi. En svo
var að hann var tvíburi en hinn
tvíburinn, líka drengur, dó í fæðing-
unni.
Foreldrar Grétars voru hjónin
Ágústa Sveinsdóttir og Halldór
Jónsson frá Garðstöðum hér í bæ.
Tiyggðu sparifé þínu
háa vexti á einfaldan
eg öruggan háft með
sparisldrteinum ríkis-
sjóðs og ríkisvíxlum
Verðtryggð
um innlausnardag hvenær sem er næstu 6
mánuði eftir gjalddaga. Endurgreiðslan er
miðuð við gengi þess dags.
Gengistryggð spariskírtcini ríkissjóðs til sölu núna:
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs
bjóðast nú í þremur flokkum og eru
vextir á þeim allt að 8,5%.
Söfnunarskírteini bera 8,5% vexti í 2 ár
eða 3 ár og hefðbundin spariskírteini með
6 ára binditíma og allt að 10 ára lánstíma
bera 7,2% vexti. Að binditíma liðnum eru
hefðbundnu spariskírteinin innleysanleg
af þinni hálfu og er ríkissjóði einnig heim-
ilt að segja þeim upp. Segi hvorugur skírt-
einunum upp bera þau áfram7,2% ársvexti
út lánstímann,sem getur lengst orðiðlOár.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs til sölu núna:
Flokkur Lánstiml Ávöxtun Gjalddagi .
1-SDR 3 ár 8,3% 11. jan.— 10. júli ’91
1-ECU 3 ár 8,3% 11.jan. — 10. júlí ’91
Ríkisvíxlar
Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi
l.fl.D 2 ár 8,5% 1. feb ’90
l.fl. D 3 ár 8,5% l .feb. '91
l.fl. A 6/10 ár 7,2% lrfeb ’94-’98
Iú hefur ríkissjóður hafið sölu á ríkis-
víxlum til fyrirtækja og einstaklinga.
Helsti kostur ríkisvíxla er sá, að á sama
tíma og skammtímafjármunir eru varð-
veittir á öruggan hátt bera þeir nú 33,1%
forvexti á ári. Það jafngildir 41,3% eftirá
greiddum vöxtum á ári miðað við 90 daga
lánstíma í senn.
Ríkisvíxlar:
Gengistryggd
lý gengistryggð spariskírteini ríkis-
Isjóðs eru bundin traustum erlendum
gjaldmiðlum, sem verja fé þitt fyrir geng-
issveiflum.
Gengistryggð spariskírteini ríkissjóðs eru
annars vegar bundin SDR (sérstökum
dráttarréttindum) og hins vegar ECU
(evrópskum reikningseiningum), sem eru
samsett úr algengustu gjaldmiðlunum í
aiþjóðaviðskiptum. Binditíminn er 3 ár
og í iok hans færðu greiddan höfuöstól
miðað við gengi á innlausnardegi auk
vaxtanna, sem eru 8,3% • Hægt er að velja
Lánstími dagar Forvextir' Samsvarandi eftirá greiddir vextir Kaupverð 500.000 kr. vixils
45 33,1% 40,2% 479.312 kr.
60 33,1% 40,6% 472.417 kr.
75 33,1% 40,9% 465.521 kr.
90 33,1% 41,3% 458.625 kr.
• 15.1.1988
Ríkisvíxlar bjóðast nú í 45 til 90 daga. Þú
getur valið um gjalddaga innan þeirra
marka. Lágmarks nafnverð þeirra er
500.000 kr., en getur verið hvaða fjárhæð
sem er umfram það. (Kaupverð 500.000
kr. víxiis miðað við 90 daga lánstíma er
kr. 458.625.)
Samsetning SDR
(Hlutföil (% ) m.v.
gengi 21/12 87).
Fr. frankar
13,4
Samsetning ECU
( Hlutföll ( % ) m.v.
gengi 21/12 *87).
Pund 19,2
Pund 12,7
45 dagar 60 dagar 75 dagar 90 dagar
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka
íslands og hjá löggiltum verðbréfasölum,
sem m.a. eru viðskiptabankarnir, ýmsir
sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir
verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í Seðla-
banka íslands. Einnig er hægt að panta þá
þar, svo og spariskírteinin, í síma -91-
699863, greiða með C-gíróseðli og fá
víxlana og spariskírteinin síðan send í RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
abyrgðarposti. ___
Þau hjón eru bæði dáin. Halldór
dó 4. júlí 1976, Ágústa dó í endað-
an júní 1984. Þau hjón bjuggu í
Byggðarholti, Vestmannaeyjum frá
1956, eða þangað til þau urðu að
flæmast burt af eynni ásamt öllum
öðrum 1973 er gosið hófst. En þau
komu aftur í september 1973 og
keyptu þá húsið númer 49 við Heið-
arveg og bjuggu þar allt til síðasta
dags. En Grétar stofnaði þá heimili
með unnustu sinni, Guðnýju Bóel
Gúðbjartsdóttur. Grétar og Guðný
giftu sig 6. júní 1976 og eignuðust
þau 2 böm. Mjög elskuleg og mynd-
arböm í alla staði, þau em: Guð-
bjartur Grétar, fæddur 9. október
1973 og Sigrún Harpa, fædd 5.
mars 1975. Grétar var yngsta bam
foreldra sinna ásamt tvíburabróð-
umum sem dó. Eftir em 3 eldri
systkini hans, en þau vom 5 systk-
inin. Grétar ólst upp hér í Eyjum
og eins og aðrir peyjar undi hann
sér vel, dafnaði og varð glæsilegur
ungur maður. A uppvaxtarámm
sínum vom alltaf saman 5 peyjar
sem allir vom jafn gamlir. Og er
ég hugsa til baka fínnst mér svo
undarlegt, að af þessum 5 peyjum
em 3 famir. Fyrst Alli Hjörtur,
hann dmkknaði fljótlega eftir gos,
svo Þorvaldur sem dó í bflslysi í
september 1979, og svo nú Grétar
sem týndist á skipi sem hann var
á út í Kanada, og enginn veit um
örlög þeirra sem á skipinu vom eða
skipsins. Enginn veit sína ævi fýrr
en öll er stendur einhvers staðar
og á það vel við hér því þegar ung-
ur maður eða menn, eins og þessir,
sem vom fullir af lífsorku fara
syona, einn, tveir, þrír. Það er alveg
hræðilegt í mínum augum. Ég held
að ég geti seint sætt mig við örlög
Grétars og held að ég tali fyrir
hönd margra. Að fara lengst út í
heim tæplega 35 ára gamall bara
til þess eins að deyja.
Það sannast best hér máltækið
enginn ræður sínum næturstað. Svo
sannarlega höfum við reynsluna af
því hér. Eg mun alltaf meta tryggð
og vináttu Grétars við mig og mína,
bæði í þessi rúm 20 ár sem ég var
honum tengd, og svo ekki síst árin
sem á eftir komu. Það hallaðist
ekki á vináttuna. Hann breyttist
ekki í minn garð.
Er litið er til baka og horft á
þennan snáða verða að fulltíða
manni þá er svo sem ýmislegt sem
miður var, en hver er gallalaus í
þessum heimi. En ég get borið um
það, að hvenær sem var, var þessi
drengur mér kær og góður allt til
hins síðasta.
Guðný mín og böm, ég votta
ykkur dýpsjtu samúð svo og systkin-
um hans. Ég veit að þið eigið bágt
með að sætta ykkur við þessi örlög
hans eins og við öll. Ef annað líf
er til, sem ég efa ekki, þá veit ég
að hann er hjá sínum foreldmm og
öllum nánum ættin'gjurti. Þau hafa
glöð tekið á móti honum því hann
var þeim svo kær.
Johanna
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Áthygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins em
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar em
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.