Morgunblaðið - 24.03.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
43
Húsavík:
Eyjólfm' Ein-
arsson sýnir í
Safnahúsinu
EYJÓLFUR Einarsson opnar
málverkasýningu fimmtudaginn
24. mars kl. 20 í Safnahúsinu á
Húsavík.
Á sýningunni verða 30 olíu- og
vatnslitamyndir. Sýningin stendur
yfír til 27. mars og verður opin
daglega frá kl. 15 til 22.
(Fréttatilkynning)
Hljómsveitin
Lost heldur
tónleika
í DAG, fimmtudaginn 24. mars,
heldur norðlenska hljómsveitin
Lost sina fyrstu tónleika sunnan
heiða, nánar tiltekið í veitinga-
staðnum Duus-húsi.
Hljómsveit þessi hefur hlotið
nokkra athygli þrátt fyrir að hún
hafí eingöngu spilað í heimabæ
sínum, Akureyri. T.d. spilaði hún
með Sykurmolunum þar nyrðra og
fyrir skömmu hélt hún tónleika í
Borgarbíói. Hljómsveitimar Ham
og Yesminis pestis spila ásamt Lost
á tónleikunum í kvöld sem hefjast
kl. 21.
Morgunblaðið/Sverrir
Eyjólfur Einarsson við eitt verka sinna í FÍM-salnum í Reykjavík
þar sem hann sýndi fyrir skömmu.
Úr hinni nýju verslun Sjónvarpsmiðstöðvarinnar við Laugaveg. Frá
vinstri eru Hreinn Erlendsson, Ragnar Gunnarsson, Elísabet Páls-
dóttir verslunarstjóri og Arthur Moon.
Sjónvarps-
miðstöð-
in á tveimur
stöðum
Sjónvarpsmiðstöðin hf. í
Síðumúla hefur nýlega fært út
kvíarnar og opnað aðra verslun
á Laugavegi 80.
Markmið hinnar nýju verslunar
er að auðvelda viðskiptavinum að
skoða úrval bíltækja, sjónvarps-
tækja og hljómtækja sem verslunin
hefur upp á að bjóða.
Eigendur Sjónvarpsmiðstöðvar-
innar hf. eru Hreinn Erlendsson og
Arthur Moon.
Samband íslenzkra sveitarfélaga:
Fulltrúaráðs-
fundur hefst í dag
ÁRLEGUR fulltrúaráðsfundur
Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga verður haldinn dagana 24.
og 25. mars í húsakynnum sam-
bandsins á Háaleitisbraut 11,
Reykjavik.
Félagsmálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, mun flytja ávarp í
upphafí fundarins.
Helstu mál fundarins verða
verkaskipting ríkis og sveitarfé-
laga, gjaldheimtur, endurskoðun
tekjustofnalaga og Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga og viðhorf í samein-
ingarmálum sveitarfélaga.
I fulltrúaráði sambandsins eiga
sæti 34 fulltrúar úr öllum lands-
hlutum. Auk þeirra sitja fundinn
formenn og framkvæmdastjórar
landshlutasamtaka sveitarfélaga.
í fulltrúaráði sambandsins eiga
sæti 34 fulltrúar úr öllum lands-
hlutum. \uk þeirra sitja fundinn
formenn og framkvæmdastjórar
landshlutasamtaka sveitarfélaga.
(Fréttatilkynning)
Bridssambandið
eignast húsnæðið
við Sigtún að fullu
REYKJAVÍKURBORG og Brids-
samband íslands undirrituðu á'
þriðjudag samning um að Brids-
sambandið kaupi eignahlut borg-
arinnar i húsinu númer 9 við
Sigtún sem þessir aðilar festu
sameiginlega kaup á fyrir um
það bil 2 árum.
„Það er stór áfangi í starfí Brids-
sambandsins að eignast þetta hús-
næði að öllu leyti og mikil lyftistöng
fyrir starfsemi þess,“ sagði Jón
Steinar Gunnlaugsson forseti Brids-
sambandsins. „Hér hýsum við eins
mikið af reglulegum spilakvöldum
í Reykjavík og við getum, og eins
nýtum við húsið fyrir alla okkar
starfsemi. Hér höfum við opna
skrifstofu og höfum hér æfingaað-
stöðu fyrir landsliðið. Það mun æfa
hér fyrir Norðurlandamótið, sem
verður haldið hér á landi í júní-
mánuði," sagði Jón Steinar.
Bridssambandið og Reykjavíkur-
borg keyptu húsið saman fyrir
tveimur ánim eftir að Guðmundur
Kr. Sigurðsson, heiðursfélagi Brids-
sambandsins, gaf sambandinu íbúð
sína svo það gæti fest kaup á hús-
næði.
Jón Steinar Gunnlaugsson forseti Bridssambandsins og Davíð Odds-
son borgarstjóri undirrita kaupsamninginn. Við hlið Jóns Steinars
situr Guðmundur Kr. Sigurðsson.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn. S. 28040.
I.O.O.F. 5 = 1693248'/j = 5 h.
□ Sindri 59883247 = 2 Rvik.
I.O.O.F. 11 = 1693248'* =
□MÍMIR 598824037 = 6. Frl.
□ HELGAFELL 5988032407
VI-2
Keflavík
Slysavarnadeild kvenna í
Keflavík heldur sinn órlega köku-
basar laugardaginn 26. 3. kl.
14.00 i Iðnsveinafélagshúsinu
við Tjarnargötu. Fólagskonur
munið að koma meö kökur milli
kl. 11.00 og 12.00.
Stjórnin.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍRIAR11796 og 19533.
Páskaferðir
Ferðafélagsins:
1) Snœfellsnes - Snœfells-
jökull (4 dagar).
Gist í svefnpokaplássi i gisti-
húsinu Langholti. Staöar-
sveit. Gengiö ó Snæfells-
jökul. Skoðunarferöir á lág-
lendi eins og tími leyfir.
2) Landmannalaugar - skiða-
gönguferð (5 dagar).
Gist í sæluhúsi F.l. f Laugum,
en það er upphitaö og i eld-
húsi er gas til eldunar og
áhöld. Ekið að Sigöldu og
gengið þaðan á skíðum til
Lauga (25 km). Feröafélagið
annast flutning á farangri.
Þrir dagar um kyrrt I Laugum
og tíminn notaður til skíöa-
gönguferöa um nágrennið.
3) Þórsmörk, 31. mars-2. aprfl
(3 dagar).
4) Þórsmörk, 2. aprfl-4. aprfl
(3 dagar).
5) Þórsmörk, 31. mars-4. aprfl
(5 dagar).
í Þórsmörk er gist i Skagfjörðs-
skála/Langadal. Hann er upphit-
aður, svefnloft stúkuð, tvö eld-
hús með öllum óhöldum og rúm-
góð setustofa. '
Upplýsingar og farmiðasala á
skrífstofu Ferðafélagsins, öldu-
götu 3.
Brottför f allar ferðimar er
kl. 08 að morgni.
Til athugunar: Ferðafélagið hef-
ur tvo gæslumenn i Landmanna-
laugum i mars og april. Nú er
kjörið tækifæri fyrir þá sem eiga
vetrarfri að dvelja i Laugum og
hafa skíðin meö. Þarna er nægur
snjór til skiöagönguferða. Sælu-
húsið er upphitaö. Eldhús með
öllum áhöldum. Heitur lækur
ekki langt frá húsinu. Gæslu-
menn F.L annast flutning á far-
angri til og frá Sigöldu, en þang-
að er auövelt að komast á bíl.
Leitið upplýsinga á skrifstofu
Ferðafélagsins, Öldugötu 3 eða
hjá húsvörðum í Laugum gegn-
um Gufunesradió.
Ferðafélag íslands.
i kvöld kl. 20.30 verður almenn
samkoma i Þríbúðum, Hverfis-
götu 42. Fjölbreytt dagskrá með
miklum söng. Kórinn tekur lagið.
Samhjálparvinir gefa vitnisburð
mánaðarins. Allir velkomnir.
Samkoman sem vera átti í
Þríbúðum á sunnudag kl. 16.00
færist til og veröur ( Fíladelfiu-
kirkjunni kl. 20.00 sama dag.
Samhjálp.
Almenn samkoma
Almenn lofgjörðar- og vakning-
arsamkoma verður i Grensás-
kirkju i kvöld kl 20.30. Prédikun:
Séra Guömundur Örn Ragnars-
son. Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SIMAR11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag-
inn 27. mars:
1) Kl. 10.30 Bláfjöll - Kleifar-
vatn / skíðaganga.
Ekið að þjónustumiðstöðinni i Blá-
flöllum og gengið þaöan. Þeir sem
ætla í skíðagönguferðina til Land-
mannalauga ættu að nota þessa
ferð til undirbúnings. Verð kr. 800.
2) Kl. 13.00 Fjallið eina - Sand-
fellsklofi - Sveifluháls.
Ekið um Krýsuvikurveg að
Hraunhól, gengiö þaðan á Fjallið
eina, siðan um Sandfellsklofa á
Sveifluháls. Létt og þægileg
gönguleið. Verð kr. 600.
Brottför frá Umferöarmiðstööinni,
austanmegin. Farmiðar við bil.
Frítt fyrir böm i fylgd fulloröinna.
Komiö með i dagsferöir Ferðafé-
lagsins, hæfileg áreynsla -
skemmtilegur félagsskapur.
Ferðafélag islands.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almennur bibliulestur í kvöld kl.
20.30. Atlir hjartanlega velkomnir.
VEGURINN
Kristið samfélag
Þarabakki 3
Bibliulestur og bænastund i
kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir.
m
Útivist,
Páskar í Þórsmörk
3 og 5 dagar. Góð gisting í Úti-
vistarskálunum Básum.
Páskar á Snæfellsnes
Snæfellsjökul 3 og 5 dagar. Gist
ó Lýsuhóli. Sundlaug.
Páskará Fimmvörðuhálsi
og Suöurjöklunum. Góð 5 daga
skíðagönguferð. Brottför 31.
mars kl. 9 og i Þorsmörk 2.
april. Það leiðist engum i Útivist-
arferö. Athl Það borgar sig að
gerast Útivistarfélagi, þvi félagar
fá afslátt af ferðum.
Fjallaferð f Noregi
20. ágúst, 9 dagar. Sætum
fækkar ört. Sjá nánar í frétta-
bréfi. Uppl. og farm. á skrifst.,
Grófinni 1, simar: 14606 og
23732. Sjáumstl
Útivist, ferðafélag.
Orð lífsins
Samkoma verður i kvöld kl.
20.30 á Smiðjuvegi 1, Kópavogi
(sama hús og Útvegsbankinn).
Allir velkomnir!
Aðalfundur
AD-KFUM og skógarmanna.
Athugið að fundurinn hefst kl.
20.00 á Amtmannsstíg 2b.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Allir karlar velkomnir.
§Hjálpræðis-
herinn
*) Kirkjustræti 2
I kvöld kl. 20.30. Almenn sam-
koma. Major Gilbert Ellis æsku-
lýðsleiðtogi og fru Reidun frá
Noregi syngja og tala.
Föstudag kl. 20.00. Bæn og lof-
gjörð (hjá Sigríöi) i Höröalandi 4.
Allir velkomnir.