Morgunblaðið - 24.03.1988, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
FERNIINGARTILBOÐ
4f BUZZARO skíði
Stærðir: 160-180 cm
með
skíðabindingum
kr. 5.800.-
% 5^ -r.
útiUf
Glæsibæ, sími 82922.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir STEVE VINES
Agreiningnr um
sjálfstæði Taiwans
Það mátti sjá það á hópi bænda, sem safnazt höfðu saman spari-
klæddir fyrir utan aðalstöðvar Kuomintang (KMT), stjórnar-
flokksins á Taiwan, í lok febrúar að gamlir siðir gleymast seint.
Þótt flokkurinn sem farið hef-
ur með öll völd á Taiwan frá
árinu 1949 hafi nú tekið upp
umbótastefnu, er honum enn tamt
að styðjast við aðgerðir sem
minna á liðna tíma. Umbótastefn-
an nýja heimilar fjöldafundi og
kröfugöngur á götum úti, en auk
þess telur KMT sér skylt að skipu-
leggja vandlega sviðsettar stuðn-
ingsaðgerðir eins og samkomu
bændanna, sem átti að sýna þakk-
læti í garð flokksins fyrir stefnuna
í málum stijálbýlisins.
Sá sem mestu hefur áorkað við
að leiða KMT inn í nútímann og
neyða flokkinn til að gangast við
svipaðri þróun á stjómmálasvið-
inu og orðið hefur í efnahagsmál-
um — sem gert hefur Taiwan að
einni mestu verzlunarþjóð verald-
ar, er Chiang Ching-kuo forseti,
sonur þjóðsagnapersónunnar Chi-
ang Kai-sheks.
Þegar hann lézt í janúar s.l.
óttuðust margir að dregið yrði úr
skriði umbótanna, og að eftirmað-
ur hans, Lee Teng-hui, væri ekki
nægilega áhrifamikill til að halda
gömlu afturhaldsöflunum í KMT
í skefjum.
Fyrsti taiwanski forsetinn
Lee er vissulega ekki valds-
mannslegur að sjá. Hann er fyrsti
kínverski þjóðhöfðinginn sem er
kristinn. Lee er í söfnuði taiw-
önsku öldungakirkjunnar (Pres-
bytarian church), sem hefur verið
óvenju ötul við að boða aukið lýð-
ræði á Taiwan. Og það sem meira
er, Lee er fyrsti innfæddi Taiwan-
búinn sem gegnir forsetaembætt-
inu. Hann gerir reyndar lítið úr
því og segir: „Við erum öll
kínversk." En engu að síður er
honum fullljóst að þetta atriði
hefur úrslitaþýðingu þegar hann
þarf að leita stuðnings þeirra 80
hundraðshluta þjóðarinnar sem
einnig eru innfæddir Taiwanbúar.
Allt sem varðar þjóðemi Taiw-
anbúa er pólitískt tilfínningamál.
Lee forseti gekk svo langt að
segja að krafan um að Taiwan
verði lýst sjálfstætt og óháð ríki
væri hættulegasta pólitíska
vandamálið sem við væri að glíma.
KMT hefur haft hyggindi til að
koma á ýmsum umbótum áður en
kröfumar um umbætur komust í
hámæli, og þarmeð tekizt að slá
vopnin úr höndum stjómarand-
stöðunnar, sem sífellt er að verða
skipulagðari og samstæðari. Þess
vegna beinist athyglin nú í aukn-
um mæli að spumingunni um
sjálfstæði Taiwans, en í því máli
eru stjómarandstaðan og KMT
mjög á öndverðum meiði.
KMT þykist enn skipa einu lög-
mætu ríkisstjóm Kína og heldur
uppi hálf-ævintýralegu stjómkerfi
er endurspeglar þá kröfu. En
veruleikinn er smátt og smátt að
skjóta rótum í pólitísku lífí eyjar-
skeggja þar sem stjómin í Taipei
neyðist í auknum mæli til að við-
urkenna tilvem tveggja kínver-
skra ríkja á æ fleiri sviðum.
Aðskilin í tæpa öld
Taiwan hefur í raun verið óháð
Kína í nærri eina öld. Ching keis-
araveldið í Kína neyddist til að
afsala sér yfírráðum á eynni árið
1895, og næstu hálfa öld réðu
Japanir þar ríkjum, eða fram til
loka síðari heimsstyrjaldarinnar.
Arið 1949 flýðu svo hersveitir
Chiang Kai-sheks með leiðtoga
sínum til Taiwans eftir að hafa
beðið ósigur gegn her Mao Tse-
tungs á meginlandinu. Varð það
til þess að viðhalda aðskilnaði
þessara tveggja kínversku ríkja,
þar sem nýja stjómin á Taiwan
neitaði allri samvinnu við stjóm
kommúnista á meginlandinu.
Utgefandinn og stjómmála-
maðurinn Antonio Chiang heldur
því fram að flóttamennimir frá
komið honum í andstöðu við lög
landsins. Þetta veldur vararitara
flokksins, Chiou J-jen, engum
áhyggjum. „Auðvitað tökum við
nokkra áhættu," segir hann, en
hann teiur að tilvera andstöðu-
flokks sé ævinlega áhættusöm.
Ahættan vel þess virði.
Hann telur það vel þess virði
að taka þessa áhættu vegna þess
að „ástandið á Taiwan fer sífellt
versnandi". Hann segir að fullyrð-
ingar ríkisstjómarinnar um að
hún sé tákn alls Kínaveldis hafí
leitt til vaxandi einangmnar á
alþjóðavettvangi og spilli fyrir
framtíðarþróun á Taiwan. „Hvað
menningu okkar varðar erum við
kínverskir, við emm af kínversk-
um kynstofni, en ef við lítum á
stjómmálahliðina tel ég að við
séum ekki kfnverskir. Það má
Margir óttuðust, að hægt yrði á stjómmálaumbótunum á Taiw-
an, þegar helsti hvatamaður þeirra, Chiang Ching-kuo forseti,
sonur þjóðsagnapersónunnar Chiang Kai-sheks, lést í janúarmán-
uði siðastliðnum. Myndin er frá útförinni. Fjölskylda forsetans
krýpur við kistu hans.
meginlandinu hafí litið á Taiwan-
búa sem ónytjunga. „í raun er
KMT flokkur nýlendustefnunnar;
flokksmenn þekkja ekki þetta
þjóðfélag," segir hann.
Jaw Shau-kong er mjög vin-
sæll þingmaður og eindreginn
fylgismaður umbótastefnunnar
innan KMT. Hann gerir minna
úr þessum ágreiningi og segir að
tíminn hafí minnkað muninn á
innfæddum Taiwanbúum og að-
fluttum. „Hveijir em þeir inn-
fæddu?" spyr hann. „Þeir eru að
mestu afkomendur innflytjenda
sem komu frá meginlandinu fyrir
200 árum. Og hveijir eru þeir
aðfluttu? Þeir eru innflytjendur
og afkomendur þeirra, sem komu
frá meginlandinu fyrir 40 árum.“
Yao Chia-wen, formaður
stærsta stjómarandstöðuflokks-
ins, DPP, var fangelsaður fyrir
áróður, með öðrum orðum fyrir
að hvetja til sjálfstæðis Taiwans.
Hann telur að sjálfstæðismálið
snúist í raun um stjómkerfíð í
landinu. „KMT óttast að eftir að
þjóðin hefur fallizt á kröfu um
sjálfstæði landsins verði að taka
allt stjómkerfíð til endurskoðun-
ar,“ segir hann.
Flokksþing DPP verður haldið
í apríl, og þar verður tekin ákvörð-
un um hvort breyta á stefnuskrá
flokksins þannig að hún lýsi full-
um stuðningi við kröfuna um
sjálfstæði. Málið gæti auðveldlega
leitt til klofnings í flokknum og
bera okkur saman við Bandaríkja-
menn. Flestir forfeður þeirra
komu frá Evrópu, en þeir líta á
sjájfa sig sem Bandaríkjamenn."
í upphafí var KMT byltingar-
flokkur, hann hefur gefið komm-
únistum undir fótinn, en vísað
þeim síðan á bug, og svo staðið
uppi meðal sigurvegaranna eftir
að Japanir hörfuðu frá Kína í lok
síðari heimsstyijaldarinnar. Stutt
seta KMT við stjómvölinn í Kína
á árunum 1948-49 var viðburð-
alítil, en á Taiwan hefur flokkur-
inn seint og um síðir tekið sig á
og reynt að aðlagast breyttum
stjómmálaaðstæðum með því að
viðurkenna að tilvera hans bygg-
ist á áður framandi tilslökunum.
Sjálfstæðismálið, þetta um-
deildasta viðfangsefni stjómmál-
anna, er enn á ný komið á dag-
skrá, aðallega fyrir óviljandi til-
stuðlan KMT. Ef KMT er fær um
að leysa þetta vandamál án þess
að grípa til valdníðslu hefur flokk-
urinn sýnt og sannað að hann
hefur í raun aðlagað sig umbótun-
um. Ef ekki, er líklegt að aðgerð-
ir flokksins verði lítt frábrugðnar
aðferðum óvinarins í herbúðum
kommúnista handan Taiwan-
sundsins, sem er ekki síður and-
snúinn hugmyndinni um sjálf-
stæði Taiwans en hugmyndafræð-
ingar KMT.
Höfundur er blaðamaður hjá
brezka blaðinu The Obser-
ver.