Morgunblaðið - 30.03.1988, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.03.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988 21 nær 70% hvítra eru honum hlið- holl. Jackson er ekki aðeins þymir í augum repúblikana og íhaldss- amra demókrata í Suðurríkjunum, heldur einnig í augum fijálslyndra hvítra demókrata, sérstaklega gyðinga. Þeir sem eru andsnúnir Jackson gætu hins vegar sætt sig við að einhver annar blökkumaður yrði varaforsetaefni flokksins. Þar hefur Andrew Young, fyrrverandi sendiherra, verið nefndur. En það sem skiptir kannski mestu er að margir demókratar eru ekki til- búnir að taka þá áhættu að hafa blökkumann í framboði. Þeir benda á að fyrir fjórum árum hafi verið tekin svipuð áhætta með Geraldine Ferraro, við hlið Walters Mondales, með hrikaleg- um afleiðingum. Best sé að bjóða fram tvo hvíta karlmenn, t.d. Dukakis og Gore. Blökkumenn og repúblikanar Demókratar eru í klemmu því þeir þurfa á atkvæðum blökku- manna að halda til að vinna kosn- ingamar í nóvember. Þeir þurfa því að finna einhveija lausn sem allir geta sætt sig við, sem getur orðið erfitt. Og á sama tíma hafa repúblikanar gert sér grein fyrir því hve mikilvægt það er að eiga stuðning meðal blökkumanna og annarra minnihlutahópa. George Bush, varaforseti og að öllum líkindum forsetaefni þeirra, hefur þegar byijað að afla flokknum stuðning blökkumanna. Þó margir repúblikanar vilji lítið með atkvæði blökkumanna gera skilja æ fleiri forustumenn flokksins hve nauðsynlegt það er að fá stuðning þeirra. Margt bend- ir til að repúblikönum takist a.m.k. að einhveiju leyti að auka fylgið meðal þeirra. Arið 1948 skiptust blökkumenn jafnt á milli demókrata og repúblikana og fyrir 1940 studdi meirihluti þeirra repúblikana. Síðustu flóra áratugi hefur þetta breyst en á undanfömum árum hefur mátt merkja breytingar sem lofa góðu fyrir repúblikana. Joint Center for Political Studies, rann- sóknarstofnun sem einbeitir sér að viðfangsefnum tengdum blökkumönnum, gerði á síðasta ári könnun þar sem kom fram að þrír fjórðu blökkumanna líta á sig sem demókrata, mun færri en áður. Aðeins 40% þeirra segjast vera sannfærðir demókratar á móti 50% árið 1986 og 55% 1984. Það em fyrst og fremst þeir eldri meðal blökkumanna sem styðja demókrata. Um 25 þeirra sem eru á aldrinum 18 til 29 ára segjast vera sannfærðir demó- kratar en 20% repúblikanar. Þessi aldurshópur er um þriðjungur af blökkumönnum og til þeirra ætla repúblikanar að leita eftir stuðn- ingi. I háskólum fer stuðningur blökkumanna við Repúblikana- flokkinn vaxandi. Samkvæmt rannsóknum ættu repúblikanar að eiga jafnmikla -möguleika og demókratar á að ná hylli biökkumanna. Þeir eru eins og aðrir kjósendur og um- hugað um það sama, efnahags- mál, verðbólgu, skatta, vexti, auk góðrar menntunar, eiturlyf o.s.frv. Og þeir eru tiltölulega íhaldssamir: Flestir eru á móti fóstureyðingum, hlynntir bænum í skólum og á móti sérstökum kvótum fyrir minnihlutahópa. Repúblikanar þurfa ekki að breyta stefnuskrá sinni til að ná til blökkumanna. í komandi forsetakosningum skipta atkvæði blökkumanna miklu. Repúblikanar hafa allt að vinna en demókratar öllu að tapa. Takist þeim síðamefndu ekki að leysa Jackson-„vandamálið“ með friðsamlegum hætti eiga þeira fyrmefndu góða möguleika að tryggja sér verulegt fylgi meðal blökkumanna eða hvítra, sem ekki munu sætta sig við niðurstöður landsfundar demókrata. Höfundur er fréttaritari Morg- unblaðsins í Boston UKOMNI TESS GLÆSILEGUR ítalskur og franskur Neðst við Dunhaga, sími622230. Juksa-Robot Unique tölvuvinda sameinar marga góða kosti sem auðvelda veiðarnar Juksa-Robot Unique er ein fullkomnasta tölvuvinda sem fáanleg er (dag. Afkastamikil og fjölhæf, búin grunnkerfum s.s. botnveiöikerfi, tröppuveióikerfi, sjálfvirkt fiskileitunarkerfi og smokkfiskkerfi. Stillanleg veiöiþyngd, stillanlegt átak. Af lóðréttu stjórnboröi vindunnar er auövelt aö stjórna veiðikerfunum. Tölvuskjár sýnir upplýsingar um hvað er mikið úti af llnu og gefurtil kynna þegar fiskur er á og hvar hann tók. Vindan gefur hljóömerki (hálfa mln. þegar veiöiþyngd er náð og aftur þegar hún er komin upp. Þótt slökkt sé á Juksa-Robot vindunni, geymir hún allar innsettar skipanir og er tilbúin aö vinna eftir þeim þegar kveikt er á henni. En ofan á alla þessa kosti er Juksa-Robot Unique tölvuvindan létt (meðförum, ódýr (viðhaldi og sparneytin. Með vindunum fylgja allar festingar, rofi með öryggi, hlífðarpoki og notendahandbók á islensku. Greiðsukjör eða kaupleiga til 3ja ára. Þjónustuaöilar um land allt. JUKSA ROBOT UNIQUE tryggir góðan hlut. Öll rafmagnsþjónusta fyrir smábátaeigendur RAFBIORG 1 RAFVÉLAVERKSTÆÐI SÚÐARVOGI 4 SÍMI 84229 Mótorkerfi. Stiilanlegt veiðidýpi. Stillanlegur skakhraði, Stillt inn ákveðið dýpi og stillanlegur hraði upp. vindan fer og veiðir þar. Vindan getur talið i fetum, metrum eða föðmum. Skjárinn sýnir hvaða kerfi er i notkun. Botnveiðikerfi sem hentar við ýmsar veiðiaðf erðir. Tröppuveiðikerfi. Smokkfiskikerfi. Linan dregin inn í þrepum. Allur aukabúnaður fáanlegur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.