Morgunblaðið - 30.03.1988, Side 24

Morgunblaðið - 30.03.1988, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988 útflutningur verði ekki tímabær fyrr en um eða upp úr aldamótum. Það besta sem við getum gert er að vera í viðbragðsstöðu, reiðubúin að grípa tækifæri sem bjóðast kunna, en gera okkur jafnframt grein fyrir óvissunni, þannig að við kostum ekki of miklu til of snemma. Einmitt þetta, að vera viðbúinn án þess að kosta of miklu til of snemma, á að mínu mati að vera leiðarsnúra okkar í því að búa okk- ur undir þessa möguleika. Við eig- um að búa okkur skynsamlega und- ir útflutning á raforku, en kosta þó ekki mjög miklu til undirbún- ingsins meðan óséð er hvað verða vill í þeim efnum. Við eigum að vinna að þessum undirbúningi næstu árin, en láta ekki allt bíða, og verða svo ef til vill að vinna hann í tímahraki á mun dýrari hátt. Með núverandi tækni má flytja um 500 MW um einn sæstreng ef sjórinn, eða sævarbotninn, er notað- ur sem endurleiðir, og flutningurinn er ódýrastur með því að fulllesta strenginn. Árlegur orkuflutningur frá íslandi um einn streng yrði því um 3500 GWh ef reiknað er með um 7.000 h/a nýtingartíma, þ.e. að staða hans í breska raforkukerf- inu yrði hin sama og kjamorku- stöðva eða nýrra kolastöðva. Þess er því að vænta að raforkuútflutn- ingur frá íslandi verði margfeldi af 500 MW og 3.500 GWh/a. Telja má fullvíst, að komist raforkuút- flutningur frá íslandi á annað borð á, muni hann ekki staðnæmast við 500 MW og 3.500 GWh/a heldur vaxa fljótlega upp í a.m.k. 2.000 MW og 14.000 GWh/a. Við skulum nú líta lauslega á hvar fá má þessa orku. Orkugeta þeirra vatnsaflsvirkj- ana, sem nú eru í byggingu eða á verkhönnunarstigi, og líklegra jarð- gufuvirkjana eins og á Nesjavöllum og víðar, er um 4.900 GWh á ári. Árið 2005 yrði eftir af þessari orku- getu um 2.000 GWh á ári ef nýja álverið í Straumsvík verður reist. Ef fyrsti 500 MW áfanginn í út- flutningi kæmi á því ári vantar 1.500 GWh/a. Þær væru t.d. fáan- legar í efri hluta Þjórsár. Ef við nú hugsum okkur að útflutningur- inn vaxi í 2.000 MW og 14.000 GWh/a frá 2005 til 2015 vantar um 11.300 GWh/a árið 2015. Af þeim mætti fá um 8.000 GWh/a úr Jökulsá á Brú og 2.800 GWh/a yrðu að koma annarstaðar frá, t.d. úr efri og neðri hluta Þjórsár og frá jökulsánum í Skagafirði. Þá eru Hvítá, Markarfljót og fleiri ár enn ósnertar, svo að rúm væri fyrir annað álver, auk útflutningsins, ef menn svo kjósa. Verulegur útflutn- ingur getur þannig farið fram samtímis uppbyggingu stóriðju í landinu sjálfu. Hvemig eigum við að búa okkur undir þessa möguleika án þess að kosta of miklu of snemma til undir- búningsins? Mín tillaga er þessi: Við skulum setja okkur það mark, að hafa lokið árið 1995 for- rannsóknum á efri og neðri hluta Þjórsár, jökulsánum í Skagafirði og Jökulsá á Brú ásamt með Jökulsár- veitu á Fjöllum. Þessar forrann- sóknir kosta aðeins lítið brot af virkjunarundirbúningi í heild, en taka hinsvegar meirihluta alls þess tíma sem þessi undirbúningur í heild tekur. Og við skulum vinna þessar rannsóknir skipulega eftir sérstakri áætlun til þessa tíma. Með þeim hætti verða þær ódýrastar. 3. Verkefni Orkustofnunar í framtíðinni Ég mun nú að lokum víkja með nokkrum orðum að þeim helstu verkefnum og verkefnasviðum, sem ég tel að Orkustofnun þurfí að sinna á næstu árum, í ljósi þess sem ég hef nú rakið um horfur í íslenskum orkumálum. Lúkning fiskeldis- verkefnisins Fiskeldisverkefnið, sem við nefn- um svo í daglegu tali á Orkustofn- un, gengur út á að rannsaka hvar á landinu bestu skilyrðin eru frá náttúrunnar hendi til að ala seiði í vatni hituðu með jarðvarma og til að reisa matfiskstöðvar er geti tek- ið við hluta af þessum seiðum og alið þau í matfiskstærð. Auk sjálfs jarðhitans er hér um að ræða skil- yrði til að afla hreins og ómengaðs ferskvatns til seiðaeldisins og hreins sjávar til matfiskeldisins. Frá orku- sjónarmiði er hér um það að ræða að rannsaka skilyrði til að nýta jarð- varmann á nýjan hátt í atvinnu- skyni; hliðstætt notkun hans til iðn- aðar t.d. í Kísiliðjunni og víðar, því allt fiskeldi á íslandi byggist á jarð- varma, beint og óbeint. Vitneskja um þessi skilyrði er grundvallaratriði þegar velja skal stað fyrir fiskeldisstöðvar. Þær rísa nú í landinu með mikum hraða, sem kunnugt er, og stundum virðist þar farið meira af kappi en forsjá. Því er afar mikilvægt að sem fyrst verði tiltæk traust þekking á náttúrufars- legum skilyrðum til fiskeldis. Það kann að koma í veg fyrir fjárfest- armistök í þessari nýju atvinnu- grein, sem geta verið dýr og þarf ekki að koma í veg fyrir mörg slík til að rannsóknarkostnaðurinn skili séraftur. Áformað var af hálfu Orkustofn- unar að ljúka þessum rannsóknum á næsta ári, 1989, en ekki fékkst nægilegt fé til þess. Nú stefnum við að því að ljúka þeim 1990. Með tilliti til mikilvægis þessa verkefnis heiti ég á fjárveitingarvaldið að duga okkur nú sem fyrr, og þó enn betur, og hjálpa okkur til að ljúka því ekki síðar en árið 1990. Efling þekkingar á forða- fræði jarðhitans Með forðafræði jarðhitans er átt við fræðin um eðli jarðhitageym- anna, þ.e. rennslishætti og rennslis- leiðir heita vatnsins djúpt í jörðu; hvemig varminn flyst úr heitu berg- inu út í vatnsæðamar; hvernig efna- jafnvægi þessa vatns breytist með hitastigi og þrýstingi, og síðast en ekki síst hvemig langvarandi vinnsla, þ.e. vatnstaka úr jörðu, hefur áhrif á þetta allt. Forðafræð- in fjallar sem sé um hegðun jarð- hitageymanna og viðbrögð þeirra við langvarandi vinnslu. Jarðhitarannsóknir hér á landi hafa lengst af beinst að því að finna nýtanlegan jarðvarma svo nálægt notendum að nýting hans gæti ver- ið hagkvæm. Lengi vel þótti mönn- um sem allur vandi væri að baki þegar hitaveita var tekin til starfa. Nú er orðið ljóst að svo er ekki og vinnslan sjálf, einkum til lang- frama, úr sama jarðhitasvæði, hefur einnig sín vandamál: Lækkandi vatnsborð og hita í borholum, mengun heita vatnsins vegna þess að efnajafnvægi þess breytist, tær- ingar og útfellingar. Á undanföm- um ámm hafa jarðhitarannsóknir Orkustofnunar í vaxandi mæli beinst að slíkum vandamálum. Þótt þessi forðavandamál brenni heitast á einstökum hitaveitum, í mismunandi mæli þó eftir aðstæð- um, þá rista þau dýpra. Þau snerta einnig spuminguna um það, á hvern hátt jarðvarminn verði best nýttur fyrir þjóðarbúið í tengslum við aðra orkugjafa, vatnsorku og innflutt eldsneyti. Við höfum tiltækar að- ferðir til að meta verðmæti orkunn- ar sem geymd er í vatninu í Þóris- vatni og öðrum miðlunaruppistöð- um, og getum stýrt notkun þess í samræmi við það verðmæti. Én við höfum enn engar sambærilegar aðferðir til að meta verðmæti varm- ans í jörðu. Þetta verðmæti er þó grundvallaratriði við skynsamlega stýringu á vinnslu jarðvarmans, al- veg á sama hátt og vatnsvirðið við rekstur vatnsaflsstöðvakerfísins. Þetta er bersýnilega ekki viðunandi hjá þjóð, þar sem jarðvarminn er stærri þáttur í orkubúskapnum en hjá nokkurri annarri í veröldinni. Það er því mikil þörf fyrir rannsókn- ir í svonefndri forðafræði jarðhitans í framtíðinni, og þar bíður Orku- stofiiunar mikið verk, sem hún verður að hafa forystu um að vinna, enda þótt fleiri muni þar leggja hönd á plóg. Jarðhitadeild Orku- stofnunar undirbýr af þessum sök- um sérstakt átak til að efla þekk- ingu okkar á þessu sviði; átak, sem mun standa í nokkur ár og verður eitt af okkar forgangsverkefnum í næstu framtíð. Nú er unnið að fyrsta hluta þessa átaks, í samvinnu við einstakar hitaveitur og Samband íslenskra hitaveitna. Það er í því fólgið að 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 GWh 8000 7000 4. Mynd B Iðnaður □ Laxeldi m Ylr*kt a Snjóbrsðsla m Sundlaugar m Húshitun 1986 1990 1995 2000 2005 2010 2015 stórbæta svonefnt vinnslueftirlit hitaveitna; þ.e. kerfisbundna söfnun upplýsinga um dælt vatn úr jörðu, vatnsborð í borholum, hitastig vatnsins og efnainnihald þess. Þessi gagnasöfnun er grundvöllur forða- fræðirannsókna, en hún þjónar þó ekki einvörðungu þeim tilgangi, heldur er hún einnig grundvöllur undir vönduðum rekstri hitaveit- unnar sjálfrar. Nokkrar hitaveitur hafa þegar tekið upp slíkt tölvu- vætt gagnasöfnunarkerfi og Orku- stofnun aðstoðað þær við það verk; nú nýlega Hitaveia Sauðárkróks til dæmis. Gagnabankar í tímans rás hafa safnast hjá Orkustofnun miklar upplýsingar um orkulindir landsins og orkubúskap þjóðarinnar, sem koma því aðeins að fullum notum að þær séu að- gengilegar, bæði fyrir starfsmenn stofnunarinnar og aðra, sem á þeim þurfa að halda. Við hyggjumst því vinna að því á næstu árum að koma á fót gagnabönkum með þessum upplýsingum þar sem beitt verður nýjustu tækni til að auðvelda að- gang að þeim. Þetta verður eitt af okkar forgangsverkefnum á næst- unni. Samhengi orkubúskapar og þjóðarbúskapar Það er gömul reynsla að sam- hengi er milli orkubúskapar og þjóð- arbúskapar. Á uppgangstímum í þjóðarbúskapnum, þegar vel árar, eykst orkunotkun yfirleitt; sérstak- lega raforkunotkun. Þannig jókst raforkunotkun til almennra þarfa hér á landi um 7,5% á síðasta ári, þegar leiðrétt hefur verið fyrir hita- stigi, sem er meiri vöxtur en um mörg ár á undan. Enginn vafi er á að þetta stendur í sambandi við undanfarið efnahagslegt góðæri. Þrátt fyrir þetta fer því fjarri að fast, vel þekkt samhengi sé á milli orkunotkunar og t.d. landsfram- leiðslu. Þetta samhengi er í senn mismunandi eftir löndum og breyti- legt með tíma. Á tímabilinu 1950— 1973 jókst orkunótkun í flestum OECD-löndum um 1% eða meira fyrir hvert 1% sem landsframleiðsl- an jókst um, en eftir 1973 hefur orkunotkunin ekki aukist nema um 0,7% að jafnaði, eða þar um bil, fyrir hvert 1% sem landsframleiðsla vex um. Breytingin í raforkunotkun er þó mun meiri en orkunotkunar í heild, sem þýðir, að hlutur raforku í heildamotkun orku fer stöðugt vaxandi. Orsökin fyrir þessari þróun er tvíþætt. í fyrsta lagi er að nefna hagkvæmari orkunýtingu; spar- neytnari notkunartæki á heimilum, í samgöngum, iðnaði og þjónustu, þannig að eftir því sem eldri tæki ganga úr sér og ný koma í staðinn minnkar raforkunotkunin að öllu öðru óbreyttu. Á móti þessu kemur svo að raforka ryður burt öðrum orkugjöfum hjá notendum; menn fara t.d. að hita með rafmagni í stað olíu eða nota rafmagn í stað olíu í ýmsum iðnferlum. Hér ræður verðið ekki eitt vali orkugjafa. Þægindi rafmagnsins, auðveldleiki þess og hreinlæti í notkun, hefur æ meira að segja með batnandi efna- hag. Þetta er reynslan um allan heim. Annar orsakaþáttur er svo breytt samsetning landframleiðslunnar með minnkandi hlutdeild iðnaðar og vöruframleiðslu, sem oft er orkufrek starfsemi, en vaxandi hlutdeild ýmiskonar þjónustu, sem er yfirleitt ekki eins orkufrek. Þess- ar breytingar eru þó ekki einhliða til lækkunar, því að stöðugt koma til nýjar tegundir þjónustu,- sem ekki voru til áður, og þurfa sína orku. Kröfur um meiri umhverfis- vemd eru gott dæmi um slíka nýja þjónustu. Margskonar hreinsitæki, sem nú þykja sjálfsögð eða a.m.k. æskileg, nota allmikla raforku og hreinni útblástur bíla léiðir að öðru jöfnu af sér meiri bensínnotkun. Samhengi orkubúskapar og þjóð- arbúskapar er þannig margslungið og flókið og líka mjög breytilegt frá einu landi til annars. Á tímum mik- illa og örra breytinga í atvinnuhátt- um og lífsháttum er það bersýnilega grundvallaratriði, þegar spá skal fyrir um orkunotkun I framtíðinni, að þekkja sem best þetta sam- hengi. Fortíðin hefur æ minna gildi til viðmiðunar; reynslan verður æ gagnsminni eftir því sem breyting- amar eru örari og djúptækari. Margar þjóðir hafa því lagt á það áherslu að kanna sem rækilegast samhengi orkubúskapar og þjóðar- búskapar hjá sér. Hér erum við ís- lendingar eftirbátar og þurfum að taka okkur á. Orkustofnun mun því á komandi árum leggja áherslu á orkubúskaparrannsóknir, og á að efla í því skyni Orkubúskapardeild- ina. Náskylt þessu er svonefndur orkuspamaður, sem ég kýs fremur að nefna hagkvæma notkun orku. Orkumannvirki eru dýr og það get- ur stundum verið allt eins hag- kvæmt fyrir þjóðarbúið að komast hjá að reisa ný orkumannvirki með hagkvæmari nýtingu þeirrar orku sem til er. Það reikningsdæmi er þó langt frá því að vera einfalt, og miklu máli skiptir að unnt sé að meta raunsætt kostnað við hag- kvæmari orkunotkun, bæði til skemmri og lengri tíma. Rannsókn- ir á sviði hagkvæmrar orkunýtingar og miðlun upplýsinga um hana verður því eitt af áhersiusviðum Orkustofnunar í næstu framtíð. Lúkning’ rannsókna á nýjum virkjunum vegna álvers Áður er á það minnst að eftir er að ljúka vissum rannsóknum á þeim virkjunarstöðum vatnsorku og jarðhita, sem teljast vera á verk- hönnunarstigi, áður en þessar virkj- anir verða tilbúnar til útboðs. Nú er að því unnið, í samráði við Lands- virkjun, að meta hve mörg ársverk eru eftir í rannsóknum til lokahönn- unar og útboðs á hveijum stað. Nauðsynlegt er að ætla nægan tíma til að ljúka þessum rannsóknum, og er skynsamlegt að byija á þeim strax og líkur aukast á að af nýju álveri verði; áður en endanleg ákvörðun er tekin um að reisa það, því eftir það er lítill tími til stefnu. Rannsóknir vegna útflutn- ingsáraforku Hér að framan gerði ég þá tillögu að við skyldum búa okkur undir útflutninng á raforku í framtíðinni, án þess þó að kosta of miklu til of snemma, og stakk upp á því, að við skyldum setja okkur að hafa lokið forrannsóknum við efri og neðri hluta Þjórsár, jökulsárnar í Skagafirði og við Jökulsá á Brú árið 1995. Nú er að því unnið að áætla hve mikið verk hér er um að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.