Morgunblaðið - 30.03.1988, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988
43
Sverrir sagði að hann hefði án-
ægðu af því að leggja stærðfræðileg
vandamál fyrir tölvu. Hann var því
spurður hvaða tölvumál hann not-
aði. Hann sagði að nú um stundir
notaði hann Turbo-pascal. Auk
þessara áhugamála teflir Sverri
dálítið. Aðspurður sagist Sverrir
ætla að nema stærðfræði og e.t.v.
tengja það nám með einhverjum
hætti við tölvufræði.
Reynir á skilning og
rökrétta hugsun
Halldór Arnason varð í þriðja
sæti í keppninni. Hann stundar nám
á eðlisfræðideild I við Menntaskól-
ann i Reykjavík.
Aðspurður upplýsti Halldór
Morgunblaðsfulltrúann um það að
áhugi á keppninni væri hvað mestur
meðal nemenda í eðlisfræðideild I.
Halldór sagði að keppnin hefði
reynst léttari heldur en hann hefði
búist við. Fjórða dæmið hefði hon-
um fundist erfiðast að þessu sinni.
Stærðfræðin er höfðuðáhugamál
Halldórs og fékk hann ekki undan
því vikist að svara þeirri spurningu
Morgunblaðsins, hvað það væri við
stærðfræðina sem höfðaði sérstak-
lega til hans. „Stærðfræðin reynir
á skilning og rökrétta hugsun, hún
er meira en utanbókarlærdómur."
Halldór vildi ekki gera upp á milli
hinna ýmsu sviða stærðfræðinnar
og taldi þau flest verðug viðfangs-
efni.
Hann sagðist enn ekki hafa
ákveðið í hvaða framhaldsnám hann
færi en gerði frekar en ekki, ráð
fyrir að, verkfræði eða stærðfræði
yrði fyrir valinu.
Blaðamaður Morgunblaðsins
innti Halldór eftir því hvort hann
kynni einhveijar skýringar á litlum
hlut kvenna í stærðfræðikeppninni
Arní G. Hauksson.
en aðeins einn kvenmaður var í
hópi níu efstu. Hann svaraði blaða-
manni því til að þetta horfði í fram-
faraátt, þetta væri einni fleira held-
ur en í fyrra. Af tuttugu og einum
nemanda í sínum bekk, væru þrír
kvenmenn. Stúlkumar sæktu meira
í máladeild.
Ekki hægt að ritskoða
Ámi G. Hauksson stundar nám
á eðlisfræðibraut við Menntaskól-
ann á Akureyri og hlaut fjórða
sætið í úrslitakeppninni. Þegar
stærðfræðikennarinn kynnti keppn-
ina reyndist vera mikill áhugi með-
al nemenda á þátttöku í keppninni.
U.þ.b. helmingur af bekkjarfélögum
hans tók þátt í keppninni.
Áma fannst keppnin ekki hafa
verið neitt sérstaklega erfið. Hann
var inntur eftir því hvað það væri
við stærðfræði sem höfðaði sérstak-
lega til hans. Hann svaraði því til
að í stærðfræði væri þess ekki kost-
ur að ganga framhjá eða breyta
staðreyndum eins og vildi stundum
t.d. brenna við í söguritun. Stærð-
fræði yrði trauðla ritskoðuð.
Árni vildi ekki gera upp á milli
hinna margvíslegu greina stærð-
fræðinnar. En hann stefnir að því
að læra eðlisverkfræði í framtíð-
inni. Árni saði aðspurður að hér í
eina tíð hefði hann teflt skák. í
seinni tíð hefði áhugi á íþróttum
eflst nokkur en væri þó mjög hóf-
legur. Hann hefur ekki keppnisá-
huga á því sviði.
Talið frá vinstri, Reynir Axelsson, Jón Magnússon sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskóla íslands, nokkrir efstu keppendanna,
Páll Siguijónsson og Birgir ísleifur Gunnarsson. Morgunbiaðið/Sverrir
TVENKT SEM
KEPPINAUTARNIR GETA
EKKISTÁTAÐ AF
SANYO VM-DIP
The choice of best camcorder
°V?or its image, quality, features,
lieht weight - and £1100 pncetag
lleSanyoVM-DlPisdieWhat
Video Camcorder of the Year.
Jan.'88
VIDEO OF THE YEAR
SANYO VHR-DMO
Sanyo are to be congratulated for
taking the technology to its present
extreme and, we can hope, showina
the way towards what is to come.
it will have to be very special to
outshine the Sanyo VHRD500.
Dec.'87
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 - Sími 69 16 00
N
Y
J
A
B
Y
L
G
J
A
N
I
J
A
P
A
N
S
K
R
I
T
Æ
K
N
I