Morgunblaðið - 18.05.1988, Side 2

Morgunblaðið - 18.05.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 Morgunblaðið/BAR Hunangsflugudrottning af gerðinni „Bombus hortorum“, sem er önnur hinna aðfluttu tegunda, er hafa tekið sér bólfestu hér á landi að undanförnu. Drottningarnar komnar á kreik: Lögreglan kvödd að húsi til að handsama hunangsflugu Tvær nýjar tegundir hafa numið hér land LÖGREGLAN í Reylyavík var köUuð í óvenjulegt útkaU síðast- Uðinn sunnudag er fjarlægja þurfti hunangsflugudrottningu úr ibúð f borginni. Þótti húsráð- endum sem hér væri um óveiyu stóra flugu að ræða og töldu vissara að yfirgefa fbúðina þar tíl lögreglan hafði „handtekið" hinn óboðna gest. „Þetta var myndarfluga og við slepptum henni fljótlega eftir að komið var með hana hingað niður á stöð,“ sagði Einar Bjarnason varðstjóri í samtaU við Morgun- blaðið. Hann sagði það ekki einsdæmi að lögreglan væri kvödd í hús tU að fjarlægja óboðna gesti úr dýraríkinu, en oftast væri þar um að ræða rottur og mýs. Morgunblaðinu hefur borist talsvert af fyrirspumum undan- fama daga varðandi hunangs- flugur og þykir mönnum helst að þær séu óvenju margar og stórar í ár. Að sögn Jóns Gunnars Ottós- sonar, líffræðings hjá Skógrækt ríkisins, em drottningamar nú á kreiki við að byggja sér bú eftir að hafa legið í dvala yfir vetur- inn. Þær hverfa svo af vettvangi innan skamms og þemumar, sem em miklu minni, taka til við að safna í búið. Jón Gunnar sagði að ein af ástæðunum fyrir því að fólk yrði meira vart við hunangs- flugur nú en áður væri að tvær nýjar tegundir hefðu nú tekið sér bólfestu hér á landi, og væm þær stærri en gamla íslenska hun- angsflugan. „Fyrir 1974 var að- eins ein tegund af hunangsflugu hér á landi, svokölluð „Bombus jonellus". Síðan hafa tvær bæst við, „Bombus hortomm" og „Bombus Iueomm". Þessar tvær aðkomnu flugur hafa stærri kjálka en sú sem fyrir var og eiga betur með að vinna á ýmsum nýjum tegundum blóma, sem á undanfömum ámm hafa verið að ryðja sér til rúms í görðum hér á landi," sagði Jón Gunnar. Hann sagði að flugumar hefðu líklega borist hingað til lands með gáma- skipum og væm komnar til að vera enda ágæt skilyrði fyrir þær hér á landi. í góðu árferði, eins og verið hefur hér undanfarin ár, hefur þeim fjölgað talsvert og væri það önnur ástæða fyrir því að þær væm meira áberandi nú en oft áður. „Hins vegar er full ástæða til að benda fólki á að hér er ekki um neina skaðræðisgripi að ræða,“ sagði Jón Gunnar enn- fremur. „Þessar flugur forðast að stinga enda er þeim bráður bani búinn við það og þeim er annt um jíf sitt eins og okkur mönnyn- um. Það er þá helst ef þær em áreittar að þær grípa til þess ör- þrifaráðs að stinga. Þegar þær villast inn í íbúðir reyna þær umfram allt að komast út aftur og besta ráðið til að hjálpa þeim við það er að hvolfa yfir þær glasi, stinga pappa á milli og hleypa þeim sfðan út“, sagði hann. Aðspurður sagði Jón Gunnar að engin hætta væri á að hinar að- komnu tegundir útrýmdu litlu íslensku hunangsflugunni enda rækjust hagsmunir þeirra við fæðuöflun ekki á og hunangs- flugur legðu það ekki í vana sinn að ráðast á ættingja sína. Vegna stærðar þeirra hunangs- flugna, sem verið hafa á kreiki að undanfömu, hafa margir talið að hér væri um geitunga, sem sumir kalla vespur, að ræða. Jón Gunnar sagði að vitað væri um tvær tegundir geitunga sem væm orðnar landfastar hér á landi en geitungar væm sjaldséðir á þess- um árstíma. „Það er ekki fyiT en á haustin sem geitungar fara að láta á sér bera, eftir að þeir hafa sinnt bústörfum um sumarið. Þeg- ar því er lokið á haustin hafa þeir ekkert annað að gera en að flögra um.“ Flugvirkjar með verkfallsheimild ALMENNUR félagsfundur í Flugvirkjafélagi íslands sam- þykkti verkfaUsheimild til handa stjórn og trúnaðarráði félagsins í gær. Vinnuveitendasamband íslands vísaði fyrir hönd Flug- leiða kjaradeiiu við félagið og félög flugmanna og flugfreyja tíl ríkissáttasemjara fyrir helgi. Tvö síðarnefndu félögin hafa ekki aflað sér verkfallsheimild- ar. Fundur hefur enn ekki verið boðaður i deilunni hjá ríkissátta- semjara. Ragnar Karlsson, formaður samninganefndar Flugvirlq'afélags- ins, sagði að tveir fundir hefðu ver- ið haldnir í deilunni, þar sem í raun og vem hafi ekki verið reynt að semja, áður en Flugleiðir tóku þá ákvörðun að vísa deilunni til ríkis- sáttasemjara. Aðspurður um kröfur félagsins sagðist hann ekki vera tilbúinn til þess að skýra frá þeim. Samningur flugvirkja hefur verið laus frá áramótum og sagði Ragnar að tilboð Flugleiða hefði falið í sér kjararýmun. Úrslit kosninga SÍNE: Bandaríkjanemar í neðstu sætunum ATKVÆÐI voru talin S gær S kosningum til sijómar SÍNE. Einn fimmti félagsmanna greiddi atkvæði og fékk Sigurð- ur Jóhannsson flest atkvæði. Evrópunemar skipa efstu sætin en Bandaríkjanemar þau neðstu. Meðlimir í SÍNE em um tvö þús- und talsins. 354 bréf bámst og greiddu samtals 388 atkvæði. 22 atkvæði vou auð og ógild. Kosningamar fóm þannig; Sig- urður Jóhannesson 285 atkvæði, Sigríður Guðbrandsdóttir 253, Hólmfríður Garðarsdóttir 250, Páll Þórhallsson 246, Jón Ólafsson 214, Guðrún Kr. Guðfinnsdóttir 165, Jónas Egilsson 118, Friðrik Ey- steinsson 115, Belinda Theriault 112, Birgir Þór Runólfsson 82 og Óskar Borg 79 atkvæði. Sjö efstu ná kjöri til stjómar en nemar frá Bandaríkjunum skipuðu neðstu sætin. Félagar í SÍNE greiddu einnig atkvæði um tillögu stjómar um hækkun félagsgjalda. Sú tillaga var felld með 169 atkvæðum gegn 151. Snögg umskipti nyrðra eftir veðurblíðuna Einhverra breytinga að vænta á veðri um næstu helgi GERA má ráð fyrir að einhveijar breytingar verði á veðri á landinu um næstu helgi og að bregða muni til sunnanáttar. Undanfama daga hefur verið mjög kalt á norðanverðu landinu, hiti rétt ofan við frostmark yfir daginn en undir þvi á nóttunni. Þar hefur verið heldur hlýrra inn til landsins en með ströndinni. Fram til föstudags er gert ráð fyrir frekar svölu veðri á norðan- verðu landinu en að sæmilega hlýtt verði syðra. Víða á norðan- og norðaustan- verðu landinu urðu mikil umskipti á veðrinu eftir hlýindi helgarinnar. Á Vopnafirði naut fólk veðurblíð- unnar um helgina og þótti aðgerðir veðurguðanna harkalegar þegar hitinn fór niður undir frostmark í gær og fyrradag. Þó telja menn þar að sumarið sé rétt við bæjardymar. Sömu sögu var að segja frá Raufar- höfn þar sem fólk var í sólbaði um helgina. Ekki em menn þó svart- sýnir, telja svona kulda eðlilegan í maí. Kristján Þórhallsson fréttaritari Morgunblaðsins í Mývatnssveit sagði að svo virtist sem gróður hefði tekið við sér í hlýindunum um helgina, þó ekki væri það mikið. 20 stiga hiti var í Mývatnssveit um helgina en í gær var þar 7 stiga hiti og gola á norðan. Kristján sagði að ísinn hefði farið af Mývatni í hlýindunum og það væri nú alveg íslaust. Að sögn viðmælenda blaðsins er lítið sem ekkert farið að grænka fyrir norðan og er svölu veðri og næturfrosti um kennt. Beðið um skýrslu um gjaldeyriskaup: Landsbankinn seldi gjald- eyri fyrir 850 milljónir RÍKISSTJÓRNIN hefur beðið Seðlabankann um upplýsingar um það hverjir það voru sem keyptu gjaldeyri fyrir 2‘/2 millj- arð fyrstu þijá dagana i siðustu viku. Þessar upplýsingar hafa ekki fengist en Þorsteinn Páls- son forsætisráðherra sagði við Morgunblaðið i gær að bankarnir hefðu tjáð ríkisstjórninni að um mjög breiðan hóp hefði verið að ræða. Jón Baldvin Hannibalsson, sem gegnir störfum viðskiptaráðherra í fjarveru Jóns Sigurðssonar, hefur óskað eftir skýrslu frá Seðlabank- anum um gjaldeyrisútstreymi fyrstu þijá daga síðustu viku. f þeirri skýrslu á að koma fram hvaða aðilar það vom, sem keyptu gjald- eyri þessa daga. Skýrslunnar er vænst í dag. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var mest keypt af gjald- eyri í Landsbankanum þessa daga, eða fyrir 850 milljónir króna. I Búnaðarbankanum var keypt fyrir 625 milljónir króna, í Útvegsbank- anum fýrir 500 milljónir króna, í Iðnaðarbankanum fyrir 444 milljón- ir króna, í Samvinnubankanum fyr- ir 55 milljónir króna og í öðram bönkum og sparisjóðum fyrir 37,5 milljónir króna. Sigurður Jóhannesson yfirmaður gjaldeyriseftirlits Seðlabankans sagði við Morgunblaðið að þessar upplýsingar væm til staðar í tölvu- kerfi, en annar handleggur væri að ná þeim út og vinna úr þeim; til ÓVENJU mörg óhöpp urðu í umferðinni í Reykjavík á mánu- dag og fram á þriðjudagsmorg- un, eða 19. Þá slösuðust tvö börn, en ekki alvarlega. Þáð virðist sem meiri hætta sé á óhöppum þegar veðrið leikur við landsmenn en ella, enda gæta öku- þess þyrfti að beita tæknibrellum. Hann sagði að þetta væri mikið verk og sagðist ekki geta sagt hve- nær því lyki. , menn sín þá ekki jafii vel og þegar skyggni er lélegt og færð slæm. Þrettán ökumenn vom kærðir fyrir of hraðan aksturþennan sólarhring. Þar af óku tveir á 110 km hraða, eftir Kringlumýrarbraut og Hafnar- fjarðarvegi, og einn ók upp Hverfis- götuna á 105 km hraða. Þá reynd- Sjómaður slasast SJÓMAÐUR á togaranum Ými frá Hafnarfirði slasað- ist alvarlega þegar hann fékk á sig toghlera siðdegis í gær. Þyrla frá vamarliðinu sótti skipveijann um borð, en skipið var þá statt vestur af landinu út af Breiðafirði. Var hann fluttur á Borgarspftalann, þar sem hann gekkst undir aðgerð. ust þrír ökumenn réttindalausir og þrír ölvaðir. Sem fyrr sagði slösuðust tvö böm í umferðinni á mánudag. Ekið var á dreng á reiðhjóli á Freyjugötu og við Bólstaðarhlíð hljóp sex ára bam fyrir bifreið. Meiðsli þeirra vom ekki mikil. Mörg óhöpp í blíðunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.