Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
Listasafn íslands:
Aukin aðsókn skólabarna
í VETUR hefur fjöldi skólabarna
heimsótt Listasafn íslands og
skoðað sýninguna Aldarspegil.
Nemendur hafa notið leiðsagnar
safnakennara og jafnframt leyst
verkefni og gert sjálfstæðar at-
huganir á myndverkunum.
Rakel Pétursdóttir safnakennari
segir að markmið þessarra heim-
sókna sé að nemendur fái innsýn í
þróun íslenskrar myndlistar. „Ég
legg áherslu á að nemendur læri
Stjórn Iðnþróun-
arsjóðs skipuð
Iðnaðarráðherra hefur skipað
fulltrúa ríkisins í stjórn Iðnþró-
unarsjóðs til næstu þriggja ára,
dr. Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóra og varamann hans, Ragnar
Onundarson bankastjóra.
Jafnframt voru eftirtaldir menn
skipaðir í framkvæmdastjórn sjóðs-
ins til sama tíma samkvæmt tilnefn-
ingu: Valur Valsson bankastjóri,
formaður, Bragi Hannesson banka-
stjóri, Guðmundur Hauksson
bankastjóri, Björgvin Vilmundarson
bankastjóri og Stefán Hilmarsson
bankastjóri.
(Fréttatilkynning)
ýmislegt er varðar sjónmenntir og
íslenskt mál í leiðinni. Hjálpa þeim
að ræða um myndlist og skilja bet-
ur forsendur listamannsins og gera
sér betur grein fyrir því á hversu
ólíkan hátt listamenn tjá sig, og
hversu ólíkum aðferðum þeir vilja
beita. Ég fer varlega í að túlka list-
ina og vil að bömin upplifí hana á
sinn eigin hátt.
Hlutverk safna er ekki eingöngu
að varðveita muni heldur ber þeim
einnig skylda til að fræða og þetta
fræðsluhlutverk er mikilvægt í
samtímanum, því segja má að safn
sé spegill fortíðar og að hluta til
gluggi framtíðar", segir Rakel.
Síðan safnið við Fríkirkjuveg var
opnað í lok janúar hafa um 5000
nemendur í grunnskólum og fram-
haldsskólum heimsótt Listasafn Is-
lands og er það mikil aukning frá
því sem var.
Morgunblaðið/Ingólfur Friðgeirsson
Unnið við að slökkva eldinn i húsinu á Kirkjustíg 1 á Eskifirði. \
Eskifjörður:
íbúum bjargað
úr brennandi húsi
Eskifirði.
ELDUR kom upp í húsinu nr. 1
við Kirkjustíg á Eskifirði kl. 8 á
Heimilisverslim Húsasimðjunnar
œnar föstudaginn 27.maí...
• V*
JSt
\k
<
XI
-dagar þangað til við opnum!
Heimilisverslun Húsasmiðjunnar
- athafnasvæði atvmnumannsins!
HUSA
SMIÐJAN
mánudagsmorgun. Hjón og 14
ára sonur þeirra voru í íbúð á
efri hæð hússins og komust þau
ekki niður stiga að útgöngudyr-
um en var bjargað út um glugga
og út á þak viðbyggingar hússins.
Húsið á Kirkjustíg 1 er tvílyft
timburhús, nýlega uppgert. Á neðri
hæð hússins er verslun og mynd-
bandaleiga Stefáns Óskarssonar og
íbúð á efri hæðinni. Eldur mun
hafa komið upp í versluninni á neðri
hæð og urðu þar miklar skemmdir
á vörum og innanstokksmunum,
sem og á innviðum hússins, að sögn
Ásbjörns Guðjónssonar, slökkviliðs-
stjóra. Þá munu hafa orðið nokkrar
skemmdir af völdum reyks og sóts
í íbúðinni á efri hæðinni.
Vegfarandi varð eldsins var
fyrstur úm kl. 8 og var slökkviliðið
kom á staðinn örfáum mínútum
síðar. Slökkvistarf gekk mjög vel
og var niðurlögum eldsins ráðið um
kl. 9. Rannsókn fer nú fram á elds-
upptökum, sem enn eru ókunn.
Ingólfur.
Skólaslit
Trygginga-
skólans
TRYGGINGASKÓLANUM var
slitið miðvikudaginn 11. maí s.I.
Að þessu sinni lauk 21 nemandi
prófum frá skólanum, en 52 sóttu
námskeið á vegum hans á skóla-
árinu.
Við skólaslitin voru nemendum
afhent prófskírteini og Einar
Sveinsson, formaður Sambands
íslenskra tryggingafélaga, afhenti
tveim nemendum bókaverðlaun fyr-
ir góðan árangur. Verðlaunin hlutu
þau Sigríður Brynja Hilmarsdóttir,
frá Ábyrgð hf. og Pétur H. ÓLafs-
son, frá Samvinnutryggingum g.t.
Það er Samband íslenskra trygg-
ingafélaga sem starfrækir Trygg-
ingaskólann og standa tryggingafé-
lögin straum af kostnaði við rekstur
hans. Starfsemi skólans byggist á
lengri og skemmri námsskeiðum
fyrir starfsfólk félaganna og hafa
656 manns fengið prófskírteini frá
skólanum, sem hefúr starfað síðan
1962.
Skólinn gengst einnig fyrir
fræðslufundum og annast útgáfu-
starfsemi. Formaður skólanefndar
er Sigurjóri Pétursson.
(Úr fréttatilkynningu)
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN